Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 33 „Tappatog“ í Hafnarbíói í DAG kl. 17 efnir hljómsveitin Tappi tíkarrass til „Tappatogs" í Ilafnarbíói. Auk hennar kemur fram við þetta tækifæri hljómsveitin Jonee-Jonee. Sigurður Eyþórsson sýnir í Djúpinu LAUGARDAGINN 7. nóv- ember kl. 3 opnar Sigurð- ur Eyþórsson sýningu á málverkum, teikningum og grafikmyndum, rúm- iega 20 ad tölu, í Gallerí Djúpinu, Hafnarstræti 15. Myndirnar eru allar gerÖar með blandaðri tækni. Sigurður mun mála mynd í olíu og egg tempera á meðan á sýn- ingunni stendur, sem síðan verður til sölu er sýningunni lýkur 3. des- ember. Flestar myndirn- ar eru til sölu. Aðgangur er ókeypis. Colin Porter endurkjörinn formaður Anglfu AÐALFUNDUR fólags Anglia var haldinn miðvikudaginn 28. október sl. í veitingahúsinu „Torfan“, Amt- mannsstíg 1. Fundarstjóri var Sölvi Eysteinsson. Colin Porter var einróma endurkjörinn formaður félagsins. Á síðastliðnu starfsári hefur Anglia gengist fyrir enskukennslu (talæfingum). Ennfremur hefur verið haldin jólatrésskemmtun og dansleikir hafa verið yfir vetrar- mánuðina. Gestur félagsins á 60 ára afmælinu í febrúar 1981 var Baines skipstjóri úr „Onedin“-sjónvarps- þáttunum. Menningarsjóður félagsins var stofnaður í nóvember, 1980 og var í fyrsta sinn veitt úr sjóðnum í maí sl. í stjórn sjóðsins eru: Sylvia Briem, Alan Boucher og Heimir Ás- kelsson. Lambadrengur Páls H. Jóns- sonar komin út IIT EK komin á vegum Iðunnar ný saga handa börnum eftir l’ál H. Jónsson. Nefnist hún Lambadrengur og er þriðja barnabók höfundar. Fyrri sögur hans, Berjabítur og Agnarögn, hlutu báðar verðlaun fræðsluráðs Reykjavíkurborgar sem veitt eru bestu frumsaminni barnabók hvers árs. — Auk þessara bóka hefur Páll H. Jónsson gefið út tvær Ijóðabækur, leikrit og ævisög- ur, auk þess sem hann er kunnur fyrir tónlistarstörf og hefur samið sönglög. Um efni þessarar nýju bókar, Lambadrengs segir svo í kynningu forlagsins: „Hér leitar höfundur í sjóð minninganna og bregður upp heillandi myndum úr lífi sveita- drengs á þeim árum sem enn var fært frá og þurfti að sitja yfir ánum sumarlangt. Sagan lýsir samlífi drengsins með fólki, dýrum og gróðri, segir frá því hvernig hann vaknar til vitundar um hið auðuga og margbreytilega líf sem landið el- ur.“ Lambadrengur er í sextán köfl- um, auk inngangs- og lokaorða. Teikningar og kápumynd gerði Sig- rid Valtingojer. Prentrún prentaði. Bókin er 122 bls. Þessa helgi í Blómaval: Undraheimur þurrkaöra blóma Komið í Blómaval um helgina og skoðið ótrúlegt úrval af þurrkuðum blómum. Ótal tegundum er spilað saman og mynda ævintýralegar skreytingar. Sýnikennsla verður í þurrblómaskreytingum í dag kl. 2-6. Leiðbeinandi er Birgit Weber. Skreytingaverkstæðið verður í gangi þar sem unnið er að gerð blómaskreytinga úr þurrkuðum blómum. KOSTA BODA Sérstök sýning verður á borðskreytingum úr lifandi blómum og borðbúnaði frá Kosta Boda, Bankastræti. Sýnikennsla verður í gerð borðskreytinga í dag kl. 2-6. Komið í Blómaval, - falleg blóm gleðja alla. Opið til kl. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.