Morgunblaðið - 08.09.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981
45
VELVAKANDI
ÍTs SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
tvisvar og allt sett í vothey —
jafnt þótt þurrkatíð væri. Og
geymslukostnaður er enginn, því
heyið er allt sett í stóra hauga,
dráttarvélin látin pressa þá niður
og plast breytt yfir, „punktur og
basta".
Maður sem ég þekki að stálheið-
arleika, sagði mér að bóndi sem
hann dvaldi hjá á Jótlandi hefði
sagt sér að danskir bændur rækju
upp skellihlátur þegar þeim væri
sagt af hinum geysidýru votheys-
geymslum sem byggðar væru á
Islandi. Þessi danski bóndi notaði
sömu aðferð við heyverkunina og
hinn fyrrnefndi þýzki starfsbróðir
hans.
Að lokum smáskrítla um sam-
anburð íslenzkra og danskra
bænda: „Danskir bændur kunna
ekkert nema að búa, en íslenzkir
bændur kunna ailt nema að búa.“
Ég er ekki frá því að einhver
sannleikur felist í þessu, um
nokkurn hluta íslenzkrar bænda-
stéttar, því miður.
Ingjaldur Tómasson
Pétur frábær í
morgunútvarpi
„Ein 67 ára á Selfossi“
hringdi og bað Velvakanda að
birta þennan pistil.
„Ég vil senda Pétri Péturs-
syni þul innilegt þakklæti mitt
fyrir allar góðu morgunstund-
irnar sem hann hefur í útvarp-
inu,“ sagði hún. „Ég er sextíu
og sjö ára en þegar Pétur er að
spila lögin á morgnana verð ég
tvítug í anda. Hann er frábær."
Þessir hringdu . . .
Plötusnúður?
— hið afmánar-
legasta orðskrípi
Öldungur hringdi og gerði ný-
yrðið plötusnúður að umtalsefni.
„Mér finnst þetta orð „plötusnúð-
ur“, • hið afmánarlegasta orð-
skrípi," sagði hann. „Og aldrei veit
ég hvað aumingja fólkið gerir sem
kallar sig þetta. í mínu ungdæmi
var oft sagt um einhvern í gamni
að hann spilaði ágætlega á gramó-
fón — það var ekki talað að það
þyrfti neina tónlistarhæfileika til
þess. En nú er verið að tala um að
hinn og þessi sé góður plötusnúð-
ur, rétt eins og það sé ekki alveg
sama hvernig platan er sett á
giymskrattann, kunni menn það á
annað borð. Ég skil þetta ekki,
enda er ég víst orðinn gamall."
Orlög
þjóða
Gráta þjóðir fallna syni sína,
svikin lifa hátt þar
austantjaldsmegin.
Geðveikrahælin geyma þá og pína,
sem ganga ekki með þeim
friðsama veginn.
Sá friðarvegur er að ráða ríkjum,
ræna frjálsum andans
velgjörðarmönnum.
Við bandamenn alla samningana svíkj-
um,
segir hróðugur Brezhnev
mitt í þeim önnum.
Reistu múr á milli fals og friðar,
fela skyldi þjóð og
brjóta smátt niður.
Því Rússaforkólfur allan mátt sinn
miðar
við morðtólin sín og
öskrar: Hér er það friður.
Pólland — Afganistan — Ungverjaland,
örlög þeirra móta
blóðugar hendur.
Ekki sigla þeir kommakarlar í strand,
sem klækina læra og
gista rússneskar lendur.
Og hér á landi kommakarlarnir væla:
kaupið er nógu hátt,
svo réttlátt er stjórnað.
Við viljum að blómgist hérna sovésk
sæla
þótt sjálfstæði landsins
verði til Rússíá fórnað.
Kristinn Magnússon
Kristinn Magnússon
SIEMENS
SIWAMAT
þvottavélin
frá Siemens
• Vönduð.
• Sparneytin.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
BLIKKSMIDJANHF.
auglýsir:
Erum fluttir af Kársnesbraut 124 á Smiöshöföa 9,
Reykjavík. Nýtt símanúmer: 85699.
Óskum aö ráöa eftirtalda starfsmenn:
Blikksmiöi, nema í blikksmíði, járnsmiö eöa vélvirkja.
Menn vana járniönaöi.
Smiðshöfða 9.
Sími 85699.
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁER ÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU