Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981
31
Ljósm. Emilia
KJARVALSSTAÐIR
Sýning Þorbjargar
og Guðrúnar Svövu
Um þessar mundir sýna Þor-
björg Höskuldsdóttir og Guðrún
Svava Svavarsdóttir í Vestursal
Kjarvalsstaða. Þar sýna þær um
60 verk, málverk og teikningar.
Sýning Guðrúnár Svövu er tví-
skipt, annars vegar eru þar mynd-
raðir, olíumálverk á striga og
teikningar, en hins vegar eru þar
stök málverk. Þorbjörg sýnir olíu-
málverk og teikningar af ýmsum
gerðum og stærðum.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14—22 til 29. þ.m.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sölumaðurinn og
Oliver Twist
í kvöld og annað kvöld eru
sýningar á leikriti Arthur Millers,
Sölumaður deyr, og er uppselt á
sýninguna í kvöld. Aðsóknin hefur
verið mjög mikil að þessari sýningu
og uppselt í flest skiptin.
Gunnar Eyjólfsson leikur aðal-
hlutverkið, Willy Loman sölumann,
sem reynir að réttlæta sjálfan sig og
hugsjónir sínar þegar honum finnst
hann vera lítiis virtur og útskúfað-
ur. Margrét Guðmundsdóttir leikur
Lindu, eiginkonu hans, sem hvetur
hann óspart til dáða í lífsbaráttunni
þó svo hún viti að hann lifir í
sjálfsblekkingu. Syni þeirra, Biff og
Happy, léika Hákon Waage og
Andri Örn Clausen. Róbert Arn-
finnsson leikur Ben frænda, sem allt
virðist geta. Árni Tryggvason leikur
nágranna Loman-hjónanna og
Randver Þorláksson leikur son hans;
þá leikur Bryndís Pétursdóttir glað-
væra vinkonu farandsalans og ýmsir
fleiri koma við sögu í þessari
frásögn af lífi Willy Loman, sölu-
manns.
Leikstjóri sýningarinnar er Þór-
hallur Sigurðsson, Sigurjón Jó-
hannsson er höfundur leikm.vndar-
innar, dr. Jónas Kristjánsson hefur
þýtt leikinn og Áskell Másson samdi
tónlistina fyrir sýninguna.
Olivcr Twi.st á morgun
Barna- og fjölskylduleikritið um
Oliver Twist hefur nú verið sýnt
tuttugu sinnura og hefur aðsókn
verið góð. Ein sýning verður um
helgina, kl. 15.00 á morgun, og má
nú einungis gera ráð fyrir sýningum
á sunnudögum eftirleiðis.
Linda og Willy Loman (Margrét Guðmundsdóttir og Gunnar Eyj-
ólfsson).
Frank van Mens
sýnir 14 myndverk
í dag opnar hollenskur lista-
maður, Frank van Mens, sýningu
í Djúpinu við Hafnarstræti. Þar
sýnir hann 14 myndverk sem
hann gerði á sl. ári en hann
hefur í vetur gegnt kennara-
starfi við grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskóla Islands.
Frank van Mens er 28 ára
gamall, fæddur í Harlem í Hol-
landi. Áður en hann kom hingað,
starfaði hann í tvö ár í Þýska-
landi, á Italíu og í Hollandi, þar
sem hann teiknaði og lék í
hljómsveit, en nú er u.jt.b. ár
síðan hann kom til Islands.
„Teikningarnar, sem ég sýni nú í
Djúpinu, gerði ég að verulegu
leyti á fyrstu tveimur mánuðun-
um sem ég dvaldist hér á landi.
Þær eins og komu upp í fangið á
mér. Það má líta á þær sem
skóla augans, hugarflugsins,
draumsins og veruleikans. Þær
eru summa þeirrar reynslu sem
ég hef orðið aðnjótandi í þeim
löndum sem ég hef dvalist í
undanfarin þrjú ár,“ sagði Frank
van Mens.
Áður hefur listamaðurinn
sýnt málverk, teikningar og
grafíkverk í nokkrum borgum í
Hollandi.
P Leitar þú að nytsamri fermingargjöf?
Hér eru nokkrar tillögur
Stóll: Orlental með sessu kr.
2.690-
Stóll: Drottningarstóll með
sessu kr. 1.335.-
Drottningarborð kr. 573.-
Hilla: 85x200 cm. kr. 2.625,-
Hilla: 80x160 cm. kr. 1.939.-
Margar fleiri geröir.
Spegill kr. 398.-
Hilla: 80x80 cm. kr. 1.141,-
Stóll: Ágústa með sessu Stóll: Veronika með Stóll: Cafó með sessu
kr. 748.- sessu kr. 789.- kr. 573,-
Rúm meö dýnu: kr.
_ 1.894 -90x205 cm.
4. ‘%T-
“V
Stóll: Filip með sessu kr. Stóll: Eyrún með sessu
625.- kr. 726.-
Náttborö: kr. 359.-
Hamraborg 3, Kópavogi, s. 42011.
Austurstræti 8, Rvk., s. 16366.