Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
19
Osló Kammerorkester
heldur tónleika hér
UM HELGINA mun Oslo Kammerorkester koma til Reykjavíkur til
tónleikahalds. Munu þeir halda tvenna tónleika, hina fyrri í Bústaða-
kirkju sunnudaginn 8. nóv. kl. 20.30 og hina síðari í Norræna húsinu
mánudaginn 9. nóv. kl. 20.30.
Á tónleikunum í Bústaðakirkju
mun Oslo Kammerorkester leika
Brandenborgarkonsert nr. 3 og
konsert fyrir tvær fiðlur og kamm-
ersveit eftir Baeh, fiðlukonsert eft-
ir Tartini með Ivar Bremer Hauge
sem einleikara, Hugleiðingu um
sálmalag frá Luster eftir ungt
norskt tónskáld, Magnar Ám.
Einnig mun norski strengjakvart-
ettinn, sem skipaður er hljóðfæra-
leikurum úr Oslo Kammerorkester
leika Adagio og fúgu eftir Mozart.
Á tónleikunum í Norræna hús-
inu mun Oslo Kammerorkester
leika eitt tónverk frá hverju Norð-
urlandanna. íslenska verkið á efn-
isskránni verður „Sjöstrengjaljóð"
eftir Jón Ásgeirsson. Önnur verk
verða „Diafora" eftir danska
' tónskáldið Vagn Holmboe, sem
samið er fyrir sveitina, Adagio úr
leikhústónlist nr. 1 eftir sænska
tónskáldið Karl-Birger Blomdahl,
Sónata fyrir einleiksfiðlu eftir
Antonio Bibalo, sem ættaður er frá
Ítalíu en er norskur ríkisborgari.
Sónatan er tileinkuð Ivar Bremer
Hauge, sem mun leika hana á tón-
leikunum. Enn fremur Rómansa í
C-dúr eftir Jean Sibelius og „Mell-
om speil“ eftir norska tónskáldið
Sigurd Berge, sem hann samdi
fyrir Oslo Kammerorkester og
konsertmeistara hennar, Örnulf
Boye Hansen, í tilefni 20 ára af-
mælis sveitarinnar.
Oslo Kammerorkester var stofn-
uð árið 1957. Hún heldur árlega
fjölda tónleika, flesta í Oslo og
nágrenni. Hún hefur oft komið
fram á listahátíðum í Noregi og
hefur farið í tónleikaferðir til allra
Norðurlandanna og til Sviss. Oslo
Kammerorkester hefur ætíð haft
það markmið að fá þá sem hafa
tónlist að atvinnu, þá sem stunda
tónlistarnám, og þá sem spila sér
til ánægju til að vinna saman að
flutningi góðrar kammertónlistar,
nýrrar og gamallar. Frá stofnun
sveitarinnar hafa um 125 ungir
tónlistarmenn leikið með henni í
lengri eða skemmri tíma.
Á tónleikunum í Reykjavík
munu 15 hljóðfæraleikarar koma
fram.
Kammersveit Reykjavíkur hefur
séð um undirbúning fyrir komu
sveitarinnar hingað.
s\aönvJ^
a x'su.
INNIMARKADINN
Veltusundi
Gegnt Bifreiöastöö Steindórs
DAG kl. 9.
Bjóðum opnunartilboð á öllum vörum, afslátt af innkaupum
að 500 kr. - 10%
frá 500 kr. - 15%
frá 750 kr. - 20%
25,00 kr.
og fl. og fl.
TOPS-skór m.a. leðurskór á ca.
STÚDÍÓ-tísku vörur
Sjómenn og verkafólk ath.:
nú fáið þiö Ö^ÍÍJIV
allan hlífðarfatnað, frá sEvIyIAa í miöbænum, einnig vaöstígvél frá Trstom.
Handofin portúgölsk veggteppi — gólfteppi — mottur og fl.
Sími: 21212