Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 20

Morgunblaðið - 10.02.1981, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Óskabörn ríkis- stjórnarinnar O lafur Gunnarsson framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, stærsta atvinnufyrirtækis í því byggðarlagi, spyr í grein hér í blaðinu á laugardag, hvort ríkisstjórnin sé ef til vill ríkisstjórn „rikissjóðs, Seðlabanka, viðskiptabanka og lánastofnana svo sem Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs". Olafur segir: „Ástæða er til að benda öllum sérstaklega á það að bera afkomu þessara aðila saman við afkomu sjávarútvegsins, sem ber þetta allt þó á herðum sér. Þegar afkoma þessara aðila er skoðuð, sést hvaða þrýstihópur er öflugastur í þessu landi." Hér er sterkt að orði kveðið og ekki að ástæðulausu. Það eru ekki aðeins atvinnurekendur, sem spyrja þessarar spurningar. Hún hlýtur einnig að brenna á vörum þeirra, sem störfin vinna, launþeganna. Ólafur Gunnarsson segir afkomu sjávarútvegsins óviðunandi og hún hafi verið það undanfarin sex ár. Vanskilaskuldir útgerðar og fiskvinnslu nema 40—50 milljörðum gkróna. Hann segir, að sjávarútvegurinn standist ekki lengi enn samkeppni annarra þjóða á mörkuðunum, ef reksturinn dregst enn saman og lamast vegna óviðunandi rekstrarafkomu. Eins og forsætisráðherra dr. Gunnar Thoroddsen viðurkenndi í viðtali við útvarpið á sunnudagskvöld, hefur ríkisstjórnin ekki náð markmiðum sínum í baráttunni við verðbólguna. Raunar má segja, að í því efni sitji hún í sama farinu og fyrir réttu ári. Þó ekki alveg, því að nú er verðbólgumarkmiðið ekki einungis jafn fjarlægt og áður, heldur stefnir alls staðar til samdráttar í atvinnu. Sjávarútvegurinn er að sligast undan verðbólgubyrðunum. Háir vextir eru auðvitað afleiðing verðbólgunnar en ekki orsök. Staða sparifjáreigenda hefur versnað, af því að stjórnvöld hafa ekki farið að landslögum um vaxtahækkanir. Þau svik verða ekki afsökuð með því að segja, að innlán hafi aukist á síðasta ári, eins og Steingrímur Hermannsson hefur látið eftir sér hafa. Ríkisstjórnin lofaði að koma á verðtryggðum innlánsreikningum með 6 mánaða bindi- skyldu um áramótin. Jafnframt lýsti hún því yfir, að útlánsvextir ættu að lækka 1. mars. Af eðlilegum ástæðum á ríkisstjórnin erfitt með að komast út úr þessari þversögn. Með hliðsjón af orðum Ólafs Gunnarssonar, sem vitnað var til í upphafi, er enginn vafi á því, að ráðherrarnir reyna að finna leið út úr vandanum, sem kemur sér illa bæði fyrir sparifjáreigendur og skuldara, einstaklingana og atvinnufyrirtækin, en miðast við hagsmuni ríkishitarinnar, banka- kerfisins og sjóðanna. Hvaða gengi? Ríkisstjórnin veit ekki, hvernig hún á að grípa á loforðum sínum í vaxtamálum. Hún sýnist einnig komin í vandræði vegna ákvörðunarinnar um að binda gengi krónunnar fast við Bandaríkja; dollar. Nú er talað um nauðsyn þess að finna aðra gengisviðmiðun. I því felst auðvitað fráhvarf frá þeirri stefnu að festa gengið. Þau rök, að dollarinn hafi styrkst og þess vegna sé þetta nauðsynlegt, eru síður en svo sannfærandi. Hver sá, sem les gengistöflur í dagblöðunum, gat sagt sér, að dollarinn sveiflaðist til og frá. Ríkisstjórnin hlýtur einnig að hafa haft hugmynd um það, þegar hún tók ákvörðun sína um áramótin. Víglundur Þorsteinsson stjórnarformaður Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins segir í viðtali við Morgunblaðið á laugardag, að íslenska krónan hafi hækkað um 8% gagnvart vestur-þýsku marki á einum mánuði. Af þessu leiði, að íslenskur iðnaður fái í raun 8% lægra verð, umreiknað í íslenskar krónur, fyrir útflutning til flestra Evrópulanda en hann fékk um áramót. Samkvæmt því hafi útflutningsiðnaðurinn tapað 600 milljónum gkróna á þeim 5 vikum, sem liðnar eru frá áramótum, sem svari til 7 milljarða gkróna á heilu ári. Samhliða því, sem ríkisstjórnin batt gengið fast við Bandaríkja- dollar, ákvað hún að beita millifærslu til að greiða niður gengið fyrir sjávárútveg og útflutningsiðnað. Þýðir hugmyndin um nýja gengisviðmiðun það, að horfið er frá millifærsluleiðinni? Eða á nú bæði að láta gengið síga og standa að millifærslum (með erlendu lánsfé eða nýprentuðum seðlum), þegar því er opinberlega haldið á loft, að gengið sé fast? Gott ráð Garðar Sigurðsson þingmaður Alþýðubandalagsins í Suður- landskjördæmi gaf flokksbróður sínum Ragnari Arnalds fjármálaráðherra gott ráð í Þjóðviljagrein um helgina. Hann benti ráðherranum vinsamlega á að segja af sér. J*" spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hér á eftir fara spurningar og svörin við þeim, sem lesendur Morgunblaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um skattamál. Lesendaþjónusta þessi er fólgin í því að lesendur hringja spurningar inn í síma 10100 kl. 14—16 frá mánudegi til föstudags, síðan leitar blaðið svara hjá skattyfirvöldum og birtir spurningarnar og svörin í blaðinu. Barna- skattar Þorkell Harðarson, Lind- arhvammi 13, Kópavogi: Ég er 11 ára og fékk 160 þús. og 60 kr. í laun á síðasta ári. Hvað þarf ég að borga mikið af því í skatta? Svar: Álagningarprósentan til svokallaðra barnaskatta er 7%, sem þýðir, að þú fengir kr. 11.204 kr. í skatt. Á sl. ári ákváðu skattayfirvöld að feila niður barnaskatta, sem væru lægri en 10.000 kr. Ef við framreiknum þá upphæð til dagsins í dag gera það 14.500 kr., þannig að ef þessi niðurfelling verður látin gilda nú sleppur þú alveg við skatt til ríkissjóðs. Þá kveða lögin á um, að þú eigir að greiða 3% af tekjum þínum í útsvar til sveit- arfélags þíns. Það gera kr. 4.802 , kr. Sum sveitarfélög hafa fellt niður barnaútsvar, önnur ekki. Hægt er að fá upplýsingar um það á viðkomandi bæjarskrif- stofu. Húseigenda- trygging o.fl, N.N. spyr: a) Hvernig á að færa loka- greiðslu af skuldabréfi, sem stendur í 0 í árslok? b) Hvar á að færa námsskuld- ir barns við foreldra á skýrslur foreldranna? c) Er húseigendatrygging fall- in niður á frádráttarliðum? d) Hvernig á að gera grein fyrir kostnaði við byggingu bílskúrs? e) Gjarnan vildi ég fá nánari útskýringu á lið T5, þ.e. um val 10% af samtölunni og hvernig á að útfæra? Svör: a) Afborgun af skulda- bréfi er ekki færð á framtal en greiddir vextir færast í þann vaxtadálk á lið S1 sem við á og kr. 0 í eftirstöðvadálk. b) Skuldin færist hjá foreldr- um í lið E6. c) Iðgjald af húseigendatrygg- ingu vegna íbúðar til eigin nota er ekki lengur frádráttarbært. d) Húsbyggingarskýrsla vegna bílskúrs skal fylgja skattfram- tali (eyðublað fæst hjá skatt- stjórum). Til eignar á að telja á fasteignamati, sé það fyrir hendi, annars á byggingarkostn- aði, að viðbættum verðstuðuls- hækkun hans, sem á er fallinn til ársloka 1980. e) Ef valinn er 10% frádráttur er hann reiknaður af samtölunni í lið T5 og færist hann í reit 58 og síðan er reiknað áfram niður dálkinn hægra megin. Munurinn á liðunum 63 M.T. spyr: Á framtals- eyðublaðinu eru tveir liðir merktir 63. Hver er munurinn a þeim, hvað á að setja í hvorn þeirra? Svar: í báða reiti getur komið tekjuskattsstofn. Ef valinn er fastur frádráttur (10% af sam- tölu í T5) er reiknað skv. dálki hægra megin, en sé valinn frá- dráttur D og É, þ.e. lífeyrissjóðs- greiðsla, vaxtagjöld o.fl., þá er reiknað skv. dálki vinstra megin. Ef báðar aðferðir eru sýndar velja skattstjórar þá reglu sem hagstæðari er framteljanda. Imyndaðar leigutekjur Árni Tómasson, Stakka- hlið 10, Reykjavík: Ef maður á gamla íbúð (aðra en þá sem maður býr í), sem stendur auð vegna langvarandi viðgerðar, getur skattstofan þá talið hon- um til tekna ímyndaðar leigu- tekjur af auðu íbúðinni? Nægir ekki að greiða af henni fast- eignagjöld og eignaskatt, auk viðgerðarkostnaðarins? Svar: Ef íbúðin stendur sann- anlega auð, verða ekki reiknaðar af henni leigutekjur. Persónu- frádráttur Geir Sigurjónsson, Grett- isgötu 96, Reykjavik: Hver er persónufrádrátturinn fyrir ein- stakling og hjón? Á framteljandi ekki að geta hans á eyðublaðinu. Ef svo er, hvar á þá að setja hann? Svar: Persónufrádráttur er enginn skv. núgildandi lögum. Þegar skattur er á lagður er hann reiknaður af tekjuskatts- stofni og síðan er persónuaf- sláttur dreginn frá reiknuðum skatti. Persónuafsláttur er nú g.kr. 732.250 fyrir einstakling eða hvort hjóna. Þessi upphæð færist aldrei á framtal, heldur er notuð þegar útreikningur skatts- ins fer fram, eins og áður segir. Nám erlendis S.L. spyr: Bróðir minn vann hér á landi í 10 mánuði sl. ár og fór í nóvember til náms í Danmörku. Þar mun hann verða í tvö ár án launa og verður að sjá algjörlega fyrir sér. Hvað er til ráða? Getur hann beðið með að borga skattinn og hvernig á hann þá að snúa sér í þvtmáli? Svar: Honum ber að telja fram á venjulegan hátt og fær hann þá álagningu skv. því í sumar. Vegna greiðslu á álögð- um gjöldum verður hann að snúa sér til viðkomandi innheimtu- manna, ríkissjóðs og sveitarfé- lags. Tekjur erlendis Hafdis Kristmundsdóttir, Lindarflöt 14, Garðabæ: Ég var við störf í Danmörku í sumar og borgaði þar skatta jafnóðum af launum mínum. Ég er nú í skóla hérlendis. Þarf ég að gefa upp launin erlendis og þá hvernig? Svar: Skattur verður ekki lagður á hér vegna teknanna í Danmörku, enda er í gildi samn- ingur milli Islands og Danmerk- ur til að komast hjá tvísköttun. Engu að síður þarf að gera grein fyrir tekjum erlendis og greidd- um sköttum þar, svo og tekjum hérlendis, ef einhverjar eru. Rétt er að geta þessara skatta i athugasemdadálki á baksíðu framtalseyðublaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.