Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 5 Blönduós: Nýtt stórgripa- sláturhús í notkun í haust NÝTT .stún'ripasláturhús Sölufé- la>ís Austur-IIúnvetninKa á Blönduúsi verður tekiú í notkun nú í haust. að því er Árni S. Júhannsson kaupfélansstjúri á Blönduúsi saKÚi í samtali við MorKunhlaðið í Kar. f sjálfu sláturhúsinu. þar sem slátra á hrossum ok nautftripum. er einn- ík K<*rt ráð fyrir að síðar me^i taka upp svínaslátrun. VeKna þeirrar sérhæfinKar sem orðin er í búfjárslátrun er hins veKar ekki Kert ráð fyrir að þarna verði slátrað sauðfé. Sláturhúsið er um 400 fermetr- ar að grunnfleti, en undir því er um 380 mz kjallari, þar sem verður gæru- og skinnageymsla, og salt- geymsla, og fleira í tengslum við sláturhúsið. Að sögn Árna Jóhannssonar kaupfélagsstjóra er ætlunin að í húsinu verði unnið við slátrun mestallt árið, eða því sem næst, en ekki eingöngu á hefðbundinni sláturtíð. Nautgripaeldi til kjöt- framleiðslu sagði hann að vísu ekki vera mikla í héraðinu, en hún færi þó vaxandi. Starfsmenn við hið nýja sláturhús sagði hann verða 10 talsins. Unnið hefur verið við sláturhús- bygginguna af krafti að undan- förnu, en ekki mun enn ljóst hvenær verkinu verður lokið. Kaupfélagsstjóri sagði verkið hafa verið tafsamara en upphaflega var gert ráð fyrir, en ætlunin væri sem fyrr segir að hefja slátrun “í haust“. Laxveiði í sjó: Leitað leiða til könnunar á hlutdeild íslenska laxins NEFND til að leita færra lciða til könnunar á hlutdeild íslenska laxastofnsins í afla þeirra þjúða, sem laxveiðar stunda á norðaust- anverðu Atlantshafi, var skipuð þann 21. ágúst. í nefndinni eiga sæti þeir borsteinn Þorsteinsson, h<')ndi á Skálpastöðum. formaður, Jakob Ilafstein lögfræðingur og dr. Björn Júnannesson. Ekki tókst að ná sambandi við formann nefndarinnar, en í sam- tali við Morgunblaðið sagði Jakob Hafstein, að nefndin hefði haldið tvo fundi og nú væri unnið að gagnasöfnun og sagði Jakob að nefndin legði mikið upp úr því að íslendingar fengju að kynnast laxveiðum Færeyinga í sjó. Einnig sagði Jakob að nauðsynlegt væri að veita peningum Hafrannsókn- arstofnunar til rannsókna á laxi á úthafi, því ekki væri nóg að vita um göngur laxins í ánum. Jakob sagði að nefndin væri sammála um nauðsyn þess að stórauka laxamerkingar, á það yrði höfuð- áhersla lögð, og einnig yrði haft náið samstarf við Veiðimálastofn- un og Hafrannsóknarstofnun. Vitni vantar BIFHJÓLI var ekið á mann á gangbraut á Bústaðavegi við Grímsbæ síðastliðið þriðjudags- kvöld, um klukkan 21. Maðurinn slasaðist nokkuð, en bifhjólið fór af vettvangi, og er það ósk lögregl- unnar að ökumaður þess gefi sig fram hið fyrsta. Einnig er óskað eftir því, að vitni að atburðinum gefi sig fram við lögregluna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.