Morgunblaðið - 08.09.1981, Side 2

Morgunblaðið - 08.09.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 Pílagrímaflug Flugleiða: Tvær áttur og 90 starfs- menn vinna við flugið sem hefst á fimmtudag I’ílatírímaílutninKar FIuxioiAa hefjast na'stkomandi fimmtudaK þann 10. september. ÍYIaKÍð hef- ur tvær DC-8-63-fluKvéIar í flutn- iniiunum. hvora um sij? med sæti fyrir 252 farþe>;a. Aðallejfa verð- ur flojfið frá tveim hortcum í Alsír til Jeddah í Saudi Arabíu. frá Constantine og Annaha. en einnÍK frá Ghardaia ok Tlemoen. Pílagrímaflug það, sem að ofan greinir, er framkvæmt fyrir ríkis- flugfélagið í Alsir, Air Algerie. Atta flugáhafnir taka þátt í Lézt í bílslysi ALDRAÐUR maður lézt í bílslysi skammt frá Ilólmavík sl. fimmtu- dag. Maðurinn, sem var á leið frá Hólmavík að Staðará skammt fyrir utan Hólmavík, mun hafa misst stjórn á bílnum og honum hvolfdi utan vegar. Maðurinn, sem fæddur var 1908 og hét Benedikt Sæmundsson, mun hafa látizt samstundis. pílagrímafluginu, alis 72 flugliðar. Að auki eru átta starfsmenn félagsins staðsettir í Jeddah, Constantine og Annaba þannig að alls verða um 90 Flugleiðastarfs- menn við fyrri hluta pílagríma- flugsins. Flugáhafnir hafa heimahöfn í Annaba, en áhafnaskipti verða einnig í Jeddah, þannig að þar verða jafnan tvær áhafnir. Flugtími milli alsírsku borg- anna og Jeddah eru tæpar fimm klukkustundir. Til samanburðar má geta þess, að venjulegur flug- tími milli Islands og New York er fimm og hálf klukkustund. Jóhannes Oskarsson, flug- rekstrarstjóri, stjórnar fluginu, en fulltrúi hans og sá sem sér um daglegan rekstur flugsins á staðn- um er Baldur Maríusson. Yfirflug- stjóri þessa verkefnis verður Guð- laugur Helgason. Fyrri hluti pílagrímaflugsins stendur frá 9. september til 5. október. Síðan verður hlé í 10 daga, en úr því hefst heimflutn- ingur pílagrímanna, sem standa mun í 4 vikur. Nokkrir starfsmenn Flugleiða eru þegar komnir til Alsír, en aðalhópurinn mun fara af landi brott á morgun, þriðju- daginn 8. september. I.jósm. Mbl. Kristján. IMS 1.354 GARÐB/EINGAR rituðu nöfn sín á sunnudag á áskorun- arlista til samgönguráðherra um að hann sjái til þess að Vegagerð rikisins ljúki fyrir- huguðum framkvæmdum við Ilafnarfjarðarveg í samræmi við fyrirliggjandi teikningar og framkvæmdaáætlun sem bæjar- stjórn Garðabæjar hefur sam- þykkt. Fulltrúar meirihluta báejarstjórnar afhentu Stein- grími Hermannssyni sam- gönguráðherra lista þessa i gærmorgun, en undirskrifta- söfnunin mun standa yfir alla þessa viku. Við forsetakosningar í fyrra voru um 2.700 á kjörskrá í Garðabæ. bað er því meira en helmingur þeirra kjósenda. sem ritaði undir þessa áskorun á fyrsta degi söfnunarinnar. Á myndinni hér að ofan afhendir Jón Sveinsson forseti bæjar- stjórnar Garðabæjar sam- gönguráðherra listana í gær- morgun. Með á myndinni eru bajarstjóri Garðabæjar og full- trúar meirihlutans. Ráðherranefnd ályktar um NORDSAT: Ingibjörg Rafnar 1. varaformaður SUS - Erlendur Kristjánsson 2. varaformaður NÝKJÖRIN stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hélt fyrsta fund sinn sl. laugardag og skipti m.a. með sér verkum. Ingibjörg Rafnar var kjörin 1. varaformaður sambandsins, Er- lendur Kristjánsson 2. varafor- maður, Árni Sv. Mathiesen gjald- keri og Ólafur ísleifsson ritari. Gunnar Þorsteinsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri sam- bandsins að undanförnu, var endurráðinn um óákveðinn tíma og Hreinn Loftsson var ráðinn ritstjóri tímaritsins Stefnis. Eindagi ákvarðana þjóðanna um aðild 23. nóvember nk. SAMNORRÆN ráðherranefnd mennta-, iðnaðar- og samgöngu- mála gekk frá ályktun um NORDSAT-málið á fundi sínum í Kaupmannahöfn í gær. Ifjörleif- ur Guttormsson iðnaðarráð- herra, sem sat fundi nefndarinn- ar. sagði í viðtali við Mbl. í gær, að meginniðurstaða nefndarinn- ar væri sú, að Svíar væru enn inni i dæminu um sameiginlegt sjónvarps- og útvarpskerfi Norð- urlandaþjóðanna. Einnig sagði hann. að samþykkt hcfði verið að eindagi ákvarðana þjóðanna um þátttöku hefði verið ákveðinn 23. nóvember nk. Hjörleifur sagði, að Svíar hefðu í ágústmánuði sl. komið fram með hugmyndir um annað kerfi, en rætt hefði verið um í sambandi við NORDSAT fram að því, og hefði þá verið látið að því liggja, að þeir hygðust ekki taka þátt í áfram- haldandi viðræðum milli land- anna. „Þessi fundur í dag dró úr líkum á því, að það þurfi að verða niðurstaðan, því þar var samið yfirlit, sem felur í sér möguleika á Grundvöllur skapast til samninga um eigendaskipti r - segir í fréttatilkynningu SIS um kaup á Fiskiðjunni Freyju, Suðureyri IIÉR FER á eftir orðrétt frétta- tilkynning sú. sem afhent var á hlaðamannafundi. sem sjávaraf- urðadeild SÍS hélt i gær: „Að frumkvæði hluthafa í Fisk- iðjunni Freyju hf. á Suðureyri við Súgandafjörð hafa að undanförnu staðið yfir viðræður milli þeirra og Sjávarafurðadeildar Sam- bandsins um kaup á hlutabréfum í Fiskiðjunni Freyju. Nokkrir af stærstu hluthöfum í Fiskiðjunni Freyju óska að draga sig út úr rekstri fyrirtækisins. Þeir leggja jafnframt á það áherslu að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu fyrirtæk- isins og uppbyggingu byggðarlags- ins. Af hálfu Sjávarafurðadeildar hefur verið lögð áhersla á að heimamenn á Suðureyri teldu al- mennt, að ofangreindum mark- miðum væri betur náð áþann hátt að Sambandið gerðist aðili að rekstrinum. Sjávarafurðadeild leggur einnig áherslu á að heimamenn taki sem stærstan þátt í fyrirtækinu og í því sambandi hefur verið rætt við félagasamtök á Suðureyri um verulega þátttöku þeirra í kaupun- um. Aðilar hafa orðið sammála um að Sjávarafurðadeild hefði forystu um samninga. Meðal núverandi hluthafa í Fiskiðjunni Freyju eru Suðureyr- arhreppur og Súgandafjarðardeild Kaupfélags Isfirðinga. Þessir aðil- ar hyggjast ekki selja sína hluti. Sjávarafurðadeild telur að hagsmunir þeirra sem við hana skipta séu betur tryggðir en áður með því að auka hlutdeild deildar- innar í útflutningi sem nemur framleiðslu Fiskiðjunnar Freyju. Aðilar eru sammála um að ofannefndar viðræður hafi nú leitt til þess að grundvöllur hafi skap- ast til samninga um eigendaskipti á hlutabréfunum i Fiskiðjunni Freyju. Fyrir Fiskiðjuna Freyju hafa aðallega tekið þátt í þessum við- ræðum þeir Óskar Kristjánsson og Páll Friðbertsson, en fyrir Sam- bandið þeir Sigurður Markússon, Árni Benediktsson og Kjartan P. Kjartansson." málamiðlun á milli þessara sjón- armiða. Það verða margir fundir á næstunni og það á að gera dæmið upp 23. nóvember nk. Þá má segja, að eindagi málsins verði til að þetta geti legið skilmerkilega fyrir á næsta fundi Norðurlandaráðs í Helsinki í marzmánuði," sagði hann. Aðspurður sagði Hjörleifur, að ekki hefði endanlega reynt á hver kostnaðarhlið okkar yrði, ef við ákvæðum að gerast aðilar. „Það hefur eingöngu verið óskað eftir því af okkar hálfu að þar gildi sömu tölur og í sambandi við önnur norræn samskipti á sviði menningarmála." Sú tala mun vera um 0,9%. Hjörleifur sagði í lokin, að mál þetta yrði lagt fyrir ríkisstjórn hér heima og yrði á næstunni til umfjöllunar hjá einstökum stjórn- málaflokkum og ríkisstjórn. Pétur Sumarliðason kennari er látinn PÉTUR Sumarliðason. kennari, cr látinn í Reykjavík 65 ára að aldri, en hann var fæddur 24.júlí 1916 i Bolungarvík. Pétur var kennari við Fróðár- skóla á Snæfellsnesi 1940—1941, og kenndi síðan við barnaskólann að Drangsnesi í Strandasýslu 1942— 1943, við Vestur-Eyjafjallaskóla í Rangárvallasýslu 1943—1944. Hann var síðan kennari við Austurbæj- arskóla 1944—1947. Pétur kenndi síðan við Fljótshlíðarskóla 1948— 1950. Pétur lagði kennarastörf á hilluna árin 1950—1955, en varð síðan skólastjóri að Barna- og unglingaskólanum að Búðum 1955—1957. Pétur sneri síðan aftur til kennslu við Austurbæjarskóla 1957. Pétur Sumarliðason skrifaði margar blaðagreinar og flutti fjöl- marga þætti í útvarpi. Umfangsmikið fíkniefnamál: Tveirnt í gæsluvarðhald gæsluvarðhaldsvist, en maðurinn 20 daga. Mál þetta hófst þegar maður nokkur var gripinn á Keflavíkurflugvelli með 200 grömm af kannabisefni og úr- skurðaður í gæsluvarðhald, en síðan var annar maður úrskurðað- ur í síðustu viku. Nú sitja því fjórir aðilar í gæslu vegna þessa máls, sem er orðið nokkuð um- fangsmikið, samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar. TVENNT var á laugardag úr- skurðað í gæsluvarðhald. vcgna gruns um aðild að fíkniefnamáli scm að undanförnu hafur verið i rannsókn, samkvæmt upplýsing- um sem Morgunblaðið fékk hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík. Fólkið sem úrskurðað var, eru stúlka á tvítugsaldri og maður um tvítugt. Stúlkan hlaut 7 daga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.