Morgunblaðið - 03.10.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
Rætt við skipverja af Mávi
MORGUNBLAÐIÐ hitti nokkra skipverja af Mávi að tali á Vopnafirði í gær, en þá
var fólkið búið að hvíla sig lítillega eftir volkið frá því um morguninn. Af 15 manna
áhöfn fóru allir nema fjórir til Reykjavíkur í gær. Skipstjórinn og fjórir af yfir-
mönnunum verða á Vopnafirði þar til ljóst er hver örleg skipsins verða. Aðrir
skipverjar sögðu almennt að nú væri ekki um annað að ræða en að útvega sér nýtt
skipsrúm og kváðust vilja fara á sjóinn sem fyrst.
1 ■ mm
Hi JiáI l•
Áhöfnin af Mávi á Vopnafirði í gær, en þau eru: Daníel Jónsson. Gunnar Jónsson. Björn Iiaraldsson.
Magnús Finnbogason, Olafur Árnason, Sigurður Guðbjartsson, Baldur Guðjónsson, Haraldur Hreggviðs-
son, Ægir Bergsson, Lárus Sarvas, Þórir Andresson, Sigurþór Stefánsson, Inga Bragadóttir og Oðinn
Agnarsson. Ljósm. Mbl.: RAX.
Inga Bragadóttir var eini kvenmaðurinn um borð i Mávi, hér er hún
komin um borð i flugvélina sem flutti hana til Reykjavikur í gær.
„Óttaðist að við mynd-
um ekki ná sandinum“
- segir Lárus Sarvas 2. vélstjóri
_LÆTIN í vélarúminu þar sem ég
var. voru ckki svo mikil, höggið
kom aðallega á skipið framan-
vert. En okkur var sagt að setja
allar dælur strax af stað. en þegar
húið var að pæla lest og tanka
kom í Ijós, að þær höfðu engan
vegin undan og því varð að hleypa
skipinu á land. ef það átti ekki að
sökkva strax. Skipið seig strax
hratt að framan og ég óttaðist um
tíma að við myndum ekki ná sand-
Lárus Sarvas
inum, svo ört seig það. Frá þvi að
við komum út af skerinu og þar
til að ákveðið var að hleypa skip-
inu á land liðu vist ekki nema 10
mínútur." sagði Lárus Sarvas 2.
vélstjóri á Mávi. Lárus kvaðst
hafa verið samtals um 2 ár þarna
um borð.
„Þegar við sigldum upp á sand-
inn vildi svo vel til að það var því
sem næst háflóð og stöðvaðist
skipið því ekki fyrr en örskammt
frá landi. Við sigldum á ca. hálfri
ferð upp á sandinn, og sem betur
fer tókst það vel.
Þegar komið var upp á sandinn
drápum við á aðalvélinni og lokuð-
um fyrir olíu til véla til að koma í
veg fyrir brunahættu. Að vísu
höfðum við aðra ljósavélina í
gangi, en það drapst á henni kl.
6.20, en þá vorum við búnir að vera
í fjörunni góða stund.
Okkur varð að vísu ekki mjög
kalt, en gegnumtrekkurinn var
mikill, en sem betur fer hafði fólk
haft tíma til að klæða sig vel. Á
þessum tíma gengu holskeflurnar
yfir skipið t.d. fór einn hásetanna
niður í sinn klefa og á meðan hann
var þar kom sjór sem braut glerið í
kýrauganu á herberginu og fékk
hásetinn glerbrotin yfir sig allan,
og ekki leið á löngu þar til sjór
komst í vélarúmið.
Jú, ég var feginn þegar ég fór í
land í björgunarstólnum, en að
vísu var ég svo óheppinn, að ég var
sá eini sem fór á kaf á leiðinni í
land, en á hótelinu biðu mín hlý og
góð föt þannig að mér varð ekki
meint af volkinu," sagði Lárus.
Innsiglingin inn á höfnina i Vopnafirði er mjög þröng.Mávur lenti upp á skerið, sem er nær á myndinni.
Mávur í brimgarðinum i gær. Ljóms. Mbl. RAX.