Morgunblaðið - 24.12.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1980
21
Háskóli Islands:
nasKuii isianus:
Yfirlit um einkunnir og
fjölda prófa 1979-1980
í sunnudagsblaðinu var skýrt frá að eftir háskóladeildum og fram- (SB), Menntaskólinn á Akureyri vatni (ML), Menntaskó
yfirliti, sem Halidór Guðjónsson haldsskólum. Meðaleinkunn er (MA), Menntaskólinn við Tiörn- Hamrahlið (MH), Fl(
í sunnudagsblaðinu var skýrt frá
yfirliti. sem Haildór Guðjónsson
kennslustjóri Háskóla íslands
hefur tekið saman um einkunnir
og fjöida prófa 1. árs nemenda í
skóianum 1979—’80.
Hér birtist yfirlitið í heild, og
eins og sjá má eru prófniður-
stöður og prófafjöldi sundurlið-
að eftir háskóladeildum og fram-
haldsskólum. Meðaleinkunn er
efri talan en talan fyrir neðan
hana sýnir fjölda prófa. Aftast
er meðaleinkunn í hverri deild
og heildarfjöldi prófa.
Skólarnir eru þessir: Kennara-
skóli Islands (KI), er ekki lengur
starfandi, Samvinnuskólinn
(SB), Menntaskólinn á Akureyri
(MA), Menntaskólinn við Tjörn-
ina (MT), er ekki lengur starf-
andi en Menntaskólinn við Sund
(MS) hefur leyst hann af hólmi.
Meðaleinkunn beggja skóla 6,32,
Verzlunarskóli Islands (VÍ),
Menntaskólinn í Reykjavík
(MR), Menntaskólinn á Laugar-
vatni (ML), Menntaskólinn við
Hamrahlið (MH), Flensborg-
arskólinn í Hafnarfirði (FF),
Menntaskólinn í Kópavogi (MK),
Menntaskólinn á Isafirði (MI),
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
(FS), Tækniskóli íslands (TÍ) og
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
(FB).
KÍ 1 SB HA tfl’ m i i j MR ML MH Tí FF ~W— Tft— i r TI FB H. í. Alls
Guifr.deild I 0,33 6 . 8. 40 5 5.90 10 6.07 7 17.21 7 7.37 53
Laknadeild tl 42 fL2 ' 6.60 158 ,5. 21 21 6.21 45 6.13 163 6.50 ! 54 6.06 225 1 5.98 114 6.30 41 6. 54 37 5.58 44 v° 5.16 65 6.13 1036
Lagadeild bj50 6.57 1 7 7.50 4 lb.67 1 3 7.08 18 ,6.55 51 7.52 29 6.94 43 6.75 4 7.25 4 6.00 3 6.92 168
Vióskiptad. i í 11 J4 |b. 75 '501 6.55 98 7.03 '30 5.27 219 5.10 104 5.27 71 6.41 139 5.85 134 1 6.02 76 4.05 22 6 • 38 29 3.86 7 5.83 9 4.32 70 6.09 1076
Heirasp.deild i? 6.92 6 7.17 89 7.15 47 7.34 67 7.53 167 7.61 55 7.08 129 7.55 107 6.80 30 7.00 17 6.60 26 6.94 8 7.24 916
Verkf.reun. 5Í 58 19 6.22 126 5.55 22 7.00 21 5.46 207 4.67 £8 5.64 2 54 5.80 221 5. 54 63 5. 58 173 5.43 54 4.83 29 5.30 40 5. 17 23 §60 1-341
Tannl. 1 1 6.30 28 5. 81 16 6.21 12 6.75 8 4.21 7 5.75 20 5.81 8 16.13 |“ 3.21 7 5.82 122
Féiagsfr. 6.86 53 7.01 j 101 6.67 38 5.79 1 33 7.20 117 0.93 23 6.63 150 7.04 71 6.41 32 6.78 3 7.06 5.92 24 5.53 15 6.77 713
Alls k.77 133 6.75 63 1 6.67 ||b. 52 610 jjlöl 6.47 j 403 6.41 825 5.20 6.29 939 6.28 707 6.08 273 5. 25 jú. 32 277 j| 152 5. 56 101 5.40 49 4.95 181 6.29 "542 5
Útkoma M.K. góð -
ef grannt er skoðað
- segir skólameistari M.K.
Þessar upplýsingar komu fram
á samstarfsnefndarfundi skóla-
stjóra á framhaldsskólastigi nú
nýlega, og þar voru ailir sammála
um. að þetta væri alls ekki mark-
tækt. Þarna er einungis um að
ræða próf á einu ári, og það þarf
að gera slikar rannsóknir sem
þessar um 5—6 ára skeið, svo þær
teljist marktækar,” sagði Ingóifur
Þorkelsson skólameistari Mennta-
skólans í Kópavogi, þegar hann
var spurður álits á könnun Há-
skóla íslands á árangri fyrsta árs
nemenda 1979— 80.
Ingólfur hélt áfram: „Ef við á
hinn bóginn tökum mark á þessu,
þá er nú ýmislegt hægt að lesa út
úr þessum tölum og á marga vegu.
Varðandi Menntaskólann í Kópa-
vogi, vil ég segja, að það er
sérstaklega lágt meðaltalið hjá
stúdentum frá okkur í einni deild
Háskólans, viðskiptadeild, og þar
er einungis um þrjá stúdenta að
ræða, svo að það eru þrír nemendur
sem draga meðaltal skólans niður.
Ef grannt er skoðað þá er útkoman
hagstæð fyrir Menntaskólann í
Kópavogi í öllum deildum, nema
viðskiptadeild. Ég get nefnt til
dæmis, hversu villandi þessar með-
altaistöiur Mbl. eru, að nemendur
MK eru með hærri einkunnir held-
ur en nemendur Flensborgarskóla í
ölium deiidum Háskólans, nema í
viðskiptadeild, en samt er Flens-
borgarskóli með hærra meðaltal en
Menntaskólinn í Kópavogi. Ég
endurtek, það voru einungis þrír
nemendur frá MK í viðskiptadeild
og þá sjáum við svart á hvítu,
hversu villandi þessar tölur Mbl.
eru. Ég bendi líka á, að MK var með
hærri meðaltalseinkunnir en MR í
fleiri deildum.
Það er þess vegna fáránlegt að
álykta nokkurn skapaðan hlut um
kosti skólanna af jjessum tölum. Ef
á að gera það, þá er eðlilegt að bera
saman árangur nemenda á stúd-
entsprófi og árangur þeirra í Há-
skólanum. Ég held ég megi fullyrða
að þessir umræddu þrír nemendur
MK í viðskiptadeild Háskólans hafi
verið með mjög lágt stúdentspróf.
Loks vil ég árétta: Rannsóknir
sem þessar þyrfti að gera um
nokkurt árabil, svo marktækar
niðurstöður fáist, og þvílíkar rann-
sóknir segja ekkert um gæði skól-
anna, nema athuguð sé fylgni milli
árangurs nemenda á stúdentsprófi
og árangurs þeirra í hinum ýmsu
deildum Háskólans. Það voru allir
sammála um það á þeim samstarfs-
nefndarfundi, þar sem niðurstöður
þessarar könnunar voru kynntar,
að þær væru í engu marktækar og
að það væri mjög varhugavert að
draga nokkrar ályktanir af þeim,“
hafði Ingólfur Kristjánsson skóla-
meistari í Kópavogi um þetta mál
að segja.
Ekki marktækt, hvað
varðar Tækniskólann
- segir rektor T.í.
Ég held það sé fásinna að vera
að setja þvílíkar meðaltalsein-
kunnir upp í röð, því t.a.m., hvað
okkur í Tækniskólanum varðar,
þá er um svo fáa einstaklinga að
ræða. að útkoman getur ekki verið
marktæk. Það er ábyggilegt, að
það verður að vera um einhvern
fjölda að ræða, svo að slík röðun
geti að einhverju leyti vcrið
marktæk. Ég held það hafi verið
afar slæmt að birta þetta f þeirri
mynd sem Mbl. gerði sl. sunnu-
dag.“
Þetta sagði Bjarni Kristjánsson,
rektor Tækniskóla Islands, þegar
Mbl. leitaði álits hans á könnun
Háskólans á árangri framhalds-
skólanemenda í hinum ýmsu deild-
um hans, sem niðurstöður birtust
úr í Mbl. sl. sunnudag. Bjarni sagði
ennfremur:
„Jú, þetta er nýbreytni af hálfu
Háskólans. Hingað til hafa há-
skólamenn verið afar tregir til að
láta uppi, hverjar kröfur þeir gera
til stúdenta, en mér fyndist réttast
að Háskólinn gæfi það upp á
hverjum tíma, hverjar kröfur hinar
ýmsu deildir hans gera.
Tækniskóli íslands er fram-
haldsskóli fyrir iðnaðarmenn.
Hann útskrifar ekki stúdenta, en
verkfræði- og raunvísindadeild Há-
skólans hefur engu að síður, af
eigin víðsýni, tekið menn með próf
frá raungreinadeild Tækniskólans í
nokkur ár. Það eru ekki nema
örfáir einstaklingar, sem hafa not-
fært sér þetta, og það er eins og
gengur mjög mismunandi hvernig
þeim gengur. Það kann að vera að
þessum fáu nemendum Tækniskól-
ans á fyrsta ári í Háskólanum hafi
gengið fremur illa sl. ár. En ég man
nú eftir tveimur iðnaðarmönnum,
sem hafa dúxað í verkfræðideild
Háskóla íslands," sagði Bjarni
Kristjánsson rektor Tækniskóla ís-
lands.
Nýr hæstarétt-
arlögmaður
STEFÁN Pálsson logfræðinKur
hlaut nýlega réttindi til mál-
flutnings fyrir Ilæstarétti að
loknum flutningi tilskilinna
prófmála.
Stefán Pálsson er 35 ára gamall,
sonur Páls S. Pálssonar hrl. og
konu hans Guðrúnar G. Stephen-
sen. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1967 og lögfraeðiprófi frá HÍ
1973. Stefán rekur nú lögfræði-
skrifstofu með föður sínum Páli
og bróður sínum Páli Arnóri.
Eiginkona Stefáns er Hólmfríð-
ur Arnadóttir viðskiptafræðingur
og eiga þau þrjú börn.
Deilan stend-
ur um nám-
skeiðsálag
EINS og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, hafa bensín-
afgreiðslumenn boðað verk-
fall frá og með 28. desember,
hafi samningar ekki tekizt i
kjaradeilu þeirra við olíufé-
lögin. Samkvæmt upplýsing-
um, sem Morgunblaðið aflaði
sér í gær, mun fremur lítið
bera í milli, en na*sti sátta-
fundur hefur verið boðaður
27., daginn áður en til boðaðs
verkfalls kemur.
Það, sem í raun ber í milli, er
námskeið, sem afgreiðslumennirn-
ir vilja fá og gefur þeim prósentu-
hækkun í launum, hafi þeir starf-
að 5 ár eða lengur. Ekki mun hafa
verið tilgreint í viðræðunum, hvað
námskeiðið eigi að snúast um, en
rætt hefur verið um að það gæfi
þeim 5% launahækkun. Sam-
komulag mun hafa tekizt um
röðun bensínafgreiðslumanna í
kjarnasamningi.
Bensínafgreiðslumenn hafa ver-
ið á Dagsbrúnarsamningi, þar til
nú að fyrsta sinni er gerður við þá
sérstakur samningur. Þeir hafa
haft vaktaálag á venjulegan dag-
vinnutíma samkvæmt Dagsbrún-
arsamningi og er vaktaálagið
27%. Þá hafa þeir afgreiðslumenn,
sem séð hafa um peningakassa
bensínstöðva haft sérstaka umbun
fyrir þá ábyrgð, sem þeir bera
vegna þess.
Gleraugu
töpuðust
Gleraugu í rauðgulu hulstri töpuð-
ust í Reykjavík aðfaranótt sl.
föstudags. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 25173.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
ADALSTR/CTI • llMAR: 17152- 17355