Morgunblaðið - 03.02.1981, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1981
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,-
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið.
Seinni hálfleikur
hafinn
Nú er farið að síga á seinni helming kjörtímabils
sveitarstjórna og á þessu ári munu stjórnmálaflokkarnir
leggja drög að kosningastefnuskrám sínum og velja eða hefja
undirbúning að vali manna á framboðslista í næstu sveitar-
stjórnarkosningum, sem fram fara vorið 1982. Borgarstjórnar-
flokkur Sjálfstæðisflokksins boðar til funda í einstökum
hverfum Reykjavíkur í þessari viku. A fundunum öllum mun
Davíð Oddsson, sem á síðasta ári var kjörinn formaður
borgarstjórnarflokksins, flytja ræðu og svara fyrirspurnum auk
þess sem aðrir borgarfulltrúar flokksins taka einnig þátt í
fundunum. Með þessum fundahöldum hefja sjálfstæðismenn í
Reykjavík baráttu fyrir því að ná stjórn borgarinnar úr höndum
meirihluta vinstri manna.
Stjórn vinstri manna á Reykjavíkurborg hefur einkennst af
stöðnun, hiki og sífellt hærri skattaálögum. Vinstri menn hafa
verið haldnir svo miklum ótta við glundroðakenninguna
svonefndu, að þeir hafa valið þann kost að gera sem minnst, því
að um fátt eru þeir sammála, sem gera þarf. Það er svo með
stöðnunarskeið í lífi borga, að afleiðingar þeirra eru lengi að
koma í ljós, og verða þeim mun erfiðari viðureignar, sem menn
eru tregari til að viðurkenna tilvist þeirra. Eftir langvinnt
framfaraskeið, þegar gaumgæfilega hefur verið hugað að öllum
þáttum borgarlífsins, er auðvelt að halda í horfinu, ef menn
einblína á það eitt að afla nægilegs fjármagns til að
frumþættirnir fari ekki úrskeiðis. Þessari stefnu hafa vinstri
menn fylgt í Reykjavík. Þeir hafa lifað á vel unnum störfum
sjálfstæðismanna. Þeir hafa þess vegna ekki lagt áherslu á neitt
annað en sem hæsta skatta.
Málefni Reykjavíkur krefjast annarra vinnubragða. Mark-
miðið á að vera, að í Reykjavík sé vaxtarbroddur þjóðlífsins á
sem flestum sviðum. Eins og menn sjá af landstjórninni er
vinstri mönnum síður en svo kappsmál, að af stórhug sé staðið
að atvinnustarfsemi í landinu. Helst á hún öll að lúta forsjá
ríkisins með einum eða öðrum hætti. Sama sagan er upp á
teningnum í Reykjavík undir stjórn vinstri manna, það er
dæmigert í því sambandi, að einu atvinnufyrirtækin, sem fengið
hafa lóðir í borginni í stjórnartíð vinstri manna eru SÍS og
KRON.
Hlutur Dagblaðsins
Igær birti Dagblaðið niðurstöður í skoðanakönnun um fylgi
flokkanna í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sam-
kvæmt þeim nýtur Sjálfstæðisflokkurinn meiri stuðnings meðal
borgarbúa en vinstri flokkarnir þrír til samans. Davíð Oddsson
sagði meðal annars þetta um niðurstöðuna í Dagblaðinu:
„Þessi vísbending sem þarna kemur fram gefur mér því
vissulega tilefni til bjartsýni, því samkvæmt þessu yrði að telja
að Sjálfstæðisflokkurinn hlyti góðan meirihluta, ef nú væri
kosið. Það er einnig athyglisvert að þessi niðurstaða verður með
þessum hætti á sama tíma og ríkisstjórn, þar sem Alþýðuband-
alagið og Framsóknarflokkurinn eru burðarásar nýtur óvenju-
legs fylgis samkvæmt sömu skoðanakönnún. Eg held að
venjulegir tryggir og heiðvirðir kjósendur Sjálfstæðisflokksins
þrái að kjósa þann flokk, samhentan, á einhverjum vígstöðvum."
Þessi ummæli Davíðs Oddssonar skýra sig sjálf. í ummælum
sínum í Dagblaðinu víkur hann einnig að þeirri eftirlætisiðju
þess blaðs að ala á klofningi innan Sjálfstæðisflokksins. Nýjasta
dæmið um það birtist í síðustu viku, þegar annar ritstjóri
Dagblaðsins gaf til kynna, að það yrði Sjálfstæðisflokknum til
framdráttar, ef Albert Guðmundsson biði fram sérstakan lista í
Reykjavík og með því gæti flokkurinn tryggt sér meirihluta að
nýju í borginni. Um þetta segir Davíð Oddsson:
„Eg virðist líka trúa betur niðurstöðum skoðanakönnunar
Dagblaðsins en sjálfur ritstjóri þess, sem hvatti nýlega í leiðara
til klofnings sjálfstæðismanna í borgarstjórn, þótt hann hljóti
þá þegar að hafa vitað um niðurstöður þessarar könnunar."
Hverfafundir sjálfstæðismanna, sem nú eru að hefjast, gefa
til kynna, að þeir ætla samhentir og málefnalega að berjast
fyrir endurheimt borgarinnar úr aðgerðalausum höndum vinstri
manna. Sú barátta vinnst ekki nema með sameinuðu átaki, það
er dæmigert fyrir hlut Dagblaðsins í íslenskum stjórnmálum, að
blaðið skuli telja sér best sæma að spilla fyrir Sjáifstæðis-
flokknum í þessu efni.
Veiting lyfsöluleyfis í Dalvíkurapóteki:
Málinu vísað til
J af nr é 11 isráðs
HEILBRIGÐIS- og tryggingaráöherra,
Svavar Gestsson, hefur gert það að
tillögu sinni til forseta Islands, sem
forseti íslands staðfesti í gærmorgun, að
Óla Þ. Ragnarssyni yfirlyfjafræðingi
Vesturbæjarapóteks í Reykjavík verði
veitt lyfsöluleyfi í Dalvíkurapóteki. Um-
sækjendur voru þrír og mæltu bæði
lyfjafræðinefnd og landlæknir með því
að Freyju V.M. Frisbæk Kristensen
yfirlyfjafræðingi í Kópavogi yrði veitt
embættið, en óli Þ. Ragnarsson var
númer tvö í röð þeirra þriggja að þeirra
mati.
í tilefni þessa ræddi blm. Mbl. í gær
við Freyju V.M. Kristensen, Svavar
Gestsson heilbrigðisráðherra, Óla Þ.
Ragnarsson og formann Jafnréttisráðs,
en það kemur fram í viðtalinu við
Freyju, að hún telur að gengið hafi verið
fram hjá sér vegna kynferðis.
Freyja V.M. Frisbæk Kristensen við störf sin i Kópavogsapóteki í gær. Lió«m. Mbi. Emiha Bjðru Björiwdóttlr.
„Sætti mig engan
veginn við þetta“
— segir Freyja
V.M. Frisbæk
Kristensen:
„Ég sætti mig engan veginn
við þetta og er að hugsa um að
gera ýmislegt,“ sagði Freyja
V.M. Frisbæk Kristensen, yfir-
lyfjafræðingur í Kópavogi, í
viðtali við Mbl. i gær. „Eg er
helst á þvi að gengið hafi verið
fram hjá mér vegna þess að ég
er kvenmaður. Ég hef ekki
heyrt um það, að ráðherra hafi
gert slíkt áður. Það horfir öðru
vísi við, þegar umsagnaraðilar
telja umsækjendur jafnhæfa.“
— Hvað hyggstu gera í mál-
inu?
„Eg fór til fundar við forseta
Islands í morgun, en frétti á
skrifstofunni að þá þegar væri
búið að senda skjölin i ráðuneyt-
ið á ný, þannig að ég sneri þar
frá. Þá reyndi ég að ná sambandi
við Svavar Gestsson ráðherra,
en tókst ekki. Ég mun ræða
málið við hann og fara fram á
skýringar. Þá ætla ég einnig að
leggja málið fyrir Jafnréttis-
ráð.“
Þá sagði Freyja að sér fyndist
mjög illa hafa verið staðið að
máli þessu. „Ég var búin að
frétta að ég fengi stöðuna og að
það væri búið að ganga þannig
frá málinu. Síðan skilst mér að
ráðherra hafi skipt um skoðun
vegna utanaðkomandi þrýstings
og þá niðurstöðu, þ.e. að mér
hafi verið hafnað, frétti ég á
skotspónum á föstudagseftir-
miðdag. Það er lágmarkskrafa
finnst mér, að þeir sem málið
viðkemur fái fyrstir upplýsingar
um slíkt."
Freyja sagði einnig, að hún
hefði heyrt margar skýringar
utan að sér, án þess að hún vissi
hvort réttar væru, á þessari
ákvörðun ráðherra, m.a. þá, að
sá umsækjandi sem fengið hefði
stöðuna hefði átt viðtal við
ráðherra og að staðið hefði verið
að undirskriftarsöfnun á Dalvík.
„Það hefur gerst áður, að ráð-
herra hefur verið beittur þrýst-
ingi sem þessum og er þar
skemmst að minnast veitingar
Akraness-apóteks. Það var í ráð-
herratíð Matthíasar Bjarnason-
ar. Hann lét þó slíkan þrýsting
lönd og leið og veitti þeim aðila
sem umsagnaraðilar töldu hæf-
astan embættið. Þessar undir-
skriftir og þrýstingur eru áreið-
anlega gott skálkaskjól fyrir
ráðherrann.
Annars skil ég ekki hvers
vegna verið er að kalla til aðila
sem taldir eru hafa mest vit á
málunum, ef síðan er gengið
alfarið fram hjá niðurstöðu
þeirra," sagði Freyja að lokum.
„Menn á Dalvík fóru þess
sérstaklega á leit við mig44
— segir Svavar Gestsson stóðu þeir m.a. að undirskriftar
söfnun,“ sagði Svavar Gestsson
„MENN á Dalvik og þar á meðal um fóru þess sérstaklega á leit heilbrigðis- og tryggingamála-
fjölmargir forvígismenn á staðn- við mig að óli yrði ráðinn og ráðherra um veifinguna í viðtali