Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 36 Ormurinn tíndur úr saltfiskinum, sem síðan stóðst gæða- mat í Grikklandi í FRYSTIHÚSUM hefur miklu fé verið kustað til við að hrcinsa orm úr fiski. Síðustu mánuði hefur einnÍK verið við þetta vandamál að glíma i saltfisk- vinnslu. Síðastliðinn vetur var kvartað yfir ormum í tveimur förmum og gríska matvælaeftirlitið stöðvað hluta þessara sendinga í borginni Patras. í fyrra tilvikinu, sem var um áramót, tókst að semja um afgreiðslu farmsins, en hins veg- ar ekki í síðara skiptið í febrú- armánuði. Var þá gripið til þess ráðs að hreinsa fiskinn af ormum og þurfti að hreinsa um 100 tonn af saltfiski með mikilli vinnu og ærnum tilkostnaði. Því verki er nú fyrir nokkru lokið og fiskurinn verið metinn athugasemdalaust af matvælaeftirliti í Patras. Friðrik Pálsson, framkvæmda- stjóri SÍF, sagði í samtali við Mbl., að frá þvi að þessar kvart- anir bárust hefðu SÍF og fram- leiðslueftirlitið unnið að því að koma í veg fyrir að þetta gerðist aftur. Framleiðendur hefðu orðið að leggja á sig mikla fyrirhöfn og aukinn kostnað við ormaleit og tínslu við pökkun. Farmur, sem fór í júlímánuði til Grikklands líkaði vel þannig að sú vinna virtist hafa borið árangur. Frið- rik sagði, að þó þetta mál væri alvarlegast í Grikklandi, þá hefði það einnig skotið upp kollinum í öðrum markaðslöndum og nauð- syn væri að finna lausn á þessum vanda. Tóku upp hljómplötu í kirkjunni í Ytri-Njarðvík KOMIN er út hljómplata með Karlakór Keflavíkur og er þetta fyrsta hljómplatan sem kórinn sendir frá sér. Karlakór Kefla- víkur var stofnaður 1. desember árið 1953 og hefur starfað óslitið síðan. I tilefni af 25 ára afmæli kórsins árið 1978 gaf Keflavíkur- bær kórnum plötuupptöku sem tekin var upp í vor. Að sögn formanns kórsins, Jóhanns Lín- dals, var leitað til upptökufyrir- tækisins Stemmu í Reykjavík um að taka upp plötuna þar syðra og reyndist Ytri-Njarðvíkurkirkja mjög heppileg til upptökunnar. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé sem upptökufyrirtæki flytur öll sín tæki úr stúdíói út á iand og tekur upp fjöirásarplötu (stereo). Að sögn Jóhanns var það ýmsum vandkvæðum bundið að fara með 40 manna kór til Reykjavíkur í plötuupptöku, það hefði þurft að fara margar ferðir til Reykjavík- ur, auk þess sem tryggja þarf upptökusal í Reykjavík með tals- verðum fyrirvara, að sögn Jó- hanns. Sigurður Rúnar Jónsson sá um upptökuna og fór með öll sín flóknu tæki til Njarðvíkur. Magn- ús Ingimarsson stjórnaði upptöku, Sigurður Demetz Fransson stjórn- ar kórnum og Ragnheiður Skúla- dóttir sá um undirleik. A plötunni eru 14 lög eftir innlenda og erlenda höfunda. Kórinn er nú á söngferðalagi í Austurríki og syngur meðal annars í Ortesei í Tyrol, heimabæ Sigurðar Demetz. Félagar sjá sjálfir um dreifingu plötunnar þegar þeir koma heim. PEISATISKUNA HAUSTIÐ'81 og Samkvœmiskíœðmð karía VetiuyaJmsið Naust efnir tií sérstakrar kvöltiverðarveistu (Dinner Sfiow) miðvihidagskvölxíið 9. september n.L Ragnar Hmafataverstiin kynmr kíassiskan samkvcemiskíceðnað karía m.a. jrd Crnse oa Weber Þeir sem sýna eru m.a. Bryndxs Scfiram, J J Urmur Amgrimsdóttir, ÖmGuðtmmdssono.fí. Húið opnar kí. 7. Fyrsta kynning kl. 8. Bíómaskreyúngar: Hendrik Berndsen B(óm <§£ Ávextir Vinsamíegast atfuigið! Paruanir teknar hjá Nausti i sima 17759. Aðeins takmarkaður fjö(&. gesta sökum kynnirujarinnar. Vegna sérstakra úlmceía hönnuða verða Ijósmyndatökur ekki íeyjðar u.m kvöídið. Eggert Teídsken kynmr (oðfeídi frd Gninstdn og Vigéns auk dgin smiða. Eggert FeJdskeri, Cruse, Gnimstein of Finíand, Ragnar f Íenafataversíun, Weber Intematwnal, Wigens. Vdsíumatseðiíí: Humarkokteid með ooœs, ristuðu brauði ocj sitrónu Marinerað íambaíceri með rjómasósu og djúpsteiktu bfómkxdx Heimcdagaður bananais með súkkuíaðisósu Natists og kirsuberi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.