Morgunblaðið - 03.10.1981, Síða 48

Morgunblaðið - 03.10.1981, Síða 48
5 krónur eintakið LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1981 Skólanefnd Kópavogs: Menntaskólinn verði hluti f jöl- brautaskóla SKÓLANEFND Kópavogs samþykkti samhljóða á íundi sínum í fyrra- kvöld að settur verði á laggirnar fjölbrautaskóli í Kópavogi og Menntaskóli Kópavogs verði hluti þessa skóla. Jafnframt að húsnæð- ismál skólans verði leyst til bráðabirgða. væntanlega að fjölbrauta- nám hefjist þegar á næsta ári í Þinghólsskóla og Vighólaskóla. Skólanefndin sendi bæjarstjórn Kópavogs umsögn um skipan skól- amála í fimm liðum og hvatti til að bæjarstjórn stofni til viðræðna við menntamálaráðuneytið um upp- byggingu framhaldsskóla í Kópvogi og semji um fjármögnun skólabygg- inga. Nefndin raðaði verkefnum í forgangsröð. „Þrátt fyrir óeiningu, að því er virtist, í blöðum og á fundum, þá tókst skólanefnd að ná algerri ein- ingu um tillögur til bæjarstjórnar og um meginstefnu í skólamálum í Kópavogi," sagði Ásgeir Jóhannes- son, formaður skólanefndar Kópa- vogs, í samtali við Mbl. „Þetta er að sjálfsögðu málamiðlun og ég vona að með þessum tillögum sé skapaður grundvöllur fyrir bæjarstjórn að úr- vinnslu tillagna okkar og jafnframt grundvöllur að framtíðarskipan skólamála í Kópavogi. Ég er ákaf- lega ánægður með að samstaða hef- ur náðst,“ sagði Ásgeir ennfremur. „Það er í sjálfu sér ekki margt að athuga við þá stefnu, sem kemur fram í bókum skólanefndar. Reynd- ar er hún víða óljóst orðuð og ekki er alveg ljóst hvað við er átt á sum- um stöðum. Bókunin er svolitið opin i báða enda en meginatriðið í þessu öllu saman hlýtur að vera það, hvaða samningum verður hægt að ná við menntamálaráðuneytið og hve mikið fé er hægt að fá frá ríkinu til að framkvæma þá hluti, sem skólanefnd setur fram,“ sagði Rich- ard Björgvinsson, bæjarfulltrúi í samtali við Mbl. Sjá tillögur skólanefndar í heild á bls. 27. Sigurður Guðbjartsson skipstjóri á Mávi: „Kvikan bókstaf- lega henti skip- inu upp á skerið“ _VIÐ VORIJM komnir út fyrir grænu ljósin og ég hafði sett á ferð. en þá kom skyndilega mjög stór kvika. sem hókstaflega kastaði skipinu upp á skerið og stuttu síðar kom önnur kvika sem henti skipinu enn lengra upp á skerið. Ég tel að við höfum verið um það bil 5 minútur á skerinu og þann tima lét það mjög illa og barðist stiiðugt i grjótið." sagði Sigurður (iuðbjartsson skipstjóri á Mávi þegar Morgunblaðið ra'ddi við hann á Vopnafirði f gær, en skerið sem Mávur strandaði á i hinni þröngu innsiglingu til Vopnafjarðar. er kallað Krossavikur- lending. Þegar Mávur strandaði var skip- ið að fara frá Vopnafirði, en salt- fiski frá Bakkafirði var skipað um borð í fyrrakvöld og fyrrinótt. Áð- ur hafði skipið legið í tæpa tvo sólarhringa úti á firði á meðan beðið var eftir því að komast að bryggju og einnig þurfti að bíða eftir saltfiskinum frá Bakkafirði. Þegar ákveðið var að saltfiskinum skyldi skipað um borð í Mávi í fyrrakvöld fór togarinn Brettingur frá bryggjunni og beið úti á firði á meðan útskipunin átti sér stað, og Sigurður fiuðbjartsson skip- sti'»ri- Ljosni. Mhl. KAX. skipverjar á Rauðanúpi létu strax vita hvernig komið var þegar ljóst var að sigla þyrfti Mávi upp í fjöru. „Þegar skipið losnaði af skerinu fórum við út fyrir og ég lét strax pæla balllestartanka og lestar og þá þegar kom í ljós að sjór var kominn í lest. Allar dælur skipsins voru settar af stað og ég lét pæla á ný stuttu síðar. Þá kom í ljós að sjóhæð í lest hafði aukist þó nokk- uð og var skipið farið að síga að framan. Ég hafði samt tíma til að ákveða hvað gera skyldi og ljóst var að skipið myndi sökkva ef því yrði ekki hleypt á iand. Ég ákvað þá að sigla upp í fjöruna í fjarðar- botninum, en þar er sandbotn og vorum við komin í sandinn kl. 5.15, en skipið steytti á skerinu um kl. 3.30. í fyrstu sneri skipið stefni beint upp í fjöruna, en þrjár holskeflur sneru skipinu flötu fyrir sandinn, þannig að bakborðshliðin sneri að landi. Þegar sjóirnir skullu á skip- inu skalf það stafna á milli, eins var mikið loftsog þegar sjórinn þrýstist innum götin á skipinu. Og skyndilega fór stjórnborðslunning- in af, eins og hún lagði sig,“ sagði Sigurður. Sigurður varð eftir á Vopnafirði í gær og með honum þrír yfirmenn af Mávi. Kvað hann ljóst að skipið væri nú mikið skemmt, og líklega kominn mikill sandur í það, þar sem flest ef ekki öll kýraugu væru nú brotin. Sjá bls. 22-23. Hér var stund milli ólaganna. filögglega sést að stjórnborðs- og bakborðslunningar hafa sópast burtu og stjórnborðsbjörgunarbáti Mávs hefur skolað burt í einni holskeflunni. Ljósm. Mbl.: rax Yerðmæti saltfisks- ins 20 milli. króna NÚ ER talið að flutningaskipið Mávur sé að mestu ónýtt þar sem það er á strandstað fyrir botni Vopnafjarðar. Um borð í Mávinum eru 970 tonn af saltfiski og 3 tonn af lagmeti. Saltfiskurinn átti að fara til firikklands og verðmæti hans er áætlað um 20 milljónir króna eða 2000 millj. gkróna. Síðdegis í gær lá Mávur um 100 metra frá landi og sneri bakborðs- hliðin að landinu. Gengu brotin stanslaust yfir skipið, og var engum fært út í það. Ljóst var þá að mikill sandur var kominn í skipið og lík- lega var það farið að brotna. Þá var olía farin að leka úr skipinu og sáu blaðamenn Morgunblaðsins stóra olíufláka á Vopnafirði. Mávur hafði lestað saltfisk allar götur frá Reykjavík vestur um til Vopnafjarðar og átti skipið aðeins eftir að fara á fjórar hafnir á Aust- fjörðum áður en sigla átti til Grikk- lands með saltfiskinn. Þar sem nokkurn veginn er ljóst að allur saltfiskurinn um borð í skipinu er nú ónýtur, getur tjónið haft nokkra erf- iðleika í för með sér. Búið var að semja við Grikki um 200 tonn, sem afgreiða átti á árinu og var þetta fyrri farmurinn og hafði fiskinum öllum verið pakkað í nýjar pappa- umbúðir sem reyndar höfðu verið á gríska markaðnum og gefist vel. Mest af saltfiskinum var smáfiskur, en eitthvert lítilræði var af milli- fiski, og samkværat því sem Morgun- blaðinu var tjáð í gær, getur reynst erfitt að uppfylla samninginn við Grikki nú, þar sem ekki mun vera til mikið af þessari saltfiskstærð í land- inu. Flutningaskipið Mávur er í eigu Pólarskips hf. á Hvammstanga. Það var byggt árið 1964, 1.379 brl. að stærð. Áður en það var keypt til ís- lands hét það La Coruna og var gert út frá Spáni. Fyrir verðjöfnunarsjóð en ekki frystiiðnaðinn - segir aðstoðarmaður sjávarútvegsráð- herra um gengisfellinguna í ágúst sl. ísafirði. 2. október. í VIÐTALI við Vcstfirska frétta- blaðið á ísafirði. á fimmtudaginn. er haft eftir Boga Þórðarsyni að- stoðarmanni Steingríms Her- mannssonar sjávarútvegsráðhcrra. að gengisfellingin í ágústmánuði síðastliðnum hafi ekki verið gerð til þess að láta frystiiðnaðinn njóta hennar, heldur hafi hún vcrið gerð til þcss eins að laga stöðu verðjöfn- unarsjóðs. Orðrétt segir aðstoðarmaður sjáv- arútvegsráðherra í viðtalinu: „Ég veit ekki til þess að þessi gengisfell- ing hafi verið gerð til þess að láta þá njóta hennar. Var hún ekki gerð til þess eins að laga stöðu verðjöfnun- arsjóðs? — Við getum þó huggað okkur við það að Seðlabankinn fær heldur ekki uppfærslu af afurðalán- um fyrir þessa gengisbreytingu, þannig að þetta er ekki orðin nein gengisbreyting fyrir frystiiðnaðinn. Þetta gildir bara um þær birgðir, sem lágu fyrir 31. ágúst, en fram- leiðslan eftir það hækkar um þessa gengisbreytingu", sagði Bogi í áður- nefndu viðtali. — Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.