Morgunblaðið - 03.10.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
23
„Svona smá óhapp
stöðvar mann ekki“
- segir Haraldur Hreggviðsson matsveinn
„Ék var sofandi ojí vaknaði
við fyrsta höKííið. Ék kíkti
strax út <>k sá brot fyrir utan
KhiKKann og þá }?erði mér
strax grein fyrir hvað var að
gerast,“ sagði Haraldur
HreBgviðsson matsveinn á Má-
vi. „Eg klæddi mig strax og
þegar ég kom upp voru menn
ekki almennt komnir i björgun-
arbeltin. Það var áberandi hvað
allir voru rólegir, ekki sist
Ilaraldur Hreggviðsson
kona stýrimannsins, sem var
með okkur í þessari ferð.“
„Lending skipsins í brimgarð-
inum fyrir botni fjarðarins var
mjúk, en á tveimur til þremur
brotum snerist skipið þvert og
þá byrjuðu lætin, t.d. fór stjórn-
borðslunningin af í einum
brotsjó, stuttu eftir að skipið
snerist og það svo snyrtilega að
það var eins og einhver hefði
skorið hana af. Hins vegar leið
okkur nokkuð vel, þar sem við
héldum til í messaklefanum,
þangað komst enginn sjór, en að
vísu var orðið nokkuð kalt að
lokum."
„Flestir okkar töpuðu sínum
persónulegu munum við strand-
ið, fjölmargir voru með mynda-
vélar, segulbönd og hljómflutn-
ingstæki í klefunum, auk þess
sem öll okkar föt eyðilögðust um
borð. Sem dæmi má nefna að
einn hásetanna átti þrjár vand-
aðar myndavélar og var ein
þeirra að verðmæti um 10 þús.
kr.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka fyrir frábærar móttökur á
Hótel Tanga á Vopnafirði. Þegar
við komum þangað beið okkar
heitt kaffi og heit og hlý föt. Þá
kom kaupfélagsstjórinn á stað-
inn í morgun með föt og skó á
alla.“
— Hvað tekur nú við?
„Nú er bara að leita að öðru
skipi. Svona smá óhapp stöðvar
okkur ekki“, sagði Haraldur
Hreggviðsson.
- Þó.
„Oft var ekki
stætt um borð“
sagði Ægir Bergsson sem var í sinni fyrstu sjóferð
„Ég var sofandi i koju og
hrökk fram úr henni þegar
skipið skall á skerinu. og stöðv-
aðist ég á skáp, sem kom á móti
mér. Ég var svo rétt staðinn
upp þegar einn hásetanna
opnaði klefadyrnar og sagði að
við værum strandaðir,“ sagði
Ægir Bergsson. 16 ára vikapilt-
ur á Mávinum. Hann var þarna
í sinni fyrstu sjóferð, hafði að-
Ægir Bergsson
eins verið 10 daga til sjós þegar
óhappið varð.
„Ég fór strax upp og þá var
mér sagt að fara í björgunarbelti
og síðan var okkur sagt að fara
inn í messann og skorða okkur af
þar. Það var búist við að mikið
högg kæmi á skipið þegar því
væri hleypt upp í fjöruna, en svo
var ekki þar sem þar var aðeins
gljúpur sandur. Hins vegar byrj-
aði darraðardansinn eftir að
skipið settist á sandbotninn. Þá
var oft ekki stætt um borð, við
urðum að halda okkur, svo mikl-
ir voru sjóirnir sem skullu á
skipinu í fjörunni.
Þá var okkur sagt að loka öll-
um hurðum og kýraugum, en
reyndar brotnuðu sum kýraug-
anna fljótlega og sjórinn komst
þá inn í afturskipið.
Ég var með þeim fyrstu sem
fór í land í stólnum, ég blotnaði
ekkert nema hvað ég fékk smá
gusu aftan á mig. Því er hins
vegar ekki að neita að gott var
að koma inn á Hótel Tanga, þar
var tekið vel á móti okkur."
„Hvort ég fer aftur til sjós?
Jú, ég fer strax að leita mér að
öðru plássi. Þetta var að vísu
mikil lífsreynsla, en nú veit ég
þó hvernig ég á að haga mér, ef
ég lendi í strandi aftur. Ég á eft-
ir að sakna áhafnarinnar mikið.
Þetta eru allt úrvalsmenn og
skipstjórinn er einstakur mað-
ur.“
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Spurt & svarað
Geir Hallgrímsson svarar spurningum
lesenda um stjómmálaviðhorfið
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstunni
svara spurningum lesenda Morgunblaðsins um stjórnmálaviðhorfið.
Þeir sem óska að bera fram spurningar við Geir Hallgrímsson eru
beðnir um að hringja í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstu-
dags og verða þá spurningar teknar niður. Einnig er hægt að senda
þær skriflega til ritstjórnar Morgunblaðsins. óskað er eftir að spurn-
ingar séu bornar fram undir fullu nafni.
Sveinn Jóh. I>órðarson.
Innri-Múla:
1. Væri möguleiki að breyta kosn-
ingareglum sjálfstæðisflokksins
á þann veg að ef kæmu fleiri
framboð en þitt til formanns, þá
yrði sá sem fengi næst flest at-
kvæði sjálfkjörinn varaformaður,
ef hann tæki kosningu á þann
veg?
2. Værir þú sammála fyrstu spurn-
ingu, ef hægt væri að fram-
kvæma hana?
3. Ert þú sammála þeim, sem telja
að ekki megi kjósa varaformann
úr röðum þeirra, sem styðja
okkar menn í ríkisstjórninni?
Svör:
1. Já. Nú er gert ráð fyrir, sam-
kvæmt skipulagsreglum flokks-
ins, að formaður og varaformað-
ur flokksins skuli kosnir beinni
og óbundinni kosningu. Það þýð-
ir, að allir sjálfstæðismenn eru
kjörgengir til þessara starfa án
sérstaks framboðs. Breytingin
þyrfti því m.a. að fela í sér, að
kosning formanns væri bundin
við framboð og tryggð væru
a.m.k. tvö framboð, svo að sæti
formanns og varaformanns væru
bæði skipuð að loknu for-
mannskjöri.
2. Nei. Ég tel eðlilegt, að kóSið sé
sérstaklega i stöðu formanns
annars vegar og stöðu varafor-
manns hins vegar. Það er að von-
um lögð áhersla á að gott sam-
starf sé með formanni og vara-
formanni flokksins og það á ekki
að vera nauðsynlegt að þeir etji
kapp saman um formennskuna til
þess að fá valinn varaformann.
Hitt liggur í augum uppi, að
landsfundarfulltrúar ráða því,
hvort þeir velja varaformann
þann, sem næstflest atkvæði fékk
við formannskjör. Og auðvitað
verður að gera þá kröfu til þroska
þeirra, sem slíks traust njóta, að
þeir vinni saman að heill flokks-
ins.
3. Nei. Það er ekkert, sem bannar
það. En minna má á, að lands-
fundur mun auðvitað taka af-
stöðu til ríkisstjórnarinnar.
Verði sú afstaða staðfesting á
samþykktum þingflokks, mið-
stjórnar og flokksráðs um, að
Sjálfstæðisflokkurinn sé í ákveð-
inni stjórnarandstöðu, þá er
landsfundur í varaformannskjöri
að kjósa varaleiðtoga stjórnar-
andstöðunnar. Vafasamt er því,
að stjórnarsinni gefi kost á sér í
það hlutverk. En dragi Sjálfstæð-
ismenn sig út úr ríkisstjórninni,
þá eru forsendur breyttar að
þessu leyti.
Jónas Friðrik Jónsson,
Háalcitisbraut 121. spyr:
1. Styður þú tillögu SUS-þings um
brottvísun þingmanna Sjálfstæð-
isflokksins úr röðum stjórnar-
sinna úr flokknum?
2. Hver er afstaða þín og flokksins í
deilunum um opnunartíma versl-
ana?
3. Hver verða forgangsverkefni þín,
verðir þú endurkjörinn formaður
flokksins á næsta l^ndsfundi?
Svör:
1. Ég tel samþykkt SUS-þings ekki
fela í sér tillögu „um brottvísun
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
úr röðum stjórnarsinna úr
flokknum". Og ég væri andvígur
slíkum hugmyndum og tillögum
ef fram kæmu.
2. Ég tel eðlilegt að leita lausna á
því vandamáli, sem kallað hefur
verið opnunartími verslana, með
því hugarfari að sem mest frelsi
ríki í þeim efnum, enda sam-
ræmdist það almannareglu og
friðhelgi helgidaga þjóðkirkjunn-
ar. Hinsvegar er ljóst, að hér fara
hagsmunir ekki saman og sjálf-
stæðismenn eru ekki þeir bók-
stafstrúarmenn, að þeir vilji ekki
leitast við að leysa slíka hags-
munaárekstra. Þess vegna hafa
sjálfstæðismenn, t.d. í borgar-
stjórn Reykjavíkur, tekið þátt í
umræðu og afgreiðslu um lokun-
artíma sölubúða með því hugar-
fari að samræma sjónarmið neyt-
enda, kaupmanna og launþega í
verslunarstétt.
Það er skoðun mín, að eftir því
sem réttur launþegans, hvað
vinnutíma og laun snertir, er bet-
ur tryggður þá muni draga úr
áhuga hans á ákveðnum lokun-
artíma verzlana. Með sama hætti
muni frjáls verðmyndun fella
burt rök kaupmanna fyrir ríg-
bundnum reglum á þessu sviði.
3. Forgangsverkefni mitt verður
tvímælalaust að vinna að þvi að
sjálfstæðismenn gangi sameinað-
ir til næstu kosninga. Sjálfstæð-
isflokkurinn er einn þess megn-
ugur íslenskra stjórnmálaflokka
að veita þjóðinni þá forystu og
vera henni sú kjölfesta, sem þjóð-
inni er brýn nauðsyn, á þessum
örlagaríku tímum í innanlands-
málum og á alþjóðavettvangi.
Vörnmarkaðnrinn hf.
Ármúla 1.