Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981
_________________________________________________-----------------------
ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
í Bolungarvík varð mikið tjón í óveðrinu eins og víðast hvar annars staðar. Þakið á frystihúsinu sviptist af, alls 180 fermetrar og svo mikill var
krafturinn að átta tommu sperrur kubbuðust í sundur. Ljósm. Mbl.: Gunnar HallsNon.
Nær öll uppskera
garðyrkjubænda ónýt
Gífurlegt tjón á gróðurhúsum í Biskupstungum
Skálholti, 18. febrúar.
ÞAÐ URÐU gífurlegar
skemmdir í Biskupstungum í
óveðrinu. Tjónið varð mest á
garðyrkjustöðvum í sveitinni,
en þær eru á milli 20 og 30. Má
segja, að hvert einasta gróður-
hús hafi orðið fyrir stór-
skemmdum, afurðatjónið er
gífurlegt.
Mest öll uppskeran eyðilagð-
ist, en garðyrkjubændur höfðu
verið vongóðir um góða upp-
skeru í ár, og sumir bjuggust
meira að segja við að fá upp-
skeruna eftir hálfan mánuð eða
svo. En nú er semsé uppskera
garðyrkjubænda í Biskupstung-
um nær öll ónýt.
Bændur eru smeykir um að
það sé ekki til nóg gler í öllu
landinu, svo mikið brotnaði í
gróðurhúsunum. Víða í sveit-
inni urðu svo minniháttar
skemmdir, járnfok og rúðubrot.
Rafmagnslaust var hjá okkur
mánudagsnóttina og allan
þriðjudaginn, og símasamband í
lakara lagi.
— Björn.
Hofsós:
Blikkplata haf naði
í hjónarúminu
Bæ. 18. febrúar.
ÞAÐ ER eiginlega merkilegt
að þarna um kvöldið. þegar
stórviðrið var, þá voru Krist-
ján ólafsson á Ilofsósi og kona
hans með barn sitt í rúmi við
hliðina á hjónarúminu.
Þá heyrðu þau að eitthvað
fauk á gluggann, konan varð
hrædd og þau fluttu strax úr
herberginu, en fáum mínútum
síðar kemur blikkplata inn um
herbergisgluggann og á hjóna-
rúmið og þaðan á barnarúmið,
svo sýnilegt var að ef þau hefðu
ekki verið farin úr herberginu
hefði orðið stórslys. Bíll sem
kom framan úr Skagafirði í
gærmorgun keyrði framhjá sex
bílum, sem fokið höfðu út af
veginum á þessari leið.
Björn
Þessa mynd tók Emilia i gær við Verzlunarskólann i Reykjavik,
en Hafliða Jónssyni, garðyrkjustjóra var ekki kunnugt um
alvarlegar gróðurskemmdir i höfuðborginni, er Mbl. ræddi við
hann i gærkvöldi: „Eg held það hafi ekki orðið neitt teljandi tjón
á gróðri í Reykjavík,“ sagði Hafliði, „en það geta alltaf farið
gömul tré sem eru orðin visin. Aftur á móti urðu allar
gróðrarstöðvar í höfuðborginni fyrir hnjaski, og talsverðar
skemmdir urðu hjá Blómavali við Sigtún og eins hjá Grænuhlið
við Bústaðaveginn, sem er elsta starfandi groðrastoðin i
Reykjavik.“
Rafmagns-
laust í
sólarhring
Staðarhakka. 1S. febrúar.
OFVIÐRIÐ, sem gekk yfir
landið að kvöldi hins 16.,
olli miklu tjóni hér um
slóðir. Veðurhæðin var ein-
hver sú mesta sem hér
hefur komið. Ekki hefur
heyrst um neitt slys á
mönnum né skepnum en
tjón á húsum hefur orðið
mikið, aðallega útihúsum
og jafnvel íbúðarhúsum.
Aðallega hefur farið járn
af þökum, en húsin sjálf
staðið í flestum tilvikum.
Er nú verið að reyna að
gera við til bráðabirgða.
Hér var með öllu raf-
magnslaust í sólarhring.
Hin nýja byggðalína bilaði
svo alvarlega og er viðgerð
ekki með öllu lokið enn.
Símasambandslaust var
hér einnig í framhluta Mið-
fjarðar, en slíkt getur varla
talist til tíðinda því línan
er að verða með öllu óvið-
unandi. Veðráttan er mjög
óstillt og skiptast á stilli-
blotar og fannkoma og yfir-
leitt er mjög hart í haga.
B.G.