Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 19.02.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 31 Karl Helgason lögfræðingur: ÞAÐ HVARFLAÐIAÐ MÉR X Opið bréfkorn til ykkar Komið þið sæl, mín kæru! Sumir hafa fyrir satt að besta vísa sem „kveðin" hafi verið sé þessi: Marjft er sér til gamans gert og veitir ekki af en ekki er öll vitleysan eins sem betur fer. Hvað sem þið hafið um slíkar „vísur" að segja kæmi mér ekki á óvart að þið hugsuðuð eitthvað líkt eftir að hafa lesið bréfkornið í dag. — Heyrðu, það var alveg feiknagóður drykkur þetta eð- alvín sem þú gafst mér — já, og hitt líka, það sterkara. — Það var kunningi minn sem kallaði þetta til mín einn góðan mánu- dag og hélt áfram: Eg verð endilega að fá mér meira af þessu. Þeir sögðu að þetta væri eins og besti árgang- ur af... hérna ... æ, ég man ekki hvað það heitir ... en það sló alveg í gegn. — Já, þetta átti að vera alveg ekta, — svaraði ég... — Og hvað það fór vel í mann. Svei mér, ég fann bara ekki fyrir timburmönnum. Meira en ótrú- legt því að maður var ekkert að halda i við sig... — Dugðu birgðirnar þá í partýið? — Ég lét það duga — blandaði það dálítið ríflega í restina. Það var ókey eins og stuðið var á mannskapnum. — Ég heyrði af því látið, — sagði ég, — strákarnir voru hressir með geimið. — Já, ég man bara varla eftir því öllu betra. Heyrðu, og Fiddi mundi allt morguninn eftir. Það má nú kalla kraftaverk. Hann fór náttúrlega yfir strikið eins og hann gerir ... — Þeir sögðu það líka. En Jokki og Bebbi tókust á í illu ...? — Æi, já, Jokki var að káss- ast upp á konuna hans Bebba, þú veist að hann ræður aldrei við sig ef hann smakkar það. — Og Golli fór með grát- söng...? — Bara rétt í restina. Ég hélt nú að við myndum sleppa við það. En það var miklu minna en maður er vanur. — Jahá, — sagði ég. — Ég skal segja þér það! Eg ætlaði ekki að trúa þessu en þetta er þá virkilega svona. — Er hvað svona? — Jú, sjáðu til, þetta voru óáfengir drykkir sem ég gaf þér. Umbúðirnar voru eins og um áfengi. En innihaldið óáfengir drykkir. — Hvaða helv... vitleysa ... — Nei, ég segi þér satt. — Nú, það fundu allir á sér ... Rúmlega það sumir eins og þú hefur heyrt. Hvernig...? — Það er nú það ... — Það hafa þá bara allir fengið sér neðan í því áður en þeir komu. — Finnst þér það trúlegt? Menn vita að ekki skortir á veitingarnar hjá þér. Auk þess lét ég breiðast út að þú ættir gnótt góðra drykkja. Fannst þú ekki líka vel á þér? — Ég? Ja ... ja .. ég er nú ekki viss. — Annað sagðir þú áðan — og Sögðu strákarnir mér. Þú tókst Rakara-aríuna, þitt einka, ekta kippmerki. — Ha, já annars .. Heyrðu ég trúi ekki orði af þessu gos-tali þínu. — Það var ekki gos sem þú fékkst. Sérstakir drykkir sem líkjast ákveðnum tegundum áfengis — en í þeim er enginn vínandi. Mig langaði til að sannreyna það sem ég hef verið að lesa að undanförnu. Það hafa verið gerðar tilraunir í því skyni að kanna hvaða áhrif áfengið hafi raunverulega á menn. Þeir sem þátt tóku í tilraununum vissu ekki betur en það sem þeir fengju að drekka væri áfengi. Veittir voru drykkir eins og þeir sem ég gaf þér. Og útkoman var sú sama og í partýinu. Fólk hegðaði sér eins og það væri undir áhrifum áfengis. — Ég trúi ekki einu orði... — Það verður þú nú samt að gera. Þetta hefur verið marg- reynt. Haldi menn að þeir séu að drekka áfengi verður framkom- an eins og þeir væru að drekka: Sumir verða þetta líka litla fjörugir; aðrir hafa allt á horn- um sér; margir þurfa að úthella hjarta sínu; einir láta eftir sér að berja mann og annan — og ekki megum við gleyma þeim fjölþreifnu. Ýmislegt sem þætti aðfinnsluvert af algáðum fyrir- gefst þeim sem hefur neytt áfengis. Það vita allir og leyfa sér því ýmislegt „undir áhrif- um“, sem þeir ella hefðu ekki gert. Þess vegna hefur því jafn- vel verið haldið fram að áfengi hafi alls ekki þau áhrif sem hingað til hefur verið ætlað. Það sé mönnum bara skálkaskjól. — Aðrir benda á að áfengi hafi í sjálfu sér áhrif sem kalli fram þessi viðbrögð — en trúin flytji fjöll og menn geti „fundið á sér“ af tilhugsuninni einni saman. Það er reyndar velþekkt meðal alkóhólista. — Ég er farinn, — sagði kunningi minn. — Þú heldur að þú getir sagt manni hvaða vit- leysu sem er um áfengi. Mér er sama hvað þú þykist lesa, það er hægt að falsa alla hluti. — Vissulega, — sagði ég, — en nú höfum við sameiginlega sannreynt þetta! Ég skal vísa þér á hvar þú getur keypt þessa drykki. Þeir eru hræódýrir. Hvernig væri að nota þetta í partýjunum — þú myndir spara stórfé? — Þú segir nokkuð, — sagði hann, — og virtist taka gleði sína á ný. —Já, og svo skalt þú segja þeim sem sýna á sér heldur hvimleiða hlið hvernig er í pottinn búið. Þannig getur þú haldið þeim niðri — en leyft hinum að vera „hátt uppi“. — Það væri hreint ekki svo vitlaust... Svo var nú það og þetta. Og því hvarflaði að mér að upp hlyti að vera runninn tími algers endurmats. Hvað finnst ykkur? Og myndi nú nóg párað í bili. * Með kærum kveðjum, Kalli. FALLEGT OG STERKT Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á að þær þyldu mikla notkun. Við veitum þér allar ráðleggingar og gerum þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringdu eda komdu, og fádu litprentaðan bækling frá Norema Innréttingahúsíð SHMOREMA Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344 BÍLAVIÐGERÐA- BÆKUR Orðabókaútgáfan kynnir eftirtaldar bílaviðgerðabækur frá Autobooks: Owners Workshop Manuals, nýkr. 127 Aifa Romeo, Alfasud, 1972-77 Audi 80, Fox, 1973-78 Audi 100 1969-76 Austin Allegro 1500, 1750, 1973-79. BMW 316, 320, 1975-77. Citroðn 2CV. Dyane, Ami, 1964-80 Citroén GS 1971-80 Datsun 100A, 120A, 1971-77 Datsun 140J, 160J, 710, 1973-76 Datsun Pick-Up PL521, PL620 1968-76 Fiat 127 1971-79 Fiat 128 1969-79 Fiat 131 Mirafiori 1975-77 Fiat 132 1972-80 Ford Capri 1300, 1600, OHV 1968-79 Ford Cortina Mk. 3 1970-76 Ford Cortina Mk. 4 1976-79 Ford Escort 1967-75 Ford Escort 1975-79 Ford Fiesta 1976-78 Ford Granada 1977-79 Ford Transit V4 1965-73 Ford Mustang V8 1965-73 Hillman Hunter 1966-79 Honda Accord 1976-77 Honda Civic 1973-77 Land Rover 2, 2a, 3, 1959-78 Mazda 616 1970-79 Mazda 808, 818, 1972-78 Mazda 1000,1200,1300 1969-78 Mercedes Benz 250 1968-72 Mini 1959-80 Morris Marina 1971-78 Opel Kadett 1973-79 Opel Record C 1966-72 Peugeot 204 1965-76 Peugeot 304 1970-79 Peugeot 404 1960-75 Renault 4 1961-79 Renault 5 1972-78 Renault 12 1969-79 Rover 3500 SD1 1976-79 Range Rover 1970-79 Saab 99 1969-76 Saab V4 1966-76 Simca 1100 1967-79 Toyota Corolla 1100, 1200, 1967-77 Toyota Corona Mk. 2, 1969-75 Vauxhall Chevette 1975-79 Vauxhall Viva HB 1966-70 Volkswagen Beetle 1968-78 Volkswagen Passat, Dasher 1973-79 Volkswagen Transp. 1968-79 Volvo 240 Series 1974-79 Volvo 260 Series 1975-78 Tuning for Performance and Economy. Electrical Systems including tapes and radios. Bodywork Maintenence and Repair including interiors. Autobooks fást hjá eftirtöldum bóka- verzlunum: Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18. Bókav. Sigfúsar Eymundss. Austurstræti 18. Bókaverzlun Snæbjarnar Hafnarstræti 9. Bókahúsió Laugavegi 17. Hagkaup Skeifunni 15. Bókabúóin Veda Kópavogi. Bókaverzlun Olivers Steins Hafnarfirði. Bókav. Andrésar Níelssonar Akranesi. Bókabúð Keflavíkur Keflavík. Bókav. Jónasar Tómassonar ísafirði. Bókaverzlun Kr. Blöndal Sauðárkróki. Bókav. Jónasar Jóhannss. Akureyri. Bókav. Þórarins Stefánss. Húsavík. Bókav. Höskuldar Stefánss. Neskaupstað. Bókabúðin Heiðarvegi 9 Vestmannaeyjum. Orðabókaútgáfan Bergstaöastræti 7. Opið 1—6 a.h. Sími 16070.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.