Morgunblaðið - 03.10.1981, Síða 46

Morgunblaðið - 03.10.1981, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981 • Lið Kristiansand. mótherjar Þróttar annað kvöld. Víkingur haust- meistari í 4. fl. - Stefán Steinsen markhæsti leikmaður sumarsins Ilaustmeistarar Víkinijs. Efri röð f.v. Bjarni Gunnarsson, þjálfari. Stefán Aðalsteinsson, Ornólfur Jónsson, fyrirliði, Davið Steingrims- son, Ásííeir Sveinsson, Stefán Steinsen. Kjartan Olafsson. Neðri röð f.v. Stefán Pálsson. óiafur óiafsson, Sveinbjörn Jóhannesson, Pétur ólafur Pétursson, Jóhannes Björnsson, Guðmundur Pétursson. Mynd Mbl. RAX. VÍKINGUR varð haustmeistari i 4. flokki um síðustu hel(íi. Fjögur efstu félögin í Reykjavíkurniót- inu áunnu sér rétt til að keppa í haustmótinu. Víkingur, Fram. ÍR og KR. Víkingur sigraði Fram og ÍR og gerði jafntefli við KR. Hlaut fimm stig. ÍR og Fram 3 stig hvort félag og KR hlaut eitt stig. Víkingur lék fyrst við KR og varð jafntefli, 1 — 1. Stefán Stein- sen skoraði mark Víkings. Næst lék Víkingur við Islandsmeistara Fram o sigraði Víkingur 2—1. Stefán Steinsen og Ásgeir Sveinsson skoruðu mörk Víkings. Síðasta leik sinn lék Víkingur við IR og sigraði 1—0 með marki Stef- áns Steinsen. Aðrir leikir enduðu ÍR — KR 1—0, ÍR — Fram, 0—0 og Fram — KR 2—1. Þess má geta að Víkingur lék þrívegis við Fram í sumar, fór tvívegis með sigur af hólmi en tapaði í úrslitakeppni 4. flokks sem fram fór í Vestmanna- eyjum. Lokastaðan í haustmótinu varð: Víkingur 3 21 0 4—2 5 Fram 3 111 3-3 3 ÍR 31111-13 KR 3 01 2 2-4 1 Strákarnir í 4. flokki í Víking skoruðu hvorki fleiri né færri en 100 mörk í sumar og fengu á sig 33 — í 23 leikjum. Óvenju glæsilegur árangur og Víkingar áttu mark- hæsta leikmann íslandsmótsins í sumar. Það var Stefán Steinsen, sonur Arnar Steinsen, þess kunna kappa sem gerði garðinn frægan hér á árum áður með landsliðinu og KR. Stefán skoraði 43 mörk í 19 leikjum sumarsins. Næstur hon- um í markaskorun í 4. flokki hjá Víking kom Ásgeir Sveinsson með 23 mörk, Stefán Pálsson skoraði 15 mörk og Jóhannes Björnsson 10. H. Ilalls. Stefán Steinsen skoraði fiest mörk í fótboltanum i sumar. Frumraun Þróttar í ni er í Höllinni annað kvöld Knatlspyrna) ÞRÓTTARAR leika fyrsta leik sinn i Evrópukeppni í hand- knattleik á sunnudagskvöldið klukkan 20.00. en þá mæta ís- lensku bikarmeistararnir norska bikarliðinu KIF Kristiansand og fer fyrri leikur liðanna fram í Laugardalshöllinni. Þróttur hlýtur að eiga góða möguleika á því að vinna góðan sigur gegn norska liðinu, að minnsta kosti hér í Reykjavík, ís- lenskur handknattleikur hefur síðustu árin verið mun betri en sá norski og tala úrslit landsleikja þar sínu máli. Hins vegar er þetta einmitt hugarfarið sem tapar leikjum og Þróttarar koma sjálf- sagt til með að þurfa að hafa fyrir stigunum. Og helst verður að sigra þá norsku með nokkrum mun, því liðið verður eflaust allt annað og erfiðara á eigin heimavelli. Heimavöllur KIF, Gimiehallen, þykir vera mikil ljónagryfja og • Mikið mun mæða á Páli ólafs- syni og félögum hans hjá Þrótti i Höllinni, annað kvöld. þar fær liðið flest sín stig í norsku deildarkeppninni. Aldrei skyldi vanmeta Norð- menn, sem ávallt eru baráttuglað- ir, ekki síst í viðureignum sínum við íslendinga, en þær þjóðir eru fáar sem Norðmenn kunna verr við að tapa fyrir á íþróttasviðinu. KIF er nokkurs konar „sputnik" í norskum handknattleik, liðið er að hefja sitt þriðja keppnistímabil í 1. deild og hefur hafnað í 2. og 3. sætunum fyrstu tvo veturna, auk þess sem liðið varð bikarmeistari á síðasta keppnistímabili. Fimm leikmenn KIF eru norskir lands- liðsmenn og flestir leikmanna liðsins hafa auk þess leikið með landsliði Norðmanna 21 árs og yngri. Þetta er fyrsti Evrópuleikur Þróttar og vissulega er möguleiki að sigur hljótist á þessum tíma- mótum félagsins. En til þess verð- ur að mæta með réttu hugarfari og ekki sakar, að áhorfendur styðji vel við bakið á Þrótturum. íslensk Iið hafa oft gert góða hluti í Evrópukeppnunum og er skemmst að minnast er Valsmenn fóru alla leið í úrslitaleikinn. - Þróttur mætir þá Kristiansand frá Noregi Góður samningur Handknattlrikssamhand íslands xerói á döKunum mjöK haKsta^an samninK við íþróttavöruframleióandann Puma um húninKa u« fleira í þeim dúr til handa íslensku landslióunum. Tvö önnur fyrir- tæki. Hummel <>x Adidas. vuru einniir inni í da minu um tíma. Minningarmót um Atla Þór Umfangsmikið badminton- mót fer fram á sunnudaginn i íþróttahúsinu á Akranesi. Hefst það klukkan 11.30. Mót þetta er til minningar um Atla Þór Helgason og verður keppt i öllum greinum meist- ara- og A-flokks. Allt sterkasta badmintonfólk landsins verður meðal kepp- enda og má því búast við spennandi keppni. Rotary- klúbburinn Þyrill og Akra- prjón gefa verðlaun til móts- ins. Handboltamenn keppa í golfi KEPPNISTÍMABIL kylfinga er á enda um þessar mundir, en hjá flestum golfklúbbunum verða töðugjöldin í kvöld. Hins vegar er keppnistímabil handknattleiksmanna að hef- jast og það er því vel við hæfi, að handknattleiksmennirnir haldi sitt árlega golfmót á morgun, á þessum tímamótum vetrar- og sumaríþrótta. Undanfarin ár hefur þeim fjölgað mjög, sem iðka þessar tvær íþróttagreinar og má nefna kappa eins og Ragnar Ólafsson, leikmann Evrópu- úrvals áhugamanna í golfi og HK í handknattleik, millirík- jadómarana Karl Jóhannsson og Björn Kristjánsson, Berg Guðnason, landsliðsþjálfarann Hilmar Björnsson, Eystein Helgason í Samvinnuferðum og fleiri snjalla íþróttamenn. Keppt verður í Grafarholti á morgun, sunnudag, og hefst keppnin stundvíslega klukkan 15. Leiknar verða 12 holur. - áij. Erfið verkefni bíða Mikil og ströng verkefni bíða nú handknattleikslandsliðsins, en undirbúningur þess er að komast á fulla ferð . Fyrsta stór- verkefnið er ekki af léttara tag- inu. Fyrstu landsleikir vetrarins fara fram í 6 — landa keppni í Tékkóslóvakiu dagana 2.-8. nóv- ember. Mótherjarnir eru rosa- legir. Rúmenía. Rússland. Ung- verjaland auk A- og B-liða Tékk(>- slóvakíu. Síðast i nóvember fara síðan fram þrír landsleikir gegn Norðmönnum hér á landi. Hilmar Björnsson landsliðs- þjálfari hefur nú gert 2 ára áætl- un, sem miðar að því að hafa ís- lenska landsliðið í sem bestri æf- ingu, er B-keppnin fer fram í febrúar 1983, en þar verður ísland meðal keppenda. Kjarninn í áætlun Hilmars er að breyta landsliðshópnum sem minnst næstu tvö árin, velja strax þann kjarna sem til stendur að nota. „Það mætti segja mér, að ég noti svona 20 leikmenn í A-hópn- um, við eigum mjög góða leikmenn á besta aldri sem verða á toppin- um eftir tvö ár, svo sem Þorberg Aðalsteinsson, Sigurð Sveinsson og Alfreð Gíslason, svo ég nefni nokkur nöfn. Fari svo, að ein- hverjir j)eirra leikmanna, sem við hjá HSI viljum nota og vilja vera með, gangi til liðs við erlend félög, mun HSI beita sér fyrir því að sérstakur dálkur verði í samning- um slíkra leikmanna sem kveði á um að HSÍ hafi rétt til að fá leik- mennina í HM-leiki og undirbún- ing. Sambandið er að athuga laga- legu hliðina á þessu máli,“ sagði Hilmar Björnsson í samtali. Hann bætti því við, að þeir leikmenn sem nú leika erlendis væru á eng- an hátt útilokaðir frá umræddum 20 manna hóp. Nokkrir íslend- ingar leika erlendis um þessar mundir, allir í Vestur-Þýskalandi, Bjarni Guðmundsson, Axel Axels- son, Viggó Sigurðsson og Atli Hilmarsson, sem þó hefur átt við slæm meiðsl að stríða. Hilmar staðfesti, að margt bendi nú til þess að gömlu brýnin, Óli Ben, Árni Indriðason, Óli H. og fleiri detti út úr landsliðinu. „Ég get auðvitað ekki svarað fyrir þá, en get ekki ímyndað mér að þeir hafi tök á að binda sig niður í svona stranga áætlun." —gg. Ármenningar með eða ekki með? ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt- leik hefst í kvöld með leik UMFN og Vals suður í Njarðvík. Eitt af því. sem margir bíða spenntir eft- ir í samhandi við 1. deildarkeppn- ina. er hvort að Ármann taki þátt í mótinu. Ármenningar hafa tilkynnt þátttöku sína, en þeir voru hins vegar ekki með á Reykjavíkurmót- inu, áttu þá ekki í lið. Að sögn eru Ármenningarnir ákveðnir að vera með og er vonandi að þeir standi við það, því 1. deildarkeppnin myndi bíða hnekki ef þeir féllu út á síðustu stundu. Hitt er víst, að Ármenningar hafa misst alla sína máttarstólpa frá síðasta vetri, en liðið hafði í röðum sínum nokkra bráðefnilega unga menn. Davíð Arnar, Kristján Rafnsson, Valdemar Gúðlaugsson, Hörður Arnarson og fleiri hafa gengið til liðs við önnur félög í úrvalsdeildinni. Nú síðast var það Atli Arason sem gekk úr Ár- manni, en hann gekk til liðs við Breiðablik í 2. deild. Þess má geta, að Ármann varð Islandsmeistari árið 1976, síðan hefur allt verið á niðurleið hjá körfuknattleiks- deildinni. — gg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.