Morgunblaðið - 08.09.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
3
Slapp betur en á
horfðist eftir
meiðsli i Moskvu
UNGUR handknattleiksmaður úr
Val. Brynjar Harðarson. slasaðist á
aTinKU með féloKum sinum í
Muskvu fyrir viku síðan. en Vals-
menn hafa undanfarið verið á
aTinKa- og keppnisferðalaxi í Rúss-
landi.
Lenti Brynjar í árekstri við einn
félana sinn og skall síðan í gólfið.
Æð sprakk í höfði hans og blæddi
inn á augnbotna og mænu. Brynjar
missti meðvitund við slysið. Læknar
í Moskvu vildu að Brynjar yrði á
sjúkrahúsi þar fram undir mánaða-
mót, en Valsmenn ákváðu hins
vegar, í samráði við sendiráðið, að
flytja Brynjar heim. Kom hann til
landsins á sunnudag og var lagður
inn á Borgarsjúkrahúsið. Nú hefur
komið í ljós, að meiðslin voru ekki
eins alvarleg og óttast var í upphafi
og fær Brynjar að fara heim í dag
eða á morgun. Læknar telja, að hann
muni ná sér að fullu.
Létust í um-
ferðarslysi
MÆÐGININ sem létust í umferð-
arslysi á Grindavíkurvegi á laug-
ardagsmorgun hétu Jóna Auður
Guðmundsdóttir og Viktor Sig-
urðsson.
Jóna Auður var fædd þann 14.
júlí 1962 og var því 19 ára gömul
er hún lést, en sonur hennar,
Viktor, var hálfs annars árs.
Keflavík:
Ekið á barn
á hjóli
ÞAÐ SLYS varð í Keflavík á
sunnudag. að ekið var á 5 ára
gamalt barn á hjóli á gatnamót-
um Sunnubrautar og Faxabraut-
ar.
Slysið varð með þeim hætti að
bifreið var ekið norður Sunnu-
braut og á gatnamótunum lenti
bíllinn á barninu á hjólinu. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
í Keflavík er ekki talið að barnið
sé alvarlega slasað, en þó var það
flutt til skoðunar á Landspítalan-
um í gær, að lokinni skoðun á
sjúkrahúsinu í Keflavík.
Bundið slitlag komið á Þrengslaveg
NÝLEGA var lokið við lagningu
bundins slitlags á Þrengslaveg
frá Suðurlandsvegi. í sumar var.
að sogn Rógnvaldar Jónssonar.
umda‘misverkfraT>ings hjá Vega-
gerð rikisins, lagt slitlag á um 14
kilómetra kafla frá Suðurlands-
vegi og væri nú hundið slitlag
allt austur til Þorlákshafnar.
Starfsmenn Vegagerðarinnar
lagfærðu veginn og lögðu muln-
inginn undir slitlagið, en verk-
takafyrirtækið Hegranes lagði
síðan sjálfa klæðninguna.
Aðspurður um slitþol klæðn-
ingarinnar, sagði Rögnvaldur, að
ekki væri hægt að fullyrða neitt
um það ennþá, þar sem reynslan
væri ekki fengin. Hér á landi var
byrjað að leggja klæðningu á árið
1978.
Þá kom það fram hjá Rögnvaldi,
að lagning klæðningar á vegi væri
til muna ódýrari aðferð en að
leggja olíumöl, eins og gert var
áður fyrr.
Aðspurður um aðrar fram-
kvæmdir, sagði Rögnvaldur Jóns-
son, að í sumar hefðu verið lagðir
10 km af slitlagi við Höfn í
Hornafirði, 2,5 km á Þingvalla-
vegi, 7 km undir Hafnarfjalli og
norðan við Borgarnes, um 16 km á
Vestfjörðum, um 10 km er verið að
klæða í Hrútafirði, auk 4 km til
viðbótar á Hólmavíkurvegi. Um 15
km voru lagðir í Langadal í
Húnavatnssýslu, um 9 km á Reyð-
arfirði og Norðfirði.
Lífshlaupið: fyrst Lífsins ólgu sjór, þá Sveitalíf, svo Borgalíf, loks Atvinnulíf.
I,j<’>sm. Mbl. Olufur K. Muxnusson.
Lífshlaup Kjarvals
Listaverkin á veggjunum í Austurstræti sýnd á K jarvalsstöðum
ÞAÐ var brekka hjá Kjarval í
kreppunni, eins og flcirum.
Hann átti sér vinnustofu í
Austurstræti 12 og þar tciknaði
hann á veggi. þegar enginn var
eyririnn fyrir litum og lérefti.
Arið 1934 efndi hann svo til
sýningar i vinnustofu sinni, og
kallaði Lífshlaupið. Þakti Lífs-
hlaupið þrjá veggi vinnustof-
unnar og skiptist í Lffsins ólgu
sjó. Sveitalíf. Borgalíf og At-
vinnulíf. A fjórða veggnum var
svo Eilífðin. Svo sem Morgun-
blaðið hefur greint frá, keypti
Guðmundur Axelsson í Klaust-
urhólum myndirnar úr vinnu-
stofunni, sendi þa*r til Dan-
merkur í hendur Steen Bjarn-
hofs, sem nú hefur lokið við-
gerðum sínum á Lífshlaupinu,
og það er nú komið til landsins
og er uppistaðan í sýningu á
Kjarvalsstöðum. sem opnar í
dag kl. 14, og Guðmundur
Axelsson stendur fyrir.
Lífshlaupinu hefur verið kom-
ið fyrir í norðurenda Kjarvals-
sals, eins og það var í vinnustof-
unni, með hurð og körmum og
gólflistum og tveimur miðstöðv-
arofnum, þá er þar gamall stóll
úr vinnustofunni, nokkrir munir
og einnig litaspjald málarans, og
skeifan hangir enn yfir dyrun-
um. I suðurhluta Kjarvalssals
eru ýmis verk Kjarvals úr einka-
eign, flest talin máluð í vinnu-
stofunni — og einnig nokkur
verk samtímamálara: Asgríms,
Jóns Stefánssonar og Blöndals.
Halldór Runólfsson, starfs-
maður Klausturhóla, sagði hug-
myndina að gefa almenningi
kost á að sjá þetta umtalaða
listaverk, Lífshlaupið, en alls
væri óráðið hvað svo yrði af því.
Sýning þessi mun standa til 22.
september og verður opin milli
klukkan 14 og 22 daglega, og
opnar semsé í dag, þriðjudag, kl.
14.