Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 198. tbl. 68. árg. MtlÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Þing brezku verkalýðssamtakanna: „Ráðherramir fant- ar og svikarar“ lllackpool. 7. soptcmhcr. AI*. ÁRLEGUR samhandsfundur brozku verkalýðshroyfingarinn- ar. TUC. hófst í Blackpool í daíí- í fyrstu atkva'ðagroiðslu fundar- ins var ákveðið að brcyta skipu- laKÍ samtakanna þannig, að öll vorkalýðsfólöK með floiri on 100 þúsund fólaga fái sjálfkrafa monn í 42 manna stjórn hroyf- innarinnar. Er talið að þessi ákvörðun muni styrkja hægfara öfl innan hroyfinKarinnar on voikja rótta-ka vinstri monn. Alan Fisher, forseti TUC, réðst harkalega að ríkisstjórn Thatch- ers forsætisráðherra í setningar- ræðu sinni á þinginu í dag og kallaði ráðherrana „fanta og svik- ara“. Hann sakaði stjórnina um að brjóta kjarasamninga og stefna viljandi að því að auka atvinnu- leysið í landinu. Aðalumræðuefni þingsins verða efnahagsmálin í Bretlandi, hug- myndir um einhliða kjarnorkuaf- vopnun Breta og úrsögn Breta úr Efnahagsbandalaginu. Michael Foot, leiðtogi brezka Verka- mannaflokksins, mun ávarpa þingið á morgun, en þingmennirn- ir þrír, sem keppa um sæti aðstoð- arleiðtoga flokksins, Tony Benn, Denis Healy og John Silkin, munu allir flytja ræður á þinginu á fimmtudag. Bráðabirgðasam- komulag Norð- manna og Dana Loch Walesa. leiðtogi Samstöðu, veifar fólagsskírtoini sínu á 'onds- þingi Samstöðu í gær. (Slmamynd-Al*) í>jóðaratkvæðagreiðsla um tillögur Samstöðu? Osló. 7. scptcmhcr. Frá frcttaritara Mhl.. Jan-Erik I.aurc. DANIR og Norðmonn hafa komið sór saman um hráðabirgðalausn á doilunni um veiðar á hinu umdoilda svæði við Jan Mayon. Samkomulagið hofur okki í för moð sór neinar broytingar á því ástandi, som ríkt hofur að undan- förnu. Norskir sjómonn hafa lok- ið sínum loðnuvoiðum, on Danir munu halda áfram veiðum i nokkra daga. þar til loðnan hvorfur af þossum slóðum. Dönskum og norskum embætt- ismönnum verður hins vegar falið að undirbúa rækilega víðtækar samningaviðræður um málið, sem haldnar verða í Kaupmannahöfn í næsta mánuði. Þar er stefnt að því að semja um markalínur á svæð- inu, en um heildarkvóta loðnu, sem veiða má á svæðinu, verður einnig að semja við íslendinga og Efnahagsbandalagið. Fulltrúar hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi, sem þátt tóku í viðræð- unum í morgun, sættu sig við þessa niðurstöðu. í fréttatilkynn- ingu sem gefin var út í lok viðræðnanna, segir að norsk eftir- litsskip muni sem fyrr skrásetja og aðvara dönsk skip á miðunum, en bæði dönsk og norsk skip muni sýna tillitssemi á miðunum og sneiða hjá því að magna deiluna. Pólland: (•dansk. 7. scptcmhcr. AI*. Á FYRSTA ársþingi Sam- stoóu. samtaku hinna frjálsu verkalýðsfélaga í Póllandi. sem nú er haldið í Gdansk. hefur komið fram tillaga um að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um umbætur þær sem hreyfingin vill koma á i landinu. Tillaga þessi var strax harðlega gagnrýnd í hinum opinheru fjölmiðlum í landinu. Gert er ráð fyrir því, að hún komi til atkvæða á morgun. þriðjudag. Rætt var um það á þinginu í dag, að hreyfingin beitti sér gegn frumvarpi, sem liggur fyrir pólska þinginu um sjálf- stjórn verkamanna í fyrirtækj- um, en framámönnum í Sam- stöðu þykir frumvarpið ófull- komið. Búizt er við því, að mikill tími á þinginu fari í umræður um skipulagsmál samtakanna. Um 160 fangar, sem haft hafa hluta fangelsisins í borginni Bydgoszcz í norðvesturhluta Póllands á sínu valdi í tvo sólarhringa, létu af aðgerðum sínum í dag, þegar pólski herinn hafði umkringt fangelsið og föngunum verið hótað valdbeit- ingu. Mótmælaaðgerðirnar í fang- elsinu byrjuðu á laugardags- kvöld, þegar fangaverðir skutu ungan fanga, sem reyndi að flýja. Um 150 föngum tókst að flýja fangelsið í kjölfar óeirða, sem brutust út í fangelsinu en aðrir fangar tóku á sitt vald hluta fangelsisins. Fulltrúar Samstöðu komu á vettvang og áttu þátt í því að reyna að stilla til friðar í fangelsinu. 1 borginni Katowice stóðu fulltrúar Samstöðu einnig í ströngu, en þar hefur verið ákveðið að láta fara fram at- kvæðagreiðslu meðal starfs- Fæddi börn sitt úr hvoru leginu London. 7. s<‘ptcmhcr. AP. KONA oin í London moð tvö lcg ól tvo drongi sl. föstu- dag. hvorn úr sinu leginu. Afar sjaldgæft or að konur hafi tvö log. en moð ólikind- um or að gotnaður skuli hafa orðið í þeim báðum samtímis. Talið or að líkurn- ar á slikum athurði sóu oin á móti milljón. Konan, sem fæddi börnin tvö, heitir Theresa Ebers og er 23 ára gömul. Henni leið vel eftir fæðinguna og sömu- leiðis börnunum tveimur. „Ég grét af gleði, þegar ég sá börnin mín tvö,“ sagði Ther- esa, „ég kleip mig hvað eftir annað til að fullvissa mig um að þetta væri ekki draumur." Theresa og m'aður hennar höfðu staðið í þeirri mein- ingu að hún gæti ekki átt börn, eftir að læknar fræddu hana á því fyrir fjórum árum að hún hefði tvö leg. Eigin- maðurinn, George að nafni, sagði í dag, að þau hjón hefðu verið að hugleiða að ættleiða börn, þegar upplýst varð að Theresa væri barnshafandi. „Börnin eru yndisleg. Þau hafa gefið lífi okkar nýtt inntak," sagði faðirinn. manna í risastórri stálverk- smiðju um hvort forstjóri fyrir- tækisins skuli settur af. Verkfalli afstýrt horshofn. 7. scptcmhcr. Frá JoRvan Arifc. frcttaritara Mhl. VERKFALLI opinborra starfs- manna í Fa>royjum var afstýrt í dag. þogar samkomulag náðist milli landsstjórnarinnar og sam- bands opinborra starfsmanna. Vorkfalli því. som hcfjast átti á morgun. hofur verið aflýst. Landsstjórnin getur riú tekið upp viðræður við skipstjórnar- monn á skipum í eigu ríkisins óski þeir eftir slíkum viðræðum og einnig er nú unnt að hefja samn- inga við iðnaðarmenn sem starfa hjá hinu opinbera. Samningar höfðu til þessa strandað á kröfu landsstjórnar- innar um að semja við alla samningsaðila sína sameiginlega. Hinn nýi samningur færir opin- berum starfsmönnum u.þ.b. 2400 króna launahækkun í ár og 3600 króna hækkun á næsta ári. Samn- ingurinn gildir frá 1. apríl í ár til 1. október 1983. NATO mótmælir her- æfingum Sovétmanna Hrtisscl. 7. scptcmhcr. AP. Atlantshafsbandalagið gagn- rýndi hinar umfangsmiklu her- æfingar Sovétríkjanna við Eystrasalt harðlega í dag og sakaði Sovétmenn um að hafa brotið samninga með því að gefa ekki upp, hversu margir tækju þátt í æfingunum. Talsmaður bandalagsins í Brússel sagði að sendiherrar aðildarlandanna 15 hefðu setið á fundi í dag og lýst alvarlegum áhyggjum sínum vegna þessa máls. Sovézka fréttastofan Tass hef- ur sagt að rúmlega 100 þúsund hermenn taki þátt í æfingunum. Talsmaður Atlantshafsbanda- lagsins sagði að Sovétmenn hefðu tilkynnt um heræfingarn- ar 14. ágúst sl., en ekki látið uppi hve fjölmennt lið yrði við þær riðið. í Helsinki-sáttmálanum frá 1975 er ákvæði þar sem aðilar samkomulagsins skuldbinda sig til að tilkynna fyrirfram um heræfingar, þar sem fleiri en 25 þúsund hermenn taka þátt. Að sögn talsmanns NATO hafa Sovétmenn yfirleitt haldið þetta ákvæði og því vekji það ugg að svo var ekki gert nú. Það hefur einnig valdið áhyggjum hjá Atlantshafs- bandalaginu, að engum vestræn- um áhorfendum var boðið að fylgjast með æfingunum, eins og venja hefur verið undanfarin ár. Belgíumenn, V-Þjóðverjar og Bandaríkjamenn hafa mótmælt formlega við Sovétríkin undan- farna daga, en yfirlýsingin í dag er hin fyrsta sem kemur frá öllum NATO-þjóðunum sameig- inlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.