Morgunblaðið - 11.08.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 11.08.1981, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981 EVRÓPUÚRTAKA Á MÁNAGRUND: Keppnissveit íslands á EM '81 i Noregi. En þeir eru frá vinstri talið Sigurbjörn Bárð- arson á Adam, Hreggviður Eyvinds- son á Rökkva, Eyjólf- ur ísólfsson á Krumma, Ragnar Hinriksson á Nasa, Reynir Aðalsteinsson á Klaka, en Reynir kemur til með að keppa á Fleyg en hann hafði sloppið út úr girðingu rétt áður en myndin var tekin og var hann týndur. Tómas Ragnarsson á Bjarka og Benedikt Þorbjörnsson á Valsa. ' Tveir nýliðar í íslensku keppnissveitinni Það var spennuþrungið andrúmsloftið á Mánagrund um helgina þegar úrtökukeppni fyrir Evrópumótið var haldin. Mótið hófst á laugardag kiukkan tíu fyrir hádegi og lauk dagskrá um klukkan 21.30. Samtímis úrtökukeppninni var haldið opið íþróttamót. Á sunnudag voru kappreiðar haldnar og var keppni í 250 m skeiði jafnframt liður í úrtökunni. Veður var frekar óhagstætt á sunnudag, rigningarúði og vindgjóla. Aldrei fyrr hefur keppni um sæti i Evrópusveit ísiands verið jafn hörð sem nú. Voru endanleg úrslit ekki ráðin fyrr en á síðustu stundu. Eftir keppni á laugardag var útséð hvaða keppendur yrðu í sætum fjórgangshesta, en allt var í óvissu með fimmgangshestana. Á sunnudag var svo keppt í skeiði og fengu hestarnir fjóra spretti hver. Endanleg röð varð sem hér segir: Sigurbjörn Bárðarson varð stigahæstur í öllum greinum sam- anlagt á Adam frá Hólum. Stiga- hæstir fyrir tölt og fimmgang urðu Hreggviður Eyvindsson á stóðhestinum Rökkva frá Ríp og Ragnar Hinriksson á Nasa frá Akureyri. Stigahæstir fyrir fimm- gang og skeið urðu Tómas Ragn- arsson á Bjarka frá Vallanesi og Benedikt Þorbjörnsson á Valsa frá Lambhaga. Og efstir í tölt og fjórgang urðu Eyjólfur ísólfsson á Krumma frá Skörðugili og Reynir Aðalsteinsson á Fleyg frá Stokk- hólma. Ekki var útlitið gott í upphafi kappreiða og átti maður ekki von á að þar yrðu gerðir stórir hlutir. Framan af voru tímar heldur slakir en heldur lagaðist það þegar líða tók á keppnina. Og endirinn varð sá að nýtt íslandsm- et sá dagsins ljós, en það var í 400 m stökki. Var metið slegið í aukaspretti í mótslok og voru það tveir hestar sem hlupu, þeir örvar og Tvistur og voru þeir á sama tima 27,4 sek. sem er tveimur sekúndum betri tími en gildandi Islandsmet. örvar var talin sjón- armun á undan. í öðrum hlaup- agreinum náðist einnig ágætur árangur, en í skeiði og brokki voru tímar heldur í lakari lagi. í 250 m skeiði sigraði Adam á 23,6 sek. sem er í sjálfu sér ekkert sérstakur tími en það er öllu merkilegra að þarna skaut Adam þekktum skeiðhestum aftur fyrir sig og má þar nefna Skjóna, Fannar, Trausta og Villing. Svo má geta þess að þessi árangur Adams varð til þess að hann náði því að verða stigahæstur þeirra hesta sem kepptu í úrtökunni. Eigandi hans er Hörður G. Al- bertsson, en knapi var Sigurbjörn Bárðarson. í öðru sæti varð Skjóni á 23,8 sek. og er þetta í annað skiptið á rúmri viku sem hann lendir í öðru sæti. Virðist hann vera farinn að dala nú í lok Mikil spenna ríkti meðal manna meðan úrtakan stóð yfir og voru menn sifellt að bera saman bækur sínar og reikna út hverjir væru inni og hverjir úti. Hér eru það Sigurbjörn Bárðarson og Reynir Aðalsteinsson sem láta ljós sitt skina og Erling Sigurðsson hlustar á speki þeirra félaga með andakt. ■ : ;C Adam gerði það gott á þessu móti því auk þess að verða efstur i úrtökunni þá sigraði hann i skeiðinu. Knapi er Sigurbjörn Bárðarson. Einn stóðhestur verður i islensku sveitinni, en það er Rökkvi frá Rip. Hann er undan Hrafni 802 frá Holtsmúla. Knapi er Hreggviður Eyvindsson. Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.