Morgunblaðið - 03.10.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
19
Heiðdís Norðfjörð:
Opið bréf til
Akureyringa
Góðir Akureyringar!
Undanfarna mánuði hefur hóp-
ur áhugamanna um öldrunarmál
leitað til fyrirtækja hér í bænum,
svo og til nálægra sveitarfélaga
um fjárframlög til svokallaðrar
Systrasels-söfnunar. Langflestir
hafa brugðist fljótt við og tekið
málefni þessu vel, en betur má ef
duga skal.
Fyrir þá, er ekki vita enn til
hvers söfnun þessi er, skal hér
upplýst, að tilgangurínn er sá, að
reisa hjúkrunardeild fyrir aldraða
langlegusjúklinga við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Heppilegast og fljótlegast virtist
mönnum vera, að breyta lítið not-
uðum hjúkrunarkvennabústað,
sem stendur á lóð sjúkrahússins,
þar sem hjúkrunardeild þessi yrði
rekin í tengslum við það. Munu
þar verða 18—20 sjúklingar.
Öll höfum við heyrt um neyðar-
ástand það, er nú ríkir um land
allt í þessum málum og óhætt er
að fullyrða að það á ekki síður við
um Akureyri. Mjög tilfinnanlegur
skortur á sjúkrahúsrými fyrir
aldraða langlegusjúklinga hefur
ríkt á Akureyri undanfarin ár.
Á Fjórðungssjúkrahúsi Akur-
eyrar eru aðeins 17 rúm fyrir slíka
og á Kristneshæli eru nú liðlega 30
langlegusjúklingar sem þurfa á
mikilli hjúkrun að halda.
Á dvalarheimilum bæjarins,
Hlíð og Skjaldarvík, eru margir
svo ellihrumir og sjúkir, að óger-
legt er að veita þeim þá hjúkrun
sem nauðsyn ber til, því að heimili
þessi eru gerð með tilliti til heil-
brigðs, aldraðs fólks en ekki sem
hjúkrunarheimili. Auk þess eru
margir mjög illa farnir sjúklingar
í heimahúsum, sem þarfnast stöð-
ugrar hjúkrunar og umönnunar,
svo auðséð er, að það er mikið álag
bæði á sjúklingana og ekki síður á
aðstandendur, sem finna sárt van-
mátt sinn í þessari erfiðu aðstöðu.
Vitanlega má segja, að eðlilegra
hefði verið að leita til hins opin-
bera um aðstoð til að hrinda máli
þessu í framkvæmd. En það hefði
verið alltof seinlegt, þar sem þetta
þolir alls enga bið. Þessvegna hef-
ur verið ákveðið, að leita til ykkar,
hins almenna borgara þessa bæj-
ar, eftir aðstoð í þeirri von, að þið
sýnið máli þessu skilning og ör-
læti.
Eins og málin standa í dag,
vantar eina til eina og hálfa millj-
ón nýkróna til að framkvæma
þetta verk. Og við setjum markið
hátt, vonumst eftir að geta opnað
Systrasel á komandi vori.
Um þessa helgi munu konur úr
kvenfélögum bæjarins ganga í hús
og leita eftir fjárframlögum frá
ykkur.
Og nú, kæru bæjarbúar, veltur
það á ykkur hvort framkvæmd
þessi nær fram að ganga.
Hún veltur á mér og þér, því
margar hendur vinna létt verk.
Sýnið nú samstöðu og réttið sjúk-
um og öldruðum hjálparhönd, er
konurnar kveðja dyra hjá ykkur
um næstu helgi.
Með kærri kveðju,
Heiðdís Norðfjörð,
Sjómannasambandið vill
niðurfellingu olíugjalds
ÁLYKTUN kjaramálaráðstefnu
Sjómannasambands íslands hald-
in 26. september 1981.
Kjaramálaráðstefna Sjómanna-
sambands íslands, haldin í
Reykjavík 26. september 1981, lýs-
ir yfir fullum stuðningi við kröfu
fulltrúa sjómanna í verðlagsráði
sjávarútvegsins um að hækkun
fiskverðs frá 1. október næstkom-
andi verði ekki minni en sem nem-
ur hækkun verðbóta til launþega í
landi, frá 1. september sl.
Þá beinir ráðstefnan þeirri
sanngirniskröfu til stjórnvalda að
þau leggi nú þegar fram bráða-
birgðalög um niðurfellingu á olíu-
gjaldi til fiskiskipa.
Ennfremur krefst ráðstefnan
þess, að ákvörðun fiskverðs verði
hverju sinni á sama tíma og vísi-
tölubætur eru greiddar á laun, og
jafnframt að sú neikvæða þróun
sem orðið hefur á fiskverði til sjó-
manna síðan 1974 verði leiðrétt.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Av okkur um set
^ i Kópavogi.
Nýtt og fallegra útlit!
Enn lækkar verðið!
Ný og endurbætt framleiðsla og betri þjónusta í
nýju stóru verksmiðjuhúsi í Smárahvammi í
Kópavogi, sunnan Fífuhvammsvegar.
Þar höfum við sett upp fullkomna vélasam-
stæöu til að framleiða panelofna, sem uppfylla
ýtrustu gæðakröfur.
iTTA' i 7ITT7IT7ITT1 úí
Stórsolo ó stökum ofnum!
Þaö er auðvelt að rata í
Smárahvamminn, lítið á kortið
og fylgið skiltum á Fífu-
hvammsvegi.
Vegna fluttnings og uppsetn-
ingar á stórri vélasamstæðu
bjóðum við mikið magn af
stökum ofnum.
Nú er tækifærið til að fá sér
ofninn, sem alltaf varð út-
undan: í bilskúrinn - föndur-
herbergið - gróðurhúsið - risið -
kjallarann.
Taktu mál, hæð og lengd og
við finnum ábyggilega ofninn
fyrir þig.
15% staðgreiðslu afsláttur,
eða greiðslukjör við allra
hæfi.
SMARAHVAMMUR
Panelofnar hf
//
□
□
yTTTTr
Hi.
OFNASMIÐJA
SMÁRAHVAMMI
KÓPAVOGI
SÍMAR 44210 OG 40922
Stórsalan stendur aðeins f ram á laugardag.
Sáuð þið boðslistann frá
MOGGANUM