Morgunblaðið - 19.02.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 3
Alvarlegt mál þegar samninganef ndir
hafa ekki meira umboð en raun ber vitni
- segir Þorsteinn Pálsson um verkfallsboðun undirmanna farskipa
_ÞAÐ VORU gerftir við þá samn-
ingar nú hinn 18. desember um
11,5% hækkun grunnlauna, breyt-
ingar á oriofsKreiðsium. sjómönn-
um til hatfsbóta og breytingar er
varða fri trúnaðarmanna og fleiri
atriði,“ sagði Þorsteinn Páisson
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
samhands ísiands i samtaii við
Morgunblaðið i gær, er hann var
spurður álits á verkfallsboðun á
hluta kaupskipaflotans. En undir-
menn hafa sem kunnugt er boðað
til verkfalls á kaupskipum þeirra
útgerða er settu verkbann á undir-
menn í verkfalli yfirmanna sumar-
ið 1979.
,Um var að ræða samninga sem
fólu í sér ríflega þá meðaltalshækk-
un sem um var samið í almennu
kjarasamningunum," sagði Þor-
steinn ennfremur. „Þetta var í fullu
samræmi við hina almennu samn-
inga, ef eitthvað var voru þeir
heldur hærri. Þessa samninga gerði
stjórn Sjómannafélagsins, en það
sem mér þykir furðulegt í málinu er
það að stjórnin virðist ekki hafa lagt
á það mikla áherslu, að samningar
er hún sjálf stóð að, yrðu samþykkt-
ir. Hún lætur fella fyrir sér samn-
inga, og auðvitað er það meira en
lítið alvarlegt þegar þær samninga-
nefndir sem samningsaðilar tefla
fram í viðræðum, hafa ekki meira
umboð en raun ber vitni og ekki
kraft til að fylgja eftir þeim samn-
ingum sem gerðir eru.
Við sjáum ekki að það hafi verið
lögð á það rík áhersla á að fá þessa
samninga samþykkta. Ljóst er að
ýmis skip sem komu til hafnar
meðan á atkvæðagreiðslu stóð,
fengu ekki tækifæri til að kjósa.
Ekki var opnuð skrifstofa um helgar
vegna skipverja sem komu um helgi,
um það höfum við dæmi. Þátttaka í
atkvæðagreiðslunni var mjög lítil,
um einn fjórði hluti þeirra er áttu
hlut að máli greiddu atkvæði, og
munurinn varð ekki mikill. Starfs-
menn Landhelgisgæslunnar taka
þátt í þessari atkvæðagreiðslu, þó
þeir eigi engan hlut að máli og eru
þar að auki í þeirri stöðu að þeim er
óheimilt að taka þátt í verkfalli.
Þetta þykir okkur meira en lítið
furðulegt, og málið í heild sinni er
mjög alvarlegt."
— Hvað vilt þú þá segja um það
að nú er eingöngu boðað til verkfalls
hjá þeim útgerðum er settu verk-
bann á undirmenn á sínum tíma? Er
hér um að ræða einhvers konar
framhald aðgerðanna sumarið 1979?
„Hér er að sjálfsögðu ekkert
framhald slíkra aðgerða. Þá voru
allir kjarasamningar lausir, og
verkbannsaðgerðir voru settar á til
að knýja á um að samningar við alla
áhöfn skipa leystust samtímis. Auð-
vitað var ljóst að skipafélögin gátu
ekki tekið á sig keðjuverkföll ein-
stakra starfshópa um borð, og það
var ástæðan fyrir því að verkbannið
var sett á. Nú er um það að ræða að
bundnir eru samningar við aðra
hópa, og farmenn fella þessa samn-
inga. Þeir hafa fellt þá jafnt gagn-
vart félögum innan VSÍ eins og hjá
Sambandi íslenskra samvinnufélaga
en þessi ákvörðun verður auðvitað
ekki skilin nema á þann veg að
sérstakir kærleikar séu milli
forystumanna Sjómannafélagsins
og S1S,“ sagði Þorsteinn Pálsson að
lokum.
Lögreglufélag Reykjavikur:
Krefst opinberrar
rannsóknar vegna
ummæla læknis
LÖGREGLUFÉLAG Reykjavíkur
hefur snúið sér til ríkissaksókn-
ara Þórðar Björnssonar og kraf-
izt opinberrar rannsóknar vegna
fréttar og viðtals við einn af
læknunt siysadeildar Borgarspít-
alans í Dagblaðinu sl. laugardag,
14. febrúar.
„I Dagblaðinu eru bornar fram
grófar ásakanir á lögreglumenn,
sem ekki er hægt að una við og því
höfum við i samráði við lögfræð-
ing okkar óskað eftir opinberri
rannsókn og jafnframt ritað
stjórn sjúkrastofnana Reykjavík-
urborgar bréf um málið," sagði
Björn Sigurðsson formaður Lög-
reglufélags Reykjavíkur í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Við
treystum því að sannleikurinn
muni koma fram við slíka rann-
sókn og lögreglumenn verði
hreinsaðir af þeim áburði, sem
kemur fram í viðtalinu," sagði
Björn.
í langri frétt með forsíðutilvitn-
uninni „Hundeltir lögreglan menn
og eru blóðsýni fölsuð?" fjallar
Dagblaðið um atvik, sem varð í
desember sl. er lögreglan færði
lækni einn til blóðtöku vegna
gruns um ölvun við akstur en
vakthafandi læknir á slysadeild
neitaði að taka úr manninum
blóðsýni þar eð hann væri of
veikur til þess. Birt er viðtal við
lækninn, sem var á vakt, Rögnvald
Þorleifsson, sem gerir ýmsar at-
hugasemdir við störf lögreglu-
manna er færa meinta ölvaða
ökumenn til blóðsýnatöku og með-
ferð lögreglunnar á blóðsýnum. Er
opinberrar rannsóknar krafizt
vegna ummæla Rögnvaldar í
nefndu viðtali.
Veguriim um Hval-
fjörð lokaður í dag
Færð á landinu víðast sæmileg
FÆRÐ Á landinu er víðast hvar
sæmileg. þó er mikil hálka á
vegum. Vegurinn um Hvalfjörð
verður lokaður við Botnsá frá kl.
9—16 í dag vegna viðgerðar á
brúnni.
Góð færð er austur yfir
Þrengsli, Hellisheiði er lokuð.
Greiðfært er á flestum vegum í
Árnes- og Rangárvallasýslum.
Fært er síðan suður með strönd-
inni allt austur til Egilsstaða og
stórir bílar komast um Fjarðar-
heiði og Vatnsskarð. Fært er í
Borgarf jörð eystri.
Þá er fært fyrir Hvalfjörð, en
þar verður vegurinn lokaður í dag
við Botnsá eins og fyrr segir, á
milli kl. 9—16 í dag síðan er fært í
Borgarnes. Fjallvegir á Snæfells-
nesi eru ófærir, en fært er síðan
um norðanvert nesið fyrir stóra
bíla og jeppa. Frá Búðardal er
fært stórum bílum allt austur í
Reykhólasveit. Hætt var við
mokstur á Holtavörðuheiði í gær
vegna veðurs, en þess í stað var
Laxárdalsheiði rudd og lá umferð
norður um land yfir hana í gær.
Verið er að moka frá Patreks-
firði út á Barðaströnd og út á
flugvöll. Stórir bílar komast til
Tálknafjarðar, en ófært er um
Hálfdán til Bíldudals. Ófært er frá
Þingeyri til ísafjarðar og á norð-
anverðum Vestfjörðum eru vegir
yfirleitt ófærir.
Fært er um Laxárdalsheiði allt
til Akureyrar og rutt var í gær til
Siglufjarðar. Þá er fært til Ólafs-
fjarðar og um Dalsmynni austur
til Húsavíkur og síðan er sæmileg
fæð á vegum á Norðausturlandi.
Fært er frá Húsavík í Mývatns-
sveit.
Miðstjórn ASI fundar um
BSRB-samningana i dag
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands
íslands kemur saman til fundar i
dag kl. 15. Á fundinum véro’úr
m.a. tekinn fyrir nýgerður samn-
ingur fjármálaráðherra við
Bandalag starfsmanna rikis og
bæja.
A fundarins eru einnig
umsagnir um lög um efnahagsað-
gerðir ríkisstjórnarinnar og um
Síéítarfólöe og vinnudeilur. Fjall-
að verður um lífeyrismál og sam-
ráð við ríkisstjórnina o.fl. Þá eru
einnig nokkrir dagskrárliðir varð-
andi utanlandsferðir, s.s. boð á
erlend þing.
Þú reiknar
hagkvæmnina
í huganum
en allt annað með ©
2253
C 0 1
Sértu að leita að einstaklega
ódýrri en fullkominni reiknivél
mælum við hiklaust með FACIT
2253. Splunkuný vél, sem a.m.k.
fyrst um sinn býðst á sérstak-
lega hagstæðu kynningarverði.
Við látum myndina tala um fjöl-
breyttar vinnsluaðferðir FACIT
2253, en minnum sérstaklega á
ennþá hraðari prentun og papp-
írsfærslu, stóran og skýran
glugga og þægilegt valborð.
Kynntu þér gæðin og kíktu á verðið .... þú reiknar hagkvæmnina
auðveldlega í huganum!
GÍSLI J. JOHNSEn he S3Í
Smiðjuvegi 8 - Sími 73111