Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 Hamingiuhjal Pótur GuAjótnsson: liókin um haminnjuna lóunn 1981. Sumum hókum er ætlað að breyta hátterni lesenda sinna, oðrum einungis að auka skilning j)eirra: Hvor tegundin er merki- le>;ri skal ósatft látið, en margar bækur af fyrra tæinu hafa orðið (;ífurle>;a áhrifamiklar, til að mynda trúarrit á borð við Kóran- inn, Bihlíuna oj; Rauða kver Maós, ok ýmiss konar barátturit fyrir bættu siðferði. En venjulega er ekki um að ræða annan hvorn tilj;an(;inn, heldur er bókum yfir- leitt ætlað að hafa áhrif á lesend- ur sína með auknum skilnin(;i. Bókinni um haminKJuna er fyrst ok fremst ætlað að hafa áhrif á háttalaj; lesenda sinna, (;era þá að betri mönnum. En hún á líka að Klæða skilninK þeirra á skrýtnum hlutum eins ok Lífsaflinu ok nokkrum !oj;málum lífsins. Þess ber að geta, að þessari bók (;æti tekizt fyrra ætlunarverk sitt án þess að takast það síðara, en ég held, að það sé óhugsandi, að þessu væri öfugt farið. Til þess lÍKKur sú einfalda ástæða, að þessi bók Ketur ekki glætt skilning nokkurs manns. Eins og titillinn gefur til kynna, þá virðist markmið bókarinnar vera að gera það ljóst, hvað hamingja er, en í rauninni er markmiðið að gera menn ham- ingjusama. A jtessu tvennu er sá munur, að menn geta vitað, hvað BóKmenntlr eftir GUÐMUND H. FRÍMANNSSON hamingja er, án þess að vera hamingjusamir. Og eins og lífs- vizkubók sæmir, þá hugar hún frekar að því, sem má verða mönnum til hjálpar í daglegu amstri fremur en að skýra fyrir þeim hamingjuna sjálfa. Það gæti reynzt erfitt verk, mun erfiðara en að gera þá hamingjusama. Höfundurinn trúir því, að marg- ar plágur og erfiðar hrjái mann- kynið um þessar mundir, sem koma í veg fyrir, að mannfólkið sé hamingjusamt. Ein er þó öllu verst í hans augum. Það er streitan. Hún er, að því er virðist, höfuðfjandi mannanna um þessar mundir. Höfundurinn segir, að hún valdi 80% allra sjúkdóma. Þess er ekki getið, hvaðan hann hefur þessa tölu. Það gengur fram af því sem hann segir, að spenna af ýmsu tæi veldur streitu, til að mynda innri spenna. „Innri spenna kemur alltaf fram í augn- svipnum. Menn herpa alltaf aug- un, ef þeir hitta einhvern, sem þeir hafa andúð á.“ (Bls. 32.) Eins og gefur að skilja, þá er streita ekki æskilegt ástand samkvæmt kenningunni. „Streita er ekki eðli- legt ástand. Ekkert er eðlilegt nema það lúti lögmálum náttúr- unnar. Og náttúran hefur skömm á því, sem er óhagkvæmt og skilar ekki árangri. Það gerir streita ekki.“ (Bls. 36.) Náttúran er ekki við eina fjölina felld og vill nú sýna veljwknun sína á Pétri Guð- /,ir "*f"* i \ m . r jR .. . jveggi frábn f g| v ALUZINK sameinar alla helstu kosti stáls, áls og zinks. Endingin er allt að 6 föld miðað við venjulegt galvaniserað járn og lengdir ákveður þú sjálfur. Þetta eru miklir kostir sem minnka við- haldið verulega. ALUZINK fæst sem garðastál, bárustál og sléttar plötur. Viljir þú vita meira, hafðu þá samband við söludeild okkar. Þar bíður þín lit- prentaður bæklingur um Garðastál og Aluzink. = HEÐINN = SÖLUSÍMI 52922 STÓRÁSI 4-6 GARÐABÆ Þar er framleiðslan, þar er þjónustan Pétur Guðjónsson WÞað er ekki alveg skýrt, hve margir þjást af streitu, en höfundur gefur í skyn, að þeir séu æði margir og flestir geri sér ekki Ijóst, að þeim er svo farið. Menn sækjast eftir hamingj- unni og halda, að hana sé að finna í betri vinnu, meiri peningum, nýju húsi eða öðrum veraldlegum gæð- um.M jónssyni og hefur valið hann til að ráða bót á þessu. Það er ekki alveg skýrt, hve margir þjást af streitu, en höfund- ur gefur í skyn, að þeir séu æði margir og flestir geri sér ekki Ijóst, að þeim sé svo farið. Menn sækjast eftir hamingjunni og halda, að hana sé að finna í betri vinnu, meiri peningum, nýju húsi eða öðrum veraldlegum gæðum. Af einhverjum ástæðum virðist höfundur telja, að svo sé ekki, og þess vegna eigi menn ekki að sækjast eftir þessu, heldur eigi þeir að fylgja aðferð sinni, og þá muni þeim hlotnast dýrðin. En það er algerlega órökstutt, af hverju menn höndla ekki ham- ingjuna með því að eignast hús eða bíl. Hins vegar hjalar höfund- urinn um „djúpstæða reynslu", sem á að vera hamingjan og líður ekki úr minni, og hann spyr sig, hvernig á henni standi. „Svarið er einfalt. Þið voruð laus við líkam- lega spennu, tilfinningar ykkar voru í samræmi við umhverfið, hugur ykkar opinn. Þið funduð, hvernig það er að vera sönn og heilbrigð, trú hinu rétta eðli mannsins." (Bls. 41.) I þessum orðum kemst höfundurinn næst því að segja, hvað hamingja er. Á öðrum stöðum í bókinni, þar sem heinlínis er vikið að henni, þarf hún að sæta þeim örlögum, að verða óskiljanleg öllu óinnvígðu fólki, eða svo yfirfljótanlega væm- in, að hún verður ekki eftirsóknar- verð nokkrum manni. En það er eðlilegt, að spurt sé: Hvert er hið rétta eðli mannsins? Svar þessar- ar bókar er ekki margbrotnara en, að hið rétta eðli er það, sem höfundurinn segir, að það sé. Yfirleitt kallar hann það lífsaflið. Og enginn er nokkru nær. Ráð þessarar bókar gegn streitu eru tvenns konar. Annars vegar er slökun, sem á að draga úr spenn- unni. Það er eins og við var að búast, að af lýsingu bókarinnar virðist slökun aðallega fólgin í því að ímynda sér, að slakni á ólíkum líkamshlutum. Þá slaknar á þeim. Hins vegar eru tólf lífsreglur, sem eiga að breyta lífi manna, ef þeir fylgja þeim af kostgæfni. Vandinn við þessar lífsreglur er sá, að þær eru sambland af hefðbundnum siðareglum eins og þeim, að menn skuli koma fram við aðra, eins og þeir vilja að aðrir komi fram við þá, og bulli á borð við þetta: „Ef þú sækir að ákveðnu marki, færirðu sjálfan þig í fjötra. Séu allar gjörðir þínar takmark í sjálfu sér, leysirðu þig úr viðjum." (Bls. 110.) Það er óskiljanlegt, hverju þessar lífsreglur eiga að breyta. Hverri lífsreglu fylgir löng útlistun á innihaldi hennar og ein dæmisaga. Dæmisögurnar 'eru eiginlega dæmalausar og útlistanirnar færa lesandann ekki nokkru nær inn- taki lífsreglunnar. Bókinni lýkur á yfirborðslegri aðferð til sjálfs- þekkingar og frekari lýsingu á því, hvernig menn skuli leysa lífsaflið úr læðingi. Höfundurinn lætur sér ekki nægja að lýsa böli samtímans og hvernig hann vill bæta það. Hann kryddar mál sitt með lærðum athugasemdum á borð við þessar: „Aristóteles hélt því fram, að mannshugurinn væri eins og óskrifað spjald (tabula rasa) við fæðingu, og að áhrif umhverfisins skiptu meginmáli." (Bls. 22.) Þetta er söguleg uppgötvun vegna þess, að sú hugmynd, sem hér er reifuð, hefur fram til þessa verið tengd nafni John Locke. Hann var uppi rúmlega tvö þúsund árum á eftir Aristótelesi. Nokkru seinna segir: Áður skilgreindu menn eðli hlutar eitthvað á þann veg, að steinn hlyti að falla vegna þyngdar sinnar, það þurfti ekki að ræða frekar. (Rökfræði Aristótelesar.) En Descartes tók að spyrja: „Hver segir það? Hver sá steininn falla? Ég. Þá hlýt ég með einhverju móti að hafa áhrif á, hvernig ég lýsi raunveruleikanum. Þess vegna verð ég að reikna með sjálfum mér.“ (Bls. 23.) Hvers á Aristótel- es að gjalda! Og ætli Descartes myndi skilja þetta, ef hann læsi það? Hann myndi vart kannast við að hafa skrifað neitt í líkingu við það, sem hér er sagt. Þessi bók á að frelsa menn undan oki samtímans, streitu, hraða, röngu verðmætamati og annarri óáran og gera þá ham- ingjusama. En hugsunin í bókinni einkennist af ruglandi, óskýrleik og hjali um eitthvað, sem enginn veit, hvað er. Það mætti þó hugsa sér, að menn yrðu sælir, ef þeir tryðu því, sem í bókinni stendur. En gætu þeir verið hamingjusam- ir? Geta menn í rauninni verið hamingjusamir án þess að kunna einhver skil á, h'vað hamingja er? Guómundur Ileiðar Frímannsson Spurningakeppnin í Jerúsalem: _ jr Blindur Israels- búi sigurvegari Helgi komst í úrslit og hafnaði í 4.-12. sæti IIKLGI Hermann Ilannesson, sem þátt tók í alþjóðlegri spurningakeppni um Gamla testamentið, scm haldin var nývcrið í Jerúsalem, komst í 12 manna úrslit í keppninni. en úrslitakeppninni lauk sl. mióvikudagsnótt. Sigurvegari var 43 ára gamall blindur kennari frá ísrael, en í óóru sa-ti varð 38 ára Brasilíumaó- ur. sem einnig er mikió sjón- skertur. Keppnin fór fram í tveimur áföngum. Forkeppnin, sem 40 manns tóku þátt í, fór fram í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.