Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 11 Höskuldur ólafsson, banka- stjóri flytur skýrslu sína. og lán bankans til verzlunar eru talin saman, þá nema þau 32% af heildarlánum viðskiptabankanna til einkaverzlunar í landinu. Lán Verzlunarlánasjóðs eru að megin- stofni endurlánað fé. Lánskjör Verzlunarlánasjóðs eru þau, að lánin eru til 12 ára og verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu, en vextir eru 3,5% á ári. Staðan gagnvart Seðlabanka Innstæður bankans á bundnum reikningum við Seðlabankann námu í árslok 3.518 millj. kr. og jukust þær um 1608,5 millj. kr. á árinu. Staða bankans á viðskipta- reikningi í Seðlabankanum batn- aði á árinu um 850,8 millj. kr. og var jákvæð í árslok um 796,5 millj. kr. Endurseld lán í Seðlabanka hækkuðu um 103,9 millj. kr. á árinu. í heild bætti bankinn stöðu sína á árinu um 2.355,4 millj. kr. gagnvart Seðlabankanum. For- senda þess bata var hin ágæta innlánsaukning, sem varð hjá bankanum á árinu, samfara hóf- legri útlánaaukningu. Nýmæli í rekstri í marz á sl. ári tók bankinn upp nýja þjónustu, sem nefnd hefur verið Safnlán. Safnlán stofna menn til ákveðins tíma, 3ja, 6 eða 9 mán. o.s.frv. Þarf að leggja inn fyrirfram ákveðna upphæð á sama tíma í hverjum mánuði meðan sparnaðurinn varir og öðlast menn á þann hátt rétt á láni sömu upphæðar og spöruð var. Lánið endurgreiðist síðan á jafnlöngum tíma og sparnaðartímabilið tók. Með þessu nýja innlánsformi gefst kostur á að spara fyrir háifum væntanlegum útgjöldum að vissu hámarki og greiða síðan helming eftir á með þægilegum kjörum. Þá var nýrri þjónustu hleypt af stokkunum á sl. hausti. Hér er um að ræða upplýsingamiðlun og ráðgjöf um ýmsa þætti banka- og fjármála ætluð einstaklingum og heimilum þeirra. Starfsfólk í öll- um afgreiðslustöðvum bankans var sérstaklega þjálfað til þess að annast þetta verkefni og gefin hefur verið út mappa með gagn- legum upplýsingum og ráðum fyrir viðskiptamenn. Þjónusta þessi hefur verið nefnd hagdeild heimilisins, Fjármálaráðgjöf fyrir fólk. Formaður bankaráðsins, Pétur 0. Nikulásson rakti í ræðu sinni 25 ára starf Verzlunarbankans og Verzlunarsparisjóðsins. Stofnend- ur hans voru 310 einstaklingar úr hópi kaupsýslu- og verzlunar- manna og var stofnfé 1.550.000.- kr. Starfsemin byrjaði í Hafnar- stræti 1 og voru fyrstu starfsmenn 3 að tölu. Einn þeirra er nú látinn, en hinir tveir starfa enn við bankann, Björgúlfur Bachmann aðalgjaldkeri og Höskuldur Ólafsson bankastjóri, en hann hefur verið í forsvari fyrir bank- ann frá upphafi. Fyrsti formaður bankaráðs Verzlunarbankans var Egill heitinn Guttormsson stór- kaupmaður. Auk hans voru bæði í fyrstu stjórn sparisjóðsins og bankans þeir Pétur Sæmundsen, núverandi bankastjóri Iðnaðar- bankans og Þorvaldur Guðmunds- son forstjóri og hefur Þorvaldur verið í stjórn frá upphafi. Úr bankaráði áttu nú að ganga þeir Leifur ísleifsson, kaupmaður, varaformaður og Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, ritari og voru þeir báðir endur- kjörnir til 2ja ára. Aðrir í banka- ráði eru Pétur O. Nikulásson stórkaupmaður, formaður, Þor- valdur Guðmundsson, forstjóri og Sverrir Norland, verkfræðingur. Varamenn í bankaráði eru Hreinn Sumarliðason, kaupmaður, Hann- es Þ. Sigurðsson, deildarstjóri, Jónas Eggertsson, bóksali, Sigurð- ur Gunnarsson, forstjóri og Víg- lundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Hilmar Fenger, stórkaupmaður, Kristmann Magn- ússon, kaupmaður og Helgi V. Jónsson, löggiltur endurskoðandi. Bankastjórar eru Höskuldur Ólafsson og Kristján Oddsson. (Fréttatilkynning) n fóétar vörur og 6 vn nale gaOttý<ar sýn )aklýr >Uu4 Inmm fÍRtt Brúkuð islennk frímerki kanpir háot verði Ólafttr Sveinsson gullsm. Rcykjavik. í § *• \ J- jfcra' yata- #rra, Vjer — En Jóaas Jónsson^A Laogaveji kauptr' istenzk frimtrki fyrir hijita verð. < JB i(4 .Úkn >8 °K\ eirra \Tíor8kur panol-pappi - f j er tiTBTtin»-Jnr ^iðy iná^þrúka hann hseA*"' ih n íslenzk frimerki hafa lengi verið eftirsótt og oft kapphlaup um þau meðal kaupmanna, svo sem þessar auglýsingar i ísafold 1894 bera með sér. Þetta uppboð var aukauppboð og á einn hátt nýlunda, því að ekkert lágmarksverð eða lág- marksboð var sett við efnið. Það táknaði það, að menn gátu byrj- að á hvaða verði, sem þeim sýndist. Hins vegar var verð víðast tekið fram eftir sænskum lista, Facit, og breytt í ísl. krónur eftir gengi. Fyrri uppboð hafa farið þannig fram, eins og flestir muna, að lágmarksverð hefur verið sett við efnið. Það hefur aftur leitt til þess, að margt hefur gengið inn aftur, og vafalaust mest fyrir það, að uppboðsgestum hefur þótt verðið of hátt. En nú var sem sagt vikið af þessari braut, enda fór svo, að allt efnið seldist. Vera má, að þetta verði til þess, að svipuð leið verði aftur reynd í uppboð- um. Hér er ekki hægt að greina frá einstökum dæmum, en sjálfsagt er að benda á, að uppboðsnefnd birtir niðurstöðutölur uppboð- anna í næstu uppboðsskrá á eftir. Þá geta menn borið saman listaverð og uppboðsverð og oft dregið af því lærdóm. Við laus- lega athugun virðist mér sem margir hafi gert hér ágæt kaup, a.m.k. borið saman við verð- skrár, en á stundum hefur hlaupið kapp í boðin og verðið þá rokið nokkuð upp og stundum verulega. ^ ^——---------------- I>að er ósvikið „SL-fjör“ ______—-—" á sólarkvöldunum, stuttog smellin skemmtiatriði, hnitmiðuð og vönduð ferða- kvnning og síðan dúndrandi fjör á dans gólfinu, þar sem nægur tími gefst til þess að skemmta sér eins og hvern lystir. Nýjir bæklingar komnir! Stjúpbræður Hinn eldhressi karlakor ..Stjupbræður syngur vel valin lög undir stjórn Jóns Stefanssonar Matseðill í tilefni kvöldsins bjóöum viö upp á velþekktan hátiöarmat frá Portoroz. MESANO MESO. Verö aöeins kr. 85. Skemmtikraftar frá Portoroz Við faum frábæra skemmtikrafta frá Portoroz i heimsókn. serstaklega hingaö komna til þess aö taka þátt i jugóslavnesku feröakynning- unni. Gestur kvöldsins Heiðursgestur kvöldsins er Mario Valic hótelstjóri Palace-samsteypunnar. Kvikmvndasýning I hliðarsal verður synd einkar vönduð islensk kvikmynd um feröir Samvinnuleröa-Land- synar til Rimini. Portoroz og Danmerkur. Glæsileg tískusýning Modelsamtökin sýna glæsilegan barnafatnað frá Bellu og nýjasta tiskufatnaöinn frá Capellu. Spurningakeppni Dagsbrunarmenn keppa viö bifvélavirkja i hinni vinsælu og fjörugu spurningakeppni fagfélaganna. Keppt veröur um sérstaklega vegleg feröaverðlaun og því mikið i hufi og spennan i hamarki! --------- Bingó Aö venju veröur spilaö bingö um glæsileg ferðaverðlaun Givenchy Paris llmvatnskynning og gjafir frá Givenchy Paris „SL-fjör“ á dansgólflnu Hljomsveit Ragnars Bjarnasonar og Helena leika fyrir dansi og halda uppi „SL-fjöri" til 01 eftir miönætti. Sólarkvöldin - vönduð og vel heppnuð skemmtun við allra hæfí Kynnir Magnús Axelsson - Stjórnandi Sigurður Haraldsson Skemmtunin hefst kl. 19 meö leik Jóns Ólafssonar á pianó. Boröapantanir i sima 20221 e.k.l. 16 i dag. Samvinnuferdir-Landsýn í/ AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.