Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
5
Meirihlutinn klofinn í af-
stöðu til uppsagna fóstra
MÁL FÓSTRA voru til umræðu á
fundi borgarráðs síðastliðinn
þriðjudag og gat meirihluti borg-
arráðs ekki komið sér saman um
samræmda stefnu i málinu. að
því að best verður séð af fundar-
gerð.
Þegar málið kom til umræðu
lögðu þau Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
varamaður Björgvins Guðmunds-
sonar og Kristján Benediktsson
fram tillögu um að framlengja
skyldi uppsagnarfresti þeirra
fóstra, sem sagt hafa upp störfum
hjá Reykjavíkurborg og fastráðn-
ar eru, um þrjá mánuði, þannig að
Yfirlýsing læknaráöa:
Neyðarástand í
máíefnum aldraðra
MORGUNBLAÐINU hefur bor
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
stjórnum læknaráða Landspít-
alans, Landakotsspítala og
Borgarspitalans:
Stjórnir læknaráða Borgar-
spítala, Landakots og Landspít-
ala vilja í tilefni þeirra um-
ræðna, sem farið hafa fram um
vandamál aldraðra, taka fram
eftirfarandi:
í ársbyrjun 1978 héldu lækna-
ráðin ásamt heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti ráð-
stefnu um heilbrigðisþjónustu
aldraðra. Þar kom m.a. fram, að
þó nokkur hluti legurýmis
sjúkrahúsanna þriggja færi til
að sinna öldruðum hjúkrunar-
sjúklingum, sem ekki þyrftu á
annarri þjónustu sjúkrahúsanna
að halda. var bent á, að hentug-
asta lausnin væri aukið hjúkr-
unarrými fyrir þessa sjúklinga.
Síðan hefur lítið gerzt og til
dæmis byggingu B-álmu Borg-
arspítalans nær ekkert miðað
áfram.
Nú er svo komið, að hreint
neyðarástand ríkir og hefur sízt
verið nokkuð ofsagt í því efni að
undanförnu. Læknaráðin telja
því að hér sé eitt brýnasta
verkefni heilbrigðisþjónustunn-
ar og skora á opinbera aðila,
félagasamtök og einstaklinga að
stuðla að lausn þessara mála svo
fljótt sem verða má.
F.h. stjórna læknaráðanna.
ólafur Örn Arnarson
Landakotsspíala.
Grétar Ólafsson
Landspítala.
Ásmundur Brekkan
Borgarspítala.
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarn-
arnesi var haldinn laugardaginn
14. febrúar sl. Fundarstjóri var
kjörinn Guðmar Magnússon og
fundarritari Ásgeir S. Ásgeirs-
son.
f skýrslu formanns kom m.a.
fram, að félagsmönnum hefði fjöl-
gað í báðum Sjálfstæðisfélögunum
og væri um 20% af þeim, sem
kosningarétt hafa í bæjarfélaginu,
flokksbundnir.
í stjórn voru endurkjörin Gísli
Ólafsson formaður, Magnús Valdi-
marsson og Helga Einarsdóttir, en
formenn Sjálfstæðisfélaganna eru
sjálfkjörnir í stjórn, þau Skúli
Júlíusson form. Sjálfstæðisfélags
Seltirninga og Kristín Sigtryggs-
dóttir form FUS Baldurs. í vara-
stjórn voru kjörin Ásgeir S. Ás-
geirsson, Áslaug G. Harðardóttir
og Kristinn Björnsson.
í kjördæmisráð voru kjörin
Guðmar Magnússon, Kristinn P.
Michelsen, Kristín Friðbjarnar-
dóttir og Kristinn Björnsson og til
vara Helga Einarsdóttir, Jónatan
Guðjónsson, Guðmundur Hjalta-
son og Halldór Elíasson. Formað-
ur Fulltrúaráðsins er sjálfkjörinn
í kjördæmisráðið.
Að loknum venjulegum aðal-
Leiðrétting
í GREIN Sigurðar Þorbjarnar,
Geitaskarði, í Morgunblaðinu sl.
þriðjudag varð slæm prentvilla. í
greininni er svohljóðandi setning:
„Ekki verður um það fullyrt hér,
en áleitin verður spurningin um
það, hver semur skýrslur um
atburði, þar sem glöp eru gerð,
gæti verið að glæpamaðurinn
sjálfur hefði þar hönd í bagga?"
Hér átti að standa „glapamað-
urinn“. Þetta leiðréttist hér með
og eru viðkomandi beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
fundarstörfum hafði bæjarstjóri
Sigurgeir Sigurðsson framsögu
um fjárhags- og framkvæmda-
áætlun bæjarins. Að lokinni fram-
söguræðu hófust umræður og tóku
margir tl máls og margar fyrir-
spurnir gerðar, sem öllum var
svarað. A fundinum voru mættir
25 fulltrúar af 32.
Orghestarnir
flytja söngleik
HLJÓMSVEITIN Orghestarnir
heldur í kvöld tónleika á Hótel
Borg og hefjast þeir klukkan 21.
Hljómsveitin, sem er ný af
nálinni mun m.a. flytja söngleik-
inn Eggjun Jófríðar Signýjar eftir
Benóný Ægisson. Hljómsveitina
skipa Benóný Ægisson, Gestur
Guðnason, Brynjólfur Stefánsson
og Sigurður Hannesson. Auk
þeirra munu 5 leikarar og söngv-
arar koma fram í kvöld. Aldurs-
takmark er 18 ár.
uppsagnarfresturinn verði sex
mnuðir frá 1. febrúar að telja.
Ennfremur segir í tillögunni að
yfirmönnum viðkomandi stofnana
verði falið að tilkynna þeim fóstr-
um, sem hlut eiga að máli, þessa
ákvörðun.
Þá lagði Sigurjón Pétursson það
til á fundinum að málinu yrði
vísað til borgarstjórnar.
Síðan segir í fundrgerð borgar-
ráðs: „Tillaga um að vísa málinu
til borgarstjórnar fékk 1 atkv. og
því ekki stuðning. (S.P. greiddi
atkv. með).
Tillaga Kristjáns Benediktsson-
ar og Sjafnar Sigurbjörnsdóttur
fékk 2 atkv. og því ekki stuðning.
(A.G. (Albert Guðmundsson), D.O.
(Davíð Oddsson) og S.P. (Sigurjón
Pétursson) sátu hjá.“
Þá létu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins þeir Davíð
Oddsson og Albert Guðmundsson
bóka eftirfarandi:
— Fram hefur komið að undan-
förnu, ekki síst á fundum borgar-
stjórnar, að meirihluti hennar
hefur enga heildstæða stefnu í
kjarasamningum þeim, sem
snerta fóstrur í störfum hjá
Reykjavíkurborg. Með hliðsjón af
þessum hringlanda af hálfu meiri-
hlutans sitjum við hjá við af-
greiðslu málsins nú.
Leikararnir fjórir i hlutverkum sínum í „Líkaminn — annað ekki."
Þjóðleikhúsið:
Síðustu sýningar á
„Líkaminn - annað ekki*'
SÝNINGUM Þjóðleikhússins á
„Likaminn — annað ekki" eftir
James Saunders á Litla sviðinu
fer nú að fækka. Næsta sýning er
i kvöld, fimmtudagskvöld. þá er
það sýnt á sunnudagskvöld og
nk. miðvikudagskvöld.
„Líkaminn — annað ekki“ fjall-
ar um tvenn hjón, sem áður fyrr
voru mjög nánir vinir, en hittast
nú aftur eftir margra ára aðskiln-
að og eiga ekki lengur ýkja margt
sameiginlegt. Leikendur eru fjór-
ir, þau Gísli Alfreðsson, Krist-
björg Kjeld, Steinunn Jóhannes-
dóttir og Sigmundur Örn Arn-
grímsson. Leikstjóri verksins er
Benedikt Árnason, Jón Svanur
Pétursson gerir leikmynd, Páll
Ragnarsson sér um lýsingu, en
Örnólfur Árnason þýðir leikritið.
Fjölgun í Sjálfstæðis-
félögum á Seltjarnarnesi
Gísli ólafsson endurkjörinn form. fulltrúaráðsins
LPTOFRA-
DISKURINN
Ryksugan sem svífur
i®
Ekki leyfi fyrir
kvikmyndun
í Skaftafelli
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur
snúið sér til Mbl. vegna ummæla í
frétt um kvikmyndun á sögunni af
Sámi í blaðinu í gær, þar gæti
misskilnings, þar sem segi að leyfi
ráðsins sé fengið fyrir kvikmynd-
un í Skaftafelli. Kvikmyndafélagið
hefur ekki enn fengið slíkt leyfi.
Hins vegar var því 1979 boðið upp
á það að kynna hugmyndir sínar
um myndatöku á vettvangi áður
en afstaða yrði tekin til málsins.
Átti það að gerast sumarið 1980.
En ráðið hefur ekkert heyrt síðan
frá félaginu um málið.
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rumar 12 litra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líöur um
gólfið á loftpúöa alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig, svo létt er hún.
Verö
Eg er léttust...
búin 800Wmótor
og 12 litra rykpoka.
(Made inUSA)
HOOVER er heimilishjálp
FALKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Pekking
feynsla