Morgunblaðið - 10.02.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.02.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRUAR 1981 27 O Þeir Gunther Netzer og Franz Beckenbauer voru ekki alltaf sömu perluvinirnir og þeir virðast vera á þessari mynd. Til dæmis rifjar Netzer upp eitt atvik, er Vestur-Þjóðverjar unnu Norðmenn 7—1 i landsleik. Einhverju sinni í leiknum fékk þýska liðið aukaspyrnu rétt utan við vítateig norska iiðsins. Netzer, sem var vanur að taka ailar slíkar spyrnur, var lengi að stilla knettinum upp nákvæmlega eins og hann vildi hafa hann. Loks þegar hann var búinn að þvi, hakkaði hann frá og undirbjó tilhlaup sitt. En áður en hann gat deplað auga, hljóp Beckenbauer til og spyrnti. Skoraði keisarinn glæsilega. Eftir leikinn var haft eftir Netzer: „Ef hann hefði ekki skorað, hefði ég slegið hann niður.“ Hl' Það er oft mikill hiti þegar leikið er og því ekki mikill hraði í leikjunum. Lítil harka og ef ein- hver meiðist er langt á milli leikja svo að leikmenn ná sér fullkom- lega oftast nær. Eg var mjög vel á mig kominn líkamlega. Og engu tapað af knatttækni eða leikgleði. Þá vissi ég að ég yrði að fara í stranga læknisskoðun til þess að Hamborg myndi skrifa undir samning. Um- boðsmaður minn stóð í löngum samningaviðræðum við forráða- menn Hamborg og þeir komust að samkomulagi. Eg fékk mjög góðan samning við félagið. Mér er engin launurig á að segja að ég hefði getað fengið meiri peninga fyrir að halda áfram að leika með Cosmos. En nú skiptu aurarnir ekki lengur öllu máli. Það var því skrifað undir og ákveðið að ég mætti til leiks og æfinga um leið og samningur minn við Cosmos rynni út. Ég mætti svo á mína fyrstu æfingu hjá Hamborg í septemberlok. Erfiðar æfingar í fyrstu brá mér við hinar erfiðu æfingar sem ég var orðinn óvanur. En þetta kom fljótt. Ég stóðst allar læknisskoðanir með prýði og á að geta leikið knattspyrnu fram til fertugs. „Vonandi geri ég það“. En ég fékk ekki að leika minn fyrsta leik strax. Það var ekki fyrr en í nóvember sem ég fékk að leika. Við lékum á útivelli gegn Karlsruhe. Ég átti alls ekki von á því að vera með. Zebec hafði mig á varamannabekknum í fyrsta skipti. I hálfleik sagði hann svo. Ertu tilbúinn? Ég var það varla. En inná fór ég. Við töpuðum leiknum 3—2. Eg átti í fyrstu erfitt með að komast í takt við leikinn en svo kom þetta. Og þetta minnti mig á hina gömlu góðu daga. Þó er eitt sem komið hefur mér á óvart. Frá því að ég lék í „Bundesligunni" fyrir þremur ár- um hefur hún breyst. Hraðinn er orðinn enn meiri og harkan líka. Það er fyrst og fremst leyndar- dómur þýska boltans. Hraði og aftur hraði og kraftur. Það eru mörg lið sem hafa sömu hæfileika og knattmeðferð og leikmenn í þýsku liðunum. En þeir hafa ekki sama úthald og kraft. í því liggur munurinn. Svo mörg voru þau orð „keisarans". Endurkoma Fraz Beckenbauers vakti gífurlega athygli í Vestur- Þýskalandi. Hann fékk stærri fyrirsagnir í blöðum en Páfinn sem heimsótti landið á sama tíma og Beckenbauer var að mæta til leiks. Það er fylgst grannt með hverju skrefi hans í leikjum. Iþróttafréttaritarar skrifa niður hverja sendingu hans í leik og hann er undir smásjánni. Og svo vel hefur hann staðið sig að nú eru háværar raddir um að hann verði Franz Beckenbauer með sínum nýju félögum i Hamborg SV, „Keisarinn“ á fullri ferð með nýja félaginu HSV. Hann hefur leikið svo vel i vetur að hann þykir orðið sjálfsagður í vestur-þýska iandsiiðið í knattspyrnu þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall. tekinn í landsliðshópinn. Við þörfnumst þín hefur Jupp Derval sagt. Og hann hefur gengið á fund „keisarans" og málin hafa verið rædd. Og það yrði enginn undr- andi þó að svo færi að þessi fyrrum fyrirliði Vestur-Þýska landsliðsins í knattspyrnu tæki við stöðu sinni á nýjan leik og leiddi lið Vestur-Þýskalands í heimsmeistarakeppninni á Spáni árið 1982. Samantekt — ÞR. • Franz Beckenbauer klæðist hinni nýju keppnistreyju Hamborg SV.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.