Morgunblaðið - 19.02.1981, Side 2

Morgunblaðið - 19.02.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 Alrangt að aðstoð varð- skips hafi verið bönnuð - segir tryggingafélagið EINS og fram hefur komið í Morgunhlaðinu kom skuttog- arinn Sindri að Ileimaey VE 1 sl. mánudagskvöld um það leyti sem dráttartaug milli stjórnlauss skipsins og Öldu- ljónsins slitnaði ok þar sem skuttogarinn var kominn til aðstoðar djúpt í hafi þótti Fulltrúar Alusuisse svara iðnaðar- ráðherra í dag FULLTRÚAR fyrirtækisins Al- usuisse munu í dag. skv. heimild- um Morxunblaðsins, afhenda iðn- aðarráðherra, Iljörleifi Gutt- ormssyni. svar við bréfi hans og fyrirspurn til fyrirtækisins um óeðlilejía verðhækkun á súráli. I bréfi iðnaðarráðherra til fyrir- tækisins kom fram, að hann telur óeðlilega hækkun hafa orðið á verði súráls, sem flutt er sjóleiðis frá Ástralíu til íslands. ekki ástaða til þess að fá varðskip til aðstoðar, en það lá í vari við Vestmannaeyjar. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Tryggingamiðstöðinni hf.: „Vegna frétta í fjölmiðlum þess efnis, að tryggingafélag ms. Heimaeyjar Ve 1 hafi bannað að fengin yrði aðstoð varðskips í erfiðleikum þeim, er skipið átti í síðastliðinn mánudag, vill Trygginga- miðstöðin hf., vátryggjandi m/s Héimaeyjar Ve 1 mót- mæla slíkum fullyrðingum sem alröngum, því slíkt átti sé ekki stað. Það er alfarið á valdi skipstjórnarmanna hverju sinni að biðja um aðstoð, sem þeir telja nauð- synlega. Sjópróf hafa enn ekki farið fram en þar mun mál þetta verða rannsakað af þar til bærum yfirvöldum. Trygg- ingamiðstöðin hf. mun leggja áherslu á, að alvarlegar ásak- anir í hennar garð verði kann- aðar sérstaklega." Baldvin Einarsson fyrrv. forstjóri látinn BALDVIN Einarsson stjórnar- formaður AJmennra trygginga hf. og fyrrverandi forstjóri þess sama fyrirtækis lézt á Landspít- Baldvin Einarsson alanum i gær. Hann var 87 ára að aldri. Baldvin fæddist 22. febrúar 1913 á Eyri í Skótufirði, N-ísafjarðar- sýslu. Foreldrar hans voru Einar Þorsteinsson bóndi þar og skip- stjóri og kona hans Sigrún Kristín Baldvinsdóttir. Hann lauk gagn- fræðaprófi á Akureyri 1931, stundaði nám í vátryggingum í Kaupmannahöfn 1938—1940. Vann við verzlunarstörf í Reykja- vík 1931—36. Var starfsmaður hjá vátryggingafélaginu Trolle & Rothe hf. 1936—43. Forstjóri Al- mennra trygginga hf. í Reykjavík varð hann við stofnun fyrirtækis- ins 1. ágúst 1943 og gegndi því starfi þar til í september 1980. Formaður stjórnar félagsins var hann frá 1975 til dánardægurs. 1963 hlaut Baldvin sérstaka viður- kenningu sem ræðismaður fyrir Japan í Reykjavík. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Kristínu Pétursdóttur, 19. júni 1943 og eignuðust þau tvær dætur. 'lía ii i Miklar skemmdir urðu á gróðurhúsum þeirra feðga Bernharðs Jóhannessonar og Jóhannesar Jónssonar að Sólbyrgi og Dalbæ að Kleppjárnsreykjum í óveðrinu. (LjóKm. ófeiKur.) Skemmdir á nær öllum bæjum í Borgarfirði Hvanneyri 18. febrúar ENN berast fréttir úr sveitum Borgarfjarðar um tjón, sem varð í óveðrinu mikla aðfara- nótt þriðjudags. Nú er ljóst, að skemmdir hafa orðið á næstum hverjum einasta bæ í héraðinu. Þegar þetta er skrifað um hádegisbilið er enn rafmagns- laust og símalaust víðast hvar í héraðinu og brotnir staurar eru víðar en í fyrstu var talið. Svo ótrúlega harkalega hefur þetta veður gengið yfir, að lýsingar á skemmdum eru magnvana. Hér í héraði vissu menn af þessu veðri, þ.e.a.s. þeir tóku spá Veðurstof- unnar alvarlega, en tjónið, sem nú er ljóst að orðið hefur, er langtum meira, en svartsýnustu menn gerðu ráð fyrir. Allir sem geta hjálpa nú til við lagfæringar eftir því sem að- stæður leyfa hjá hverjum og einum. Björgunarsveitin í Borg- arnesi, nemendur Bændaskólans á Hvanneyri og Samvinnuskól- ans að Bifröst hafa unnið að bráðabirgðaviðgerðum og a.m.k. munu nemendur á Hvanneyri vinna áfram við það. Nú þegar vantar orðið bárujárn í héraðið og einnig gler í gróðurhúsin. Ekki er kunugt um slys á mönnum, en mikil skelfing greip um sig meðal fólks víða í ham- förunum þegar járnið tættist af húsunum eða þegar húshlutar liðuðust í sundur og hurfu ger- samlega í sumum tilfellum. Kannski er það stórfurðulegt, að engin skyldi farast í hamför- um þessum. Vera má, að hér hafi sterk lýsingarorð verið notuð, en ef það á ekki við núna, þá á það aldrei við. Ofeigur Æðsti yfirmaður varna Noregs talar hér á fundi Sverre Hamre SAMTÖK um vestræna samvinnu (SVS) hafa hoðið Sverri Hamre, hershöfðingja, yfirmanni varna Noregs, hingað til lands. Laugar- daginn 21. febrúar heldur hann ræðu og tekur þátt í umræðum á fundi. sem SVS halda ásamt Varðbergi í Átthagasal Hótel Sögu (suðurenda). Fundurinn hefst kl. 12 á hádegi. 1 Umræðuefni hans verður: Sjón- armið Norðmanna í varnarmálum og varriir á norðurslóðum. Fyrirlesturinn, sem fer fram á „Aukning erlendrar lántöku nemur 150% 66 segir Matthías Á. Mathiesen m.a. um lánsfjárlagafrumvarpið „ÞAÐ ER ljóst af lánsfjárlaga- frumvarpi því. sem ríkisstjórn- in hefur nú lagt fram, að enn er stefnt að auknum umsvifum ríkisins, fjármögnuðum með lánsfé,“ sagði Matthías Á. Mathiesen alþm. m.a. í viðtali við Mbl. í gær. er blaðamaður spurði hann álits á nýfram- lögðu frumvarpi ríkisstjórnar- innar um lánsfjárlög á Alþingi. Þá sagði Matthías: „Frá fjárlög- um sem samþykkt voru í des- ember sl. eru enn áformaðar auknar lántökur, sem nema 30 millj. nkr. Hækkun frá láns- fjáráætlun 1980 er um 270 millj. nkr. eða 75%. Það er annað árið i röð, sem hækkun lánsfjáráætlunar milii ára er meiri en nemur almennum verð- lagsbreytingum. Af nýjum viðfangsefnum rík- isstjórnarinnar í lánsfjáráætlun vekur athygli lántakan fyrir Skipaútgerð ríkisins og Land- smiðjuna, sem nemur 27 millj. nkr. Fyrirhugað er að afla láns- fjár innanlands, sem nemur 340 millj. nkr. og er hækkunin þar um 40%. Aftur á móti hyggst ríkisstjórnin auka erlendar lán- tökur úr 113 miilj. nkr. skv. áætlun 1980, í 284 millj. nkr., en sú hækkun nemur 150%. Greini- lega kemur hér fram, að ekki er stefnt að því að draga úr verð- bólgunni heldur þvert á móti. Það, hvernig staðið hefur verið að framkvæmd lánsfjáráætlunar svo og undirbúningi hennar af núverandi ríkisstjórn, kann ekki góðri lukku að stýra. Það er sífellt verið að breyta og auka við áætlunina, þannig að ríkis- stjórnin hefur ekki enn getað lagt fram heildarlánsfjáráætlun, en hefur þess í stað komið með þrjár útgáfur frá framlagningu fjárlagafrumvarps, en hver ' þeirra hefur haft í för með sér umtalsverða hækkun. Sýnir það bezt þá samstöðu sem sagt er að sé á stjórnarheimilinu." V Matthias Á. Mathiesen ensku, er ætlaður félagsmönnum og gestum þeirra. Sverre Ludvig Borgund Hamre er fæddur í Björgvin 1918. Hann útskrifaðist úr norskum herskóla 1939, barðist gegn innrásarliðinu 1940 og komst síðan til Bretlands. Fyrst gegndi hann herskyldu með norsku herdeildinni í Skotlandi, en eftir skólanám í Lundúnum var hann einn örfárra bandamanna Breta, sem fékk brezka herdeild til stjórnar. Hann stjórnaði henni í innrásinni í Normandí og barðist síðan með henni í Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Þýzkalandi. 1947 lauk hann prófi frá sænska hernaðarháskólanum, en síðan hefur hann gegnt hverri stöðunni annarri mikilvægari í varnarkerfi Norðmanna. 1977 var hann skip- aður hershöfðingi og „forsvars- sjeff", þ.e. æðsti yfirmaður allra varna. Slagsíða á Mánafossi „ÞETTA VAR erfið ferð, en engin hætta á ferðum“, sagði Ásgeir Sigurðsson skipstjóri á Mánafoss í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Skipið kom inn til Reykjavíkur í gær og var þá talsverð slagsíða á því. Ásgeir sagði, að þeir hefðu verið með um 500 tonn af stykkjavöru á brettum í lestum og eftir að veðrið hefði staðið lengi á sama borð um miðnætti á mánudag hefði varan skriðið til. Við þetta hefði komið 8 gráðu halli á skipið og hefði það aðeins rétt sig um 1 gráðu er sjó var dælt úr tönkum stjórnborðsmegin og í tanka bakborðsmegin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.