Morgunblaðið - 03.10.1981, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
Á kristnihoðsári
SPURT ER:
Hvernig
gerist hjónavígsla?
AuAvitaA færi ég aldrci að
lofa því að vera honum undir-
gefin, sagði stúlkan.
Þess vegna viitu ekki giftast
honum, heldur vera i sambúð?
spurði ég.
Auðvitað, krefst ekki kirkjan
þess að maður lofi þessu við
hrúðkaupið? — Og hún bætti
við dáiítið háðsiega. Að hugsa
sér að kirkjan skuli ekki fylgj-
ast betur með timanum en
þetta.
Ilvernig veistu þetta? spurði
ég. — Ilefurðu verið við brúð-
kaup eða séð giftingarformið á
prenti?
Nci, var svarið, enda er það
ekki í hvers manns höndum sem
gerist í kirkjunni.
Af hverju er ekki giftingar-
seremonían birt í blöðum svo
maður geti kynnt sér það sjálf-
ur? bætti stúlkan við.
Já, hvers vegna ekki?
Það hafa sjálfsagt fleiri en
þessi unga stúlka ranghugmynd-
ir um orðalag og framgang
hinna ýmsu athafna kirkjunnar.
Kirkjan gaf út nýja handbók
fyrr á þessu ári. Hér birtist
endurprentun á giftingarathöfn-
inni eins og hún er nú viðhöfð í
kirkjunni.
Þeir sem eru í giftingarþönk-
um ættu að fara að ráðum stúlk-
unnar og líta yfir síðuna.
Þeir sem þegar eru gengnir í
hjónaband hafa kannske ekki
síður gott af að lesa hana og
minnast þess hver var vilji og
afstaða þeirra þá er þeir stóðu í
hinum þýðingarmiklu sporum
fyrir framan altarið.
Þeir sem vilja kynna sér aðrar
athafnir kirkjunnar geta fengið
handbókina keypta á Biskups-
stofu.
HJÓNAVÍGSLA
Við hjónavígslu er prestur
skrýddur rykkilíni og stólu. í
messu fer hjónavígsla fram milli
pistils og guðspjalls eða í upp-
hafi messu. Prestur skal gæta
þess að tveir vottar hið minnsta
séu viðstaddir athöfnina. Fyrir
altari standi brúður við vinstri
hlið brúðguma.
1. Sálmur
Að sálminum loknum ganga
brúÖhjónin að gráðunum.
2. Avarp eða ræða
Presturinn snýr sér frá altari
og mælir:
í nafní Guðs + föður og sonar
og heilags anda. Náð sé með
yður og friður frá Guði föður
vorum og Drottni Jesú Kristi.
Þá flytur presturinn ávarp
eða ræðu frá eigin brjósti.
3. Ritningarorð — hjónavigsla
Presturinn:
Heyrum nú, hvað frelsari vor
og Drottinn Jesús Kristur
segir um hjónabandið og
samfélag lærisveina sinna.
„Hafið þér eigi lesið, að skap-
arinn gjörði þau frá upphafi
karl og konu og sagði: Fyrir
því skal maður yfirgefa föður
og móður og bindast konu
sinni, og þau tvö skulu verða
einn maður. Þannig eru þau
ekki framar tvö, heldur einn
maður. Það sem Guð hefur
tengt saman, má maður eigi
sundur skilja." (Matt. 19.
4-6.)
„Nýtt boðorð gef ég yður, að
þér elskið hver annan. Eins
og ég hef elskað yður, skuluð
þér einnig elska hver annan.
A því munu allir þekkja, að
þér eruð mínir lærisveinar, ef
þér berið elsku hver til ann-
ars.“ (Jóh. 13. 34-35.)
Heyrum ennfremur orð Páls
postula:
„Berið hver annars byrðar og
uppfyllið þannig lögmál
Krists." (Gal. 6. 2.)
„íklæðist því eins og Guðs út-
valdir, heilagir og elskaðir,
hjartans meðaumkun, góð-
vild, auðmýkt, hógværð og
langlyndi. Umberið hver
annan og fyrirgefið hver öðr-
um, ef einhver hefur sök á
hendur öðrum. Eins og Drott-
inn hefur fyrirgefið yður, svo
skuluð þér og gjöra. En íklæð-
ist yfir allt þetta elskunni,
sem er band algjörleikans.
Látið frið Krists ríkja í hjört-
um yðar, því að til friðar vor-
uð þér kallaðir sem limir í
einum líkama. Verið þakklát-
ir. (Kól. 3. 12-15.)
„Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður. Kærleik-
urinn öfundar ekki. Kærleik-
urinn er ekki raupsamur,
hreykir sér ekki upp. Hann
hegðar sér ekki ósæmilega,
leitar ekki síns eigin, hann
reiðist ekki, er ekki langræk-
inn. Hann gleðst ekki yfir
óréttvísinni, en samgleðst
sannieikanum. Hann breiðir
yfir allt, trúir öllu, vonar allt,
umber allt. Kærleikurinn fell-
Sömuleiðis spyr ég þig, brúð-
ur NN: Er það einlægur
ásetningur þinn að ganga að
eiga NN, sem hjá þér stend-
ur?
Brúðurin svarar:
Já.
Presturinn:
Vilt þú með Guðs hjálp reyn-
ast honum trú, elska hann og
virða í hverjum þeim kjörum
sem Guð lætur ykkur að
höndum bera?
Brúðurin svarar:
... lýsi ég því yfir, að þið eruð hjón, bæði fyrir Guði og
mönnum...
ur aldrei úr gildi. (I. Kor. 13.
4-8.)
Síðan ávarpar presturinn
hvort brúðhjóna fyrir sig,
fyrst brúðgumann:
Nú spyr ég þig, brúðgumi NN:
Er það einlægur ásetningur
þinn að ganga að eiga NN,
sem hjá þér stendur?
Brúðgumi svarar:
Já.
Presturinn:
Vilt þú með Guðs hjálp reyn-
ast henni trúr, elska hana og
virða í hverjum þeim kjörum
sem Guð lætur ykkur að
höndum bera?
Brúðgumi svarar:
Já.
Þá ávarpar presturinn brúð-
ina:
Já.
Sé skipst á hringum við at-
höfnina, má presturinn rétta
hjónunum hringina með þess-
um orðum:
Dragið hring á hönd hvort
öðru til vitnisburðar um band
ástar og trúfesti.
Því næst mælir presturinn:
Gefið þá hvort öðru hönd
ykkar þessum hjúskapar-
sáttmála til staðfestu.
Brúðhjónin rétta hvort öðru
hægri hönd.
Presturinn leggur hönd sína
yfir samanteknar hendur
þeirra og segir:
Með því að þið hafið heitið
hvort öðru því að lifa saman í
heilögu hjónabandi og játað
þetta opinberlega í áheyrn
þessara votta (þessa safnað-
ar) og gefið hvort öðru hönd
ykkar því til staðfestu, lýsi ég
yfir því að þið eruð (rétt) hjón
bæði fyrir Guði og mönnum, í
nafni Guðs + föður og sonar
og heilags anda. Amen.
Þá krjúpa brúðhjónin á gráð-
urnar, en presturinn snýr sér
að altarinu og biður eftirfar-
andi bænar:
Látum oss biðja.
Drottinn Guð, himneski faðir,
þú sem hefur skapað karl og
konu og ákvarðað þau til
hjúskapar og hefur viðhaldið
þessari skipan þinni og bless-
un allt til þess, að vér biðjum
þig að varðveita og blessa
þessi brúðhjón, svo að allt,
sem þú lætur þeim að hönd-
um bera, verði þeim til góðs
og þínu heilaga nafni til lofs
og dýrðar. Fyrir son þinn
Jesú Krist, Drottin vorn, sem
með þér lifir og ríkir í einingu
heilags anda, einn sannur guð
um aldir alda.
Svar:
Amen.
/ sfað þessarar bænar má
presturinn biðja bænar fyrir
brúðhjónum frá eigin brjósti.
Þá snýr presturinn sér frá
altarinu og segir:
Biðjum öll saman bænina,
sem Drottinn hefur kennt oss.
Presturinn leggur hendur yfir
höfuð brúðhjónunum og allir
biðja saman:
Faðir vor, Þú sem ert á himn-
um. Helgist þitt nafn, til
komi þitt ríki, verði þinn vilji
svo á jörðu sem á himni. Gef
oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum. Eigi
leið þú oss í freistni, heldur
frelsa oss frá illu. Því að þitt
er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Presturinn:
Drottinn blessi þig og varð-
veiti þig. Drottinn láti sína
ásjónu lýsa yfir þig og sé þér
náðugur. Drottinn upplyfti
sínu augliti yfir þig og gefi
þér frið.
Svar:
Amen.
Þegar gift er við messu og
eins ef altarisganga fer fram
eftir hjónavígslu, skal nota
þessi blessunarorð:
Blessun Guðs + föður og sonar
og heilags anda sé með ykkur
að eilífu.
Svar:
Amen.
4. Sálmur
Brúðhjónin ganga til sæta
sinna. Altarisganga getur
farið fram eftir hjónavígsl-
una.
Blessun húsnæðis
Oftiega er opinbert húsnæði tekið i
notkun með bænastund sem sóknar-
presturinn annast gjarnan.
Ýmsir einstakiingar hafa látið i Ijósi
óskir um að helga húsnæði sitt með ein-
hverjum hætti, en telja sig ekki þekkja
heppilegt form til þess.
I hinni nýju handbók kirkjunnar er að
finna form til slíkra nota, t.d. þegar
menn flytja í nýja íbúð eða taka atvinnu-
húsnæði í notkun.
Fer það hér á eftir.
Viðstaddir safnast saman á áður
ákveðnum stað í húsinu, svo sem and-
dyri, skála eða stofu. Hefja má athöfnina
á því að syngja sálm nr. 113 eða 114. í
stað þess má lesa sálminn.
Þá er lesið í víxllestri:
L í nafni Guðs + föður og sonar og
heilags anda.
S Ameri.
L Hjálp vor er í nafni Drottins,
S skapara himins og jarðar.
L Ef Drottinn byggir ekki húsið,
S erfiða smiðirnir til ónýtis.
L Ef Drottinn verndar ekki borgina,
S vakir vörðurinn til ónýtis.
L Engill Drottins setur vörð
S kringum þá er óttast hann, og
frelsar þá.
L Finnið og sjáið, að Drottinn er
góður,
S sæll er sá maður er leitar hælis
hjá honum.
L Náðugur og miskunnsamur er
Drottinn,
S þolinmóður og mjög gæskuríkur.
L Drottinn er öllum góður
S og miskunn hans er yfir öllu, sem
hann skapar.
L Dýrð sé Guði, föður og syni og
heilögum anda.
S Svo sem var í upphafi, er og verð-
ur um aldir alda. Amen.
Þá er lesinn einn eða fleiri eftirfarandi
lestra:
V.Mós. 6. 3-9
V.Mós. 10. 11-18
Matt. 7 24 -29
Lúk. 10. 38-42
Lúk. 19. 1—10
Skipta má lestrinum milli lesara.
Þá er beðið eftirfarandi bæna eða
bænar frá eigin brjósti:
L Biðjum: Vitja þú, Drottinn, þessa
heimilis og bæg héðan öllu, sem
skaða kann og tjóni valda. Lát
helga engla þína búa hér og oss
njóta verndar þinnar, friðar og
blessunar til æviloka. Fyrir Jesú
Krist, Drottin vorn. Amen.
Ráð þú, Drottinn, í öllu, sem vér
áformum, óskum og gjörum, svo
að allt verði það i þér hafið, fram-
ið og fullnað og vér sakir mis-
kunnar þinnar iifum þér til dýrðar
og öðlumst af náð þinni eilíft líf.
Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.
Amen.
Biðjum öll saman: Faðir vor ...
L Friður sé með húsi þessu og öllum
þeim sem hér búa. I nafni Guðs +
föður og sonar og heilags anda.
S Amen.
Að síðustu má syngja (lesa) versið nr.
246 eða 56.