Morgunblaðið - 03.10.1981, Page 20

Morgunblaðið - 03.10.1981, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER1981 __ vandi Jökuls Þarna bíður skreiðin náðar veðurguðanna, fyrr verður hún ekki pökkunarhæf. Frystihús Jökuls var byggt rétt fyrir 1950, síðan endurbyggt eftir bruna 1968, þegar fyrirtækið var stofnað. Það var siðan lítilsháttar lagfært 1973, en siðan hefur ekkert verið gert vegna fiárskorts. Raufarhöfn, Eins ok fram hefur kom- ið í íréttum heíur Jökull hf. á Raufarhöfn átt við verulega rekstrarörðuK- ieika að stríða undanfar- ið og hefur því fyrirtækinu verið lokað að mestu og tog- ari þess bundinn við bryKKju síðan 20. ágúst. Starfsfólk á inni allt upp í 4 mánaða laun og launa- skuldir fyrirtækisins nema um 1,4 milljónum króna. Þá skuldar fyrir- tækið sveitarfélaginu um 1.2 milljónir króna auk ýmissa annarra skulda, meðal annars hefur verið lokað fyrir rafmagn á skrif- stofum og verbúð félags- ins. Þrátt fyrir þessa slæmu rekstrarfjárstöðu Jökuls á fyrirtækið eignir lanjít umfram skuldir og hefur því óskað þess að fá 4 milljóna króna lán gegn veði í þessum eignum til að koma rekstrinum aftur á stað til frambúðar. Við þessu hafa stjórnvöld ekki orðið. heldur ákveðið að lána rúmar 2 milljónir. Vegna þessa fór blaða- maður Mor^unhlaðsins til Raufarhafnar til viðræðna við forráðamenn fyrirtæk- isins, bæjarfélajísins, verkalýðsfélagsins og starfsfólk fyrirtækisins. Þessi viðtöl voru tekin áð- ur en framkvæmdastofn- un ákvað lánveitingu sína, en í þeim kemur fram sú skoðun manna að rúmar 2 milljónir leysi engan annan vanda en þann að hæfít verði að greiða laun, en ekki til að koma fyrir- tækinu af stað aftur. I>á hefur vandi Jökuls bitnað mjöK á sveitarfélaginu þar sem fyrirtækið hefur ekki sín og hefur það dreiíið mjög úr framkvæmdum. l>að er einnig sameÍKÍnleg skoðun manna að vanda Jökuls verði að leysa, eigi stórfellt atvinnuleysi í lík- inuu við það sem var að loknu síldarævintýrinu ekki að halda innreið sína á Raufarhöfn að nýju. Vejjna þrengsla í blað- inu er ekki unnt að hirta öll viðtölin í dag. Þau, sem eítir eru. munu birtast næstkomandi þriðjudaií. Skuldir Jökuls við bæjarfélagið hafa dregið mjög úr framkvæmdum „VANDI Jökuls undanfarin ár hofur bitnaö mjög á okkur, fyrirtækið hefur ekki greitt gjöld sín nema að mjög tak- mörkuöu leyti siðastliðin 2 til 3 ár. Því hefur gjaldheimta hreppsins aðeins numið um 75% til 80% af tekjum en ætti að vera 90% til 95%. Því er það ekki fjarri iagi að vegna þessa vanti hreppinn um 15% af ár- legum tekjum sínum og hefur það dregið verulega úr fram- kvæmdahraða á vegum hans, „sagði Gunnar Hilmarsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn með- al annars. „Þessi fjárskortur bitnar mest á félagslegum framkvæmdum innan hreppsins, svo sem dag- vistun barna, æskulýðsmálum og bókasafnsmálum. Þetta hefur tafið framkvæmdir við sund- laugarbyggingu hér verulega, en hún var hafin fyrir 5 til 6 árum og er ekki enn lokið. Skuldir Jök- uls við hreppinn nema nú um 1,2 milljónum, sem sumum finnst kannski ekki há upphæð, en til samanburðar má geta þess að þetta er álíka baggi fyrir okkur og ef Reykjavíkurborg ætti 216 milljónir útistandandi. Fyrir utan þetta hefur Jökull svo gengið á lífeyrissjóði, verka- lýðsgjöldin og fleira. Jökull með helming vinnuafls á staðnum Ef litið er'á stöðu atvinnumála hér í bænum kemur það í ljós að Jökull er langstærsti atvinnu- rekandinn í bænum með um helming allra atvinnu í bænum. Síldarverksmiðjur ríkisins eru svo næstar, en þær eru að jafn- aði ekki starfræktar nema helm- ing ársins á fullum afköstum. Við Jökul hafa að jafnaði unnið 80 manns allt árið um kring, í Síldarverksmiðjunum 50, í Fisk- vík 10 til 12 manns og um 10 í saumastofunni auk verzlunar- og þjónustustarfa. Astandið er sem sagt þannig að allt byggist á útgerð og nú er Jökull stopp svo og togari fyrir- tækisins, Rauðinúpur. Helming- urinn af trillunum er einnig stopp vegna þessa og ofan á það kemur, að þó grásleppuvertíðin hafi gengið vel í vor, er enn helmingur hrognanna óseldur. Þá verður saumastofunni lokað um næstu mánaðamót. Rekstur Síldarverksmiðja ríkisins bygg- ist á því að loðna fáist og ef hún bregst, er vandamálið hér orðið stórkostlegt. Ég efast um það að nokkurt bæjarfélag á landinu búi við það, að aðeins eitt fyrir- tæki sé jafn stór þáttur í at- vinnulífi þess, það veitir atvinnu allt árið um kring og gefur ungl- ingum kost á sumarvinnu og því má segja að það sé um 50% af atvinnu hér í bænum." Framtíðarlausn verður að fást Hvað þarf að þínu mati að gera til að skapa framtíðar rekstrargrundvöll fyrir Jökul? „Það verður í fyrsta lagi að Gunnar Ililmarsson skapa fyrirtækinu möguleika á því að fá rekstrarfé. Það hefur næg veð til lána, togarinn er metinn á 20 milljónir og auk þess eru til veð í öðrum eignum. Rekstrarfjárskorturinn hefur bitnað á uppbyggingu fyrirtæk- isins, engin uppbygging hefur átt sér stað í fjölda ára og húsið því dregizt aftur úr að ýmsu leyti. Um leið og rekstrarfé hef- ur fengizt þarf að gera úttekt á húsinu og leggja fram framtíð- aráætlun um uppbyggingu, ef um raunhæfa lausn á að vera að ræða. Þá er vandi Jökuls einnig sam- eiginlegur vandi fiskvinnslunnar í heild og þann vanda verður einnig að leysa. Þá hefur það valdið vandræðum að bæði tog- arinn og frystihúsið eru mikið niðurgreidd og því ekki um skuldir við sjóðina að ræða og því ekki hægt að færa þar á milli. Vegna þess hefur vandinn nær eingöngu bitnað á heima- mönnum og því verður að breyta. Sú lausn, sem nú er talað um, 4 til 5 milljóna króna lán, sem nú er svo talað um að skera niður í 2 milljónir með því fororði frá Landsbankanum að með því skuli greiða vinnulaun og skuldir við lífeyrissjóði, en aðrar skuldir skornar niður við trog, svo sem skuldir fyrirtækisins við hrepp- inn, er út í hött. Hún kæmi kannski togaranum út í 1 til 2 túra en varla meir. Þá er sú hugmynd Landsbankans að greiða úr vanda hreppsins vegna skulda Jökuls með því að breyta ógjaldföllnum skuldum hrepps- ins í þriggja ára vaxtaaukalán, einnig út í hött. Til þess að geta staðið í nauðsynlegum fram- kvæmdum í sumar höfum við orðið að taka vaxtaaukalán í trausti þess að Jökull greiði skuldir sínar, en það verður ekk- ert bæjarfélag rekið á slíkum lánum. 2 milljónir hjálpa fólkinu til að fá laun sín greidd, en fyrir- tækinu hjálpar það ekkert. Því eru þessar hugmyndir högg í andlit fólksins, þegar svona and- félagslega er tekið á málefnum sveitarfélagsins. Staðan er því miður sú að Landsbankinn hefur ekkert úti- bú hér, aðeins afgreiðslu. Hér er enginn útibússtjóri, sem þekkt gæti vanda sveitarfélagsins og talað máli þess við bankastjórn- ina, það virðist ekki veita af því,“ sagði Gunnar. Skil ekki hvað á að gera við tvö skip, bundin við bryggju „ÉG ER alveg búinn að gefast upp á þessu og hef nú ráðið mig á annað skip fyrir sunnan. Tog- arinn. Rauðinúpur. hefur legið við bryggju síðan 20 ágúst og þá áttu menn 3 til 4 túra óupp- gerða. Síðan hefur áhöfnin ver- ið á tryggingu vegna þess að ekki er hægt að afmunstra fyrr en laun hafa verið greidd að fullu. Ég á nú inni 12 til 14 þús- und krónur. það er einn túr og tryggingu síðan skipinu var lagt. Svona ástand er algjörlega óviðunandi. því ekki stendur á reikningunum. Ég er nýbúinn að festa kaup á húsi og hef ekki getað staðið í skilum.*4 sagði Kristinn Guðmundsson, trún- aðamaður áhafnar Rauðanúps. „Ég held, að þó einhver bráða- birgðalausn fáist, falli þetta fljótlega aftur í sama farið. Skipið er alls ekki nógu gott, að- gerðaraðstaða er til dæmis mjög slæm um borð og þyrfti hún al- gerrar endurnýjunar við auk ýmislegs fleira. Það hefur verið talað um að eitthvað verði gert, en ekki fyrr en nýi togarinn kemur. Ég get svo ekki ímyndað mér hvað á að gera við nýtt skip, bundið við bryggju; sem ábyggi- lega verður, breytist rekstur fyrirtækisins ekki verulega. Það eru allir orðnir dauðþreyttir á þessu og ég veit ekki betur en flestir af áhöfninni hafi ráðið sig eitthvert annað. Það verður því örugglega vandkvæðum bundið að manna eitt skip, hvað þá tvö. Þá hef ég heyrt að skipshöfn- inni hafi verið kennt um hvernig komið sé að einhverju leyti vegna þess að við stoppuðum skipið, en þá áttum við upp í 4 túra inni og höfðum fengið lof- orð um það áður en farið var í síðasta túrinn að við fengjum eitthvað greitt. Það varð ekki og því var ekki um annað að ræða en að hætta þessu enda augljóst hvert stefndi," sagði Kristinn. Kristinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.