Morgunblaðið - 03.10.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981
31
Finnskir listmálarar
sýna í Borgarspítalanum
Jólaferð til
Filippsevja
Ferðaskrifstofan Farandi, sem
er til húsa að Lækjargötu 6. hefur
ákveðið að bjóða upp á jólaferð til
Filippseyja. Morgunblaðinu hefur
borizt eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Faranda:
Ferðaskrifstofan Farandi efnir
til jólaferðar í austurlöndum, þ.e.
til Filippseyja og Hong Kong sem
hún kallar „Ævintýri í austurlönd-
um fjær“. Flogið verður í báðum
leiðum um London og Hong Kong.
Á Filippseyjum verður dvalið alls í
20 daga. Þar verður ferðast um, ým-
ist með flugi eða langferðabílum, á
milli staða og dvalist um kyrrt
nokkra daga í senn. Má þar nefna
auk höfuðborgarinnar Manila,
borgirnar Baguio, Banaue, Davao,
Zamboanga og Cebu.
Á þessum stöðum getur fólk valið
sér afþreyingarefni að eigin geð-
þótta, svo sem baðstrandarlíf, skoð-
anaferðir um nágrennið eða reikað
um híbýlahverfi innfæddra, svo
eitthvað sé nefnt, en af nógu er að
taka.
Filippseyjar eru 7107 talsins, um
helmingur þeirra byggðar. Þær eru
títt nefndar „perlur austursins".
Þar er heilnæmt hitabeltisloftslag.
Ibúarnir, sem eru rúmar 50 milljón-
ir, eru brosmilt, hjálplegt og elsku-
legt fólk, sem almennt skilur og tal-
ar ensku sæmilega. Tiltölulega
mjög stutt er síðan erlendir ferða-
menn fóru að leggja leið sína til
Filippseyja í nokkrum mæli enda er
landið enn um margt á frumstigi
varðandi móttöku ferðamanna, en
gestrisni íbúanna og vilji þeirra til
að gera gestum sínum til hæfis veg-
ur þar upp á móti.
Þessi ferð hentar þeim, sem vilja
kynnast framandi heimi, á litríkum
sólarströndum, undir þéttum
pálmaskógum.
Á heimleið verður dvalið 3 daga í
Hong Kong og litast um í borginni
og nágrenni en hún er sem kunnugt
er fríhafnarverzlun með vöruval og
verðlag hagstæðara en annars stað-
ar þekkist.
Vff) NEFNCJM: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokka og skó,
bamafatnað allskonar og mokkafatnað
EINNIG: Herraföt og kvenkápur, kjóla, pils og tískuvörur úr ulL
ÞEIR sem leggja leið sína á Borg-
arspítalann næstu daga munu
eflaust veita athygli myndum
sem þar eru til sýnis og sölu i
anddyri og göngum spítalans.
Sýning þessi er á vegum Starfs-
mannaráðs Borgarspitalans og
var opnuð þ. 25. þ.m. og verður
opin til 4. október nk.
Að þessu sinni sýna 4 finnskir
listamenn myndir sínar, þau Elína
0. Sandström, sem á 25 olíumál-
verk og 3 vatnslitamyndir á sýn-
ingunni, mágur hennar, Juhani
Taivaljárvi sýnir 13 olíumyndir og
Liisa Taivaljárvi, systir hennar,
sýnir nokkrar litlar blómamyndir.
Að auki eru nokkrar smámyndir
með á sýningunni eftir Paulu Viit-
anen.
Elína 0. Sandström er íslend-
ingum að góðu kunn, því hún hef-
ur haldið hér um 20 sýningar á
síðastliðnum 16 árum. Elína er
fædd í bæ sem heitir Riihimáki, og
er um 70 km fyrir norðan Hels-
Þessi mynd Elínu er af finnskri
þvottakonu, sem ekki hefur tekið
þvottavélina í þjónustu sína.
(Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
inki. Hún nam við listaskólann
Ateneum í Helsinki um þriggja
ára skeið, og lærði m.a. postu-
línsmálun og keramikgerð sem
hún vann síðan við um 7 ára skeið.
Elína flutti hingað til lands árið
1965 og dvaldi hér til ársins 1973.
Á þeim tíma hélt hún nokkrar
sýningar og ferðaðist um landið,
og eru nokkrar myndir hennar
málaðar af kunnum stöðum hér-
lendis. Þetta er í fjórða skipti sem
hún sýnir á Borgarspítalanum,
síðast var hún hér á ferð fyrir
tveim árum. í samtali við Morgun-
blaðið sagðist hún hrífast mjög af
landi og þjóð, talar ágæta íslensku
og segist reyna að halda henni við
með lestri bóka heima í Finnlandi,
og með því að koma hingað stöku
sinnum.
Sýningin er opin öllum almenn-
ingi frá 12 til 20 daglega og eru
allar myndirnar til sölu.
PÁ: Gllarteppi og teppabúta, áklæðisefni og gluggatjöld
buxnaefni oq kiólefni. AÐ.ÓGLEYMDG: Garni, loðbandi og lopa
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKCJREYRI
1.—10. OKTÓBER
í SÝNINGARHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA.
EKKERT KOSTAR AÐ LÍTAIMN - OG LÍTIÐ MEIR ÞÓTT ÞÚ VERSLIR