Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 Á kristniboðsári Spurt er: Er ekki skírnin eins í kirkjunni. Leyfist prestum að haga athöfninni eftir eigin höfði? Ég var við skírn á sunnudaginn og þá lásu afarnir úr biblíunni og faðirinn hélt um höfuð barnsins þegar faðirvorið var lesið.— íslcnska kirkjan tók nýja hand- bók í notkun á þcssu ári, kristni- boósárinu. t>ar kveður á um ad guófeðgin skuli gjarnan lesa upp- hátt þá texta úr Biblíunni sem liggja til grundvallar skírninni, vióstaddir taki meiri þátt en áóur hefur verió í athöfninni, til dæmis skuli foreldri en ekki presturinn leggja hönd á höfuð barns síns þegar lesin er bæn fyrir framtíó þess. Sú skírn sem bréfritari hefur verió vióstaddur, hefur augsýni- lega verið flutt samkvsmt nýju handbókinni. Form þeirrar athafnar fer hér á eftir svo að fólk geti áttaó sig á því og fylgst betur meó þegar þaó verður vióstatt skírn í framtíðinni. Heyrum ennfremur þessa frásögn: Menn færðu börn til Jesú, að henn snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það, sárnaði honum og hann mælti við þá: „Leyfið börn- unum að koma til mín og varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.“ Og hann tók börnin sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau. (Mark. 10. 13—16.) (Við skírn fullorðinna er í stað þessarar frásögu lesið Jóh. 3. 3-5): Jesús sagði við Nikódemus: laug endurfæðingarinnar. Tak það að þér og svo sem sonur þinn hefur sagt: „Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og mun fyrir yður upp lokið verða," svo gef þú þessu barni gjafir þínar og ljúk upp fyrir því dyrum náðar þinnar, svo að það megi hljóta eilífa blessun og inngöngu í ríki þitt, sem þú hefur heitið fyrir Drottin vorn Jesú Krist. Svar: Amen. b) Almáttugi faðir, skapari vor. Vér þökkum þér það undur sköp- unar þinnar, sem þú hefur leyft oss að reyna og sjá í þessu barni, ræðis í heilagri kirkju þinni fyrir heilagan anda þinn. Lát þetta barn og öll þín börn stöðug standa í þinni skírnarnáð og fá að lyktum að birtast fyrir augliti þínu í skírum skrúða réttlætis þíns í Kristi Jesú, Drottni vor- um. Svar: Amen. í beinu framhaldi biður prest- urinn þessarar bænar yfir skírn- arsánum: Hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina, eilifi Guð. Send anda þinn yfir þessa skírnarlaug svo sem í upphafi, er þú skapaðir Ijósið og lífið með orði þínu og andi þinn sveif yfir vötnunum. Hvernig á skírnar- athöfnin að vera ? Skírnin er sakramenti, heilög athöfn, sem Jesús sjálfur stofn- aói. Guð tek- ur barnið að sér í skírn- inni sem sitt barn. Veki lesturinn spurningar hjá les- andanum, mun þeim fúslega veróa svaraó á þessari síóu. (A kristni- boósári, c/o sr. Bernharður Guð- mundsson, Ritstjórn Morgun- blaðsins, Rvík.) Skírn Sama form er notað við skírn barna og fulltíða manna. Aður en barn er skírt, skal prestur ætíð gæta þess, að nafn þess sé skráð. Skírnarvatn skal vera hreint og helst ylvolgt. Guðfeðg- in eru að jafnaði þrjú. Þau skulu ekki vera fleiri en fimm. Ef for- eldrar koma með skírnarkerti handa barninu, má láta með- hjálpara tendra það, um leið og harnið er skírt. Réttir prestur- inn foreldrum eða guðfeðginum kertið að loknu ávarpinu (10. lið- ur) með þeim orðum, sem þar eru. Þegar skírt er við messu er skírt strax eftir lið 1, upphafs- bæn, eða milli pistils og guð- spjalls. Við skírn í heimahúsum má nota þetta form eða form fyrir skírnarguðsþjónustu. Söfn- uður situr, nema þar sem annað er tekið fram. Prestur og skírn- arfólk gangi samtímis að skírn- arsánum í upphafi skírnarsálms. 1. Sálmur Eftir upphafsbænina er sung- inn skírnarsálmur nr. 250, 251, 252, 254 eða 255. 2. Avarp Að loknum sálminum flytur presturinn eftirfarandi ávarp: Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfé- lag heilags anda sé með oss öll- um. Heilög ritning segir: Sjáið, hvílíkan kærleika Guð faðir hef- ur auðsýnt oss, að vér skulum kallast hans börn. Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists hefur elskað oss að fyrra bragði. Svo elskaði hann heiminn, að hann gaf einkason sinn, til þess að hver sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jesús Kristur er vegurinn, sannleikur- inn og lífið. Hann tekur oss að sér í heilagri skírn, að vér verð- um hans eign og börn vors himn- eska föður í eilífu ríki hans. 3. Ritningarlestur Presturinn: Heyrum nú vitnisburð Guðs orðs um heilaga skírn. Presturinn eða lesari (t.d. eitt guðfeðgina) segir: Jesús segir: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að læri- sveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með ður alla daga, allt til enda ver- aldar." I beinu framhaldi segir prest- urinn (eða annar lesari): „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann • fæðist að nýju.“ Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?“ Jes- ús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæð- ist af vatni og anda.“ 4. Skírnarbænir Presturinn: Látum oss biðja. (Eóa: Biðj- um.) Beðið er einnar eftirfarandi bænar: a) Almáttugi, eilífi Guð, faðir Drottins vors Jesú Krists, vér áköllum þig fyrir þetta barn og biðjum þig að veita því skírn- argjöf þína, hina eilífu náð fyrir ............. — . ! ■ ■ ■ þá dýrmætu gjöf, sem þú auðgar oss með og það traust sem þú sýnir oss. Veit hjörtum vorum og höndum hlýju og alúð, styrk og festu, að vér getum annast það vel og miðlað því af kærleika þínum. Vér færum þér það í trausti til fyrirheita þinna og biðjum: Veit því fyrirheit skírn- arinnar. Gef því heilagan anda, að hann veki og glæði allt gott, sem þú hefur fólgið í sálu þess. Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Svar: Amen. c) Almáttugi Guð, eilífi faðir. Veit þessu barni blessun þína og eilífa lífgjöf við þessa skírnar- laug, sem helgast af orði þínu og fyrirheitum. Lauga það lífsins vatni, að sála þess verði skír, fæðist að nýju til lífs í þér, íklæðist Kristi og dafni til hjálp- Fyrir Jesú Krist sé þér heilagi faðir, + í einingu heilags anda, heiður og dýrð um aldir alda.* Svar: Amen. *Við þessi orð geri presturinn krossmark yfir vatninu. 5. Trúarjátning Söfnuðurinn standi. Presturinn: Lofaður sé Guð og faðir Drott- ins vors Jesú Krists, sem eftir miskunn sinni vill endurfæða þetta barn til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum. Játum öll saman trúna, sem vér kristnir menn erum skírðir til. Allir: Ég trúi á Guð, föður almáttug- an, skapara himins og jarðar. Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, sit- ur við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða. Ég trúi á heilagan anda, heilaga al- menna kirkju, samfélag heil- agra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf. Amen. Signing Söfnuður standi. Þá mælir presturinn: Drottinn varðveiti inngöngu þína og útgöngu héðan í frá og að eilífu. Siðan gerir presturinn kross- mark á enni og brjóst hverju barni, um leið og hann mælir: Meðtak þú tákn hins heilaga kross bæði á enni + þitt og brjóst + til vitnisburðar um, að hugur þinn og hjarta á að helgast fyrir trúna á hinn krossfesta og upp- risna Drottin Jesú Krist. 7. Skírnarspurning Söfnuður standi. Presturinn: Hvað á barnið að heita? Eóa: Hvert er nafn barnsins? Svar: N Presturinn leggur hönd á höf- uð barninu og biður: Drottinn Guð, faðir vor, þú kallar oss með nafni og gleymir oss aldrei. Rita þú nafn þessa barns, N, í lífsins bók og lát hann/hana aldrei villast frá þér. 8. Skírnin Söfnuður standi. Þá eys presturinn barnið vatni þrem sinnum, um leið og hann segir: N, ég skíri þig í nafni föður, sonar og heilags anda. Þá leggur presturinn hönd á höfuð barninu og mælir: Almáttugur Guð, faðir Drott- ins vors Jesú Krists, sem nú hef- ur endurfætt þig fyrir vatn og heilagan anda, tekið þig í ríki síns elskaða sonar, þar sem er fyrirgefning syndanna, líf og sáluhjálp — hann styrki þig með náð sinni til eilífs lífs. Friður sé með þér. Foreldrar og guðfeðgin svara: Amen. Eða: Almáttugur Guð, faðir Drottins vors Jesú Krists styrki þig með náð sinni til eilífs lífs. Friður sé með þér. Svar: Amen. Eða: Almáttugur Guð, faðir Drottins vors Jesú Krists, sem nú hefur með skirninni tekið þig í samfélag sonar síns, þar sem er fyrirgefning syndanna, líf og sáluhjálp — hann styrki þig með náð sinni til eilífs lífs. Friður sé með þér. Svar: Amen. 9. Fyrirbæn Þegar barnið hefur verið skírt, segir presturinn: Biðjum öll saman fyrir barn- inu bænina sem Drottinn hefur kennt oss. Foreldri eða guðfeðgin geta lagt hönd yfir höfuð barni sínu. Allir: Faðir vor, þú sem ert á himn- um. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunaut- um. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrð- in að eilífu. Amen. Presturinn: Blessun almáttugs guðs + föð- ur og sonar og heilags anda sé með þér. Svar: Amen. Presturinn: Góð systkin. Þér eruð vottar þess, að þetta barn er nú skírt í nafni föður, sonar og heilags anda. Með því er lögð sú ábyrgð á yður, ástvini þess, að ala það upp í ljósi fyrirheitis skírnarinn- ar, kenna því að elska Guð, til- biðja hann, varðveita orð hans og sakramenti og þjóna náung- anum í kærleika. Guð veiti yður til þess náð sína. Amen. Éf barninu er gefið kerti, skal prestur rétta það með þessum orðum (er lokasetningu ávarps- ins: „Guð veiti yður til þess náð sína. Amen.“ þá sleppt): Takið við þessu ljósi. Það sé yður til merkis um hið nýja líf, sem barnið hefur nú fæðst til við þessa skírnarlaug. Jesús segir: „Ég er Ijós heimsins, hver sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur hafa ljós lífs- ins.“ Og um oss segir hann: „Þér eruð ljós heimsins. Þannig lýsi ljós yðar mönnunum, til þess að þeir sjái góðverk yðar og veg- sami föður yðar, sem er í himn- unum.“ Lát/ð Ijósið minna yður á þetta. Kveikið á því, er þér biðjið með eða fyrir barninu og hvenær sem þér hafið tilefni til fyrir- bænar eða þakkargjörðar. Guð veiti yður náð sína. Amen. Þá er sunginn skírnarsálmur eða annar sálmur (t.d. nr. 26).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.