Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 Bjarni Bjarnason fyrir framan verzlun sína i Kaupangi. Bjarni hættir með Kaupang BJARNI Bjarnason. kaupmaður f Kaupangi á Akureyri hefur nú ákveðið að hætta rekstri vcrzlunar sinnar og má þar með segja að eitt af siðustu vigjum frjálsrar verzlunar á Akureyri sé fallið. Bjarni hefur ákveðið að selja ekki húsnæði sitt heldur leigja það Kaupfélaginu. í þvi tilefni hafði Hlaðvarpinn samhand við Bjarna og spurði hann hvað ylli þessu: „I>að er eiginlega allt. sem veldur þessu. það er búið að kippa öllum grundvelli undan einkarekstrinum með fáránlegri vaxta- stefnu og löghundinni álagningu á landbúnaðarvörur, sem stendur hvergi undir kostnaði við að hafa þær á lager og til sölu. Það má s segja að rikisstjórnin haldi visitölunni þannig niðri á kostnað verzlunarinnar í landinu og varla getur það talizt gáfulegt. Það eru alltaf fleiri og fleiri krónur, sem fara um hendur manns, en þær eru verðlitlar og öll útgjöld vaxa mun hraðar en tekjurnar. Jafnvel þó maður hafi unnið nær gengdarlaust alla vikuna og jafnvel á nóttunni við að þjóna loðnuflotanum, hefur það ekki komið að gagni.“ Hvað er svo fram undan? „Það er ýmislegt fram undan, ég leigi bara húsnæðið til 3 ára og þá get ég alltaf byrjað aftur, verði einhver grundvöllur fyrir því. Það var bara hreinlcga vonlaust að vera að nopra við þctta áfram, þá hefði maður bara farið á hausinn. Eins og ástandið er í dag, eru það bara stóru aðilarnir, sem ráða við þetta og ef svona heldur áfram verða þeir einir eftir innan skamms og geta þá hagað sér eins og þeim sýnist,“ sagði Bjarni að lokum. k HLAÐVARPINN . BLAÐAÚTGÁFA ■■■■■■■■■■■■ Strákarnir vilja ekki kaupa blað af stelpu - segir Guðrún Lárusdóttir, 10 ára blaðaútgefandi i Kópavogi BLAÐAÚTGÁFA hefur lengi verið vinsæl hér á landi og við hana hafa fengizt menn á öllum aldri, fáir þeirra eru þó sennilega jafnungir og hún Guðrún Lárus- dóttir i Kópavogi, en hún er aðeins 10 ára. Hún gefur út blaðið Smákorn og nú fyrir skömmu kom út hjá henni 2. tölublað þess. í því tilefni spjall- aði Hlaðvarpinn við hana um blaðaútgáfuna. Ég er ritstjórinn, en pabbi prentsmiðjustjórinn Hvernig vinnur þú blaðið? „Ég sem sumt af efninu sjálf, annað finn ég í gömlum blöðum og krossgátuna sem ég líka sjálf og nota til þess bókina Orðaskyggni, sem er íslenzk orðabók fyrir börn. Pabbi hjálpaði mér reyndar svolít- ið með fyrsta blaðið og svo er- hann prentsmiðjustjórinn, en ég t- -:zz.n t krónur. Mér gengur ágætlega að losna við blaðið, það er gefið út í 30 eintökum og stelpurnar í bekknum mínum í Kópavogsskóia kaupa það venjulega, en strákarn- ir vilja ekki kaupa það, vegna þess SKRIFSTOFULÍF ■■■■■■■^■■■■■■■i Kontórsins siðapistill - til ófrávíkjanlegrar eftirbreytni kontóristum VÍKURBLAÐIÐ hef- ur oft verið okkur hlaðverpingum kaerkomin náma skemmtilegs efnis og er það enn. Að þessu sinni birtist í því 6. marz síðastliðinn gagnmerkur pistill um siðareglur „kont- óristans“ og þykir oss við hafi að skrifstofumenn og aðrar innisetublæk- ur taki hann til gagngerrar athug- unar, enda er hann til fyrirmyndar eins og allt sem gamalt er: Guðsótti og góðir siðir eru eins al- mennilegs kontórs undirstaða. Viðverupligt kont- órista er nú aðeins frá 6 að morgni til 6 að kveldi, og þess utan aðeins á virkum dögum. Sunnudagar brúkist til kirkju- göngu. Hvern morgun skal á aðalkontór sungið sameiginlegt Faðir vor. Sé það í Faktorsins þénustu skal útfærð sú yfirtíð hverja hann telur hæfilega. Sá kontóristi hverja lengsta hefur þénustu skal bera ansvar á allri tiltekt og hreinlæti. Skulu lærlingar og sveinar melda sig hjá þeim hinum sama 40 mín- útum fyrir Faðir vor, item skulu þeir standa til þénustu reiðubúnir að vinnu- degi enduðum. Glysfatnaður er eigi tilhlýðilegur og skulu kontóristar forðast skæra liti og vera í heilum sokk- um. Galosjur og frakka skal eigi brúka á kontór, þar sem kontóristum eru heimil afnot af kam- ínu. Þó má í illviðrum brúka trefla og húfur. Að auki er ætlast til þess af kontóristum, að þeir í vetrartíð skaffi með sér svo sem eins og 4 pund af kolum á dag. Allt snakk er á vinnutíma forboðið. Verði kontóristi að því staðinn að reykja sígar, taka til sín alkóhól í einhverri mynd, heimsækja spilastofur eða póli- tískar stofnanir, á hinn sami það á hættu, að hans æra, sjálfsmeðvitund, heiðarleiki og ein- lægni verði í efa dreg- in. Kontóristum leyf- ist að nærast milli 11.30 og 12.00. Þó er óleyfilegt að slík at- höfn trufli vinnu. Viðskiptavinum, eigendum svo og starfsmönnum tækni- deildar ber að heilsa með tilhlýðanlegri virðing og undirdán- ugheitum. Sérhver kontóristi er pligtaður til að halda sinni heilsu sem bezt, enda falla launagreiðslur niður verði þeir krankir. Því verður að leggja þar sérstaka áherzlu, að hver og einn leggi til hliðar af sínum launum eina væna summu til að mæta slíkri óáran og einnig til að búast til elli-lífs, þannig, að þegar af þessum framantöldu orsökum um vinnutap verður að ræða, sé sá hinn sami ekki neyddur til að segja sig til sveitar. Að endingu skal lögð áherzla á örlæti það, sem í ofan- greindu er falið af Faktorsins hálfu. Þar á móti komi náttúr- lega að verulegu leyti aukin afköst kontór- ista. Guðrún Lárusdóttir á ritstjórnarskriístofunni. Ljósmynd Mbl. Kristján. ritstjórinn og útlitsteiknarinn, því ég teikna blaðið, vélrita það og set það upp. Þetta er anzi tímafrekt, því ég hfef mörg önnur áhugamá! og passa svo líka að læra vel fyrir skólann. Því verður svolítið langt á milli blaðanna, en ég vonast til að koma næsta tölublaði út fyrir vorið." Hvernig datt þér í hug að fara að gefa út blað? „Litla systir mín, Kristín, er í leikskóla og þar er gefið út blað, sem heitir Sandkorn. Þaðan kom hugmyndin upphaflega og líka að nafninu. Mér finnst anzi gaman að þessu og geri það aðallega þess vegna, en ekki til að græða á því. Eintakið kostar nú eina krónu, en í fyrra kostaði það 50 gamlar að ég er steipa. Svo gef ég líka eitthvað af blöðum." Held ekki að ég verði blaðamaður, þegar ég verð stór Er blaðaútgáfan aðaláhugamál- ið? „Nei, ekki endilega, ég á mörg fleiri áhugamál og finnst eiginlega allt skemmtilegt. Ég safna frí- merkjum og servéttum, er í tón- listarskóla og æfi og sem leikrit og barnatíma inn á segulband, stund- um ein, en stundum með vinkon- um mínum og Kristínu systur. Svo hlusta pabbi og mamma á þættina og gestir ef þeir koma í heim- sókn,“ sagði blaðaútgefandinn ungi að lokum. ÞJÓÐLEGUR FRÓÐLEIKUR Safnahúsið SAFNAHÚSIÐ á Húsavík var opnað 24. maí síðastliðið ár og þar er til húsa náttúrugripa-, byggða-, héraðsskjala-, málverka- og Ijósmyndasafn. Auk þess er í sama húsi Bókasafn Suður Þingeyinga, en það stofnaði Benedikt á Auðnum á sínum tíma. Finnur Kristjánsson, fyrrum kaupfélagsstjóri Kaupfélags Suður Þingeyinga, veitir safnahúsinu forstöðu. Hlaðvarpinn hafði tal af honum fyrir skömmu og bað hann segja frá safninu. Hvernig var veðrið 11. sept. 1884? „Efnið hér í safnahúsinu er að mestu leyti þingeyskt, eða tengt Þing- eyingum og er af ýmsum toga spunnið. í héraðsskjalasafninu eru mörg merk einkasöfn, dagbækur og sendibréf, handrit og ýmsar uppskriftir, sem eru fullar af alls konar fróðleik. Um daginn var til dæmis hringt í okkur og spurt hvernig veðrið hefði verið 11. september 1884. Þessu gátum við svarað eftir nokkrar mínútur með því að fletta upp í dagbókum Snorra Jónssonar, bónda í Laxárdal, en þar segir að um morguninn hafi menn farið út til að snúa heyi, en þegar leið á daginn gerði svo slæmt veður að það fauk allt út úr höndunum á þeim. Verst var veðrið í kringum Hrísey og í því fórust nokkrir bátar. Einu sinni hringdi til okkar maður, sem var að skrifa sögu sína og bað okkur að finna út nafn á skipi, sem hann fór með frá Húsavík til Akur- eyrar tiltekinn dag. Þetta gátum við líka leyst á skömmum tíma.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.