Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 19 STEFNUMÓT YFIR ATLANTSHAFI — Brezk herþota af Harrier- gerð og bandarísk F-14 Tomcat-þota flugu til móts við sovézka „björninn“, sem kominn var til að fylgjast með sameiginlegum æfingum Breta og Bandaríkjamanna undan Skotlandsströndum um helgina. Sannanir um sovésk eiturefni í hernaði Enn einn í mót- mælasvelti lielfast. 7. s«‘ptemlH*r. AI\ TUTTUGU og fimm ára morðingi gekk í dag til liðs við fanga i Maze-fangelsinu í Norður-írlandi sem eru í mótmælasvclti. Hann var dæmdur í lífstíðar- fangelsi í janúar 1978 fyrir að myrða 77 ára gamlan bifvéla- virkja. Hann var einnig dæmdur í 26 ára fangelsi fyrir að hafa sprengiefni undir höndum og taka þátt í hryðjuverkum. írski lýðveldisherinn sór í dag að „gjalda bresku stjórninni“ dauða 10 hryðjuverkamanna sem látist hafa af völdum mótmæla- sveltis í N-írlandi. Flugrán í Sao l'aulo. 7. s<*ptemher. AI\ MAÐUR með Bihlíuna og stóran sjálfskeiðung að vopni randi Boeing-737-flugvél í innanlands- flugi um helgina. en gafst upp skommu eftir að hann hafði lcyft farþegunum að hverfa frá borði. Flugræninginn kom um borð í Varig-þotuna í Curitiba í suður- hluta Brazilíu og skömmu eftir flugtak krafðist maðurinn þess að breytt yrði af stefnu og flogið til höfuðborgarinnar, Brazilíu, í stað Sao Paulo. Leyfði ræninginn að lent yrði í nágrenni Sao Paulo og að farþeg- arnir færu þar frá borði, og áður Brasilíu en lengra var haldið tókst áhöfn- inni að fá ræningjann til að gefast upp. Að sögn lögreglunnar var flug- ræninginn andlega þjakaður. Hann vildi til höfuðborgarinnar til að ræða við forseta landsins. New York. 7. scptemhcr. Al*. BANDARÍSKA stjórnin hefur aflað sér gagna sem sanna að sovésk eiturefni voru notuð í hernaði í Kamhódíu. samkvæmt grein í vikuhlaðinu Time sem kom út nú um hclgina. Eftirlitsmenn úr Thailenska Mannskæð átök í Norður-Yemen Kuwait. 7. scptcmher. Al\ HUNDRUÐ manna hafa fallið og sa-rst í hörðum bardögum síðustu fjórar vikurnar milli hersveita og sveita stjórnarandstæðinga í Norður-Yemen. að sögn leiðtoga stjórnarandstæðinga í viðtali við hlað í Kuwait. Leiðtoginn sagði, að forseti landsins, Ali Abdullah A1 Saleh, hafi skipað her landsins að láta til skarar skríða gegn fylkingu vinstri þjóðernissinna (Ndf), þrátt fyrir að hinar stríðandi fylkingar hefðu undirritað vopnahléssam- komulag í Aden 10. ágúst sl. Sagði leiðtoginn, að sjö stórfylki hefðu verið send gegn þjóðernis- sinnum, en tekist hefði að útrýma tveimur þeirra algjörlega. Atök stjórnarsinna og stjórnar- andstæðinga hafa blossað upp með nokkurra mánaða millibili undanfarin ár. hernum tóku sýnishorn af trjá- blöðum, mold og vatni í Kambódíu og sendu til rannsókna í Banda- ríkjunum. Vísindamenn fundu efnið T-2 í sýnunum, en það er framleitt í miklu magni í Sovét- ríkjunum. Bandaríkjamenn hafa lengi grunað Sovétmenn um að hafa léð eiturefni til hernaðar í Suðaust- ur-Asíu en það er brot á samning- um um eiturefnahernað sem gerð- ir voru eftir heimsstyrjöldina fyrri. Fréttir frá Kambódíu, Afganist- an og Laos hafa skýrt frá „gulu regni" sem olli bruna og innvortis blæðingum og jafnvel sársauka- fullum dauða. Bandaríkjamenn hafa þó aldrei haft gögn undir höndum til að sanna að eiturefnin væru runnin undan rifjum Sovét- manna. Afganskur herflokkur ratóst inn í Pakistan Islamahad. Nýju Dclhí. 7. scptcmhcr. AI\ IIERFLOKKUR frá Afgan istan hélt inn í Pakistan í dag, gerði leit í húsum í smáþorpi við landamærin og hafði á brott með sér ótiltekið magn af vopnum, að því er varnarmálaráðuneyti Pakist- ans greindi frá í dag. Afgönsku hermennirnir sneru til baka yfir landamærin áður en hermenn úr her Pakistans komu á vettvang. Engin átök urðu. Þetta er í fyrsta sinn frá 1978, sem það er viðurkennt af opinberri hálfu í Pakistan, að afganskur herflokkur hafi farið í óleyfi yfir landamærin. Samkvæmt upplýsingum, sem borizt hafa til Islamabad frá Kabul, hefur afganska her- stjórnin nú gripið til þess ráðs að kveðja til vopna hermenn, Helena gýs Vanoiiuvor. 7. soptomhor. Al’. SANKTI Helena gaus smávægi- lega á sunnudag og segja jarð- fræðingar að eldfjallið sé smám saman að fylla út í aðalgiginn, hægfara gos eigi sér stað í aðal- gígnum og sé engin aska því fylgjandi. sem lokið höfðu herþjónustu en eru ekki orðnir 35 ára að aldri. Mikið agaleysi hefur verið í her landsins vegna mikils mannfalls og liðhlaups. Dost, utanríkisráðherra Afg- anistans, sagði í dag eftir við- Begin mun ræða AWACS-herþotur í Washington ræður við Indiru Gandhi í Nýju Delhí, að stjórn hans væri „sveigjanleg" og gæti vel hugsað sér að hefja viðræður við Pak- istan og Iran, með það fyrir augum að draga úr spennu á svæðinu. Ncw York. 7. scptcmbcr. AI\ MENACIIEIVI Begin, forsætis- ráðherra ísraels. kom til Bandaríkjanna á sunnudag. Ilann mun eiga fund með Ronald Reagan forseta á mið- vikudag. „Við munum gera honum grein fyrir andstóðu okkar við sölu Awacs-her- þotna til Saudi-Arabíu.** sagði Begin við komuna til New York. Alexander Haig, utanríkis- ráðherra, sagði í viðtali um helgina að þjóðarleiðtogarnir muni ræða leiðir til að styrkja hernaðarsamstarf þeirra. Hann sagði að í því gæti falist að þjóðirnar notuðu í sameiningu upplýsingar frá gervitunglum. New York Times sagði að sam- eiginlegar heræfingar landanna væru hugsanlegar og einnig aðstaða fyrir bandaríska herinn í Israel. „Ég er ekki að tala um hernaðarbandalag eða samn- ing,“ sagði Haig, „heldur sam- starf sem myndi auka öryggi svæðisins." Hálfþrosk- uð fóstur í ungbarni IVking. 7. scptcmbcr. AI\ TVÖ hálfþroskuð fóstur fund- ust í kvið 42ja daga gamals drengs í Nanking-harna- sjúkrahúsinu í Kína 28. ágúst. Xinhua-fréttastofan sagði að fóstrin hefðu gróið inn í drenginn vegna hlóðleysis í legi móðurinnar en undir venjulegum kringumsta'ðum hefði hún eignast þríhura. Annað fóstranna hafði fjóra útlimi en hitt þrjá með nöglum og tám. Bæði höfðu húð, hár, innyfii og heila. Litli drengur- inn er við góða heilsu en hann er fyrsti sonur bændahjóna í Jiangsu-héraði. Jtæðismannaskrifstofur íran í London herteknar London. París. licirút. 7. scptcmbcr. AI\ TUGIR írana réðust inn í ræðis- mannaskrifstofur íran í London á mánudag og bundu starfsmenn þess á höndum og fótum og eyðilögðu húsbúnað. Lögreglan kom á staðinn 15 mínútum síðar og handtók 54. Nokkrir slösuðust í stimpingum við lögregluna. Einn írananna sem hringdi til AP-fréttastofunnar sagði að bygg- ingin hefði verið tekin í mótmæla- skyni við klerkastjórnina í Iran af liðsmönnum Mujahedeen Khalq- hreyfingarinnar. Talsmaður Scotland Yard sagði að andstæðingar Khomeinis hefðu farið inn í bygginguna í „litlum hópum“ og þóttst vera í lögmæt- um erindagjörðum. Þeir hefðu síðan snúist gegn starfsmönnum og hleypt fleiri liðsmönnum inn. Einn starfsmannanna gat vakið athygli öryggisvarðar við húsið á innrásinni og lögreglan var kölluð á staðinn. Abolhassan Bani-Sadr, fv. for- seti íran, sem er í útlegð í París, skoraði á landa sina í dag að ganga til liðs við mótspyrnuhreyf- inguna „og hrekja einræðisherr- ana sem fyrst frá völdum". Bani- Sadr sendi frá sér yfirlýsinguna í tilefni af að þrjú ár eru liðin frá „svarta föstudeginum" þegar her- lið Iranskeisara hóf skothrið á mótmælagöngu í Teheran og nokkrir féllu. „Einræðisherrarnir ætla sér að koma Savak (leynilögreglu keisar- ans fv.) aftur á fót. Þeir hafa þegar líflátið yfir 1.000 manns. Þeir hafa ekki skeytt um stjórn- störf í yfir mánuð. Þeir hafa aðeins áhuga á eigin glæpastarf- semi og undirokun," sagði í yfir- lýsingu Bani-Sadrs. „Efnahags-, félags- og menningarmál í landinu þola ekki öllu meira. Stríðið getur ekki gengið öllu lengur. Við þurf- um aðeins að stíga eitt skref enn til að vinna sigur,“ sagði Bani- Sadr. 50 vinstrisinnaðir andstæðingar írönsku stjórnarinnar voru teknir af lífi í íran yfir helgina. And- stæðingar klerkastjórnarinnar skutu þrjá klerka og einn embætt- ismann stjórnarinnar til bana á sunnudag. Reza Kani, forsætisráðherra, skoraði á neðanjarðarsveitir að leggja niður vopn og kallaði Bandaríkin „óvin Iran númer eitt“. „Við munum aldrei gleyma þessum óvini,“ sagði forsætisráð- herra landsins í útvarpið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.