Morgunblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
26
Hvernig kemur liðunum til með að ganga í ensku deildinni?
>0 %. Enska >0 %.
vj#' knattspyrnan v
ENSKA knattspyrnan er komin á fulla ferö. Margt bendir
nú til þess að keppnin í deildinní veröi mun jafnari en oft
áöur. Mörg óvænt úrslit hafa þegar orðiö í fyrstu þremur
umferöunum. Hér á eftir skulum við líta á ensku íiðin og
sjá hverjir eru nú framkvæmdarstjórar liðanna, hvaöa
leikmenn hafa verið keyptir og hverjir hafa veriö seldir.
Jafnframt spáum viö um í hvða sætum liðin veröa.
• Liverp<K)I ojí WBA reyna vafalaust að >{era betur í vetur en síðasta
keppnistímabil. WBA hafnaði í þriðja sætinu oií í?at vel við unað, en
Liverpool varð að láta sér lynda 5. sætið. t>að eru Graeme Souness og
John Wile sem bítast um knöttinn.
Arsenal
f'ramkva'mdastjóri: Terry Neil
(júlí 1976).
3. sæti síðasta keppnistímahil.
Keypt: Engan.
Selt: Frank Stapleton til Manch.
Utd. fyrir 1.1 milljún punda.
Ath. Miðvörðurinn Willy Young
er á sölulista, Alan Sunderland
einnig sagður óána-gður. Hins
vegar hefur David O'Leary
endurnýjað samning sinn til
tveggja ára.
Spá Mbl. 3. sæti.
Aston Villa
Framkva'mdastjóri: Ron Saund-
ers (júlí 1971).
I. sa-ti síðasta keppnistímabil.
Keypt: Andy Blair frá Coventry
fyrir 300.000 pund.
Selt: Engan.
Ath. Voru með ísraelsmann
nokkurn. Iladde Moshe Sinai. til
reynslu um tíma. en sáu ekki
ástæðu til að festa kaup á honum.
Spá Mbl. 4. sæti.
Birmingham
Framkvæmdastjóri: Jim Smith
(mars 1977).
13. sæti síðasta keppnistímabil.
Selt: Alan Ainscow til Everton
fyrir 250.000 pund og Keith
Bertchin til Norwich fyrir
200.000 pund. einnig nýlega Joe
Gallacher til Wolverhampton.
Keypt: Ton Van Mierlo og Bud
Brocken frá hollenska liðinu
Willem 2. Kostuðu þeir saman
270.000 pund.
Ath. Litlu munaði að Archie
Gemmell yfirgæfi félagið. en á
síðustu stundu tókst að narra
hann til þess að vera eitt ár enn.
Ætlaði hann að taka að sér 4.
deildarliðið Halifax. Ilefði hann
þar með orðið eftirmaður Gcorge
Kirby.
Spá Mbl. 17. sæti.
Brighton
Framkvæmdastjóri: Mike Bailey
(nýráðinn).
19. sæ-ti síðasta keppnistímabil.
Selt: Mark Lawrenson til Liver-
pool. John Gregory til QPR,
Brian Horton til Luton og Peter
O'Sullivan til Fulham.
Keypt: Jim Case frá Liverp<K>l og
Tony Grealish frá Orient.
Ath. Einhverjar erjur eru sagðar
hafa verið á bak við tjoldin hjá
Brighton og af þeim sökum hætti
síðasti framkvæmdastjóri, Alan
Mullery. Gæti gengið illa ef
ófriður ríkir enn.
Spá Mbl. 13. sæti.
Coventry
Framkva'mdastjóri: Dave Scxton
(nýráðinn).
16. sa'ti síðasta keppnistímahil.
Selt: Mick Ferguson til Everton,
Andy Blair til Aston Villa og
Gerry Bannister til Sheffield
Wednesday.
Keypt: Engan.
Ath. Dave Sexton er að lcita að
nýjum leikmönnum og fyrrum
lærisveinar hans hjá Manchester
Utd.. þeir Kevin Moran, Mike
Duxbury og Jim Nlcholl hafa
allir verið orðaðir við Coventry,
hvað svo sem úr verður.
Spá Mbl. 14. sæti.
Everton
Framkva'mdastjori: Iloward
Kendall (nýráðinn).
15. sæti siðasta keppnistimabil.
Selt: Bob Latchford til Swansea.
John Gidman til Manchester Utd,
Garry Megson til Sheffield Utd.
on Imre Varadi til Newcastlc.
Keypt: Mick Thomas frá Man-
chester Utd. Alan Biley frá Der-
by, Alan Ainscow frá Birming-
ham. Mick Ferguson frá Co-
ventry, Jim Arnold frá Black-
burn og Neville Southamll frá
Bury.
Ath. Aðkeyptu leikmennirnir
utan Mick Thomas kostuðu sam-
tals 1325.000 sterlingspund.
Thomas fékkst hins vegar í skipt-
um fyrir John Gidman. auk þess
sem Everton reiddi fram 50.000
pund á milli. Kendall verður
liðinu því dýr „stjóri“ hvort sem
Everton gengur vel eða illa í
vetur.
Spá Mbl. 9. sæti.
I TOWN • F'C 1
Ipswich
Framkvæmdastjóri: Bobby Rob-
son (janúar 1969).
2. sæti siðasta kcppnistímabil.
Keypt: Engan.
Selt: Engan.
Ath. Annað tveggja 1. deildar
liða sem hvorki hafa keypt eða
selt leikmenn. Astæðan fyrir þvi
að liðið náði ekki sigri i 1. deild á
síðasta keppnistímabili var talin
sú. að leikmannakjarni liðsins
væri og þröngur. þ.e.a.s. ekki
væru til leikmenn til skiptanna
þegar fastamenn féllu úr vegna
meiðsla. Sama vofan ga-ti þvi
grúft sig yfir Ipswich i vetur.
Spá Mbl. 1. sæti.
Leeds
Framkvæmdastjóri: Alan Clarke
(nóvember 1980).
9. sæti siðasta keppnistímahil.
Selt: Engan.
Keypt: Peter Barnes frá WBA og
Frank Grey frá Notthingham
Forest.
Ath. Tony W<K>dcock var um tíma
korninn með annan fótinn frá
Köln til Leeds. en da*mið gekk
ekki upp er á reyndi.
Spá Mbl. 12. sæti.
Liverpool
Framkvæmdastjóri: Bob Paisley
(júli 1974).
5. sa'ti síðasta keppnistímabil.
Selt: Jim Case til Brighton. Ray
Clemence til Tottenham og Colin
Irwin til Swansea.
Keypt: Mark Lawrenson frá
Brighton og Craig Johnstone frá
Middlesbrough.
Ath. Heyrst hefur, að Mark
Lawrenson. sem talinn er mið-
vörður-á heimsmælikvarða, verði
teflt fram í stöðu vinstri bakvarð-
ar ok hetja Liverp<K(I frá úrslita-
leiknum i Evrópukeppni meist-
araliða, Alan Kennedy, fylgist
með leikjum Liverpool frá vara-
mannabekknum. Þessu verður þó
ekki trúað fyrr en tekið verður á.
Spá Mbl. 5. sæti.
Manchester
City
Framkva'mdastjóri: John Bond
(október 1980).
12. sa'ti síðasta keppnistímabil.
Selt: Steve McKenzie til WBA.
Keypt: Martin O'NeiI frá Nor-
wich.
Ath. Bond hefur gengið ömurlcga
á leikmannamarkaðinum i sumar
og haust. gert tilboð í hvern
leikmanninn af iiðrum <>« séð
siðan af þeim til annara félaga.
Síðasta hálmstráið er Bryan
Robson hjá WBA. en Bond getur
þó varla yfirboðið nágrannana
Manch. Utd., sem eru sagðir í
þann mund að bjúða WBA 2,1
milljón punda fyrir Robson.
Spá Mbl. 10. sæti.
Ilinir sterku leikmenn
Ipswich. John
Wark í miðju og Hollendingarnir
Frans Thijssen og Arnold Muhren.