Morgunblaðið - 09.04.1981, Síða 23

Morgunblaðið - 09.04.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981 23 Veður víða um heim Akureyri 4 skýjaö Amsterdam 12 heiðskírt Aþena 23 heiðskírt Barcelona 17 þokumóða Berlín 18 skýjaö Brussel 18 skýjað Chicago 23 skýjað Denpasar 32 heiöskírt Dublin 9 heiöskírt Feneyjar 18 þokumóða Frankfurt 21 skýjað Færeyjar 8 rigning Genf 18 skýjað Helsinkí 8 heiðskirt Hong Kong 24 skýjað Jerúsalem 16 skýjað Jóhannesarborg 24 heiöskírt Kaupm.höfn 7 skýjað Kairó 23 skýjað Las Palmas 17 rigning á síð. ktst. Lissabon 19 heiöskírt London 14 heiðskírt Los Angeles 19 skýjaö Madrid 21 skýjað Majorka 20 alskýjaö Malaga 19 mistur Mexíkóborg 27 heiðskírt Miami 23 skýjað Moskva 7 skýjað New York 17 heiðskírt Nýja Delhi 35 heiðskírt Osló 12 þoka París 18 skýjað Perth 22 skýjað Reykjavík 3 súld Rró de Janeiro 30 heiðskírt Rómaborg 27 heiðskírt San Fransisco 16 heiðskírt Danmörk • • Enn röskun á flugumferð Kaupmannahofn. 8. april. — AP. MIKIL röskun varð á innanlands- fIukí í Danmörku i daK og einnÍK á allmorKum fluKleiöum út úr land- inu veKna aðKerða fluKumferðar- stjóra sem marKÍr voru fjarverandi til að þrýsta á kröfur sinar um leiðréttinKU i launamálum. Danski flugherinn tók síðan við stjórninni á Álaborgarflugvelli á Jótlandi og var flugvelli lokað fyrir annarri umferð en herflugvéla. Á Kastrupflugvelli varð að aflýsa öll- um ferðum innan Danmerkur og til útlanda í nokkra klukkutíma, unz ný flugumferðarstjóravakt átti að koma til starfa síðdegis. Þetta var sjötti dagurinn í röð, sem flugumferðarstjórar tilkynna veikindaforföll og tafir verða þar af leiðandi á flugi, en samgönguráðu- neytið hefur neitað að fallast á kröfur þeirra um hækkun á nætur- og yfirvinnu. Tannskemmd- ir og andfýla leiða til skilnaðar og bótakröfu London. 8. apríl. AP. GRÍSKUR innflvtjandi i Bretlandi hefur krafizt þess fyrir dómstól í Lundun að hann fái skilnað frá konu sinni <>k að auki 20 þúsund punda bætur vegna þess að eiginkonan hefur neitað að leyfa eiginmanninum að kyssa sig á munninn. Lögmaður konunnar sagði að ástaðan væri sú, að henni byði við þvi hvað eiginmaðurinn hefði skemmdar og ljótar tennur. aukin heldur væri hann and- fúll ok hún hefði þar af leiðandi ekki lyst á að kyssa hann. Eiginmaðurinn Constantine Fermanoglous sagði í dag, að með þessari tregðu og nei- kvæðri afstöðu uppfyllti konan ekki hjónabandsskyldur sínar og því væri bezt að leiðir þeirra skildu sem snarast. Hann minntist ekki á hvort hann myndi nota bótaféð — ef hann fengi það — til að láta gera við tennurnar í sér. Fréttaskýring: Hlutföllin á fylgi ísraelsku f lokkanna eru að snarbreytast Sérkennileg þróun hefur orðið í kosningaslagnum sem hafinn er fyrir allnokkru í ísrael. Þegar Begin ákvað kosningar var því nánast einróma spáð, að Verka- mannaflokkurinn myndi verða sigurvegari þeirra, sumir gengu jafnvel svo langt að spá Verka- mannaflokknum hreinum meiri- hluta í Knesset, þar sem 120 þingmenn eiga sæti. Likud- bandalag Menachem Begins virt- ist sundrað og veikt og ekki líklegt til stórræða, eftir fjög- urra ára stjórn, sem hefur ein- kennzt af óðaverðbólgu, sam- drætti í atvinnu, dregið hefur úr flutningi fólks til ísraels og ísraelar hafa flutt í stærri stíl úr landi en á nokkru öðru tímabili, m.a. vegna verðbólgu og minnk- andi atvinnu. Ágreiningur hefur verið harðvítugur innan ríkis- stjórnar Begins, ekki sízt með tilliti til framtíðarskipunar mála á Vesturbakkanum, svo og hafa hvatningar Begins til að ísraelar hösluðu sér völl á Vesturbakkan- um í nýjum landnemabyggðum, Aröbum þar til sárrar reiði og gremju, enda stundum verið tek- ið eignarnámi land þeirra: allt voru þetta samverkandi ástæður fyrir því að Likud-bandalagið var afskrifað eða allt að því. Einnig hafði það misst frá sér ýmsa mæta og vinsæla stjórnmálam- enn og Verkamannaflokkurinn virtist því hafa trompin á hend- inni, það var aðeins um það að ræða að beita þeim rétt. Moshe Dayan seigur og svo virðist sem almenn- ingur beri til hans traust, því að nýjasta skoðanakönnunin bendir til að flokkur Dayans komi ellefu þingmönnum að, Verkamanna- flokkurinn 46 og Likud 33. Þar með væri staða Dayans gagnvart báðum stærri fylkingunum orðin harla sterk og fengi hann smá- flokka til liðs við sig kynni hann að hafa síðasta orðið um stjórn- armyndunina að kosningunum loknum. Dayan hefur látið hafa það eftir sér að flokkur hans væri reiðubúinn að starfa með hverju því afli sem fengi meiri- hluta í kosningunum, og útilokar sem sé hvorki Likud né Verka- mannaflokkinn. Það sem án efa mun einnig verða æ meira hitamál í kosningabar- áttunni er sambýli ísraela við Araba á Vesturbakkanum, svo og afstaða þeirra til annarra Ar- abaríkja. Begin hefur þótt harð- skeyttur í meira lagi og margir hölluðust að því að stefna Verka- mannaflokksins myndi verða sveigjanlegri og hugsanlega leiða til þess að unnt yrði að ná samkomulagi a.m.k. við Jórdani og ef til vill Sauda. Nú að lokinni heimsókn Haigs, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, til ísraels eru menn ekki jafn öruggir og áður hver muni í reynd verða stuðningur stjórnar Reagans við Israel, en sá stuðningur skiptir sköpum, ef að því kæmi að semja við þessar tvær nefndu þjóðir. Mörgum ísraelum fannst Haig Alexander Haig Nú eru að vísu næstum þrír mánuðir en dæmið virðist ætla að hafa aðra útkomu en leit út fyrir þegar það var sett upp í byrjun kosningabaráttunnar. Þar ræður ýmislegt: Verka- mannaflokkurinn og frambjóð- endur hans hafa gert ýmsar skyssur og ekki allir verið nógu slyngir í málflutningi sínum. Oheppilegt var á hvern hátt spurðist út um fund Shimon Peres með tveimur Arabaleiðtog- um þótt það sé opinbert leynd- armál, að embættismenn ísraels- stjórnar hafa haldið uppi leyni- legum viðræðum (sem er opin- bert leyndarmál!) við fulltrúa þessara tveggja ríkja. Likud- bandalagið hefur neytt stöðu sinnar óspart og meðal annars ákveðið mjög vinsælar og eftir- sóttar skattalækkanir. Og síðast en ekki sízt virðist sem framboð Moshe Dayans ætli að setja strik í reikninginn. Þegar fyrst var minnzt á að hann kæmi með sérlista í kosningunum reyndu bæði Likud og Verkamanna- flokkurinn að gera Dayan í senn tortryggilegan og vekja athygli á hringlanda hans í ísraelskri póli- tík. En Dayan reyndist býsna einum of Arabasinnaður og loð- inn í málflutningi sínum og það væri greinilegt að hann gerði sér ekki minnstu grein fyrir hversu djúpur sá fjandskapur er sem er milli ísraela og Jórdana og Sau- da, þó svo að allir þessir þrír aðilar hafi um sumt vilja til að reyna að ná samkomulagi sín á milii. Það var einnig ísraelum áfall að Haig neitaði afdráttar- lausri beiðni Israelsstjórnar um að hætta við að selja Saudum vopn, en Israelar segja að þessi vopn gætu Saudar síðan notað gegn Israelum, ef deilur færu að harðna. Þessi afstaða Bandaríkjastjórnar gæti því styrkt „haukana" innan ísraels í sessi og fram að þessu hefur Begin haft það yfirbragð en Peres farið með hlutverk hins friðelskandi. Svo kynni að fara að hrakfarir Begins yrðu ekki þær sem spáð var í upphafi. Það skyldi þó aldrei enda með því að það yrði hann sem stæði með pálmann í höndunum eftir 30. júní. Það er ekki trúlegt í augna- blikinu, en það er ekki jafn ótrúlegt og það var þegar til kosninga var boðað. Jóhanna Kristjónsdóttir Ringó Starr Faðir Ringós þvær glugga London. 8. apríl. — AP. FAÐIR Bitilsins fyrrverandi og milljónamæringsins Ringós Starr vinnur við gluKgaþvott í iönaðarbæ á Norðvestur-Englandi. Blaðið Daily Express hafði upp á föður stjörnunn- ar. Ilann heitir Rirhard Starkey. Þe^ar Ringó var smádrengur skildu foreldrar hans ok hefur hann ekkert samband við föður sinn. „Hann hefur staðið sig vel drengurinn," segir Starkey. „Ég óska honum alls góðs en hann skuldar mér ekkert." Starkey býr í 70 ára gömlu húsi. Ekkert þar inni minnir á Ringó, hvorki myndir af honum né börnum hans. Starkey sagði að hann og seinni kona hans sendu börnum Ringós stundum smágjafir, en þau fengju aldrei að vita hvort þær kæmust til skila. Svíþjóð: Starfsmenn rík- is og bæja semja Stokkholmi. 8. april. Frá Guðfinnu Kavn- arsdóttur. fróttaritara Mbl. í DAG náðist samkumulag opin- berra starfsmanna 1 Sviþjóð og rikis og bæja um launahækkanir fyrir 1.3 milljónir launþega. Samn- ingarnir hafa i för með sér, að meðallaunin. um 7000 s.kr.. hækka um 200 kr. frá 1. júli 1981, 200 kr. frá 1. júlí 1982 og 100 kr. frá 5. jan. 1983. Auk þess fá þeir, sem Somza-sinnar undirbúa innrás Manaxua. Nicaraxua. K. apríl. AP. FYLGISMENN Somoza. fyrrum einræðisherra, sem margir hafa fengið þjálfun í Bandaríkjunum. undirbúa nú innrás i Nicaragua og gætu hafist handa hvenær sem er, að þvi er fram kemur í viðtali við varnarmálaráðherra Nicaragua. Joaquin Cuarda, sem hirtist i blaði rikisstjórnarinnar sl. sunnudag. Cuarda sagði að fylgismenn Som- oza í Bandaríkjunum, Guatemala og Honduras væru reiðubúnir til átaka hvenær sem væri en væru nú að reyna að ná sambandi við félaga sína víðar. Hann sagði að í Honduras væru t.d. yfir 600 Somoza-sinnar reiðubúnir til átaka. HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. F:T*IM Lokuð vökvakerfi = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA þéna meira en fiOOO kr. 900 kr. uppb<)t fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs, og þeir, sem þéna 6000 eða minna fá 1000 kr. fyrir sama tíma. Þess utan fá opinberir starfs- menn 0,9% kauphækkun fyrir þær kauphækkanir, sem meðlimir verkalýðsfélaganna fá utan við samningana. en einmitt þessar aukakauphækkanir hafa valdið mestum deilum við samningana. I samningunum er einnig gert ráð fyrir því, að um þetta atriði verði samið að nýju í október 1982 ef aukahækkanir verkalýðsfélag- anna verða hærri en 6%. Ekkert miðar enn í samningaátt hjá þeim 900 þús. starfsmönnum, sem ráðnir eru hjá einkafyrirtækj- um og búist er við að samtök þeirra, PTK, boði til verkfalla á morgun, fimmtudag. PTK-samtökin hafa neitað að ganga að samningatilboði atvinnurekenda og hafa mótmælt harðlega tilraunum atvinnu- rekendasambandsins, SAF, og stærstu verkalýðssamtakanna, LO, til að sníða PTK-samningana eftir sama sniði LO-SAF-samningana, sem voru undirritaðir í mars. En verkalýðssamtökin hafa hótað að rifta samningum sínum við SAF ef PTK nær betri samningum en þeir. EiNIN MEST SELDI SKRIF - STOFUSTÓLL í EVRÓPU ...vegna gæöa, endingarog verðs. Biöjiö um myndalista m KRISTJflíT SiGGEIRSSOfl HF. LAUGAVEG113 REVKJW/1K SJMI25870

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.