Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.03.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. MARZ 1981 Flík sú, sem bandarískir kalla „sweat shirt“ og notuð hefur verið' sem hversdags eins lengi og elstu menn muna, varð allt í einu mikil tískuflík meðal ung- menna víða í Evrópu. Á mynd- inni, sem hér fylgir með, er bresk útgáfa af skyrtunni, teikn- arinn Annabel Morris hefur sent á markaðinn skyrtur skreyttar með máluðum myndum af blöðr- um, fiðrildum, froskum og fisk- um, svo eitthvað sé nefnt. Alltaf gerist það öðru hverju, að óværa kemst á blóm á heimil- inu, getur það borist með nýrri pottaplöntu eða öðru. Ýmis ráð hafa verið gefin við þessu vanda- máli og hér er komið áleiðis einu til viðbótar. Það á að vera gott að stinga eldspýtum, með breinnisteininn niður, í moldina í kringum stöngulinn og hafa þar þangað til allar lýs eru horfnar. Til hlífðar í kuldanum Að öllum líkindum er enn langt í vorið því enn hætta á kulda og kvefi. En um leið og fer að birta og sól sést á himni finnst mörgum börnum að komið sé sumar og fara úr yfirhöfnun- um þar sem þau eru í leik. Og þá getur kvef fylgt í kjölfarið. Ullarbolirnir eru auðvitað alltaf bestir, þegar þannig stendur á, og halda þarf hita á brjósti og baki. Það má líka notast við annað svo sem hlif úr ull, vattefni eða þunnu „skum- gummi" þ.e.a.s. svampi. Hlífin er höfð opin á öxlinni, saumað skáband í hálsinn og bendlar í hliðarnar til að binda hana saman. Skreytt bóm ullarskyrta w/t/m - Umajön: Bergljót Ingólfadóttir Vesti úr teflum Það er ekki ýkja erfitt, að búa til vesti úr treflum og tekur ekki langan tíma. Gert er ráð fyrir að treflarnir séu: 130 cm langir og 30 cm breiðir en auðvitað er hægt að hafa hlutföllin önnur. Óneitanlega er fallegt að hafa treflana köflótta, þó aðrir litir komi til greina, en þeir þyrftu þó Þegar tölurnar fara af regn- kápum Það er ekki sérlega þægilegt að festa tölur í regnflíkur, svo ekki sé nú talað um þegar rifnar undan tölunni um leið. En það hjálpar upp á sakirnar að festa stykki af venjulegum hefti- plástri (sem seldur er í rúllum) á rönguna til styrktar og sauma síðan í gegn um plásturinn, eins og venjulegt efni. að vera með uppraki til endanna. Teikningin, sem hér fylgir með, skýrir eiginlega alveg hvernig treflarnir eru saumaðir saman, þ.e. punktalínurnar. Að framanverðu eru treflarnir saumaðir saman frá mitti og niður, en að aftanverðu eru þeir saumaðir saman ofar á bakinu, eða eins og hver og einn getur ákveðið. Púnktalínurnar sýna hvar sauma á band, rifsband eða annað, á röngunni, til að hægt sé að draga þar teyju í gegn. Það er þó ekki nauðsynlegt að setja teyju því allt eins má nota belti til að halda því saman í mittið. Eins og sjá má af myndunum fer vestið vel við bæði síðbuxur og pils. Eftirréttur með kotasælu 4 epli, afhýdd, skorin í sneiðar og lagðar í smurt eldfast mót, kanilsykri stráð á milli laga. Bakað í ofni þar til eplin eru orðin meyr. Með er borin kotasæla, ca. 200 gr. hrærð út með undanrennu (örlitlum púðursykri ef vill) og vanilludropum. Stofublóm Bragi Kristjónsson: Spjall um sjón- varp og útvarp Ólíkt hafast þau að þessa dag- ana, systkinin sjónvarp og hljóð- varp, þ.e. fréttastofur þeirra. í sjónvarpinu ríkir sama blessuð blíðan. Það liggur m.a.s. við að þeir fjandvinir Ólafur Jóhannes- son og Grímsson, sem myndaðir voru á Keflavíkurhervelli, séu orðnir sammála um herbúnaðinn; Mr. Grímsson lýsti því yfir, að „við ættum eftir að taka afstöðu til þessa og hins ...“ hm. I hljóðvarpinu er engu líkara þessa dagana en fréttamennirnir séu komnir í einskonar „fréttahas- ar“. Hver stórbomban er sprengd af annarri og fréttamenn gerast æ atgangsharðari við stjórnmála- mennina og fulltrúa atvinnuveg- anna. Viðtal Helga Jónssonar fréttamanns við Ellert Schram vegna mannaráðninga til frétta- stofu, vakti á sínum tíma mikla athygli. Stígandi ýtni frétta- mannsins var óvenjuleg og við- mælandinn fór nokkuð halloka í samtalinu. Ýmsir héldu, að hér væri um að ræða einangraðan hlut, bundinn aðstæðum í tilteknu máli, sem snerti ráðningu fréttamanna. En nú er komið í ljós, að svo er alls ekki. Fréttamenn hljóðvarps hafa, almennt, tekið viðmælendur sína miklu óblíðari tökum en fyrrum. Oft svo, að næsta hæpið má telja. Á miðvikudag var röðin komin að Davíð Scheving, frísklegum nútímamanni, sem bæði talar og skilur mælt mál. Hann slapp því nokkuð vel úr meðferð frétta- manns. Sama kvöld var flokks- bróðir Heiga fréttamanns, Tómas viðskiptaráðherra, tekinn ofurlít- ið til bæna og það var eingöngu að þakka langri þjálfun ráðherrans í mjög loðnum svörum, svokölluð- um „framsóknarhætti", sem hann slapp undan spurningafárinu með því að varpa sér í djúpa verðbólgu- þanka. Það er ekki gott að segja, hvað veldur því, að jafn vandaður og menntaður fréttamaður og Helgi Jónsson tekur slíkum stökkbreyt- ingum næstum á einni nóttu. Fréttamaðurinn hefur árum sam- an gert sér mikið far um að vanda Helgi Dr. Björn alla efnismeðferð og flutning. Að nokkru liggja þó ástæðurnar ljós- ar fyrir: Nú eru komin til starfa á fréttastofunni nokkur stykki af ungum og skynugum frekjupjökk- um; nægir að nefna Stefán Haf- stein, Hallgrim Thorsteinsson og Halldór Halldórsson. Allir eru þeir skynsamir piltar og menntað- ir, en hafa ekki enn aðhæft erlenda menntun sína að fullu íslenzkum veruleika. Af þessum þrem er Halldór Halldórsson þó langbeztur fréttamaður: Ýtinn og þrár eins og góður fréttamaður verður að vera, nokkuð öfgafeng- inn í fréttaöflun, en svotil alveg laus við flokkspólitískar tilhneig- ingar, sem þó má greina í vægum skömmtum hjá hinum tveim. Þingfréttaöflun Halldórs er t.d. afbragðsgóð fréttamennska, dálít- ið harðsoðin, en engum einum flokki hampað umfram aðra. Og kannski er það bestur vitnisburð- ur um starf þessa fréttamanns, að pirraður framsóknarlimur í út- varpsráði lætur nú fara fram nákvæma talningu á viðmælend- um þingfréttamannsins. Þegar hvassir menn eins og þessir drengir þrír taka að brýna ljái sína á tæpitungu stjórnmála- -mannanna, vakna hinir eldri starfsfélagar þeirra til nýrrar Jóhanna Tryggvadóttir Bjarnason: Hin furðulega yfirlýsing LIÚ í Morgunblaðinu þann 6. marz sl. birtist þessi fyrirsögn: LÍÚ tekur afstöðu með SÍF og til fróðleiks fyrir þá, sem ekki sáu þessa grein en hafa áhuga á saltfisksölumálum þjóðarinnar (og 50% hærra hráefnisverði), þá segir ennfremur í þessari grein: SIF hefur á undanförnum árum notið fyllsta trausts útvegsmanna og telur LÍÚ að ávallt hafi fengist hæsta mögulegt verð fyrir salt- fisk. Ég hefi sjálf talað við alla viðstadda þennan fund nema Martein Jónasson. Þeir sem stóðu að þessari samþykkt voru: 1. Kristján Ragnarsson, sam- þykkur. 2. Vilhjálmur Ingvarsson, sat hjá. Hefur ekki verkað saltfisk í 2 ár. 3. Hallgrímur Jónasson, Reyð- arfirði. Samþykkur. 4. Ágúst Flygenring, Hafnar- firði, sat hjá. Verkar ekki saltfisk. 5. Óli Guðmundsson, Reykjavík. Samþykkur. 6. Þórarinn Guðbergsson, Garð- inum. Samþykkur. 7. Kristinn Pálsson, Vestmanna- eyjum. Vildi ekki tjá sig. 8. Marteinn Jónasson, Bæjarút- gerð Reykjavíkur. Samþykkur. (Hafði hann Ieyfi Útgerðar- ráðs til þess?) 9. Þórhallur Helgason, Hrað- frystistöðinni, sagði já, en framleiðir ekki saltfisk. 10. Gísli Jón Hermannsson, sat hjá. (Reykjavík.) Verkar sjálf- ur ekki saltfisk. 11. Ragnar Thorsteinsson, B/V Karlsefni, Reykjavík. Sat hjá. 12. Jakob Sigurðsson, sat hjá. 13. Karl Auðunsson, Hafnarfirði. Samþykkur. (Verkar ekki salt- fisk.) Það eru 8 menn sem standa að þessari traustsyfirlýsingu LÍÚ, 5 menn sátu hjá. Ég leyfi mér að spyrja: „Hvaða vit hafa stjórnarmeðlimir LÍÚ, sem sumir hverjir verka alls ekki saltfisk, á sölumálum þessarar afurðar?" Auk þess upplýsir verðjöfnun- arsjóður saltfiskssöluafurða Seðlabankans, að það hafi verið bullandi tap á blautsaltfiskssölu- málum síðan 1974, svo milljarða skipti í uppbætur frá sjóðnum á ári en hafi farið heldur skánandi. Lítum svo á árangurinn af sölu á blautverkuðum þorski í Portúgal 1980, en þá hefðu SÍF menn átt að standa sterkir á móti viðsemjend- um sínum þar, vegna kaupa okkar á 2 togurum, olíu, spennustraum-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.