Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
41
ERRÓ í HELSINKI
Listamaöurinn og heimsborgarinn Erró, öóru nafni Guðmundur Guðmundsson, er sennilega sá
listamaðurinn, se n lengst hefur náð allra Islendinga á sínu sviöi erlendis.
Um þessar mundir stendur yfir í Helsinki sýning á nokkrum verkum Errós í Strandkasernen, og segir
dagblaðiö Hufvudstadsbladet að sýningin sé stórkostleg, en fyrirsögn blaðsins er „Sensationella Erró“.
Meðal mynda á sýningunni er þessi geimfaramynd, sem blaðið nefnir: Erró á Venusi.
félk f
fréttum
Liv Ullmann
í þungu skapi
+ Slúðurdálkar sænsku blaðanna segja að Liv Ullmann
sitji niðurbrotin heima hjá sér í Osló vegna þess að hún
fékk ekki annað af tveim aðalhlutverkum í nýrri kvikmynd
sem heitir „Kostur Sophíu“ og fjallar um þá sem lifðu af
fangabúðir nasista. Leikstjóri myndarinnar er Alan Pakula
en það var Meryl Streep, sem fékk hlutverkið sem Liv
Ullman sóttist eftir. Allir þekkja Meryl Streep, en hún lék
móðurina í kvikmyndinni Kramer vs. Kramer, sem sýnd var
hér í Stjörnubíói.
Kærastinn hennar
Brookie Shields
+ Þannig lítur hann út vinur hennar
Brooke Shields en hann heitir John
Boag. Reynt hefur verið aö halda
sambandi þeirra leyndu án árangurs en
þau eru sögn nokkuö lukkuleg.
Fósturdóttir
• I*
Burtons
+ Stúlkan á myndinni heitir María
Burton og er hún tvítug. Þegar hún
var átta mánaða var hún tekin í
fóstur af Elisabeth Taylor og Rich-
ard Burton, sem þá voru hjón.
Enda þótt stúlkan sé aðeins
fósturdóttir þeirra Taylor og Burt-
ons þá þykir hún afar lík þeim. Hún
er sögð hafa augu eins og Taylor
og munn eins og Burton og er ekki
leiðum að líkjast.
María er nú tískusýningarstúlka í
New York og gerir það víst bara
gott.
Vill ekki láta
vita að hann
sé giftur
+ Einkalíf mitt kemur engum við,
segir Alan Bates leikarinn fraegi.
Hann segist ekki vilja tala um konuna
sína, því hann vilji að kvenaðdáendur
hans haldi aö hann sé ógiftur. Er
hann hræddur um að ef þær viti
betur, þá muni hann missa þaö
aödráttarafl, sem hann hafi í augum
þeirra. Heimspressan hefur þó kom-
ist að því að eiginkona Alans Bates
heitir Victoria og var fyrirsæta. Giftist
hann henni fyrir 11 árum. Eru þau
sögð hin ánægðustu í hjónabandinu
og eiga tvíburasyni, sem eru 8 ára
gamlir.
Með hverri nýrri plötu sem JANIS IAN, sendir frá sér
eignast hún fleiri áhangendur. Þess vegna hefur sá hópur
er virðir Janis Ian og nýtur tónlistar hennar, aldrei veriÖ
stærri. Sért þú ekki tilheyrandi þeim hópi, mælum við
eindregið með að þú takir þér smá pásu og hlustir á
RESTLESS EYES. Þú munt ekki sjá eftir þeim tíma né
öðrum sem þú eyðir með Janis Ian.
Heildsöludreifing
ftaiððfhf
Símar 85742 og 85055.
ML JOMDEILO
l&Lii) KARNABÆR
L augavegi 66 — Glæ&ibæ — Au&tursfræti /. I
“ Strrw fri skiDtibordt 85065
JANISIAN
RESTLESS EYES