Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
15
Foreldrasamtökum vangefinna
synjað um norrænan útgáfustyrk
FORELDRASAMTÖK vangefinna á
Norðurlöndunum hafa samtök sín á
milli sem nefnast Norræna sam-
vinnuráðið.
Landssamtökin Þroska-
hjálp eru aðili að samtökum þessum
af hálfu íslands. Samvinnuráðið hélt
nýverið fund í Svíþjóð. Undanfarin
tvö ár hefur Samvinnuráðið starfað
að því að sjá um fræðslu aðstand-
enda vangefinna á Norðurlöndunum,
sem ekki tala mál þess lands sem
þeir búa í.
Fyrsta verkefnið var að þýða og
gefa út tvo bæklinga um börn með
Downs syndrom (mongoloid) fyrir
Sama, sem búsettir eru í Finn-
landi, Svíþjóð og Noregi. Sam-
vinnuráðið hefur áformað að gefa
út fleiri rit fyrir aðra minnihluta-
hópa á Norðurlöndum, innflytj-
endurna.
Foreldrasamtökin töldu að það
væri nánast formsatriði þegar
sækja ætti um styrk til slíkra
verkefna hjá Norræna menning-
arsjóðnum.
Hinni hógværu umsókn um
25.000 kr. styrk var hafnað.
Ekki ætlum við að geta þess hér
hvaða verkefni Norræni menning-
arsjóðurinn taldi styrkhæf og tók
framyfir samnorrænt verkefni
fyrir minnihlutahóp, sem er vanur
því að vera ýtt til hliðar, þ.e. fjöl-
skyldur með vangefin börn á fram-
færi. Þetta er dapurleg staðreynd,
ekki síst þegar haft er í huga að
brátt dregur að lokum árs fatl-
aðra.
Foreldrasamtökin biðja hina
pólitísku fulltrúa landanna, sem
standa að Norræna menningar-
sjóðnum að athuga þá styrki sem
veittir voru, og bera þá saman við
þá umsókn, er hér um ræðir og
sem var hafnað.
Sagt er að menning þjóðar
endurspeglist í kjörum þeirra sem
minnst mega sín. Norræna sam-
vinnuráðið telur, að út frá þessum
forsendum sé full ástæða til að
draga í efa gildi Norræna menn-
ingarsjóðsins.
(Fréttatilkynning.)
„Konur og kosningar“
KVENRÉTTINDAFÉLAG fslands gengst fyrir ráðstefnu undir heitinu „Konur
og kosningar" að Hótel Esju, 23. nóvember nk. og er hún framhald sveitar
stjórnarráðstefnu félagsins í október í fyrra.
Eitt af því, sem rætt var þá, var
smár hlutur kvenna í sveitarstjórn-
um hér á landi, en þær eru nú 6,1%
og hvort grípa þyrfti til þess ráðs
að bjóða fram sérlista kvenna í
nafni flokkanna til að fjölga konum
í sveitarstjórnum. Þeirri hugmynd
var ekki hafnað þá og verður vænt-
anlega framhald á þeirri umræðu
nú.
Ennfremur verður varpað fram
spurningunum: Hvaða leiðir eru
færar til áhrifa á vettvangi þjóð-
mála? Hvernig geta þverpólitísk
samtök eins og KRFÍ stuðlað að
auknum framgangi kvenna á opin-
berum vettvangi?
Framsögumenn verða frá stjórn-
málaflokkunum, úr atvinnulífinu og
fjölmiðlamenn. Ráðstefnan er opin
öllu áhugafólki um þessi mál, en
konum sem eiga sæti í sveitar-
stjórnum og á Alþingi er sérstak-
lega boðið, ásamt fulltrúum stjórn-
málaflokka og samtaka aðila vinnu-
markaðarins. Upphaflega var
áformað að halda ráðstefnuna í
þessum mánuði, en verður eins og
fyrr segir 23. nóvember og hefst kl.
17.00 að Hótel Esju.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
OPIO
í STARMÝRl
fráki9~4
„ Svína AÐEINS
hryggur
25 Stórir
NAUTA hamborgarar í pakka
\ QC Pakkinn ^,80
JL Js •"" / pr. stk.
Kíndahakk Unghænur
kr\ddaðir
og tilbúnir
AÐEINS
pr.
42.00
Leyft verð
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2
Það er í dag
Sigga Nanna Kristín
hárgr.meistari hágr.sveinn hárgr.meistari
sem við opnum nýju stofuna okkar og við erum auð-
vitað með fyrsta flokks þjónustu og klippum dömur og
herra og að sjálfsögðu börnin.
Við vinnum úr heimsþekktum merkjum s.s.
WFUA
LOREAL
vMIHl-fA-wcá
f
STHWARZKOPF
Kíktu inn hjá okkur, þú verður ekki svikin(n) af
því.
Hárgreiðslustofa
Siggu Finnbjörns,
Engihjalla 8, Kópavogi, hús Kaupgarös,
sími 44645.
N
V
gagnageymslukerfi
fyrirtölvunotendur
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMULA 38.105 REYKJAVIK.
SiMI 85455. RO. BOX 272.
CDRDELL
örfilmuskoðarar
V.
SKRIFSTOFUTÆKNI HF.
ARMULA, 38.105 REYKJAVIK.
SiMI 85455. PO. BOX 272.
y