Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
13
Hvað gerðist árið 1942?
FRAMLAG 4
Helgi Sigurðsson:
Kjaradeilur ársins 1942
Útg. Framlag,
Reykjavík 1978, 83 bls.
Árið 1942 er eitt viðburðarík-
asta árið í stjórnmálasögu Islend-
inga á tuttugustu öld. Þjóðstjórn-
in sprakk í maí, en við tók
minnihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins fram í desember og eftir
það utanþingsstjórn, kosið var um
nýtt kosningafyrirkomulag í júlí
og aftur samkvæmt því í október,
Sósíalistaflokkurinn varð stærri
en Alþýðuflokkurinn, Framsókn-
arflokkurinn missti forystuhlut-
verkið í stjórnmálum til Sjálf-
stæðisflokksins, verkalýðsfélögin
háðu „skæruhernað" með góðum
árangri, verðbólgan varð alvarleg.
Á þessu ári varð til það flokka-
kerfi, sem íslendingar búa enn við,
þá hófst sú kjarabarátta, sem
síðan hefur verið háð með litlum
hvíldum, og þá kom aftur til
sögunnar sú verðbólga, sem hrjáð
hefur atvinnulífið fram á okkar
daga og er síður en svo í rénum.
Þetta ár er af öllum þessum
ástæðum tilvalið rannsóknarefni
sagnfræðinga. Ég bjóst því við
fróðlegri ritgerð er ég sá ritgerð
Helga Sigurðssonar fjölritaða,
Kjaradeilur ársins 1942. En ég
varð því miður fyrir miklum
vonbrigðum. Höfundurinn hefur
ekki greint viðburðina af neinu
viti, heldur látið sér nægja að
fletta dagblöðum á Landsbóka-
safninu, endursegja fréttir þeirra
og bæta við athugasemdum frá
sínu eigin brjósti, Trotskís og
Marx. Dæmi um athugasemdir
hans er þetta (bls. 1):
„Heimskreppan mikla á fjórða
áratugnum var offramleiðslu-
kreppa. Hins vegar ollu breytt
efnahagslögmál innan kapítalism-
ans því, að hún varð mun harðari
og langvinnari en þekkst hafði á
19. öldinni. Hún var því um leið
dýpsta kreppa kapítalískra fram-
leiðsluhátta, sem litið hafði dags-
ins ljós. Eftir að hafa geisað meira
og minna samfellt í áratug varð á
Bókmenntlr
eftir HANNES H.
GISSURARSON
ólafur Thors lagði það til, þegar
útlendur gjaldeyrir streymdi inn
í bankann 1939—1942 og krónur
út úr þeim og út i atvinnulifið, að
gengið yrði hækkað til þess að
koma á jafnvægi og stöðva dýrtíð-
ina. bað hefði verið hyggilegt.
Það varð borgaraflokkunum
dýrkeypt að ráðast ekki að rót
verðbólgunnar, sem siðan hefur
hrjáð atvinnulífið.
Einar Olgeirsson. — Höfundur
ritgerðarinnar lætur á sér skilj-
ast, að Héðinn Valdimarsson og
margir aðrir hafi gengið úr
Sósialistaflokknum. af því að
þeir hafi gefizt upp i „ofsóknun-
um“ gegn flokknum. Þetta er
alrangt. Þeir gengu úr honum
1939 i mótmælaskyni við ráð-
stjórnardýrkun Einars og trú-
bræðra hans, sem lögðu jafnvel
biessun sina yfir innrás Rauða
hersins i Finnland.
henni myndbreyting, heimskrepp-
an varð að heimsstyrjöld."
Þetta er röng kenning um
kreppuna. Hún varð vegna mis-
taka í stjórn peningamála, og það
gerði illt verra, er ríkin hlóðu
tollmúra og lokuðu mörkuðum
hvert fyrir öðru. En vitglóra er þó
í þessari röngu kenningu miðað
við þá, sem getur að líta á næstu
bls.:
„Útflutningsauðvaldið var öðru
nafni nefnt stríðsgróðavald og var
Sjálfstæðisflokkurinn flokkur
þess. Sá armur flokksins, sem
sérstaklega bar hagsmuni þess
fyrír brjósti, var kallaður Thors-
klíkan, og var hann mestu ráðandi
í flokknum."
Það er ótrúlegt, en satt, að þetta
rugl er í lokaritgerð í sagnfræði
frá Háskóla íslands! Slíkar at-
hugasemdir eiga hvergi við nema í
trúarritum róttæklingasafnaða og
sízt í prófritgerðum.
Verra er þó það, að beinar
sögufalsanir er að finna í þessari
ritgerð. Höfundur segir um „of-
sóknir" gegn Sósíalistaflokknum
1939—1940, sem engar heimildir
eru reyndar tilgreindar um nema
viðtal við Einar Olgeirsson (bls.
9): .
„Á þjóðstjórnartímanum var
raunar alltaf hætta á því að
flokkurinn yrði bannaður með
öllu ... Þessi réttindaskerðingar-
herferð gekk þó svo langt að
flokknum var gert ókleyft [sic] í
þrjá mánuði að halda út dagblaði,
apríi— júlí 1941, og formlega var
Þjóðviljinn bannaður í rúmlega
eitt ár.“
Ekkert er sagt um það, hver
bannaði Þjóðviljann og hvers
vegna. Lesandanum á að skiljast,
að íslenzka ríkisstjórnin hafi gert
það af óviðráðanlegri ofbeldis-
hneigð sinni. En sannleikurinn er
sá, að brezka herstjórnin bannaði
blaðið, vegna þess að það barðist
gegn henni og hvatti til óhlýðni,
enda var Stalín í bandalagi við
Hitler fram á mitt ár 1941, og
óvinir Hitlers, Bretar, því einnig
óvinir Stalíns og íslenzkra þjóna
hans. Þessi kafli er líklega hinn
ljótasti í sögu íslenzkra sameign-
arsinna, enda reyna þeir af öllum
mætti að þegja um hann.
Önnur sögufölsun er á næstu
bls. Höfundur segir:
„Þjóðviljabannið jók mjög sam-
úð almennings með flokknum en
yfirleitt stuðluðu þessar þrenging-
ar að því að veikja hann. Þær
höfðu í för með sér mikla upp-
lausn innan hans, m.a. sagði
meirihluti miðstjórnar sig úr hon-
um og nær helmingur flokks-
stjórnarinnar."
Lesandanum á að skiljast, að
þessir menn úr miðstjórn og
flokksstjórn hafi gefizt upp fyrir
„ofsóknunum". Það er alrangt.
Héðinn Valdimarsson og skoðana-
bræður hans sögðu sig úr flokkn-
um í mótmælaskyni við það, að
Sósíalistar studdu Kremlverja, er
þeir réðust inn í Finnland. Öllu
óheiðarlegri getur frásögnin ekki
verið.
Höfundurinn sér alla viðburð-
ina á vinnumarkaðnum árið 1942
undir sjónarhorni baráttumanns-
ins. Tvær stéttir börðust, verka-
menn og atvinnurekendur, og all-
ar kröfur verkamanna voru rétt-
mætar. Þessi heimsmynd er ein-
föld og þægileg. Eitt gráthlægilegt
dæmi má nefna um „rök“ höfund-
ar fyrir þessum „réttmætu" kröf-
um (bls. 15):
„Einnig var hægt að reikna
dæmið út frá þjóðartekjum. 1941
voru þær 15000.- á hverja 5 manna
fjölskyldu. Prentarar fengu aðeins
8000- og hefðu fengið 9000.- ef
kröfur þeirra væru uppfylltar. Gat
þetta því varla verið ofraun fyrir
atvinnurekendur."
Hvaða tilgangi þjónar þessi
þvættingur í sagnfræðiritgerð?
Þessir reikningar eru út í bláinn.
Hefur höfundurinn aldrei heyrt
getið um annan kostnað fyrir-
tækja en launakostnað? Eða um
það, að hluta þjóðarteknanna
verður að verja til fjárfestingar,
en hinum má verja til neyzlu?
Höfundurinn lætur sér nægja
hismið, en kemst hvergi nærri
kjarnanum, er hann ræðir um
kjaradeilur ársins 1942. Hann
kann ekki mun á sýnd og reynd.
Hver var sýndin? Hún var sú
kjarabarátta, sem háð var árið
1942 og hófst með því, að ríkis-
stjórnin (sem þá var Þjóðstjórnin)
setti gerðardómslög til þess að
stöðva víxlhækkun kaups og ann-
ars verðs, en hana taldi hún orsök
dýrtíðarinnar. Með öðrum orðum
taldi ríkisstjórnin verðbólguna
verða til á vinnumarkaðnum,
kaupið væri hækkað, vegna þess
að vöruverð hækkaði, og vöruverð
hækkaði, vegna þess að kaup
hækkaði. Höfundurinn er, að því
er virðist, sammála ríkisstjórn-
inni um þetta, en telur, að vöru-
verð hafi ekki átt að hækka, þótt
kaup hækkaði, m.ö.o. að atvinnu-
rekendur hafi átt að ganga á sjóði
sína (sem hann er sannfærður um
eins og allir aðrir róttæklingar, að
séu digrir).
Reyndin var öll önnur en öllum
ríkisstjórnum og höfundi ritgerð-
arinnar hefur sýnzt, eins og sést
af viðeigandi tölum. Verðbólgan
varð ekki til á vinnumarkaðnum
1941—1942, heldur á peninga-
markaðnum 1940—1941. Dr.
Oddur Guðjónsson hagfræðingur
nefndi í erindi 1941 (sem birtist í
Frjálsri verzlun það ár) tölur um
seðlaveltuna. Hún var í ársbyrjun
1940 13,8 millj. kr., í ársbyrjun
1941 25,2 millj. kr. og í okktóber-
byrjun 1941 43,9 millj. kr. Tvær
ástæður voru til þessarar geipi-
legu aukningar, að útflutningur
stórjókst og hækkaði í verði og að
Bretar keyptu krónur af Lands-
bankanum og létu pund fyrir.
Þannig streymdi útlendur gjald-
lí.) \ RADEI LI R
XlíSINS
EFTIR HELGA SIGUROSSON
REYKJAVIK 1978
eyrir inn í bankana og krónur út
úr þeim og út í atvinnulífið, og
afleiðingin varð að sjálfsögðu
verðbólga, víxlhækkun kaups og
annars verðs. Krónurnar, sem
streymdu út, buðu upp kaup og
annað verð. Valdsmenn skildu þá
ekki fremur en nú, sjálfskaparvíti
sitt og hugðust stöðva dýrtíðina
með því að banna afleiðinguna —
hækkun kaups og annars verðs —
en láta orsökina vera. Líkja má
því hefðbundna ráði eða öllu
heldur óráði við það að brjóta
hitamælinn til þess að lækka
hitasóttina.
Þessi mistök höfðu víðtækar
afleiðingar í stjórnmálum. Sósial-
istaflokkurinn efldist af þessum
átökum og náði því valdi í verka-
lýðshreyfingunni, sem hann hefur
síðan notað til þess að kúga hina
flokkana til að taka við sér, til
dæmis 1955—1956 og 1978. Það er
kaldhæðni örlaganna, að borgara-
flokkarnir veittu í glímunni við
þann draug, sem þeir höfðu sjálfir
vakið upp með ógætilegri stjórn
peningamála, Sósíalistaflokknum
tækifæri, sem hann var ekki seinn
að grípa. Allt fer þetta framhjá
höfundi ritgerðarinnar, hann ein-
blínir á verkföll, vinnudeilur og
vígorðaflaum. Heimildanotkun
hans er mjög ófullkomin. Kennari
höfundar í Háskóla Islands hefur
gert honum lítinn greiða með því
að hlífa honum við að bæta
ritgerðina og sagnfræðinni enn
minni greiða.
Dagskrá forsetaheimsókn-
arinnar til Danmerkur
EINS og skýrt hefur verið frá í
fréttum hefur forseta ísiands
verið boðið í opinbera heimsókn
til Danmerkur dagana 25. til 27.
febrúar nk.
Dagskrá heimsóknarinnar
verður í stórum dráttum eins og
hér segir:
Miðvikudaginn 25. febrúar
munu Margrethe II Danadrottn-
ing og Henrik prins taka á móti
forseta íslands og fylgdarliði á
Kastrupflugvelli. Síðan verður
ekið til hallar Kristjáns VII í
Amalienborg, þar sem forseti og
fylgdarlið munu búa á meðan á
heimsókninni stendur. Þar verður
snæddur hádegisverður og síðdeg-
is tekur forseti íslands á móti
sendiherrum erlendra ríkja í
Kaupmannahöfn. Um kvöldið
heldur Danadrottning forseta ís-
lands veislu í Kristjánsborgarhöll.
Fyrir hádegi fimmt.udaginn 26.
febrúar er forseta íslands boðið að
skoða Konunglegu postulínsverk-
smiðjuna, en að því loknu verður
móttaka í Ráðhúsinu í Kaup-
mannahöfn og síðan er snæddur
hádegisverður í danska þjóðþing-
inu. Síðdegis verður hirðleikhúsið
í Kristjánsborgarhöll skoðað og
söfn sem þar eru. Um kvöldið
verður hátíðarsýning í boði Dana-
drottningar í Konunglega leikhús-
inu og að henni lokinni samkvæmi
í höll Kristjáns VII.
Árdegis föstudaginn 27. febrúar
opnar forseti Islands sýningu á
íslenskum listaverkum í Ráðhús-
inu á Frederiksbergi. Síðan sitja
Danadrottning og forseti íslands
hádegisverðarfund í Den danske
publicistklub, sem er félagsskapur
danskra fréttamanna. Síðdegis
munu Danadrottning og forseti
íslands fara í heimsókn í Kon-
unglega leikhúsið. Um kvöldið
heldur forseti Islands veislu
Danadrottningu til heiðurs í
Langelinie-Pavillon, en á mið-
nætti lýkur hinni opinberu heim-
sókn.
Forseti íslands og fylgdarlið
hennar munu í boði Danadrottn-
ingar dvelja í höll Kristjáns VII
til sunnudagsins 1. mars.
Laugardaginn 28. febrúar mun
forseti íslands vera við sýningu á
íslenskum útflutningsvörum. Kl.
15.00 hefst hátíðarsamkoma í
Ráðhúsinu á Frederiksbergi á
vegum Dansk-íslenska félagsins,
Norræna félagsins á Frederiks-
bergi, íslendingafélagsins og Fé-
lags íslenskra námsmanna í
Kaupmannahöfn. Síðdegis mun
forseti Islands hafa móttöku fyrir
Islendinga sem búsettir eru í
Kaupmannahöfn á Hótel d’Angle-
terre.
í fylgdarliði forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, verða
Ólafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra og frú Dóra Guðbjartsdótt-
ir, Hörður Helgason ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu og
frú Sarah Helgason, Birgir Möller
forsetaritari og frú Gunilla Möller
og frú Vigdís Bjarnadóttir fulltrúi
á skrifstofu forseta íslands.
Heim kemur forseti Islands með
flugvél Flugleiða hf. sunnudaginn
1. mars.
Reykjavík, 17. febrúar 1981.
RÍKISSKIP
Simi:28822
BROTTFARARDAGAR FRÁ REYKJAVÍK:
VESTFIRÐIR: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag
NORÐURLAND: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag
NORÐ- AUSTURLAND: Vikulega fimmtudaga eða föstudaga
AUSTURLAND OG VESTMANNAEYJAR: Alla fimmtudaga
Biöjiö um áætlun