Morgunblaðið - 08.09.1981, Síða 31

Morgunblaðið - 08.09.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981 39 jafn ágætan mann og Inga hlýtur að vera. Guð varðveiti sálu hans. Tengdasynir Fáein kveðjuorð til tengdaföður míns, sem nú hefur loksins fengið hvíid. Dauðinn er það eina sem við vitum að við eigum vísan, hvort sem við erum ung eða gömul. Við hryggjumst þegar ungt fólk fellur frá og það gerum við líka þegar gamalt fólk deyr, en á annan hátt. Tengdafaðir minn hafði lokið sínu dagsverki og vel það, útslitinn og farinn að kröftum hefur hann nú losnað úr veikindum sínum þar sem hann tók mikið út. Ailt var gert sem hægt var til að létta honum síðustu mánuðina. Hans góða eiginkona Elísabet Ólafs- dóttir annaðist um hann heima eins lengi og hægt var, síðan kom tveggja mánaða erfið sjúkrahús- dvöl. Það voru vinnulúnar og knýttar hendur sem hvíldu að- gerðarlausar í kjöltu hans eftir að hann þurfti að hætta vinnu. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi kveður svo í ljóði sínu: Einn kemur, þá annar fer, „en svo fer þó að lokum,/að árin bakið beygja/og bægja þeim frá störfum,/einn góðan veðurdag." Við unga fólkið getum ekki gert okkur í hugarlund hve það er erfitt að setjast í helgan stein fyrir mann sem var búinn að vinna svona mikið til að sjá sér og sínum stóra barnahóp farborða. „Og fæsta þeirra grun- ar,/sem fellur þyngst að hverfa,/ hve fáir leggja á minnið,/að þeir hafi verið til./Þeir gleyma hverjir sáðu,/sem uppskeruna erfa,/og æskan hirðir lítið um gömul reikningsskil." Elísabet og Ingimundur eignuð- ust 7 börn, Olaf, kvæntan Hrefnu Carlsson, Ólöfu, gifta Steingrími Kára Pálssyni, Guðmund, kvænt- an Betty Snæfeld, Svölu, gifta Gesti Sigurgeirssyni, Þuríði, gifta Gretti Gunnlaugssyni, Gylfa, kvæntan undirritaðri og yngstur er Ómar ókvæntur og bjó hann með foreldrum sínum og reyndist þeim stoð og stytta. Hann var óþreytandi að fara með pabba sinn niður á höfn þar sem þeir störfuðu báðir hjá sama fyrirtæk- inu, Eimskip. Barnabörnin eru 21 og 1 barna- barnabarn. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég tengdaföður minn með þakklæti fyrir allt. Hvili hann í friði. Þorgerður Tryggvadóttir. Kirkiuhátíð á Staðarfelli Sunnudaginn 23. ágúst sl. var þess minnst við hátiðarguðs- þjónustu i Staðarfellskirkju á Feilsströnd. að 90 ár eru á þessu ári liðin síðan kirkjan var vígð, en vígslan fór fram 11. októbcr árið 1891. Biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson, prédikaði og þjónaði fyrir altari ásamt sóknarprestin- um, sr. Ingiberg J. Hannessyni, prófasti á Hvoli. Tíu prestar af Vesturlandi voru viðstaddir at- höfnina auk biskups. Kirkjan var þétt skipuð og athöfnin í heild hin hátíðlegasta. Kirkjukór safn- aðarins söng undir stjórn organ- istans, Halldórs Þórðarsonar, Breiðabólsstað og Sigrún Hall- dórsdóttir lék á klarinett. Hauk- ur Guðlaugsson, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, hafði og hönd í bagga með undirbúning og fram- kvæmd söngsins. A eftir messu var komið saman í félagsheimilinu á Staðarfelli, þar sem kirkjugestir þágu veit- ingar í boði sóknarnefndar, en prófastur stjórnaði hófinu. Þar flutti Einar G. Pétursson, cand. mag. frá Stóru-Tungu, ítarlegt og fróðlegt erindi um sögu staðar og kirkju á Staðarfelli. Margir góðir gestir voru við- staddir kirkjuhátíðina, m.a. Frið- jón Þórðarson, kirkjumálaráð- herra, og frú, auk ýmissa brott- fluttra Fellsstrendinga og ann- arra velunnara kirkjunnar, og bárust kirkjunni ágætar gjafir í tilefni afmælisins, m.a. kom bisk- up færandi hendi með eintak af hinni nýju útgáfu Biblíunnar, systkinin frá Skógum á Fells- strönd stofnuðu sjóð með tuttugu þúsund króna framlagi til stuðn- ings og umhirðu kirkjugarðanna á staðnum og Hallgrímsdeild Prestafélags Islands færði kirkj- unni rykkilín að gjöf. Þótti kirkjuhátíðin í heild tak- ast með ágætum og vera hin ánægjulegasta, veðrið hefði að vísu mátt vera betra og bjartara, en sólardagarnir hér í Dölum á þessu sumri eru ekki ýkja margir, og er vonandi, að úr því rætist senn. Að undanförnu hafa farið fram allmiklar endurbætur á kirkjunni og umhverfi hennar, og hefur sóknarnefndin fullan vilja á að unnið verði áfram á sömu braut. I sóknarnefnd Staðarfellssóknar eru Þorsteinn Pétursson, Ytra- Felli, formaður, Ólafía Ólafsdótt- ir, Breiðabólsstað, og Jóhann Pétursson, Stóru-Tungu. I tilefni afmælisins var gefinn út veggskjöldur með mynd af kirkjunni í 400 tölusettum eintök- um, og geta þeir, sem óska eftir að eignast hann, snúið sér til sóknarprests eða sóknarnefnd- armanna. í tengslum við kirkjuhátíðina á Staðarfelli hófst aðalfundur í Hallgrímsdeild Prestafélags ís- lands, og var fundurinn haldinn að Laugum í Sælingsdal, en þar hefur í sumar verið rekið sumar- hótel í húsakynnum Laugaskóla. Þar hafði kirkjumálaráðherra, Friðjón Þórðarson, framsögu um aðalmál fundarins, sem var „Samskipti ríkis og kirkju", og urðu um þetta mál fjörugar og gagnlegar umræður. Fréttaritari Minning: Filippus Guðmunds- son múrarameistari Kveðja frá knattspyrnufé- latíinu Val. Látinn er í Reykjavík, Filippus Guðmundsson, múrarameistari, 87 ára gamall. Það var fyrir röskum 70 árum að nokkrir drengir í unglingadeild KFUM í Reykjavík léku sér að því að sparka bolta í portinu bak við hús KFUM við Amtmannsstíg. Hinn 11. maí 1911 komu sex þessara drengja saman til fundar, til að stofna með sér félag um boltann. Einn þessara drengja var Filippus Guðmundsson. Við frá- fa.ll hans nú er aðeins einn eftirlif- andi af þessum drengjum, Guð- björn Guðmundsson, prentari. Guðbjörn hefur sagt frá því, hvernig nafn þessa félags þeirra varð til: „Það er skerr.mtileg saga frá því að segja. Einhverju sinni vorum við á æfingu eða vorum að ryðja völlinn, ... að fálki og svífandi og sveimaði nokkra hringi yfir höfðum okkar. Einn félagi okkar, Filippus Guðmunds- son, múrarameistari, segir þá: Hví ekki að nefna félagið Val? Það féll þegar í góðan jarðveg. Félagið var nefnt VALUR og hlaut hið nýja nafn með fullu samþykki séra Friðriks Friðrikssonar." Við Valsmenn höfum ætíð hugsað með hlýjum hug til þessara upphafs- manna félagsins, sem varla hefur órað fyrir því að á þeim tíma, að þeir væru að leggja grunninn að einu öflugasta íþróttafélagi lands- ins í dag. Filippus Guðmundsson er nú horfinn úr hinum stóra hópi okkar Valsmanna og genginn á vit leið- togans mikla, séra Friðriks og annarra fallinna brautryðjenda úr okkar röðum. Á þessari stundu færa Vals- menn Filippusi Guðmundssyni hugheilar þakkir fyrir hans mikla framlag til félagsins. Fjölskyldu hans færum við okkar samúðar- kveðjur. Ól. Gústafsson, varaform. Dánarfregn I marsmánuði síðastl. lést í borginni Portland í Oregon-fylki í Bandaríkjunum, Sigríður Lára Arnason, en hún var fædd í Akra í N-Dakóta 2. desember árið 1883. Foreldrar hennar voru Jón Frí- manns Jónssonar og kona hans Helga Jakobína Ólafsdóttir. For- eldrar Jakobínu voru Ólafur Jó- hannes Einarsson og Ragnheiður Ólafsdóttir, en þau fluttu vestur um haf frá Hofsstöðum í Staf- holtstungum árið 1882. Foreldrar Jóns Frímanns voru þau Jón Jónsson, Köldukinn í Haukadal og kona hans, Sigríður Eyvindsdótt- ir. Sigríður Lára giftist Sigurði Guðna Arnasyni, en foreldrar hans voru Arni Jónsson og Sigríð- ur Sigurðardóttir. Þeim varð 10 barna auðið og eru nú fimm þeirra á lífi og eru þau þessi: Rinka Havig, búsett í Seattle í Wash- ington, Kristen Arnason í Port- land Oregon, Fjola Thorfinnsson, Richmond B.C. Kanada, Lilja Mccaffrey Portland í Oregon og Unnur Palanuk í Springfield Oregon. Sigríður Lára og Sigurður Guð- ni bjuggu í bænum Upham í N-Dakota, en árið 1924 fluttust þau til Wynyard í Saskatchewan- fylki, einnig í Kanada, en fyrir 40 árum flutti hún til Oregon-fylkis ásamt börnum sínum og átti þar heima upp frá því. Grunnskólastig: Skólastjórar og yfirkennarar þinga 1»ING Félags skólastjóra og yfir- kennara á grunnskólastigi verft- ur haldið að Ilótel Sögu í Iteykja- vík helgina 12. —13. september. Þingið verður sett laugardaginn 12. september kl. 10 og mun menntamálaráðherra ávarpa þinggesti. Tvö aðalmál verða tekin til meðferðar. Notkun myndsegulbanda í kennslu, en erindi um það efni flytur Karl J. Jeppesen, deildar- stjóri í kennslumiðstöð Náms- gagnastofnunar. Þá verður fjallað um niðurstöð- ur könnunar á búnaði og aðstöðu í grunnskólum landsins sem gerð var á sl. vetri. í úrvinnslu er gerður samanburður á búnaði og aðstöðu skóla í fræðsluumdæmum og einnig í mismunandi skólagerð- um. \ Könnunin sýnir m.a. að skólar landsins hafa mismunandi búnað og aðstæður allar eru mjög breyti- legar. Kemur þar vel fram að aðstöðumunur nemenda og kenn- ara til starfa er mikill milli skóla og landshluta. Fundarmenn munu fjalla um skýrsluna og tekin verður ákvörð- un um hvernig hún verður notuð. Sunnudaginn 13. september verð- ur síðan haldinn aðalfundur fé- lagsins. Þinginu lýkur síðdegis á sunnu- dag. + Eiginmaður minn og faöir okkar, ÞÓRÐUR ÓLAFSSON, Brekku, Norðurárdal, sem lést 5. september, veröur jarösunginn frá Hvammskirkju, föstudaginn 11. september, kl. 2. Þórhildur Þorsteinsdóttir, Erna Þóröardóttir, Olafur Þóröarson, Þorsteinn Þóröarson, Guörún Þórðardóttir. Útför föður okkar, FILIPPUSAR GUDMUNDSSONAR, múrarameistar a Selási 3, fer fram frá Dómkirkjunni miövikudaginn 9. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Árbæjarkirkju. Helgi Filippusson, Sigríður Einarsdóttir, Hulda Filippusdóttir, Árni Kjartansson, Pétur Filippusson, Þórhallur Filippusson, Guöjóna Guðjónsdóttir, Þóra Filippusdóttir, Þórmundur Sigurbjarnason, Þórey Sigurbjörnsdóttir, og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför móður okkar og tengdamóöur, KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR, Elliheimlilnu Grund. Siguröur Jónsson, Hólmfríöur Jónsdóttir, Erna Jónsdóttir, Dagbjartur Grímsson, Birna Jónsdóttir, Haraldur Ólafsson, barnaborn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö' andlát og útför sonar okkar og barnabarns, MARGEIRS EINARSSONAR, Hólabraut 11, Keflavík. Ragnhildur Margeirsdóttir, Einar Sigurðsson, Ásthildur Arnadóttir, Margeir Ásgeirsson, María Pálmadóttir. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.