Morgunblaðið - 11.08.1981, Síða 48
4 krónur
eintakið
4 krónur
eintakið
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1981
Sextán feta skútu
hvolfdi við Seltjarnarnes
BjórKunarsveitirnar Albert á Seltjarnarnesi og Injíólfur úr Reykjavík komu fljótlega á slysstað ásamt lögreglunni, en þá var búið að
bjarga fóikinu um borð i trillu sem kom fólkinu til hjálpar. Þá var þaö búið að vera um þrjá stundarfjórðunga i köldum sjónum.
Ljósm.: Júllus.
ÞAÐ ÓHAPP varð laust eftir
kiukkan niu á laugardags-
kvoldið að sextán feta segl-
skútu hvolfdi fyrir utan
Ilrólfskálavör á Seltjarnarnesi.
Um borð i skútunni voru hjón á
sextugsaldri ásamt syni sinum
á þrítugsaldri, en hann átti
skútuna.
Skútunni höfðu þau siglt frá
Engey í blíðskaparveðri, en þeg-
ar komið var á móts við Gróttu
hvessti skyndilega og fór þá
skútan á hiiðina.
Tókst fólkinu
þá að reisa hana við, en þá var
skútan orðin svo full af sjó að
hún fór aftur á hliðina.
Skútan var þá stödd tæpa
hundrað metra frá landi, og
ákvað sonur hjónanna þá að
synda til lands eftir hjálp. Áhöfn
á nærstaddri trillu sá óhappið og
kom fólkinu til hjálpar, en þá
voru lögregla og björgunarsveit-
ir lagðar af stað til hjálpar.
Er fólkinu var bjargað var það
búið að vera í sjónum í um það
bil þrjá stundarfjórðunga. Það
var flutt beint á slysadeildina,
en fékk að fara heim fljótlega.
Er Mbl. hafði samband við fólkið
í gær taidi það ekki frá neinu að
segja, þar sem það hefði aldrei
verið í neinni lífshættu.
Neyðarástand ríkjandi
á húsaleigumarkaðinum
1.500 manns á biðlistum hjá borginni og Leigjendasamtökunum
Á SKRÁ Leigjendasamtakanna
eru nú um 600 manns, sem biða
eftir húsna'ði, hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavikurborgar biða
um 500 manns 67 ára og eldri og
um 400 aðrir samkvæmt þeim
upplýsingum. sem fengust hjá
Leigjendasamtökunum og Fé-
lagsmálastofnun Reykjavikur-
borgar. Þá mun nánast ekkert
um það, að þarna sé um sama
fólkið að ræða.
Gunnar Þorláksson, húsnæðis-
fulltrúi Reykjavíkurborgar, sagði
ástandiö vera mjög slæmt og hann
myndi varla eftir því verra. Búast
mætti við því, að annar eins hópur
sg skráður væri hjá Félagsmála-
jtofnun, væri í húsnæðisleit á öðrum
vettvangi. Það sem ylli þessu væri
helzt það, að lítið framboð væri á
leiguíbúðum og að ekki hefði nýlega
/erið tekið í notkun leiguhúsnæði á
vegum borgarinnar nema fyrir aldr-
iða. Það virtist vera svo, að menn
læju sér ekki lengur hag í því að
Kartöflukíló-
ið á 10,60 kr.
VEKIÐ var að taka upp fyrstu
sendinguna af nýjum isienskum
kartöfium f Grænmetisversiun
rikisins f gærkvöldi, en þá bárust
V/t tonn frá Auðsholti í Hrepp-
um. Kartöflurnar eru ófiokkaðar
fyrst i stað og aðeins seldar í 2V-i
kg pokum. Verðið er 10,60 krón-
ur hvert kiló, eða 26,50 kr. fyrir
pokann. þangað til sex manna
nefndin kemur saman i iok vik-
unnar og ákvarðar endanlegt
verð á kartöflum i haust.
ávaxta fé sitt með leigu íbúða og
einnig, að húsaleigulögin drægju úr
framboði á íbúðum. Eigendum
þeirra þætti sér of þröngur stakkur
skorinn, hvað varðaði uppsagnar-
tíma.
Gunnar sagðist telja, að heizta
lausnin á þessum vanda væri stór-
aukin bygging ódýrra söluíbúða,
svipuðum og verkamannaíbúðunum,
með viðráðanlegum greiðslukjörum.
Það hefði alltaf grynnkað á biðlista
hjá Félagsmálastofnun, þegar slík-
um íbúðum væri úthlutað, þó alltaf
ALÞÝÐUSAMBAND Vestfjarða
hefur gert þær tillögur til aðild-
arfélaga sinna, að aðalkröfurnar
í næstu kjarasamningum verði
þær, að kaupmáttur samning-
anna frá 1977 náist og að laun
fyrir almenna fiskvinnu verði
greidd samkvæmt 13. launaflokki
f stað 8. launaflokks áður, en það
hefur um 10% launahækkun i för
með sér. Á kjaramálaráðstefnu
ASV, sem haldin var um helgina,
voru þessar kröfur mótaðar og
var niðurstaða ráðstcfnunnar á
þá leið, að ASV hygðist ekki
hlyti að vera þörf á leiguhúsnæði.
Talsmaður Leigjendasamtakanna,
Gunnar Smári Egilsson, sagði, að á
leigjendamarkaðinum ríkti nú nán-
ast neyðarástand og það væri nokk-
uð víst að annar eins fjöldi fólks, og
væri á biðlistum hjá Leigjendasam-
tökunum, væri að leita sér húsnæðis
annars staðar. Þá færi nú að líða að
því að skólafólkið kæmi inn á
markaðinn og þá versnaði ástandið
enn frekar. Orsökin væri einfaldlega
sú að það vantaði íbúðir, þær virtust
varla vera til, þó nokkur brögð væru
semja í samfloti við heildarsam-
tökin, heldur eitt sér. I samtali
við Morgunblaðið í dag segir
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, að
-þetta samflot hafi ekki verið
samflot, það hefur ekki verið
heilsteypt, heldur hefur útúr-
boruháttur verið meira og minna
í þvi alla tíð.“ Ekki kvaðst Pétur
þó Ifta svo á, að um vantraust á
ASI-forystuna væri að ræða með
að vísu að því að íbúðir stæðu auðar.
Fólk virtist vera tregt til að leigja
þær og virtist gera sér þær hug-
myndir að leigjendur væru óæskilegt
fólk, fremur en að húsaleigulögin
yllu því að fólk vildi ekki leigja.
Gunnar Smári sagði einnig, að þó
gæti það verið, að húseigendur vildu
ekki gera þá samninga við leigjend-
ur, sem fælu það í sér, að þeir gætu
ekki rekið leigutaka út hvenær sem
væri, eða hækkað leiguna að eigin
vild. En þess bæri að gæta að þetta
væru sanngjörn lög, sem tryggðu
rétt beggja aðila og hlytu að vera
báðum til góðs.
þessari niðurstöðu.
í samtali við Morgunblaðið í
dag, segir Þorsteinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands Islands, að kröfu-
gerð ASV sé ekki byggð á raun-
hæfum forsendum, enda sé hún
ekki byggð á auknum þjóðartekj-
um. í sama streng tekur Jón Páll
Halldórsson, formaður Vinnuveit-
endafélags Vestfjarða, en hann
segir, að ekki sé svigrúm til
Raufarhöfn:
Starfsfólk frysti-
húss Jökuls lagði
niður vinnu
Raufarhöfn. 10. ái;úst.
STARFSFÓLK Hraðfrystihúss
Jökuls hf. hér á Raufarhöfn,
alls um 50 manns, lagði i dag
niður vinnu. þar sem það hafði
ekki fengið greidd laun i fjórar
vikur og mun ekki mæta til
vinnu aftur fyrr en laun verða
greidd.
Starfsfólkið lagði niður vinnu í
dag klukkan 5, en venjulega er
unnið í frystihúsinu til 7, þar sem
ekki hafði verið staðið við loforð
frá því á föstudaginn um að laun
yrðu greidd út í dag. Fjárhagsleg
staða Jökuls hefur verið mjög
erfið að undanförnu og því hefur
ekki verið hægt að greiða fólkinu
laun. Nú er unnið að lausn þessa
máls, því nokkuð af fiski er í
húsinu og liggur hann undir
skemmdum, hefjist vinna ekki
mjög fljótlega, en seint í gær lá
lausn málsins ekki fyrir.
Helgi
Erfiðleikar i
Atlantshafsflugi
ÞRÁTT íyrir verkföll flugum-
fcrðarstjóra í Bandarikjunum
tókst að fá leyfi fyrir eitt flug
Flugleiða vestur um i gær-
kvöldi gegnum kanadiskt flug-
umferðarsvæði, en ekki er Ijóst
hvert framhaldið verður, þar
sem flugumferðarstjórar bæði i
Kanada og á Nýfundnalandi
höfðu neitað að hleypa flugvél-
um á leið til Bandarikjanna i
gegnum umráðasvæði sitt.
Blaðafulltrúi Flugleiða, Sveinn
Sæmundsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þó leyfi hefði
fengizt fyrir þessu flugi, væri alls
óráðið með framtíðina. Möguleiki
væri að fljúga um portúgalskt
flugumferðarsvæði, en þá þyrfti
að byrja á því að fljúga beint til
suðurs, á móts við Portúgal og
síðan beint í vestur til Bandaríkj-
anna. Ef sú leið yrði farin, myndi
það lengja flugið um tvo og hálfan
tíma, sem vissulega væri óheppi-
legt, bæði fyrir farþega og Flug-
leiðir. Þetta ástand hefði þegar
valdið Flugleiðum erfiðleikum og
næstu daga væru allar vélar
vestur um fullbókaðar, svo alls
ekki væri séð fyrir endann á
þessum vandræðum.
kauphækkana, enda hafi frysti-
iðnaðurinn á Vestfjörðum verið
rekinn með halla á síðasta ári.
Þorsteinn Pálsson segir, að við-
miðun ASV við samningana frá
1977 sé óraunhæf, þeir kjarasamn-
ingar hafi verið óraunhæfir og
kauphækkanir muni einungis
leiða til aukinnar verðbólgu. Þá
segir Þorsteinn einnig að VSÍ
muni „að sjálfsögðu semja sem ein
heild, þó Alþýðusambandið riðl-
ist“.
Sjá viðtöl við Jón Pál,
Pétur og Þorstein á bls. 3.
Alþýðusamband Vestfjarða markar launastefnu sina:
Ætlar að ná kaupmætti
sólstöðusamninganna
Óraunhæf krafa, segir VSÍ