Morgunblaðið - 10.02.1981, Side 3

Morgunblaðið - 10.02.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981 3 Færð um landið er fremur góð FÆRÐ á vegum landsins var i Kær nokkuð KÓð miðað við árstima, samkvæmt upplýsing- um er Morgunblaðið fékk hjá vegaeftirliti Vegagerðar ríkis- ins. Færðin þá var sæmileg um Suðurstrondina. til Víkur i Mýrdal, en erfitt var yfirferðar fyrir minni bíla um Mýrdals- sand. Jeppar og stærri bíiar komust þar hins vegar um, og færðin siðan góð alveg austur á firði. Færð var ágæt um Suðurnes, einnig um Hellisheiði og Þrengsli. Færðin um Vesturland var einnig yfirleitt góð, að vísu sums staðar heldur þungfært á fjallvegum á Snæfellsnesi og norðanvert á nesinu. Þar verður hins vegar rutt í dag. Vegurinn norður Strandir til Hólmavíkur var fær, og síðan var fært í Búðardal og vestur í Reykhóla- sveit, einnig að Patreksfirði og Bíldudal. Stórum bílum og jepp- um var fært til Flateyrar og Þingeyrar og vegurinn um Breiðdalsheiði var mokaður í gær. Ágæt ferð var um Norður- land, til Siglufjarðar og Akur- eyrar, en skafrenningur var þó á Öxnadalsheiði. Fært var um Dalsmynni til Húsavíkur, en ófært á Tjörnesi. Færð var sæmileg á Fljótsdalshéraði, en lakari fyrir norðan, á Vopna- firði og Bakkafirði. Verður notkun bíl- belta lögleidd? Dómsmálaráðuneytið hefur til athugunar tillögur um breyt- ingar á umferðarlögum, en um- ferðarnefnd hefur að undanförnu unnið að heildarendurskoðun laganna. Meðal atriða, sem þar er fjallað um, er hvort lögleiða beri notkun bilbelta og hefur nefndin lýst sig fylgjandi því. Friðjón Þórðarson dómsmála- ráðherra tjáði Mbl., að umferðar- nefndin hefði samið frumvarp um þetta atriði og sagði hann það nú til athugunar í ráðuneytinu. Kvaðst ráðherrann ekki hafa gert upp við sig hvort hann væri fylgjandi lögleiðingu bílbelta, en hann væri að skoða málið og yrði það afgreitt mjög bráðlega. Lög- íeiðing bílbelta hefur mikið verið til umræðu að undanförnu og m.a. hefur Umferðarráð mælt með því að svo verði og heilbrigðisráðu- neytið hefur tvívegis ritað dóms- málaráðuneytinu og bent á að meðal atriða er til úrbóta gætu orðið í umferðarmálum væri að lögleiða notkun bílbeltanna. Kúluhús reist við Kröflu NÝLEGA var reist kúluhús úr trefjaplasti yfir borholu nr. 12 við Kröfluvirkjun. Þetta er fyrsta íslenzka verksmiðju- framleidda húsið af þessari gerð húsa, en þau hafa rutt sér mjög til rúms erlendis hin síðari ár. Um hönnun hússins sáu: Einar Þorsteinn Ásgeirsson, hönnuð- ur, og arkitektar Kröfluvirkjun- ar, Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson. — Fossplast hf. mun hefja fram- leiðslu á glærum gróðurhúsum fyrir heimagarða úr sama efni á komandi vori. Kúluhúsið sem reist hefur verlð yfir borholu nr. 12 vlð Kröfluvirkjun. *f.... jmm ---- Karlakór Reykjavikur og Söngsveitin Filharmonía flytja óperu Beethovens, Fidelio i Iláskólabiói á fimmtudag ásamt einsöngvurum og Sinfóniuhljómsveit Islands. Áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar: Fidelio flutt í Háskólabíói OPERAN Fidelio eftir Beethoven verður flutt á næstu áskriftartónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands, en þeir verða haldnir i Háskóla- biói fimmtudaginn 12. febrúar og hefjast kl. 20:30. Fidelio hefur ekki áður verið flutt hér á landi i heild. Ásamt Sinfóníuhljómsveit- inni eru flytjendur Söngsveitin Fílharmónía, Karlakór Reykja- víkur og einsöngvararnir Astrid Schirmer, Elín Sigur- vinsdóttir, Ludovico Spiess, Bent Norup, Manfred Schenk, Kristinn Hallsson og Sigurður Björnsson. Stjórnandi er franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat. Þau Astrid Schirmer, Ludovico Spi- ess, Bent Norup og Manfred Schenk eru öll starfandi óperu- söngvarar í Þýzkalandi, en syngja auk þess sem gestir víða, bæði austan hafs og vestan. Óperan verður endur- tekin laugardaginn 14. febrúar kl. 14. Mjólkurframleiðslan dróst saman um 10 milljónir lítra í fyrra ÁRIÐ 1980 tóku mjólkursamlög- in i landinu á móti 107,0 milljón- um lítra al mjólk en árið 1979 var innvegin mjólk 117,2 milljón lítrar. Samdráttur í mjólkur- framleiðslu nemur því um 10 milljón litrum eða 8,7%, að þvi er fram kemur í Fréttabréfi Upplýs- ingaþjónus^U landbúnaðarins. Smávegis aukning varð í sölu á nýmjólk, en heildarsala var 45,3 millj. ltr. Það var einnig nokkur söluaukning í rjóma eða um 2,1%. Samtals seldust 1.329 þúsund lítr- ar. Sala á skyri var aðeins minni á síðasta ári en árið áður, samtals voru seld 1.595 tonn. Sala á undanrennu minnkaði um 35 þús- und ltr., heildarsala á árinu varð 2,8 milljónir lítra, Framleitt var mun minna af smjöri og ostum en árið áður. Sala varð aftur á móti töluvert meiri. Söluaukning í smjöri varð 12,0%, samtals voru seld 1.670 tonn. I árslok voru birgðir af smjöri 533 tonn á móti 1.206 tonnum í upphafi ársins. Miðað við fram- leiðsluna vetrarmánuðina verður smjörfjallið orðið að lítilli þúfu í vor. Heildarframleiðslan á mjólkur- ostum síðasta ár var 3.591 tonn, sem var 2,6% minni framleiðsla en árið 1979. Samtals voru seld innanlands 1.372 tonn, en það var 11,1% aukning frá fyrra ári. Flutt voru út 1.926 tonn, sem var 30,5% minna en árið 1979. í upphafi þessa árs voru birgðir af mjólkurostum rétt um 917 tonn, sem var um 151 tonni meira en í lok ársins 1979. Dalvíkurmálið tekið fyrir í Jafnréttisráði á föstudag DALVÍKURMÁLIÐ svonefnda, þ.e. skipan Svavars Gestssonar heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra i embætti lyfsala á Dalvik verður tekið fyrir i Jafn- réttisráði n.k. föstudag að sögn Bergþóru Sigmundsdóttur fram- kvæmdastjóra Jafnréttisráðs. Jafnréttisráði hefur þegar borist kæra frá Freyju V.M. Frisbæk Guðrún Helgadóttir um Dalvíkurmálið: „Erfitt fyrir óbreytta þingmenn að fara ofan í mál sem þessiu „ÉG ER ÞESS fullviss, að Svavar Gestsson, vinur minn og flokks- bróoii* «"fur ákveðið þessa veitingu af neinni ingu. Það vel þekki ég hann,“ sagði Guðrún Ilelgadóttir alþing- ismaður i viðtali við Mbl. i gær um veitingu lyfsöluleyfisins á Dalvik, en eins og komið hefur fram í fréttum hefur veitingin verið kærð til Jafnréttisráðs. Guðrún sagðist á sama tíma ekki geta sagt um, hvort matið á hæfni umsækjenda væri rétt. „Eftir því sem ég hef komist næst hefur sá aðiii er hlaut embættið starfað lengur við lyfsölu og á því byggði Svavar sitt mat.“ — Telur þú að það geti orðið dragbítur á jafnréttisbaráttuna, að o'v'o'/*r tekur þarna karl fram fyrir konu, þrátt fyrir a* ÍIÍ? hafi verið metin hæfust? „Málið hefur verið kært fyrir Jafnréttisráði og ég held að við verðum að bíða niðurstöðu þess, því að telji ráðið að hér hafi jafnrétt- islögin verið brotin, getur ráðið, í samráði við skjólstæðing sinn, höfðað mál á hendur ráðherra." — En hvað um 3. gr. jafnréttis- laganna? „Þarna greinir matsnefndina og ráðherra á um hæfni. Mín persónu- lega skoðun er auðvitað sú, að konur og karlar skuli standa jafnt að vígi um öll réttindi í þjóðfélag- inu. Verði ég sannfærð um að konan sé hæfari í þessu tilefni þá tel ég að jafnréttislögin séu brotin, - ''lflci ** annars - Telur þú þá rwííIwT® hæfa.ri til að dæma um hæfni umsækjenda en umsagnaraðilana, þ.e. landlækni og nefnd lyfjafræðinga? „Það er afskaplega erfitt um að segja. Ráðherra sér ástæðu til að hafa aðra skoðun. Ég ætla ekki að halda neinu fram um að það sé rétt. Þess vegna hljótum við að bíða eftir niðurstöðu Jafnréttis- ráðs.“ — Hefir mál þetta verið rætt innan Alþýðubandalagsins og þá t.d. í þingflokki ykkar? „Já, þetta mál hefur verið rætt í okkar hópi og Svavar hefur marg- greint frá ástæðunum fyrir veit- ingunni og af hverju hann taldi Óla haefari.“ Þá sagði Gu?.rún í 'okin. að erfitt væri fyrir óbreytta pin^Tenn að fara ofan í mál sem þessi, eii endurtók að hún væri sannfærð um að Svavar hefði ekki gengið fram hjá Freyju vegna þess að hún væri kvenmaður. Kristensen þar sem hún æskir rannsóknar á því, hvort fram hjá sér hafi verið gengið vegna kyn- ferðis, en eins og komið hefur fram í fréttum var Óli Þ. Ragn- arsson skipaður í embættið, þrátt fyrir að landlæknir og nefnd lyfjafræðinga hefðu samhljóða mælt með Freyju í fyrsta sæti af þremur umsækjendum. Freyja hefur lýst því yfir í viðtali við Mbl., að hún komi ekki auga á aðra skýringu en þá, að kynferði hafi hér ráðið úrslitum. Bergþóra sagði, að Jafnréttisráð myndi afla sér umsagna land- læknis og lyfjafræðinganefndar- innar um umsækjendurna fyrir fundinn á föstudag. Einnig myndi það æskja upplýsinga um veiting- una frá ráðuneytinu. Aðspurð sagði hún, að skýrsla hefði ekki borist frá Svavari Gestssyni, en hann lýsti því yfir í umræðum um málið á Alþingi, að slík skýrsla yrði send Jafnréttisráði og að ekki þyrfti að biðja um hana. Ekki sagðist Bergþóra vita, hvort málið yrði endanlega afgreitt á föstudag, oft þyrfti að afla frekari upplýs- inga og væri mjög misjafnt hversu langaii tima siiit afgreiðsla tæki. Þá sagðist Bergpo.’S ehki vilja tjá sig persónulega um málið á þessu stigi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.