Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 44

Morgunblaðið - 19.02.1981, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981 HÖGNI HREKKVÍSI Með morgunkaffinu Ást er. Wo l,!t* ... aö geta verslað fyrir hann. TM R«g u S P«» Off -•» rtghts r«s«rv«d • 1978 Los Angetes Times Syndicate Maðurinn minn er svo ofsalega afbrýðisamur. Þetta með skeggvoxtinn hér á skrifstofunni er mitt persónu- le^a framlaK til fyrirtækis- ins... Furðulejj framkoma að atrnúast stöðuKt úti vini mina! Þetta eru ellimörk Fyrrverandi strákur skrifar: „Velvakandi. Ég hefi að undanförnu séð smá pistla í dálkum þínum eftir fólk, sem getur ekki orða bundist vegna mótorhjólahávaða og vilja þessir skrifarar láta yfirvöld banna unglingum að aka hjólum sínum. Stundum vill það til að menn gleyma sínum æskuárum og hafa þá gjarnan unga fólkið á hornum sér, þola það ekki. Þetta eru ellimörk og vottur um geðvonsku sem sækir á sumt fólk með aldrinum. Ættu að vera þakklátar Já, það er voðalegt að þessar nöldurskjóður skuli ekki geta setið og glápt á klámmyndir og morð- æðið í sjónvarpinu vegna hressi- Og þú munt sjá að þú ert ekki einn Hugsi skrifar: „Velvakandi góður. Mig langar að vekja athygli á fyrirbæri því sem við nefnum drauma. Mér finnst furðu sæta hversu nútímafólk sniðgengur þessar upplýsingar sem okkur eru veittar í svefni og eru undantekningarlaust hárréttar. Ef þú þarft að taka erfiða ákvörðun Ég hygg að fólk komist furðu fljótt að því, að draumar eru annað og meira en rugl, aðeins ef það leggur sig fram um að skilja táknmál þeirra. Besta aðferðin við það er að ræða drauma sína við aðra og þá hygg ég að fólk læri smátt og smátt að ráða þau tákn, sem því eru sýnd í svefninum. Ef þú, lesandi góður, þarft að taka erfiða ákvörðun, þá vil ég ráðleggja þér að leggja drauma þína vel á minnið eða skrifa þá á blað og ræða þá við vini þína og þú munt sjá, að þú ert ekki einn og óstuddur í lífsins ólgusjó. Kærar þakkir fyrir birting- una.“ legra stráka, sem geysast um göturnar á skellinöðrum sínum. Hvort ætli sé nú heilbrigðara? Nöldurskjóðurnar ættu að vera þakklátar fyrir að börn og ungl- ingar vilja fremur vera úti en að taka þátt í sjúklegu glápi á óþverrann, sem ráðamenn sjón- varpsins leyfa sér að bera á borð fyrir þjóðina. Betur komin sem vin- ir löggæslumanna Það væri nær fyrir foreldra og vandamenn unglinganna í borg og bæ, að hlynna að þessu unga fólki, leyfa því að stunda heilbrigt útilíf, jafnvel þótt því fylgi einhver hávaði, heldur en úthýsa því frá hverfum sínum og heimaslóðum til þess að sálsjúkt sjónvarps-gláp sé ekki truflað. Ég hvet löggæsl- una til þess að fara ekki að ráðum þessara nöldurskjóða heldur að- stoða þessa litlu ökumenn okkar, sem verða ökumenn framtíðarinn- ar á götum og þjóðvegum, aðstoða þá og veita þeim leiðsögn án þess að láta þá finna að þeir séu réttminni en aðrir vegfarendur. Þessi ungmenni eru betur komin sem vinir löggæslumanna en óvin- ir, það ættu allir að geta verið sammála um. Að lokum, leyfum drengjunum að hafa sínar skelli- nöðrur í friði, gefum í þess stað sjúklegu nöldurfólki tappa til þess að stinga í eyrun, það þarf ekki endilega að heyra í morðbyssun- um á skerminum, það fær klámið sitt að mestu hljóðlaust milli morða." Hugsið ykk- ur vel um H. Bj. skrifar: „Velvakandi. Nú er fjallað um svokall- að barnalagafrumvarp. Ég vildi í því sambandi segja þetta við hæstvirta alþing- ismenn: Hugsið ykkur vel um, áður en þið samþykkið frumvarp sem gerir ráð fyrir meðlagi með börnum til 20 ára aldurs eða gerið ráðstafanir svipaðar þeim sem Færeyingar hafa gert, að meðlag falli niður, ef móðirin giftir sig. Ég er gift manni, sem greiðir með fjórum börnum. Sjálf eigum við tvö börn. Við höfum 6800 kr. á mánuði í kaup, og þar af greiðast 2600 kr. í meðlag á mánuði og 2000 kr. í gjöld. Þá er hægt að sjá, hve mikið er afgangs til að framfleyta fjögurra manna fjölskyldu mánuð hvern. Þarf ekki að taka tillit til barnanna sem búa við þessa aðstöðu?"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.