Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 47 Margt er ungu íólki til afþreyingar í /irseli... Ljósm. Mhl. (lUÖ)on. ákveðin í húsinu fjölbreytt starfsemi, og á ábyggilega eftir að bætast við þann lista. Æskulýðsstarf á veg- um Æskulýðsráðs verður fyrirferðarmikið. Náms- flokkar Reykjavíkur verða með kennslu í húsinu, Tónskóli Sigursveins kenn- ir börnum, Heiðar Ást- valdsson með danskennslu, og einnig fá skátar inni og íþróttafélag fatlaðra. Þá hafa skákmenn og ýmsir fleiri sýnt áhuga á að fá inni í Árseli með sína starfsemi. Síðan er spurn- ing hvaða frumkvæði fólkið í hverfinu hefur. Ég vil eindregið hvetja fólk í öll- um bæjarhverfum Reykja- víkur til að nota sínar félagsmiðstöðvar meir en það hefur hingað til gert. Það er svo ótrúlega margt sem hægt er að gera, ef vilji og hugur leggjast á þetta eitt.“ Þetta sagði Valgeir Guð- jónsson í Árseli, og vildi í lokin þakka fólki komuna á sunnudaginn, og kvaðst bjartsýnn á framtíðina, byrjunin lofaði sannarlega góðu. /■Málaskólinn Mímir- • Enska, þýzka, Franska, Spánska, Noröurlandamálin íslenzka fyrir útlendinga. • Enska fyrir börn. Beina aðferöin. • Síðdegistímar. Kvöldtímar. • Pitmanspróf í Ensku Einkaritaraskólinn 'Brautarholt 4 — 11109 HELO SAUNA fyrir hinar hefðbundnu atvinnu- greinar og lifnaðarhætti lands- manna. Guðmundur Bjarnason, alþing- ismaður, tók einnig til máls og taldi vaxtarmöguleika iðnaðar á Akureyri talsverða og að það væri skylda Norðlendinga að stuðla að því að rannsóknir á setlögum fyrir Norðurlandi með olíuleit í huga yrðu gerðar, slíkt væri mjög áhugavert og kvaðst hann myndu beita sér fyrir að svo yrði. Ingólfur Árnason, bæjarfulltrúi á Akureyri, hvatti mjög til þess að breytingatillaga Þorsteins yrði samþykkt, varaði við því að aftur- hald réði ferðinni í jafn miklu nauðsynjamáli og iðnþróun fjórð- ungsins væri og benti á það að sú samþykkt væri rökrétt framhald af fyrri samþykktum bæjarstjórn- ar Akureyrar um uppbyggingu stóriðju í Eyjafirði. Hann fór síðan fram á að nafnakall yrði viðhaft við greiðslu atkvæða um tillögu Þorsteins. Halldór Blöndal, alþingismaður, tók einnig til máls og hvatti til virkjunar Blöndu og uppbygginar stóriðju, en gagnrýndi að í iðn- þróunaráætlun Framkvæmda- stofnunar væri ekki minnzt einu orði á Norður-Þingeyjarsýslu. Þá benti Halldór á þann hagnað, sem fengizt hefði af Álverinu í Straumsvík, að það hefði nú borg- að byggingar- og rekstrakostnað Búrfellsvirkjunar. Þá atyrti hann Tryggva Gíslason fyrir aftur- haldssamar hugmyndir og benti á að fjármálaráðherra, Ragnar Arn- Gunnar Ragnars sagði, að for- sendum iðnrekstrar yrði að breyta, ef hann ætti að geta þróazt og hvatti til stóriðju. alds, virtist hafa gleymt því hvaða starfi hann gegndi þegar hann gagnrýndi gengisstefnu ríkis- stjórnarinnar og afleiðingar henn- ar. Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, rakti stöðu atvinnumála á Akur- eyri og benti á að 7 fyrirtæki á Akureyri veittu 70% atvinnu- færra manna á Akureyri atvinnu og þar með talin væru Fjórð- ungssjúkrahúsið og Akureyrar- bær. Sagði hann að miðað við núverandi rekstrarskilyrði iðnað- arins væru vaxtarmöguleikar þessara fyrirtækja nánast engir. Hvatti hann menn til þess að samþykkja breytingatillögu Þorsteins, því ef ekki yrði um fjölgun atvinnutækifæra í Eyja- firði gæti það valdið brottflutn- ingi fólks og atvinnuleysi. Þó bæri þess að gæta að, ef forsendur iðnrekstrar breyttust ekki, væri það tómt mál að tala um frekari uppbyggingu iðnaðar. Áð loknum þessum umræðum var gengið til atkvæða um breyt- ingatillögu Þorsteins að viðhöfðu nafnakalíi. Nokkrir fulltrúar lýstu sig andsnúna nafnakallinu og töldu það ekki samræmast lögum þingsins og greiddu því ekki at- kvæði. Breytingatillagan var svo samþykkt með 33 atkvæðum gegn 16, 9 sátu hjá, en 37 voru fjarver- andi, en tillaga Helga féll því. Tillagan um staðarval stærri iðn- rekstrar var síðan samþykkt með breytingatillögu Þorsteins með 32 atkvæðum gegn 13. HG Tryggvi Gíslason óskaði þess, að aldrei fyndist olia við landið vegna þeirrar röskunar, sem slíkt hefði í för með sér fyrir hinar hefðbundnu atvinnugrein- ar og lifnaðarhætti fólks. ll 2$‘ -9 Lítur er ekld lengur lúxus LLIR? Bræðraborgarstig 1 -Slmi 20080- (Gengið inn frá Vtesturgötu) UMBOÐSMENN: Skagaradíó, Akranesi - Jón B. Hauksson, Bolungarvík Straumur h/f., ísafirði - Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Hallbjörn Björnsson, Skagaströnd - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Hilmar Jóhannesson, Olafsfirði - K.E.A., Akureyri - K.Þ.H., Húsavik K.N.Þ. Þórshöfn - Sigurjón Árnason, Vopnafirði - Rafsjá, Neskaupstað Rafeind s/f., Egilsstöðum - Eirtkur Ólafsson, Fáskrúðsfirði Radióþjónustan, Höfn - Hornafirði - Neisti h/f., Vestmannacyjum Mosfcll, Hellu - Radíóvinnustofan, Hafnargötu 50, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.