Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR
286. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Réttarhöld í Kína:
Wang ját-
ar syndir
og biðst
vægðar
Peking. 20. desember. AP.
WANG Hongwen, yngsti með-
limur „fjórmenninnaklíkunnar"
játaði í dag á sig landráð fyrir
hæstarétti Kína. Ilann viður-
kenndi einnig að bera sök á
dauða hundruða manna í upp-
þotum í Shanghai á dögum
menningarbyltingarinnar.
Wang baðst vægðar fyrir réttin-
um. sagðist aðeins vera 45 ára
gamall og of ungur til að deyja.
Heimildir í Peking skýrðu frá
þessum játningum Wangs og
stingur játning hans mjög í stúf
við vitnisburð félaga hans i
„fjórmenningaklíkunni".
Ljósmynd: Hjörtur Nartason.
„Flokksforystan ber ábyrgð á
fylgistapinu“ — segir Nordli
Osló, 20. des., frá Jan Erik
Laure fréttaritara Mbl.
„ÞETTA er vondur dagur og leið-
togar flokksins bcra vissulega sína
ábyrgð á fylgisminnkuninni,"
sagði Odvar Nordli forsætisróð-
herra á blaðamannafundi í dag er
kunngerð voru úrslit skoðana-
könnunar Gallup-stofnunarinnar á
fylgi norsku stjórnmálaflokkanna.
en þar kom í ljós, að fylgi Verka-
mannaflokksins hefur hrapað stór-
um að undanförnu, og flokkurinn
nýtur ekki lengur fylgis flestra
kjósenda. hefur tapað fyrsta sæt-
inu til Hægri flokksins.
Nordli sagði, að eðlilegt væri að
viðræður hæfust hið snarasta um
hvert yrði forsætisráðherraefni
Þung sókn í
Panjshirdal
Peshawar. 20. desember. AP.
SOVÉZKAR OG afganskar hersveitir hófu þunga sókn upp Panjshir-
dal 11. desember sl„ að sögn ibúa í dalnum. er kumu til Pakistans í
gærkvöldi. Þeir sögðu fjölmennt herlið taka þátt í aðgerðunum, sem
væru umfangsmiklar. Ér hér um að ræða fimmtu tilraun sovézku
innrásarherjanna til að ná dalnum úr höndum frelsissveita Afgana,
en dalurinn er hernaðarlega mikilvægur.
flokksins við þingkosningarnar
næsta haust, einkum sína eigin
stöðu.
Stjórnmálaskýrendur segja enga
eina ástæðu vera fyrir fylgistapi
Verkamannaflokksins. „En það hef-
ur vissulega haft sín áhrif að
flokkurinn hefur verið sundraður í
vissum málum og djúpstæður
ágreiningur ríkir í mörgum þeirra,"
sagði Reiulf Steen flokksformaður.
Talið er að Steen hafi fyrst og
fremst átt við deiluna um geymslu
bandarískra vopna á norskri grund,
og einnig ágreininginn um skipan
flokksforystunnar, en þau mál verða
gerð upp á landsfundi flokksins í
vor.
Ágreiningur er í Verkamanna-
flokknum um forystuna, einkum
stöðu Steens. Búist er við að and-
stæðingar Steens stilli Gro Harlem
Brundtland upp við formannskjörið,
en Brundtland á mikið fylgi í
flokknum.
Jo Benkow leiðtogi Hægri fagnaði
úrslitum skoðanakönnunarinnar og
sagði að sundrungin í Verkamanna-
flokknum væri ekki dæmigerð fyrir
norsk stjórnmál, sterk samstaða
ríkti innan síns flokks. Hann vísaði
á bug vangaveltum um að Hægri
hefði í hyggju að mynda einn
minnihlutastjórn ef flokkurinn sigr-
aði í kosningunum næsta haust með
miklum mun.
Wang var á sínum tíma varafor-
maður kínverska kommúnista-
flokksins. Hann kom fyrir réttinn
ásamt Zhang Chungqiao, fyrrum
borgarstjóra Shanghai. Zhang
mælti ekki orð fyrir réttinum.
Þeir eiga yfir höfði sér dauðadóm,
verði þeir sekir fundnir. Það er
hins vegar hefð í kínverskum
dómsmálum, að sýni sakborningur
samstarfsvilja og játi syndir sín-
ar, þá hljóti hann mildari dóm.
Wang sagði fyrir rétti, að „fjór-
menningaklíkan" hefði haldið til
fundar við Maó formann árið 1974
og sagt honum, að Chou En Lai,
fyrrum forsætisráðherra landsins
og Deng Xiaoping væru með ráða-
gerðir uppi um að hrifsa til sín
völdin i landinu. Hann sagðist
einnig bera ábyrgð á dauða hundr-
uða manna í uppþotum í Shanghai
á árunum 1966 og 1967. Þá sagði
Wang, að „fjórmenningaklíkan"
hefði sett á laggirnar sérstakan
leyniher þegar þau tóku að óttast
um að verða undir í valdabarátt-
unni í landinu.
Andófsmaður
á hungurf östu
Berlín, Varsjá, 20. desember. — AP.
IIIN OPINBERA fréttastofa
Austur-Þýzkalands veittist i dag
að Andrzej Gwiazda einum
fremsta leiðtoga Samstöðu. sam-
taka óháðra verkalýðsfélaga i
Póllandi, og sakaði hann um að
Að sögn heimildarmannanna
hófust harðir bardagar á 60 km
kafla í dalnum í síðustu viku.
Afganskir fótgönguliðar og sov-
ézkir fallhlífarhermenn börðust
við frelsissveitirnar og nutu full-
tingis orrustuþota, árásarþyrla og
stórskotaliðs.
Diplómatar sögðu, að ráða
mætti af lýsingum heimildar-
mannanna, að um meiriháttar
aðgerðir væri að ræða af hálfu
Sovétmanna. Hefðu fjölmörg þorp
orðið fyrir sprengjuregni af landi
og úr lofti. Aðgerðirnar hófust
skömmu eftir árás frelsisaflanna
á herflokk er vann að viðgerð á
veginum inn í dalinn í dalsmynn-
inu.
Fyrri tilraunir innrásarherj-
anna til að ná dalnum úr klóm
frelsissveitanna hafa mistekist,
þrátt fyrir þunga sókn. Tangar-
hald afgönsku frelsisaflanna á
Panjshir-dal hefur valdið Sovét-
mönnum þungum þönkum, þvi
dalurinn tengir Nuristan-svæðið
sem frelsisöflin eru hvað sterkust
á og svæði þar sem bækistöðvar
sovézku herjanna í Afganistan er
fyrir að finna.
Korchnoi mótmælir skipan
Campomanesar sem dómara
Merano, Italiu. 20 deKember. AP.
VIKTOR Korchnoi, hinn land-
flótta sovéski stórmeistari, mót-
mælti i gær kroftulega skipan
Florencio Campomanesar, forseta
Skáksambands Filipseyja. sem
dómara í einvigi hans við Robert
Iliihner. Einvígi þeirra kappa um
réttinn til að skora á heimsmeist-
arann Anatoly Karpov, hefst i
dag í Merano á Italíu. Korchnoi
sendi Friðriki Ólafssyni, forseta
Alþjóða skáksambandsins skeyti.
þar sem hann mótmælti skipan
Campomanesar.
Korchnoi bar Campomanes
þungum sökum eftir einvígi hans
við Anatoly Karpov í Maníla.
Campomanes bar þá sem forseti
Skáksambands Filipseyja hita og
þunga af einvíginu. Korchnoi held-
ur því fram, að Campomanes hafi
dregið taum Karpovs í einvíginu og
að sá stuðningur hafi skipt sköpum
í einvígi þeirra um heimsmeistara-
titilinn í skák.
reyna að brjóta kapitalísku þjóð-
skipulagi leið i heimalandi sínu.
Fréttastofan ADN sagði það
ótvirætt koma i ljós i viðtali
vestur-þýzka blaðsins BILD við
Gwiazda, að hann vildi og stefndi
að þvi að koma kapitalisma á i
Póllandi.
Andófsmaðurinn Wojciech Zi-
embinski, sem situr í fangelsi
vegna mótmælaaðgerða við gröf
óþekkta hermannsins í Varsjá 11.
nóvember síðastliðinn, hóf hung--
urverkfall snemma í desember, að
því er stuðningsmenn hans sögðu í
dag.
TASS-fréttastofan sovézka
skýrði frá því í dag, að Jozef
Czyrek utanríkisráðherra Pól-
lands væri væntanlegur í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna seint í
mánuðinum. Búist er við að erindi
ráðherrans verði fyrst og fremst
að gefa sovézkum valdamönnum
skýrslu um ástandið í pólskum
innanríkismálum.