Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 251. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Héðan í frá verður Rússum ekki treyst“ Sænskur bátur fylgir rússn- eska kafbátnum út úr sænskri landhelgi í gærmorg- un eftir að honum hafði verið leyft að halda leiðar sinnar. Hann er búinn tundurskeyt- um með kjarnahleðslum, sem hver um sig er jafn stór þeirri sem eyddi Hiroshima. Al*-símamynd. Gífurleg reiði ríkir í Svíþjóð - kjarnorkusprengjan álíka stór og sú sem eyddi Hiroshima Stokkhólmi, 6. nóvember. Al*. „HÉÐAN í FRÁ verður Rússum ekki treyst," sagði í Stokkhólmsblaðinu Svenska Daghladet í morgun, í sama mund og rússneski kafbáturinn var dreginn á ilot og leyft að halda til móts við flota rússneskra herskipa, sem beið hans fyrir utan sænska skerjagarðinn. Hneykslun, reiði og fyrirlitning eru þær tilfinningar, sem bærast í brjóstum Svía um þessar mundir og víða hefur verið efnt til mótmæla við sendiráðsskrifstofur Sovétmanna. Fjölmennur útifundur var haldinn í Stokkhólmi í dag og þar krafðist Olof Palme, leiðtogi jafnaðarmanna og stjórnarandstöðunnar, að Sovét- menn færu umsvifalaust á brott úr Eystrasalti með öll skip, sem búin væru kjarnorkuvopnum, eða úr „Hafi friðarins" eins og það heitir í þeirra máli. „Ef Sovétmenn vilja vera einhvers trausts verðir, eiga þeir ekki um annað að velja," sagði hann. I Kaupmannahöfn var einnig efnt til mótmæla fyrir framan sov- éska sendiráðið. Svíar eru ekki allir á einu máli um að stjórnin hafi haldið rétt á málun- um hvað varðar kafbátinn, einkum eftir að upp komst, að hann hafði kjarnorkuvopn innanborðs. „Með- höndlun stjórnarinnar er hreinasta hneyksli. Hún hefði átt að vera ákveðnari strax og sleppa ekki bátn- um. Hvers vegna var ekki sagt frá því fyrr, að það væru kjarnorkuvopn um borð? Sænska þjóðin er í upp- námi yfir því og Eystrasaltið er svo sannarlega ekkert „Friðarins haf“,“ sagði Stig Nilsson, 53 ára gamall bakari frá Gautaborg. „Þegar Rúss- ar eru annars vegar kemur mér ekk- ert á óvart. Þeir fara sínu fram án nokkurs tillits til annarra þjóða," var haft eftir Jörgen Carlsson, námsmanni í Karlskrona. Anker Jörgensen, forsætisráð- herra Dana, sagði í dag, að kafbáts- málið sýndi, að lítt væri treystandi orðum Sovétmanna, nú þegar fyrir dyrum stæðu viðræður um takmörk- un kjarnorkuvopna í Evrópu. „Það gerir líka að engu allt tal þeirra um Eystrasaltið sem „Haf friðarins“,“ sagði hann. í Noregi hafa orðið mikl- ar umræður þetta mál og eftir hátt- settum mönnum í norska hernum er haft, að nú sé víst, að rússneskir kafbátar, sem oft hefur verið elst við i norsku fjörðunum, séu einnig búnir kjarnorkuvopnum. „Friðarhreyfíngin gegn NATO er dauð“ - segir Henning Christopherson, formaður Venstreflokksins Thorbjörn Fálldin, forsætisráðherra Svía, skýrir frá því á blaðamannafundi, sem efnt var til í sænsku þinghöllinni í fyrrakvöld, að rússneski kafbáturinn hafi haft innanbnrðs kjarnorkusprengju álíka öfluga þeirri, sem lagði Hiroshima í rúst í síðustu heimsstyrjöld. Honum til hægri handar er Ola Ullsten, utanríkisráðherra. Al’-símamynd. kaupmannahófn, G. nóv. Al' „HIN svokallaða friðarhreyfing gegn NATO er dauð,“ sagði Henning ('hrist- opherson, formaður Venstre flokksins danska, í dag en í Danmörku fer nú fram mikil umræða um njósnamálið þar í landi og kafbátsmálið í Svfþjóð. Þykir nú mörgum sem tími sé til kom- inn að endurskoða afstöðu norrænna þjóða til yfirlýsinga og friðarhjals Sov- étmanna og gjalda varhug við því, sem frá þeim kemur. Aðeins viku eftir að sovéskur kafbátur búinn kjarnorkuvopnum var kominn upp á sænskt land skýrðu dönsk stjórnvöld frá því, að öðrum sendiráðsritara sovéska sendiráðsins í Kaupmannahöfn hefði verið vísað úr landi fyrir njósnir og þekktur danskur rithöfundur og friðarhreyfingarmaður handtekinn fyrir sömu sakir. Honum er einnig borið það á brýn að hafa haft um það milligöngu fyrir sovéska sendiráðið Er norska fridarhreyfíng- in einnig kostuð af Rússum? brottrekstur Merkoulovs, því að það hafi gefið honum færi á að fela öll tengsl sín við Tsjebotok. í Noregi er fullyrt, að friðar- hreyfingin þar í landi og baráttu- samtök gegn kjarnorkuvopnum séu fjármögnuð af Rússum. Sagt er, að þar sé sá háttur hafður á, að ýmis inn- og útflutningsfyrirtæki, sem Rússar reka í Noregi, hafi milli- gönguna en ekki sendiráðsmaður eins og í Danmörku. Osló, 6. nóvember. Krá fréltarilara Mbl. NJÓSNAMÁLIÐ í Danmörku, brottrekstur KGB-mannsins og handtaka frið- arhreyfingarmannsins Arne Herlöv Petersens, teygir anga sína einnig til Noregs en í sovéska sendirádinu í Osló er fyrsti sendiráðsritarinn einnig grunaður um njósnir. Hann gegndi áður störfum annars sendiráðsritara í sovéska sendiráðinu í Kaupmannahöfn og er talinn nokkurs konar lærifaðir Merkoulovs, sem vísað var frá Danmörku. Tsjebotok, fyrsti sendiráðsritari sovéska sendiráðsins í Osló, er tíð- ur gestur í norska Stórþinginu og þó að norsku leyniþjónustunni líki ekki hve dælt hann gerir sér við norska stjórnmálamenn, hefur enn ekki fundist næg ástæða til að vísa honum á brott þaðan. í norskum og dönskum blöðum kemur það fram í dag, að norskir leyniþjónustumenn séu reiðir Dönum fyrir að hafa ekki látið þá vita um fyrirhugaðan að greiða ýmsan kostnað fyrir dönsku friðarhreyfinguna. Anker Jorgensen, forsætisráð- herra, sagði í dag, að kafbátsmálið í Svíþjóð sýndi, að ekkert væri að marka lengur orð Sovétmanna um Eystrasaltið sem „Haf friðarins" og ýmsir hafa látið þau orð falla, að þessi tvö mál, kafbátsmálið og njósnamálið, gerðu það að verkum, að friðarhreyfingin, sem aðallega beinir spjótum sínum að Atlants- hafsbandalaginu, standi nú uppi berskjölduð sem handbendi Sovét- manna Sjá nánar á bls. 22. Samstarfsráð Ira og Breta London, 6. nóv. Al\ MARGARET Thatrher, forsætisráðherra Bretlands, og Garret Fitzgerald, forsæt- isráðherra Irlands, ákváðu á fundi, sem þau áttu með sér í dag í London, að koma á fót samstarfsráði beggja ríkisstjórnanna og sem einnig yrði skipað stjórnmála- leiðtogum af Norðurírlandi til að reyna að finna lausn á vandamálum Norður Irlands. Garret Fitzgerald, forsætisráð- herra Irlands, átti hugmyndina um þetta samstarfsráð en með þvi bind- ur hann vonir sínar við, að mótmæl- endur á Norður-írlandi fáist til að taka þátt í viðræðum um hugsanlega sameiningu írsku ríkjanna. Viðbúið er þó, að sú hugmynd hans eigi erfitt uppdráttar og þeir öfgafyllstu meðal mótmælenda hafa hótað uppreisn á Norður-írlandi ef Bretar hyggist „selja“ þa. Ian Paisley, einn helsti leiðtogi n-írskra mótmælenda, afhenti í morgun Margaret Thatcher bréf þar sem hann varaði við öllum tilraun- um til að sameina írsku ríkin. Hann sagði við fréttamenn, að mótmæl- endur væru þess fullkomlega um- komnir að sýna andúð sína á því í verki. Þegar hann var spurður hvað hann ætti við með því, sagði hann: „Bíðið og sjáið." Korchnoi vann Morano, 6. nóvembor. Al\ VIKTOR Korchnoi vann sinn ann- an sigur í einvíginu um heims- meistaratitilinn í dag þegar gaf 13. skákina, sem fór í bið í gær, án þess að tefla hana frekar. Staðan er nú þannig, að Karpov hefur fjóra vinninga en Korchnoi tvo. Skákskýrendur sögðu í gær, að Korchnoi væri með miklu betri stöðu eða jafnvel unnið tafl þeg- ar skákin fór í bið. Þá hafði Karpov misst drottninguna fyrir hrók. 14. skákin á að hefjast á morg- un, laugardag, en margir búast við því að Karpov biðji um frest vegnr. ófaranna í þeirri 13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.