Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 13

Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981 13 Sinfóníu- tónleikar Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Efnisskrá: Handel FluKeldasvitan Haydn Ohókonsert R. Strauss Óbókonsert R. Strauss Svita úr óperunni Rosenkavalier einleikari: Maurice Bourgue Stjórnandi: Jean-Pierre Jacqu- Ulat Maurice Boursrue Tónleikarnir hófust á Flug- eldasvítunni eftir Hándel. Verkið var upphaflega flutt í tilefni friðarsamkomulags milli Frakka og Englendinga af feiknalegri lúðrasveit, en er nú á tímum venjulega leikið i radd- setningu eftir Sir Hamilton Harty. Samkvæmt því, sem sagt er i efnisskrá fyrir tónleikana, virðist vera farið eftir „texta- bókum" er þekkja aðeins þá gerð verksins. Ef samband væri milli þeirra er sjá um efnisskrána og hlómsveitarinnar, hefði ekki verið óviðráðanlegt að geta þess hver bjó verkið út fyrir sinfóníu- hljómsveit, því ekki var þetta raddsetning eftir Sir Hamilton Harty. Raddsetningin var allt önnur og röð kaflanna ekki sú sem talin er upp í efnisskránni. Eftir forleikinn átti, sam- kvæmt efnisskrá, að koma hæg- ur „friðar" þáttur, Largo alla siciliana, en í staðinn var leikinn Bourree-dans þáttur, sem í radd- gerð Hartys er leikinn síðast með Menuett-þáttunum. Radd- setning mun vera eftir Wilhelm Pfannkuck (Pönnukaka) og hefði verið sjálfsögð kurteisi að til- greina það í efnisskrá, svo og þáttaskipan. Næst á efnis- skránni var flutningur tveggja óbókonserta eftir Haydn og Strauss. Einleikarinn Maurice Bourgue er stórkostlegur flytj- andi. Tækni hans er ekki aðeins bundin við fingralipurð og tón- Jean-Pierre Jacquillat myndun, ekki aðeins markmið í sjálfri sér, heldur samofin túlk- uninni, er veitir ótakmarkað frelsi til samvista við „músurn- ar“. Tónleikunum lauk með Svít- unni sem Strauss samdi upp úr óperu sinni, Rosenkavalier og bregður þar fyrir mörgu skemmtilegu. Það var sagt um Strauss að „úr mjóum þræði gæti hann ofið þykkan kaðal“ og er þetta ekki fráleit lýsing, því fáum hefur tekist að raddsetja fyrir hljómsveit á jafn skraut- legan máta, án þess að missa tökin á framvindu tónsmíðar- innar. Hljómsveitin gerði margt vel á þessum tónleikum og það var greinilegt, að hljómsveitarstjór- inn var í essinu sínu. Ég hef séð heilmikiö af myndum eftir Carl Fredrik Hill enda marg- oft komið til Malmö þar sem mesta og besta safnið er af þeim. Þá hefur verið gefið út mikið ritverk með fjölda mynda lista- mannsins og þekki ég það vel. Bókin var einmitt til sýnis á sýningunni að Kjarvalsstöðum, sá ég fólk fletta í henni og hlakkaði " til að nálgast hana seinna. Fljót- lega skeði það þó, að einhver „grandvar og heiðarlegur" maður tók hana í vörslu sína með öllu óumbeðinn. En þar hvarf mikil- vægur og mér er nær að halda ómissandi hluti sýningarinnar því að hún sjálf megnar ekki að kynna Carl Fredrik Hill í Kjarvalssal að Kjarvals- stöðum stendur yfir mjög sérstæð sýning á teikningum eins merkasta myndlistarmanns Sví- þjóðar á seinni hluta síðustu aldar og fram á þessa öld, Carls Freder- iks Hill (1849-1911). Er hér einstakt tækifæri fyrir þá er áhuga hafa á list þessa hugsjúka snillings, að skyggnast inn í lok- aða veröld hans og hugarheim. Ég býst fastlega við að margir ís- lenzkir myndlistarmenn muni þekkja til þessa snillings og örlaga hans en hann var haldinn kleyf- hugasýki meira en hálfa ævi sína og var honum líkt farið og landa hans og samtíðarmanni Ernst Josephson. sem mun öllu þekktari meðal hérlendra. Að listamenn séu á mörkum þess að vera geðveikir telst ekki óalgengt og kleyfhugar munu þeir hafa verið margir að meira eða minna leyti, en það er hins vegar óalgengara að blómaskeið listar þeirra spanni þann tíma er sjúk- dómurinn hrjáir þá mest. Frekar að þeir gerðu sín mestu listaverk er þráði af þeim, og á það einnig við um eiturlyfjaneytendur og alkóhólista er gengu berserksgang í list sinni á milli þess sem sjúkdómurinn sótti á þá. Sagan segir einungis frá örfáum er nutu Nlyndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON sín betur undir áhrifum vímuefna eða geðveikikiasta. Það er hins vegar alkunna, að geðveikt fólk og vangefið getur oft tjáð sig öðrum betur í línum og litum, en það hefur sínar eðlilegu orsakir, — tjáskiptin eru þá einatt beinni og hömlulausari en hjá venjulegu fólki og á stundum eini möguleikinn til tjáningar. Það er allt annað mál, að þjóðsagan vill gjarnan gera lista- menn smáskrítna og öðruvísi en fólk er flest og raunar ýta þeir sjálfir oft undir þetta til að auka athygli og eftirtekt á persónu sinni. En það er þessu með öllu óskylt og oftar eru listamenn mjög venjulegt fólk en sem hefur valið sér óvenjulegt hlutskipti í lífinu, sem er ofar skilningi fjöld- ans. þennan listamann nægilega vel. Teikningarnar njóta sín t.d. mun betur á hvítum blaðsíðum bókar- innar en á hinum brúna umbúða- pappír, sem þær eru teiknaðar á, en það var gert í sparnaðarskyni vegna óhemju afkasta listamanns- ins. Ekkert er það sem einangrar myndirnar á veggjunum og fyrir merkilega einhæfa og sérvizku- lega upphengingu hverfa mynd- irnar næstum inn t strigaklædda veggina. Þetta gerir þá kröfu til áhorfandans að hann rýni vel og gaumgæfilega á hverja mynd því að ella missa þær marks. Ég sá nokkra gera slíkt en obbinn hleyp- ur hratt yfir og er það mjög skiljanlegt. Á hinum hvítu veggj- um Malmö Konsthall t.d. trúi ég að myndirnar skili sér margfalt betur. Ágæt sýningarskrá fylgir sýn- ingunni með ítarlegri kynningu á lífi, list og sjúkdómssögu lista- mannsins og er það þýðingarmikið að verða sér úti um hana um leið og menn gefa sér rúman tíma við skoðun myndanna. Að lokum hvet ég sem flesta að legja leið sína á Kjarvalsstaöi og kynna sér hinar tjáningarríku undirfurðulegu myndir Carls Fre- derik Hill. úrskarandi vel. Leikhúsið getur ekki síst verið stolt af leikurum sínum sem leika af lífi og sál. Þráinn Karlsson í hlutverki Brjálæðingsins (Dárans) er mál- pípa höfundarins, leikur sér að því að hafa lögreglustjórann, lögreglu- fulltrúana og lögregluþjónana að háði og spotti og nær sannfærandi tökum á þessu erfiða hlutverki. Annar leikari af norðlenskum skóla, Arnar Jónsson, hefur ekki lengi leikið á jafn áhrifamikinn hátt og í hlutverki lögreglustjór- ans. Ymislegt sem manni hefur þótt miður í fari leikarans, einkum hástemmd framsögnin, er eins og gufað upp. Bjarni Ingvarsson kom á óvart í hlutverki Pissanis fulltrúa fyrir það hve leikur hans var heilsteypt- ur og túlkunin gjörhugsuð. Viðar Eggertsson lék hinn vand- ræðalega Bertozzo fulltrúa og gerði honum þau skil sem ætlast var til. Björn Karlsson var hinn heimski og sýfjaði lögregluþjónn (tvö stykki), dæmigerður fulltrúi þess sem aðeins hlýðir skipunum. Elísa- bet B. Þórisdóttir var trúverðug ítölsk blaðakona, Maria Feletti. Það skal að lokum áréttað að hinn nýi samastaður Alþýðuleik- hússins, Hafnarbíó, er nú vettvang- ur leiklistar sem eflaust á eftir að gleðja marga. Sýningarnar á leik- ritum Dario Fos eru leikhúsinu mikill ávinningur. AK.I.VSrNOASlMINN KH: 22410 JH#r0iinhUit>ib AÐEINS 25% ÚT, OG ÞÚ FERÐ HEIM MEÐ HUSQVARNA ELDAVÉL. RESTINA BORGARÐU Á NÆSTU 5—8 MÁN. HUSQVARNA verksmiöjurnar framleiöa eldavélar sem eru allt frá því aö vera einfaldar 3ja hellna vélar meö einum ofni og geymsluofni, til fullkominna eldavéla meö keramik helluboröi, 2 ofnum, efri ofninn sjálfhreinsandi, tölvustýröu klukkuboröi, sem hægt er aö tengja viö ofn og hellu. Vélarnar eru til í breiddum: 50 — 55 — 60 og 70 cm. Hellurnar eru fljótvirkar, og ofninn hitnar á 6 mín. HUSQVARNA hefur fengiö sérstaka viöurkenningu fyrir aö framleiöa sérlega sparneytnar eldavélar. Verðið er frá: 2891,- til 6832,- Þetta tilboö gildir til 1.3. ’81. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 Husqvarna sparar orku Viö kynnum Husqvarna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.