Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 33 Einar Guðjónsson og ívar Jónsson: Husnæði er nauðsyn Gegn frumskógarlögmáli leigumarkaðarins Ástandið á lcigumarkaðnum hefur sjaldan verið verra en nú. Ef til vill verður að leita allt aftur til striðsáranna til að finna sambærileKan skort á leiguhús- næði. Vitað er um fjölmarKar fjölskyldur sem eru sundraðar og dreifðar meðal ættingja. Þess eru jafnvel dæmi að fjölskyldumeð- limir hýrist i sitthvorum lands- fjórðungnum. t flestum tilfellum tekur meira en hálft ár og oftar en ekki mun lengri tíma. að komast yfir leiguhúsnæði. Fái fólk á annað borð húsnæði, er það oft á tiðum neytt til lögbrota: t>að er algengt að menn greiði fyrir- fram i ársleigu og i vissum tilvikum þurfa menn að greiða i erlendum gjaldeyri. Oft ganga húseigendur enn lengra i kröfum sinum. Opinberir aðilar hafa ekki og geta ekki gefið haldgóðar upplýs- ingar um ástandið á húsnæðis- markaðnum. Einu vitneskjuna er að hafa frá Leigjendasamtökun- um. Orsakir Hér á landi er mun minna hlutfall leiguhúsnæðis en gengur og gerist víðast hvar í nágranna- löndunum. Til að mynda er nær óþekkt fyrirbæri hér, að byggt sé húsnæði, eingöngu til leigu. Stór- fyrirtæki sem hirða gróða sinn af leigusölu á húsnæði eru algeng erlendis. Á íslandi hefur slík útleiga hinsvegar aldrei orðið að sjálfstæðum atvinnurekstri, séu frá taiin einstök tilfelli. Það er jákvætt að peningaeig- endur hafi ekki séð sér hag af né haft tækifæri til að hafa eina af frumþörfum mannsins fyrir fé- þúfu, þörfina fyrir húsnæði. Að- gerðir ríkis og sveitarfélaga hafa stefnt að því, að sem flestir gætu eignast sitt eigið húsnæði. Með þeirri undantekningu að hið opin- bera telst bera ábyrgð á þeim sem einhverra hluta vegna geta ekki bjargað sér í samkeppninni. Orða- tiltækið „að fara á bæinn" talar sínu máli og ber með sér að hér var um að ræða tiltölulega fámennan hóp af fólki, þá sem urðu gjörsamlega undir í slagnum. Samkvæmt athugun Þjóðhags- stofnunar er nær yfir síðustu þrjátíu ár og til þess tíma er hávaxta- og verðtryggingarstefna kemur til, þá hefur venjulegur húsbyggjandi aðeins greitt hluta af kostnaðarverði íbúðar sinnar. Hitt hafa aðrir greitt. Þarna hafa komið til hagstæð lán og skatta- afsláttur, ásamt fleiru. Á sama tíma hafa leigjendur enga fyrir- greiðslu hlotið frá opinberum aðil- um til að mæta húsnæðiskostnaði. Fagfélögin eða öllu heldur for- svarsmenn verkalýðsins fylgdu einnig sömu stefnu sem í sjálfu sér er ekkert við að athuga. Húsnæði byggt á félagslegum grundvelli var og er byggt til eignar væntanlegra íbúa. Það væri að vera vitur eftirá að gagnrýna opinbera aðila og segja þá hafa fylgt „rangri" stefnu í húsnæðis- málum. Viðhorf almennings voru á svipaða lund. Flestir töldu sér hag af að byggja sitt eigið hús- næði, af ástæðum sem flestir þekkja, s.s. vonin um að græða á verðbólgunni. Fáir möguleikar gáfust á að fjárfesta í öðru en steinsteypu. Jafnvel þeir sem í upphafi töldu skynsamlegra að leigja, ráku sig mjög fljótt á vonleysi þeirrar ákvörðunar. Ör- yggisleysið var algjört: leigjendur eiga í fæstum tilfellum kost á að vera um kyrrt á sama stað, nema fá ár í senn. Aðeins rúm tvö ár eru síðan þeir sem í leiguhúsnæði búa bundust samtökum. Afleiðing þessarar stefnu eða öllu heldur þessa stefnuleysis: Flestum skal komið í eigið húsnæði, en engin áhersla lögð á leiguhúsnæði. En þetta þýðir að eiginlegur húsa- leigumarkaður er ekki til. En það þýðir ekki, að vandamálið hafi ekki verið til staðar. Þvert á móti hefur það verið fyrir hendi allt frá því að þéttbýliskjarnar tóku að vaxa fyrir alvöru. En á þenslu- skeiði í efnahagslífinu eins og ríkti hér fram á miðjan síðasta áratug, kemur það ekki upp á yfirborðið. Þegar samdrátturinn fer að segja til sín, verður „ís- lenski" draumurinn" að láta verð- bólguna byggja yfir sig hús, hin hræðilegasta martröð. Þeim fer nú ört fjölgandi sem sjá þann kost einan að leigja. Sérstaklega er hér um að ræða ungt fólk. Það hefur líka komið á daginn að hávaxta- stefnan og hert lánskjör hafa komið illa niður á ungu fólki sem hyggst „eignast sitt eigið". Á leigumarkaðnum eykst umfram- eftirspurnin stöðugt eins og við- skiptafræðingar orða það. Samsetning húsa- leigumarkaðarins Leiga á húsnæði er vanalega skammtímaráðstöfun af beggja hálfu. Á leigumarkaðnum hér virðist lítil eignasamþjöppun, flestir leigusalar leigja einungis út eina íbúð. Sumir leigja út nýju íbúðina sína áður en þeir flytja inn. Annað húsnæði kemur til vegna erfða eða fækkunar í fjöl- skyldu. Einnig er hugsanlegt að ýmsir aðilar sem ekki eiga kosta á annarri fjárfestingu, leggi sparifé sitt í húsnæði frekar en að leggja það í banka. í annan stað er svo um að ræða fáa einstaklinga sem hafa lifibrauð sitt af að leigja út húsnæði. Með hliðsjón af mjög dreifðri eign á leiguhúsnæði, verður að hafa það hugfast að þó nokkur hluti leiguhúsnæðis er utan við hinn „frjálsa" markað, húsnæði sem leigt er ættingjum eða nánum vinum, og þá 'oftar en ekki á lægra verði en gengur og gerist. Hvað er til ráða? Vegna þess ófremdarástands sem nú ríkir þrífst allra handa ófögnuður sem gerir jafnvel frum- skógarleik Flugleiða að hreinum barnaleik í samanburði: okur, miklar fyrirframgreiðslur, leigu- sala á heilsuspillandi húsnæði. Því fer fjarri að leigusalar séu samstæður hópur. Það væri því að skemmta skrattanum að kenna þeim um ástandið og fáránlegt af leigutökum (les: leigukaupendum) að lýsa yfir heilögu stríði á hendur leigusölum eins og um meiriháttar stéttaátök væri að ræða, allra síst við núverandi aðstæður. Of mikil harka af hálfu leigutaka hefði einungis það í för með sér að sá þröngi markaður sem fyrir er, þrengdist enn meir og væru það líklega þeir sem leigja út íbúðar- húsnæði á sanngjörnu verði sem drægju sig í hlé, þeir sem að öllum líkindum eru stærsti hópurinn. Skammtímaverkefni Mikilvægasta skammtímaverk- efnið er að lögbinda samband leiguaðila. Þar eru lög um húsa- leigusamninga (Stj.tíð nr. 44/ 1979) sem Leigjendasamtökin áttu stóran þátt í að koma á, mikilvæg- ur áfangi. Enn vantar hinsvegar lög um leiguverð og húsaleigu- styrki. Einnig verður að vinna að því að fyrrnefnd lög verði endur- skoðuð hið fyrsta þar sem fram hafa komið í þeim hugsanavillur og meiriháttar mótsagnir sem túlkaðar hafa verið leigjendum í óhag. í þeim efnum hafa bæði fógetar landsins og húsaleigu- nefndir brugðist. Jafnvel þótt reglugerðir um heilsuspillandi húsnæði hafi verið endurbættar og skýrt kveðið á um framkvæmd þeirra, skortir mikið á að þeim sé framfylgt í reynd. Sama er einnig hægt að segja um húsaleigulögin sjálf, hversu vel sem lög og reglugerðir eru úr garði gerð, þá gera þau aldrei meir en að koma í veg fyrir verstu níðingsverkin, hrikalegustu óhæf- una. Þau gera að vísu báðum aðilum mögulegt að mæta á sann- girnisgrundvelli, en ein og sér leysa lög og reglugerðir aldrei neinn vanda. Núverandi ráðamenn og ríkis- stjórn hafa ekki sýnt meiri hug- myndaauðgi en forverar þeirra. Þeir viðhalda ófremdarástandinu svo lengi sem framboð og eftir- spurn á frjálsum markaði eru lausnarorð þeirra. En það er aðeins aukið framboð á leiguhús- næði í félagslegri eign sem kemur í veg fyrir endaleysu núverandi ástands. Gamalmenni búa í stór- hýsum sem þau eygja ekki minnstu möguleika á að nýta, hvað þá að þau komist yfir að þrífa. Um leið kúldra barnmargar fjölskyldur í skonsum undir súð, á meðan stritað er fyrir drauma- íbúðinni, reynt að gera hinn ís- lenska draum að veruleika, en oftar en ekki verður hann að martröð, í svefni sem völ?u: ef draumurinn rætist, þá er það ekki fyrr en væntanlegir erfingjar eru farnir að leita sér að sinni elgin tveggja herbergja íbúð með að- gangi að eldhúsi — 3 herbergja o.s.frv. Sagan endurtekur sig, kaldhæðnin skín í gegn. P.8.: í dag kl. 14.30 gangast Leigjendasamtökin fyrir almenn- um borgarafundi að Hótel Borg, þar sem ástandið á leigumarkaðn- um verður tekið til umfjöllunar. Framsögumenn verða: Gunnar Þorláksson, húsnæðisfulltrúi og Sigurður E. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Húsnæðisstofnun- ar. Leigjendur eru hvattir til að fjölmenna og reyna að knýja fram svör um þær reglur er liggja að baki frumskógalögmáli leigu- markaðarins. Einar Guðjónsson, starfsmaður Leigjenda- samtakanna. Ivar Jónsson, stjórnarmaður Leigjenda- samtakanna. i fs <>g óavíia. Haldið þessarl stöðu höíuðsins á me'ðan lífgunaraðferð fer fram. \ SJýSíiff tieftci: á tdvikiím txíQ.á* ötuíim iHituf biásii»aí>ðtefSi»ní «f tíifi böffj s t»* R'ygja varimer t>éii yiir mcnn Sieitfá 03 n«i. &iá*ið t«il 03 V3>»i<K}« ftur * {>« tii nujifts Btóíiið mt tyfc öí srw-öfri i n:#•:>* unijif ft&kvffá itg öfrnrii tipj.- é vift t anf'.ig. að jtrunnut Ufms -itMié v«rfÖi«^»> avn að :oft:S Jei*s éKKÍ \f9X i;t> öpniö ýta$tG diiiii--. Étvtof** o? Ufí& v&rirnaf nðt vei yt-r ret «ttiv:iftrj?ie*; t.»i8í>»5 «f þvs' 8?! f,*crtB w; nða verif. Lærið og þjállíð skynöihjálp. Lílgunardagur JC Junior Chamber-hreyfingin á Islandi hefur valið daginn í dag, laugardag, sem sérstakan lifgunardag til að kynna blástursaðferðina. í því augnamiði hefur JC leitað til SVFÍ, deilda þess og björgunarsveita. „Þar sem þessi fræðsla hefur verið eitt af markmiðum SVFÍ um fjölda ára er félaginu bæði ljúft og skylt að verða við þessum tilmælum JC og vill leggja þessu málefni sem mest og best lið þannig að það nái til sem flestra og verði sameign allra aldurshópa," segir í bréfi frá framkvæmdastjóra SVFI. — Eru hér birtar leiðbeiningar SVFÍ um blástursaðferðina. MYNDAMOT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI • SlMAR: 17152-173S5 INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, SIMI 22000 REYKJAVÍK 1 KTNNIN6 A ÁLKLÆÐNINGU Ein vörnin gegn alkalískemmdum í steinsteypu er aö álklæöa húsiö. Einnig gefur álklæöning möguleika á aukinni einangrun. Komiö og kynnist A-klæöningunni, fylgihlutum og möguleikum sem hún býöur upp á. í Byggingaþjónustunni. Iðnaöarmannahúsinu Hallveigarstíg l.milli kl.2 og 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.