Morgunblaðið - 03.02.1981, Page 17

Morgunblaðið - 03.02.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981 17 Likan aí Kolbeinsey ÞH 10 — hinum nýja togara Húsvíkinga. Kolbeinsey sjósett í lok þessarar viku Nemendur Fossvogsskóla skora á fræðsluyfirvöld: Vilja áfram sam- eiginlega kennslu í handavinnutímum TÓLF ÁRA nemendur í Fossvogsskóla, þ.e. nemendur 6. bekkjar. hafa sent fræðsluráði Heykjavíkur bréf þar sem farið er fram á að þeim veröi gefinn kostur á að sækja jöfnum höndum tima i handavinnu stúlkna og drengja þegar þau á næsta vetri eiga að skipta um skóla og sækja Réttarholtsskóla. Fór nýlega fram undirskriftasöfnun meðal nemenda 6. bekkjar og munu allir nemendur hafa skrifaö undir áskorun þessa efnis og fara nemendur fram á að sama námsefni verði kennt stúlkum og drengjum. ' Fóstrur á Akur- eyri fresta uppsögnum FÓSTRUR á Akureyri hafa nú ákveðið að fresta uppsögn- um til 20. febrúar og hafa þær jafnframt veitt Akureyrarbæ sama frest til að leiðrétta samningana. Verði ekki búið að leysa málin þá, hyggjast fóstrur þar nyrðra fara af stað með allar sinar grunn- kröfur og munu ekkert gefa eftir, en megin krafa þeirra er að hyrjunarlaun verði hækk- uð úr 12. launaflokki i 13. og starfsheitið deildarfóstra verði fellt niður í samningum. þar sem það geti valdið mis- ræmi i launum. Fóstrur í Kópavogi funduðu á laugardaginn og í framhaldi þess verður bæjarráði Kópa- vogs sent bréf í dag, þar sem niðurstöður fundarins verða raktar. Hjá fóstrum í Reykjavík er allt við það sama, þær hafa fyrir nokkru skilað inn upp- sögnum og í gær skiluðu fóstr- ur, sem vinna hjá ríkinu inn uppsögnum sínum og að öllu óbreyttu koma uppsagnir þeirra til framkvæmda 1. maí. Nýtt iðnfyrir- tæki í Hafnar- firði NÝLEGA var stofnað nýtt iðnfyrirtæki i Hafnarfirði. Fyrirtækið ber heitið Báta- smiðja Guðmundar og er eig- andi þess Guðmundur Lárus- son bátasmiður. fyrrum annar aðaleigandi Mótunar hf. i Hafnarfirði. Bátasmiðjan mun fyrst i stað a.m.k. ein- beita sér að smíði fimm tonna alhliða trefjaplastbáta með tvenns konar yfirbyggingum. Fyrirtækið cr að Helluhrauni 6, Hafnarfirði. SATT-kvöld MIÐVIKUDAGINN 4. febrúar nk. munu Samtök alþýðutón- skálda og tónlistarmanna gangast fyrir S.A.T.T. kvöldi í veitingahúsinu Klúbbnum í Borgartúni. Verður þar margt skemmtikrafta að venju. Fyrsta skal nefna hljómsveit- ina Pónik, sem vakti á sér athygli nú fyrir jólin með vandaðri dægurlagaplötu og flytja þeir valin lög af henni. Þá mun hin unga og efnilega nýbylgjuhljómsveit Þeyr flytja lög af nýútkominni hljómplötu sinni „Þagað í hel“, en hún hefur þótt kraftmikil og frum- leg í tónlistarflutningi sínum. Tvær hljómsveitir austan af landi kveða sér hljóðs; þær eru Amon Ra frá Neskaupstað, sem er sveitaballagestum aust- anlands að góðu kunn, og Lóla frá Seyðisfirði, en hún er tiltölulega óþekkt enn sem komið er. Fréttatilkynning HINN nýi togari Húsvíkinga, sem nú er i smiðum i Slippstöð- inni á Akureyri, verður væntan- lega sjósettur 7. febrúar næst- komandi, að þvi er segir í Vikur- blaðinu á Húsavik. Togaranum hewfur verið valið nafnið Kol- „Dagblöðin hafa hingað til verið okkur mjög hjálpleg," sagði Kristján ennfremur, „og við erum þeim þakklátir fyrir þá aðstoð sem þau hafa veitt við að koma upplýs- ingum til framteljenda. Hins veg- ar er það svo, að þótt blöðin hafi gert þetta með mestu ágætum, er að ég held þægilegra fyrir skatt- greiðendur að fá leiðbeiningarnar í bæklingsformi, sem sennilega geymist betur en dagblöðin. Þá kemur það einnig til, að þótt dagblöðin hafi veitt þessa þjón- ustu, höfum við orðið að láta prenta leiðbeiningabæklinga í nokkru upplagi til notkunar í sjálfu skattakerfinu, og einnig hafa endurskoðendur og aðrir þeir er atvinnu hafa af því að telja fram, fengið þessi gögn hjá okkur. Skákþing Reykjavíkur: Skákum frestað vegna veikinda og brúðkaups ENN varð að fresta tveimur skákum i 8. umferð Skákþings Reykjavikur, sem tefld var á sunnudaginn. Annari var frestað vegna veikinda en hinni vegna brúðkaups. Úrslit 8. umferðar urðu þau að Karl Þorsteins vann Dan Hans- son, Björgvin Víglundsson vann Ásgeir Þ. Ásbjörnsson, Þórir Ólafsson og Benedikt Jónasson gerðu jafntefli en skák Sævars Bjarnasonar og Hilmars Karls- sonar fór í bið. Skák Helga Ólafssonar og Jóns L. Árnasonar var frestað vegna veikinda Jóns en skák Elvars Guðmundssonar og Braga Halldórssonar var frestað þar eð Bragi var að ganga í það heilaga þennan dag. Úrslit í biðskákum urðu þau að Benedikt Jónasson vann Helga Ólafsson og Elvar Guðmundsson vann Þóri Ólafsson og Benedikt Jónasson. Jón L. Árnason er nú efstur með 5‘A vinning og eina biðskák en Helgi Ólafsson og Elvar Guðmundsson koma næstir með 4 V4 vinning og tvær frestaðar skákir hvor. Karl Þorsteins hefur 4V4 vinning. Það er því allt útlit fyrir spennandi keppni í lokaum- ferðum Skákþingsins. beinsey og mun bera einkennis- stafina ÞH 10. Kolbeinsey er 500 tonna skip, sem taka á 160—180 tonn í kassa. Skipstjóri á Kol- beinsey verður Benjamin Ant- onsson. Stofnkostnaðurinn var því fyrir hendi, og viðbótarkostnaður því aðeins efniskostnaður, þar sem leiðbeiningarnar voru bornar út með eyðublöðunum sjálfum, og líklega hefðu blöðin nú tekið greiðslu fyrir.“ — Hvaða breytingar verða helstar á framtalseyðublöðunum núna frá fyrra ári? „Breytingarnar eru fyrst og fremst í sambandi við vaxtatekj- urnar og vaxtagjöldin, sem fólgið er í því, að í fyrra var ríkjandi hálfgert bráðabirgðaástand í þessu. Viss ákvæði laganna tóku ekki gildi fyrr en núna við framtal 1981. Við getum sagt, að vextir séu núna að mjög litlu leyti skatt- skyldir, og er það helsta breyting- in. I fyrra var framteljendum bent á að þeir gætu beðið skattstjóra að athuga hvort væri betra, að fá vaxtafrádrátt samkvæmt framtal- inu eða eftir 10% reglunni. Það breytist í rauninni ekki, því verið getur að menn átti sig ekki á hvort er betra, og þá velur skattstjóri hagkvæmari leiðina. Þá er þess einnig að geta, að í fyrra urðu breytingar á reglunni um 10% Kristján Gunnarsson fræðslu- stjóri tjáði Mbl. að erindi nemend- anna hefði verið tekið fyrir á tveimur fundum fræðsluráðs. Væri í flestum skólum nokkuð um að drengir sæktu tima í handa- vinnu stúlkna og öfugt, en skól- frádráttinn, frá því eyðublaðið var hannað." Kristján sagði að lokum, að skilafrestur rynni út hinn 10. febrúar, og yrði hann ekki fram- lengdur, eftir því sem hann vissi best. Þá kom það einnig fram í samtalinu við Kristján, að hann hefði ekki tiltækan heildarkostnað við prentun leiðbeiningabæklings- ins, en líklega hefði kostnaður numið um einni krónu og tuttugu aurum á hvert eintak. Reglugerð um þessar veiðar verður væntanlega gefin út í dag, en fyrir hádegi í dag verður fundur með fiskifræðingum í sjáv- arútvegsráðuneytinu um niður- stöður úr leiðangri fiskifræðinga til að mæla stærð loðnustofnsins. Verður þá rætt um hvort loðnu- arnir hefðu gengið misjafnlega langt í þessu efni, sumir blönduðu kynjunum alveg saman og kenndu jöfnum höndum smíðar og sauma- skap, en aðrir skólar gengju ekki svo langt. Galli við þetta fyrir- komulag væri sá, að nemendur hefðu aðeins tvo handavinnutíma í viku, hvort sem þeir stunduðu nám í báðum greinunum eða aðeins annarri og væru því nokkuð misjafnlega langt komnir í þess- um greinum. Hefðu handavinnu- kennarar óskað eftir fjölgun tím- anna ef taka ætti upp algjörlega sama námsefni stúlkna og drengja í handavinnu. Fræðslustjóri sagði, að skóla- stjóri Réttarholtsskóla hefði setið fund fræðsluráðs í dag, þar sem málið hefði verið rætt, og sæi hann ekkert því til fyrirstöðu að verða við erindi nemenda Foss- vogsskóla. Þá sagði fræðslustjóri að hér væri um að ræða frum- kvæði nemenda sjálfra, en í Foss- vogsskóla hafa drengir og stúlkur verið saman í handavinnutímum og lagt stund á hið hefðbundna námsefni beggja kynja. kvótinn verði aukinn og hvort hægt verði að leyfa veiðar á loðnu til frystingar og hrognatöku. Gert er ráð fyrir að þeir loðnu- bátar, sem fara á net megi ekki veiða fram yfir ákveðið hámark, en trollbátar verða hins vegar undir skrapdagakerfinu. Húsgagnaútsala □ ‘IO'I^lÍttuR JMánudaginn 2.2. - laugardags 7.2. Finnsk furuhúsgögn — ítölsk boröstofuhúsgögn — unglingahúsgögn — hlaðrúm — kommóöur — hillur — sófaborö — stakir stólar H Nýborg Armúla 23 — Sími 86755 Skattframtalsfrestur rennur út 10. febrúar: Leiðbeiningabæklingi nú dreift með framtalseyðublöðunum „ÁSTÆÐA þess að við dreifum nú leiðbeininRabæklingi með skattframtalseyðublöðunum er sú að við vildum veita betri þjónustu en gert hefur verið.“ sagði Kristján Jónasson skrifstofustjóri hjá embætti Ríkisskattstjóra í samtali við Morgunblaðið í gær. En skattframtalseyðu- blöð voru borin i hús um helgina, og fylgdi þeim nú í fyrsta skipti leiðbeiningabæklingur. Loðnuskipin mega byrja þorskveið- ar í næstu viku ÁKVEÐIÐ hefur verið að loðnuskip megi byrja þorskveiðar í net eða troll 10. febrúar næstkomandi. Gert er ráð fyrir að loðnuskipin fái að veiða 30 þúsund tonn af þorski, þar af bætst 20 þúsund tonn við ákveðinn hámarksafla í ár, þ.e. 400 þúsund tonn, en kvóti togskipa minnki um 5 þúsund tonn og kvóti báta sömuleiðis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.