Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. 1 Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö. Kjarnorkuvopn í sænskri landhelgi Yfirlýsing sænska forsætisráðherrans Thorbjörn Fálldins þess efnis, að ekki einungis hafi sovéski kafbáturinn fyrir utan Karlskrona ruðst óboðinn inn í sænska landhelgi heldur hafi hann gert það með kjarnorkuvopn innan borðs, er staðfesting á verstu grunsemdum manna um hræsni Kremlverja, þegar þeir ræða um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndunum og kalla Eystrasalt „haf friðarins". Frá upphafi hefur verið vitað, að kaf- báturinn laumaðist ekki inn í sænska skerjagarðinn í vináttu- skyni. Hann var sendur þangað til að njósna eða beinlínis til að ögra Svíum. Getur kjarnorkuveldi ögrað smáríki meira en með því að laumast með kjarnorkuvopn upp að landsteinum þess? Það þarf engan að undra, þótt sænski forsætisráðherrann noti hinn sterkustu orð um þennan atburð og líki honum við atburði, sem gerðust í síðari heimsstyrjöldinni. Kjarninn í boðskap þeirra, sem boða kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndunum, er sá, að með einhliða yfirlýsingu sinni um að þjóðir Norðurlanda verði aldrei varðar með kjarnorku- vopnum, fengju Norðurlandabúar tryggingu Sovétstjórnarinnar fyrir því, að hún myndi ekki kasta kjarnorkusprengjum sínum á þá. Atburðirnir fyrir utan Karlskrona hljóta að vekja jafnvel þá, sem mest traust bera til Sovétríkjanna, til umhugsunar um það, að kannski sé ekki allt sem sýnist hjá hinu mikla austræna herveldi. Eru menn virkilega svo heillum horfnir, að þeir vilji eiga allt sitt undir ríki, sem í miðri „friðarsókn* sinni sendir kafbát búinn kjarnorkuvopnum inn í landhelgi og inn fyrir skerjagarð hlutlauss nágrannaríkis? Engin kjarnorkuvopn eru á Norðurlöndunum. Svíar ákváðu 1968 að hætta við tilraunir sínar með slík vopn. Atburðurinn fyrir utan Karlskrona leiðir vafalaust til þess, að umræður vakna að nýju um það í Svíþjóð, hvort þjóðin verði að væðast kjarnorku- vopnum. Með einhverjum slíkum, áþreifanlegum hætti verða Sví- ar bregðast við hinum sovéska yfirgangi, er sú leið vænlegri til að halda aftur af Sovétmönnum heldur en að handtaka áhöfn kaf- bátsins eða gera hann upptækan í von um einhver „viðskipti" síðar meir. Sýni Svíar ekki festu gagnvart Sovétríkjunum eftir þennan atburð ganga Kremlverjar á lagið — hið sama á raunar við um Norðurlöndin öll, hopi menn í sífellu fyrir yfirgangi bjarndýrsins, nær það að lokum þeim sálrænu tökum, sem gera því kleift að ráða í skóginum með því einu að sýna vígtennurnar eða öskra. KGB og „friðar- hreyfingin“ Hér á landi á það ekki að koma neinum á óvart, að tengsl séu á milli hinna svonefndu „friðarhreyfinga" í Evrópu og Sovét- ríkjanna. Innan Samtaka herstöðvaandstæðinga hafa Sovétsinn- ar undirtökin eins og margoft hefur komið fram, kjörorð þessara samtaka: Island úr NATO, herinn burt, er beinlís ósk sett fram í þágu sovéskra hagsmuna. Dönum hefur nú tekist að sanna, að tengslin milli KGB og „friðarhreyfinganna" snerta ekki aðeins slagorðin og markmið baráttunnar. Sovéska leyniþjónustan stendur einnig undir kostnaðinum við að koma honum á framfæri í dönskum blöðum og annars staðar. Oftar en einu sinni hefur það komið fram undanfarna mánuði, að áróðursmönnum Sovétstjórnarinnar er mikið í mun að koma ár sinni vel fyrir borð á Norðurlöndum. Óprúttnar starfsaðferðir sovéskra sendiráðsmanna í Kaupmannahöfn ferðir ægisdrauga með kjarnorkuvopn í sænska skerjagarðinum sýna, að öllum ráð- um er beitt til að veitast að öryggi Norðurlandaþjóðanna. í ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins um utanríkismál segir: „Jafnframt þarf að huga að örygginu inn á við og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að erlend ríki eða útsendarar þeirra, útlendir eða innlendir, grafi ekki undan öryggi ríkisins og sjálf- stæði þjóðarinnar innan frá.“ Danska öryggislögreglan lét ekki til skarar skríða gegn sovéska sendiráðsstarfsmanninum, sem rekin var úr landi, og dönskum samverkamönnum hans, fyrr en fylgst hafði verið með þeim í marga mánuði. Slíkt eftirlit er nauðsynlegt sérhverri sjálfstæðri þjóð og í því efni er okkur íslendingum nauðsynlegt að líta í eigin barm. Um leið á með öllum tiltækum ráðum að stemma stigu við frekari útþenslu hins alltof fjölmenna sendiráðs Sovétríkjanna í Reykjavík og raunar krefjast þess, að fækkað verði í starfsliðinu. „Höfum verið gersamlega sniðgengin“ - segir Úlfar Bergþórsson, form. LMF Kinn af þeim framhaldsskólum sem nemendur sóttu ekki kennslu í til að mótmæla reglum þeim sem mennta- málaráóuneytió sendi frá sér í haust um samræmingu á starfsháttum áfangaskóla, var Flensborg í Hafnar firói. Þegar Morgunblaósmenn litu þar inn á miðvikudaginn var sam- koma í einum sal skólans þar sem hljómsveit lék lag Lennons „Give Pe- ace a Ghance“ og nemendurnir tóku undir og sungu, „allt sem vió viljum, er reglurnar burt“. Nokkrir nemendur voru teknir tali og fyrstur formaður framkvæmdanefndar LMF eóa Lands- ambands mennta- og fjölbrautaskóla, Úlfar Bergþórsson. „Aðalatriðið er,“ sagði Úlfar, „að fá að vera með þegar reglur sem þessar eru samdar. Samtökin okkar LMF hefur fólk sem sérhæfir sig í málefnum nemenda á framhalds- skólastigi en við höfum verið gersamlega sniðgengin. Hvað varð- ar almennar reglur um starfsemi áfangaskóla þá hafa þær ekki verið kynntar nemendum eða kennurum yfirleitt heldur skellt á fyrirvara- laust. Auk þess ættu yfirvöld skól- anna sjálf að fá að gera sínar regl- ur. Við erum kannski ekkert of ánægð með það kerfi sem nú er, en það er alla vega betra að eiga við yfirvöld skólans hér en ráðuneytið." Eru reglur þessar ekki einungis staðfesting á þeim reglum sem fyrir eru? „Nei, það er ekki rétt að öllu leyti. Um fjöldann allan af greinum í þessum reglum er að vísu enginn ágreiningur. En svo eru mál eins og breytt einkunnagjöf og hert mæt- ingaskylda. Okkur þykir ráðuneytið hafa byrjað á vitlausum enda. Það á ekkert með að grufla í almennum reglum skólanna enda höfum við fengið loforð hjá nokkrum skóla- stjórum fyrir því að þar sem um heimildarákvæði sé að ræða verði þeim ekki beitt.“ Það er sagt að þið séuð letingjar að vilja ekki fara eftir þeim mæt- ingareglum sem ráðuneytið sendi frá sér. „Við erum langt frá því að vera letingjar. Það er alröng mynd af nemendum. Við erum aðeins í and- stöðu við þær mætingareglur sem hafa verið að þróast og eru fast- bundnar með þessum reglum, auk þess sem við erum í andstöðu, flest, við nýja einkunnagjöf í tölum. En það er meira tæknilegt mál. Ein- kunnagjöf með tölum er miklu nákvæmari fyrirgjöf, en hægt er að ætlast til að gefin sé.“ Friðjón Ólafsson: Reglurnar á að semja í samráði við nemendur Friójón Ólafsson tók þaó rólega og spilaói borótennis við félaga sinn. Eft- ir leikinn var hann spuróur aó því hvort hann héldi að eins dags verkfall væri nóg til að tekið væri eftir þeirra skoóunum. „Já, ég held það sé nóg að hafa einn dag og taka það rólega eins og við gerum. Hér er rólegra en var í MH um daginn þar sem þeir mein- uðu kennurum aðgang. Eg er ekki mikið inni í þessum málum en þykir það helv... hart að reglunum sé skellt á, án þess að hafa nokkurt samráð við okkur." Hvort vildir þú heldur fá gefið i bókstöfum eða tölustöfum? „Ég myndi vilja fá gefið í bókstöf- um eins og verið hefur. Engin ástæða til að breyta því þó það skipti kannski ekki öllu máli. Jú, hér var einhugur um verkfallið." Og hver er krafan? „Semja reglurnar upp á nýtt í samráði við nemendur. Þeir eiga að hafa rétt á að leggja eitthvað til málanna. Reglurnar þitna þó mest á þeim.“ Hrönn Hákonsson og Freydís Kristjánsdóttir: jr „Agæt tilbreyting“ Hrönn llakonsson og Freydís Kristjánsdóttir sátu í salnum þar sem hljómleikunum var að Ijúka og nem- cndurnir voru aó tínast út. Þær voru teknar tali. „Þetta er ágæt tilbreyting svo- sem. Já, það er nóg að hafa einn dag til þessa." Haldið þið að það að sækja ekki kennslu í einn dag hafi einhver áhrif? „Ég veit ekki,“ sagði Hrönn, „en maður vonar það. Við erum helst súr yfir að ekkert tillit skuli hafa verið tekið til okkar nemenda við gerð þessara reglna." Hvort viljið þið fá gefið í bók- eða tölustöfum? „Ég myndi frekar vilja fá gefið í tölustöfum. Það er nákvæmara og sýnir betur hvernig nemandi stend- ur sig." En mætingaskyldan? „Á móti hertri mætingaskyldu," sagði Hrönn, en bætti svo við: „Ég segi nú kannski ekki að það væri ekki í lagi að herða mætingaskyld- una en það má segja að hér séu tveir hópar. Annar mætir vegna þess að hann hefur vit á að mæta en hinn þarf vissulega nokkurt aðhald." Jón Dofri Baldursson: „Sjálfsagt nemenda vera með Jón Dofri Baldursson var tekinn tali í Flensborg og hann spurður að því fyrst hvort hann hafi fylgst mikið með öllum þessum reglugerðarmálum. „Ég hef nú ekki,“ sagði Jón Dofri, „kynnt mér þetta nógu mikið, en mér þykir gott þegar allir fram- haldsskólar sýna svona samstöðu um sín málefni. Þetta er ekki leti í okkur heldur erum við að berjast fyrir okkar hagsmunamálum." Hvort vildir þú frekar fá í ein- kunn bókstafi eða tölustafi? „Frekar vildi ég fá gefið í bókstöf- um og hafa mætingakerfið óbreytt eins og það er.“ Heldur þú að verkfallið hafi ein- hver áhrif? „Maður bara vonar að það hafi einhver áhrif. Mér finnst það ekki nema sjálfsagt að fulltrúar okkar nemenda frá LMF fái að vera með í að fulltrúi fái að í ráðum“ ráðum þegar svona reglur eru samdar." Björk Gunnarsdóttir: „Þeir hlusta ekkert á það sem við segjumu Björk Gunnarsdóttir var aó því spuró hvernig henni litist á aó fclla nióur kennslu í einn dag. „Mér líst vel á það og gott að nota slík ráð. Nei, ég held að kallarnir í ráðuneytinu hlusti ekkert á það sem við segjum, en það má reyna. Ég held svei mér þá að þó við værum eitt ár í verkfalli, þá dygði það ekki til. í sjálfu sér er ekki verið að mót- mæla reglunum heldur hvernig var staðið að gerð þeirra. Þessir kallar eiga auðvitað að hafa samráð við okkur nemendurna." Hvort vildir þú frekar fá gefið í bókstöfum eða tölustöfum? „Ég myndi frekar vilja fá gefið í tölustöfum. Ég held að þá viti mað- ur betur hvernig maður stendur í náminu. Ef maður fær til dæmis C í einkunn þá getur það verið frá fjór- um upp í sex og maður veit ekki meir.“ Stolnar fjaðrir Eftir Birgi ísl. Gunnarsson alþm. Fyrir skömmu var haldinn blaðamannafundur á vegum borg- arstjórans í Reykjavík, þar sem greint var frá hagræðingarmálum hjá Reykjavíkurborg. Þar var greint frá ýmsum hagræðingar- verkefnum, sem unnið hefur verið að og hvaða árangri þau hafa skil- að. Allt er það gott og blessað og upplýsingar þær, sem gefnar voru á blaðamannafundinum voru yfir- leitt faglegar og réttar. Ekki staðið við stóru orðin Hins vegar bregður svo við, að fulltrúar og málgögn vinstri flokkanna í borgarstjórn láta að því liggja, að hér sé um að ræða sérstakan árangur af starfi vinstri flokkanna í borgarstjórn. Það eru “tolnar fjaðrir og vafa- laust settar fram til að breiða yf- ir, að ekki hefur verið staðið við ýmis stór orð, sem þeir hafi áður látið falla um þessi mikilvægu mál, eins og nú skal greint frá. Brautryðjendastarf Á þessum blaðamannafundi kom fram að Reykjavíkurborg hefði verið frumherji í hagræð- ingarmálum á íslandi. Það er laukrétt og eitt dæmi af mörgum um brautryðjendastarf sjálfstæð- ismanna í borgarstjórn Reykja- víkur. Hagsýsluskrifstofa Reykja- víkurborgar var stofnsett 1957 og hefur verkefni hennar verið að hafa vakandi auga á hinum fjöl- þætta rekstri borgarinnar og gera tillögur um bætt vinnubrögð, aukna hagkvæmni og sparnað. Forstöðumenn þessarar skrifstofu hafa verið þrír frá upphafi. Hag- sýslustjórarnir hafa verið Hjálm- ar Blöndal, Ásgeir Thoroddsen og Geir Thorsteinsson, allt hinir mætustu menn og áhugasamir í sínu starfi. Margvíslegar umbætur Hagsýsluskrifstofan hefur beitt sér fyrir margvíslegum umbótum á sínum starfstíma. Mörg þeirra voru rakin á blaðamannafundin- um. Einna mesta athygli vakti, hve mikið hefur áunnist varðandi sorphreinsun í borginni. Árið 1969, þegar nýtt fyrirkomulag var tekið upp, voru starfsmenn 114 með 18 bíla og þeir hreinsuðu 29.608 ílát. Arið 1980 voru starfsmenn 93 með 13 bíla og þeir hreinsuðu 43.260 ílát. Þessi slá- andi afkastaaukning starfsmann- anna kemur svo fram í hærra kaupi. Það kom og fram á blaða- mannafundinum, að grundvöllur mjög margra hagræðingarverk- efna hefði þegar verið lagður 1974 og 1976 með kjarasamningum, sem þá voru gerðir. Síðan voru tilgreind mörg hagræðingarverk- efni, bæði stór og smá og glöggt „I>að eru stolnar fjaðrir og vafalaust settar fram til að breiða yfir, að ekki hefur verið staðið við ýmis stór orð, sem þeir hafa áður lát- ið falla um þessi mikilvægu mál, eins og nú skal greint frá.“ er, að þau eru eðlilegt framhald þeirra verkefna, sem Hagsýslu- stofnunin hefur unnið að undir forystu þriggja ofangreindra hag- sýsiustjóra. Það er hinsvegar Ijóst að undir forystu vinstri meiri- hlutans hefur ekkert sérstakt átak verið gert í þessum efnum. Allt það hagræðingarstarf, sem gerð var grein fyrir á blaða- mannafundinum hvílir á þeim grunni, sem lagður var fyrr á ár- um. Sektarkennd meirihlutans En hversvegna finnur vinstri meirihlutinn sig nú knúinn til að láta halda blaðamannafund og leggja síðan út af honum á þann hátt, að nú loksins hafi verið tekið til hendi í hagræðingarmálum. Ástæðan er augljós. Það er sekt- arkennd. Þegar sjálfstæðismenn höfðu meirihluta í borgarstjórn, reyndu vinstri menn að telja borgarbúum trú urn að allt væri í vitleysu í rekstri borgarinnar. Þeir fluttu því ár eftir ár tillögur um „að láta gera heildarúttekt á öllum rekstri og öllu skipulagi í starfsemi borgarinnar". Til að framkvæma þetta átti að ráða utanaðkomandi aðila, erlenda eða innlenda, sem væru sérfræðingar í þessum efnum. Þetta var síðan tekið upp sem eitt af aðalatriðum í samstarfssamningi borgarinnar. Engin heildarúttekt Nú er rúmt hálft ár eftir af kjörtímabilinu og öllum er ljóst, að engin „heildarúttekt" hefur verið gerð á öllum rekstri og öllu skipulagi í rekstri borgarinnar. Allt hvílir á sama góða grunnin- um og áður, hagræðingarstarf- semin er í hefðbundnum farvegi og í aðalatriðum er stuðst við sömu sérfræðinga og áður. Við sjálfstæðismenn megum vel við una. Blaðamannafundur borgar- stjóra sannaði að hagræðingar- starfi var vel sinnt í okkar meiri- hlutatíð og öll stóru orðin um annað hafa reynst röng. Nei, svona lagað gengur ekki Eftir Halldór Blöndal alþingismann — Nei, svona lagað gengur ekki, sagði Stefán Valgeirsson og hvessti augun á auða ráðherra- stóla. Honum hitnaði svo í hamsi, þegar atvinnumálin bar á góma á dögunum. Og kannski engin furða. Enginn hefur verið duglegri en hann að heimta ráðherranefndir og enginn hefur verið duglegri en hann að ganga með kjósendum sínum að norðan milli ráðuneyt- anna í leit að úrlausn. En enga úrlausn var þar að finna. Hann fór í geitarhús að leita ullar. Frysti- húsið á Raufarhöfn er lokað, saumastofurnar eru lokaðar og iðnaðardeild SÍS heldur áfram að tapa milljón á mánuði eða svo. — Nei, svona lagað gengur ekki, sagði hann. Og hið sama segja for- svarsmenn fyrirtækjanna, sem nú er verið að loka, af því að þau fá ekki lengur fyrirgreiðslu í bönk- um. Gengisfelling eftir landsfund Þegar þessi orð eru skrifuð ligg- ur gengisfelling í loftinu. Mönnum hefur lengi verið ljóst, að útflutn- ingsatvinnuvegirnir í heild hafa verið reknir með halla og menn vita, að hið íslenzka þjóðfélag verður ekki rekið með þeim hætti. Svo háðir erum við útflutnings- verzluninni, að framfarir hér heima eru óhugsandi nema hún sé rekin með blóma. Á hinn bóginn hefur það tafið fyrir ríkisstjórn- inni að ráðast gegn vandanum, að hún gat ekki hugsað sér að gera það, fyrr en landsfundur Sjálf- stæðisflokksins væri afstaðinn. Nú er hann hins vegar um garð genginn. Þess vegna vænta menn þess, að gengisfelling sé á næsta leiti. Sú niðurtalning, sem síðustu kosningar unnust á, er fyrir löngu orðin að skopsögu. Að ekki sé tal- að um niðurfærsluleiðina, sem mest var talað um fyrir kosn- ingarnar 1978, þegar A-flokkarnir þóttust kunna öll ráð til þess að verðlag og tilkostnaður yrði lækk- aður stórlega, en kaupið stæði a.m.k. í stað. Sú saga er líka orðin að skopsögu. En þessar skopsögur báðar geta þó orðið gagnlegar, ef þær verða mönnum áminning um að gjalda varhug við múgmennsku og æsingum. Guðmundur J. Guð- mundsson er ekki lengur sá tröllslegi maður, sem hann var fyrir nokkrum misserum. Sjómenn sitja á hakanum Sjómenn verða að una því um hríð, að laun þeirra hækki ekki til jafns við aðra þegna í þjóðfélag- inu. Þetta er afleiðing af síðustu fiskverðsákvörðun og er nú enn einu sinni vegið í hinn sama kné- runn, sem aldrei hefur þótt giftu- merki. Ástæðan fyrir þessu er „Á hinn bóginn hefur þad tafið fyrir ríkisstjórn- inni aÓ ráðast gegn vand- anurn, að hún gat ekki hugsað sér að gera það, fyrr en landsfundur Sjálfstædis- flokksins væri afstaðinn. Nú er hann hins vegar um garð genginn. l*ess vegna vænta menn þess, að geng- isfelling sé á næsta leiti.“ augljós. Þótt þjóðfélagið standi og falli með sjávarútveginum, er þar ekki lengur neitt til skipta, heldur blasir hallareksturinn við í öllum greinum hans. Jónas Þorsteinsson, fyrrum tog- araskipstjóri á Akureyri, sem um mörg ár var í fararbroddi í Far- manna- og fiskimannasamband- inu og meðal annars formaður þess, hefur oft gert þessa öfug- þróun að umræðuefni okkar á milli. Hann hefur bent mér á, að miklu eðlilegra sé að fara öfugt að. Ákvörðun fiskverðs yrði fyrst í hringrásinni og síðan kæmi annað á eftir innan þess ramma, sem af- koma útgerðarinnar leyfði. Og vitaskuld er þetta rétt. Okkur get- ur ekki haldizt uppi til lengdar að taka ný og ný erlend lán til þess að standa undir rekstrarhalla út- flutningsatvinnuveganna. Það eig- ið fé, sem þar er nú, verður fljótt etið upp og afleiðingin getur ekki orðið önnur en sú, að styrkjakerfið verði tekið upp að nýju: Skattarnir verða hækkaðir, ríkið greiðir at- vinnuvegunum upp í hallann og erlendu lánin. Og skattarnir hækka 'enn, en lífskjörin versna. Þetta hefur hvarvetna orðið af- leiðing aukinna ríkisafskipta og ríkisforsjár. — Eða svo við tökum tvo menn á svipuðum aldri: Hvor ætli fari nær um þarfir og rekstur frystihússins ísbjarnarins, Gunn- ar Thoroddsen eða Ingvar Vil- hjálmsson? Sterkari rekstr- areiningar Ekki neita ég því, að það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart, þeg- ar rekstrarvandræði fyrirtækja eru til umfjöllunar hjá okkur al- þingismönnum, þegar fulltrúar vinstri flokkanna segja: En eigið fé fyrirtækisins er of lítið, — er ekki hægt að auka hlutaféð? I þessum orðum felst auðvitað viðurkenning á því, að heilbrigð- um rekstri verður ekki haldið uppi, nema fyrirtækin séu fjár- hagslega sjálfstæð og hafi bol- magn til að færa sér í nyt tækni- nýjungar eða laga sig að markaðs- aðstæðum. Steingrímur Her- mannsson viðurkenndi þetta sjón- armið á Alþingi um daginn, þegar hann talaði um, að Byggðasjóður ætti að veita sérstök lán með lág- um vöxtum til fyrirtækja, sem væru í mestri þörf til að laga eigin fjárstöðu sína. Honum skaust að vísu, þegar hann sagði, að ekki væri nauðs.vnlegt að endurnýja framleiðslutækin um sinn, heldur ætti að láta það sitja fyrir að full- nægja eftirspurninni eftir hallær- islánum. — Það er hlutverk ríkis- stjórnarinnar að skapa atvinnu- vegunum rekstrargrundvöll. Ef hún getur það ekki á hún að segja af sér. Lánasjóðum atvinnuveg- anna á að verja til uppbyggingar en ekki til að standa undir halla- rekstri (nema í sérstökum undan- tekningartilvikum, þar sem um sérstök vandamál, tímabundin, er við að stríða). Auðvitað er aðeins eitt ráð til að bæta rekstur fyrirtækjapna og gera þau að sterkari rekstrarein- ingum en þau hafa verið um sinn. Það verður að skapa þeim eðli- legan starfsgrundvöll og hvetja svo til þess með skattalegum að- leggja sparnað sinn í atvinnu- reksturinn. Með þeim hætti yrði öll uppbygging atvinnuveganna auðveldari en nú og lífskjör hér færu á ný batnandi, Stefndu óðfluga að því að verða sambæri- leg við það, sem bezt gerist erlend- is, eins og var á þeim tímum, þeg- ar áhrif Sjálfstæðisflokksins hafa verið mest í íslenzkum þjóðmál- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.