Morgunblaðið - 21.12.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1980
7
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson_______________79. þáttur
Sú óheppni varð í síðasta
þætti að niður féll ein lína,
þar sem tekið var upp úr
Kennsluskrá Háskólans.
Klausan átti að vera svo:
Greining og hönnun
stjórnkerfa með línulegum
og ólínulegum kerfiseining-
um, sem uppfylla ákveðnar
kröfur um svipult og stöðugt
viðbragð. Lýsing og skil-
greining á kerfishæfni, para-
metrisk bestun og bestun
kerfishæfni línulegra kerfa
með notkun kvaðratískra
gæðastuðla. Notkun lýsi-
fallaaðferðar við hönnun
ólínulegra kerfa; aðferðir
Liapunovs og Popovs.
Sýnitölukerfi og notkun
z-varpana við greiningu og
hönnun diskret kerfa."
Vegna þessarar óheppni
missir gagnrýni mín að
nokkru leyti marks, og eru
þeir, sem hlut eiga að máli,
beðnir afsökunar á þessu.
Jóhann Gunnarsson í
Reykjavík skrifar mér svo 7.
þ.m.:
„Komdu sæll.
I dag las ég í þætti þínum
um íslenskt mál í Morgun-
blaðinu eftirfarandi athuga-
semd: „Sögnin að skammta
tekur með sér þolfall. Hús-
freyja skammtar matinn.
Það telst rangt mál, er lesa
mátti í blaði, að Sláturfélag
Suðurlands hefði gripið til
þess ráðs að skammta því
(dilkakjötinu) á milli kaup-
manna."
Ég fellst á þá staðhæfingu
að „skammta því“ sé rangt
mál. En það var annað sem
stakk mig í augun. Það, að
hægt sé að skammta einhvað
á milli einhverra. Þetta
finnst mér vera rökleysa og
þess vegna rangt mál. Hér er
ruglað saman sögnunum „að
skammta" og „að skipta" og
tel ég þann rugling líklega
skýringu á rangri beygingu
fornafnsins í dæmi þínu.
Hægt hefði verið að orða
þetta á tvo vegu: ... „að
skammta það til kaup-
rnanna"
eða
... „að skipta því á milli
kaupmanna."
Vertu blessaður."
Þessu bréfi læt ég fylgja
fáar athugasemdir. Ég er
sammála Jóhanni um megin-
niðurstöðuna og vík betur að
henni á eftir. Hins vegar felli
ég mig ekki við orðmyndina
einhvað, sem bréfritari not-
ar. Ég segi og skrifa eitt-
hvað. Þarna trúi ég að sé um
að ræða áhrifsbreytingu frá
hinum kynjunum, einhver.
í annan stað þæþtti mér
betur fara á því, að sögnin að
skammta væri látin taka
með sér tvöfalt andlag
(þiggjanda og þolanda) held-
ur en andlag og forsetn-
ingarlið. Væri þá talað um að
skammta kaupmönnunum
kjötið. Okkur eru af mátt-
arvöldunum skömmtuð lífs-
gæðin.
Vík ég þá aftur að samrun-
anum sem Jóhann Gunnars-
son drap á. Dæmi um hann
eru ekki vandfundin. I klippu
sem Guðmundur Guð-
mundsson í Reykjavík sendi
mér, er þessi klausa:
„Fjallar um mann sem
missir minnið sökum höfuð-
áverka og reynir að komast á
sannir um hvort hann hafi
verið friðsæll borgari fyrir
slysið eða hættulegur
hryðjuverkamaður...“
Hér er ruglað saman orða-
samböndunum að komast á
snoðir um eitthvað og færa
einhverjum heim sanninn
um eitthvað eða vita eitt-
hvað með sanni.
Snoðir er aðeins haft í
fleirtölu, svo að ég viti, og er
vafalítið skylt sögninni að
snuðra og lýsingarorðinu
snotur sem í fornu máli
merkti fróður, vitur (frum-
merking líklega: með skörp
skilningarvit).
Enn er þrástagast á því í
lýsingum kappleikja, áð rek-
inn hafi verið eindahnútur á
eitthvað. Menn binda, ríða
eða hnýta hnút, en reka
smiðshöggið á eitthvað, þeg-
ar því er laglega lokið.
Én fleira var athugavert í
tilvitnuðum orðum. Þar var
talað um friðsælan borgara.
Vafalítið hefur það átt að
vera friðsamur. Friðsæll er
einkum haft um staði í þeirri
merkingu, að þar geti menn
notið kyrrðar og næðis, en ef
friðsæll er haft um menn,
merkir það að þeir njóti
friðar. Þjóðhöfðingjar geta
verið friðsælir, ef friðsamt er
á stjórnartíma þeirra. Á
sama hátt var konungur
kallaður ársæll, ef gott og
gjöfult var tíðarfarið á veld-
isárum hans.
Að lokum er eitt dæmi
þess, hvers konar hrognamál
kemst inn í íslensk blöð um
þessar mundir:
„Allir vita þó að bensín er
orðið löngu síðan sú nauð-
synjavara að varla án henn-
ar getur nokkur maður lif-
að.“ (Bréf Páls 11,4,8).
.VlÐSDÖTTlR
sigrön
matdr
ÍhS
sumar,
vetur, vor og haust
Sigrún Davíðsdóttir
Þetta er önnur matreiðslubókin sem Almenna bókafé-
lagið gefur út eftir Sigrúnu Daviðsdóttur. Hin fyrri,
heitir Matreiðslubók handa ungu fólki á öllum aldri,
kom út 1978 og er nú fáanleg i þriðju útgáfu.
Flestum finnst ánægjulegt að borða Jóðan mat, en
færri hafa ánægju af því að búa hann/íil. En hugleiðið
þetta aðeins. Matreiðsla er skapandi. Það er því ekki
aðeins gaman að elda sparimáltíð úr rándýrum
hráefnum, heldur einnig að nota ónýr og hversdags-
leg hráefni á nýjan og óvæntan hátt. Þessi bók er
ekki aðeins skrifuð handa þeim, sem þegar matreiða
sér og sínum til ánægju. Hún er ekki síður til að
blása áhuga og ánægju í brjóst þeirra, sem finnst
gott að borða góðan mat, en hafa enn ekki hrifizt af
matargerðinni sjálfri. Auk þess sem þið^'getið lesið
bókina til að fara eftir uppskriftum, á hún ekki
síður að minna ykkur á að fara eigin leiðir.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 18, sími 25544,
Skemmuvegi 36, Kóp., sími 73055.
<855?
Fínlegt og hrífandi ilmvatn
með óvenjulegum blómatónum.
ROCHAS
PARIS
Oculus, Austurstræti 7, vörusalan' Akureyri,
Syrtivörudeildin Glæsíbæ, NeskauPstaó
Hafnarborg, Hafnarfiröi, msa^ofek
y Stykkisholmi, Olafsvík.
¥
PLAYBOY
vekur
alls staóar
athygli „
Tilvalin gjöf í fallegum umbúðum
cj&m&rióka"